Morgunblaðið - 17.03.2002, Page 52
DAGBÓK
52 SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Hver var
tilgangurinn?
ÉG veit ekki hvers vegna
verið var að leyfa dæmdum
morðingja að tjá sig fyrir
hönd annarra fanga á Litla-
Hrauni í þættinum Ísland í
bítið. Hver var tilgangur
þess? Eru þessir fangar að
biðja þjóðina að vorkenna
sér. Ég get ekki skilið þetta
öðruvísi en að þeir hefðu
það allir svo slæmt. En því
er verr og miður, ég held að
þeir hafi það mjög gott
miðað við aðstæður – á okk-
ar kostnað. Gera þeir sér
ekki grein fyrir því af
hverju þeir eru þarna inni?
Það á ekki að vera nein
sæla að sitja í fangelsi.
Morðingi sem tekur líf ann-
arra, á hann sér einhvern
tilverurétt? Spyr sá sem
ekki veit. Nei, það er ekki
til neins að vera að vor-
kenna glæpamönnum. Þeir
eiga að vera inni sem
lengst. Mín skoðun er að
morðingjar Íslandi fái allt
of væga dóma.
Skattgreiðandi.
Frábær þjónusta
ÉG ætlaði að gera bollur
fyrir fermingarveislu úr
dufti sem ég hef séð selt í
verslunum fyrir bolludag-
inn en komst þá að því að
það er eingöngu selt fyrir
bolludaginn. Fór að kanna
þetta því ég fékk hvergi
duftið. Hringdi ég norður í
fyrirtækið sem framleiðir
þetta, F61, og fékk þá að
vita að vegna plássleysis í
búðunum er duftið ein-
göngu haft í hillum versl-
ana fyrir bolludaginn. Þeir
þarna fyrir norðan voru svo
liðlegir að þeir sendu mér
vöruna og var hún komin
inn á borð til mín innan
tveggja sólarhringa.
Vil ég senda þeim þakk-
læti mitt fyrir frábæra
þjónusta.
Thelma Másdóttir.
Frábær þáttur
MIG langar til þess að
þakka Huldu Jensdóttur og
Guðmundi Erni fyrir frá-
bæran þátt um fóstureyð-
ingar á sjónvarpsstöðinni
Omega fyrir stuttu. Þetta
eru löngu töluð orð í tíma
og það sem snart mig mest
voru lýsingar læknisins á
hvernig framkvæmdar eru
fóstureyðingar – búkurinn
fyrst – höfuðið síðan.
Eru þetta ekki lifandi
verur?
Hve margir eru hér á
landi sem þrá börn og að
geta eignast þau en geta
ekki – en eru tilbúnir til að
ættleiða börn og gefa þeim
sína ást og hlýju?
Á öllum sviðum er málið
greinilega sárt en ég vil
þakka Huldu og Omega
fyrir að þora þegar aðrir
þegja því að líf er líf og það
verður aldrei bætt eftir að
það er tekið.
Matthildur.
Skýringa óskað
ÉG þakka Kristjáni Árna-
syni, flugmanni og flug-
vélaverkfræðingi, fyrir at-
hugasemdir hans við
aðalskipulag höfuðborgar-
svæðisins sem birtist í
Morgunblaðinu 2. mars sl.
Þar bendir hann á ýmis
mikilvæg atriði í sambandi
við flugvallarmálin. Greinin
er auðskilin en mig langar
samt að biðja höfundinn að
skýra nánar eftirfarandi
klausu sem hann ritar í 15.
tölulið:
„Um staðsetningu flug-
valla má læra af reynslu
Breta, Dana og Þjóðverja
og af mistökum Svía og
Norðmanna.“
Einn áhugasamur.
Tapað/fundið
GSM-sími týnist
NOKIA 3310 GSM-sími,
eldri gerð, týndist föstu-
daginn 8. mars á Spotlight.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 823 6622.
Slæða týndist
SLÆÐA með sebra-
mynstri og kögri týndist á
leiðinni frá Stórhöfða niður
í sundhöll Ryekjavíkur sl.
mánudag. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
567 9600. Gulli.
Nokia týndist
NOKIA GSM-sími, svartur
á lit, týndist. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
564 4112.
Dýrahald
Grá kanína týndist
KANÍNA, grá, týndist frá
Skipasundi 66 sl. þriðju-
dag. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband
í síma 568 0227.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
NOKKURS konar helgistund hefsthjá Víkverja daglega kl. 14.03
um þessar mundir. Þá hefst útvarps-
sagan á Rás 1 í ríkisútvarpinu þar sem
Halldór Kiljan Laxness les Brekku-
kotsannál, upptöku frá 1963. Nóbels-
skáldið hóf lesturinn á þriðjudaginn
var og verður á öldum ljósvakans á
hverjum virkum degi fram á vorið.
Víkverji getur ekki annað en mælt
með upplestri meistarans; bæði er
bókin frábær og lesturinn undursam-
legur, þar sem skáldið lifir sig vel inn í
verkefnið: „Þá segi ég: Af hverju seg-
ir klukkan alltaf ei-líbbð ei-líbbð ei-
líbbð.“
Víkverji á kassettu sem hann hlust-
ar oft á, með hluta upplesturs Kiljans
af Brekkukotsannál frá því um miðj-
an áttunda áratuginn.
Kærir bræður ha
hestar og fransmenn
hjólreiðamenn og lóðahundar
lestamenn og kettir!
Þegar konferensráðið kemur, –
það er nefnilega það!
Þrjátíu vertíðir á sjó.
sá sem rær hjá Gúðmúnsen þarf herskip.
Já, Nóbelsskáldið fer sannarlega á
kostum í þeim lestri. Víkverji hlakkar
til að heyra meira.
x x x
HEIMASÍÐA um annan eftir-minnilegan rithöfund, Þórberg
Þórðarson, var opnuð á Netinu í vik-
unni, á fæðingardegi rithöfundarins,
en hann fæddist 12. mars 1888. Vef-
urinn er tileinkaður ævi og störfum
Þórbergs.
Á forsíðu vefjarins segir: „Opnun
vefjarins markar upphaf samstarfs
Galdurs ehf., Menningarmiðstöðvar
Hornafjarðar og áhugahóps um
stofnun Þórbergsseturs.
Markmiðið er að safna saman fjöl-
breyttu efni um Þórberg Þórðarson
og gera aðgengilegt á vefnum. Vef-
urinn er ætlaður öllu áhugafólki um
Þórberg; fræðimönnum, nemendum
allra skólastiga og unnendum ís-
lenskrar tungu.
Thorbergur.is verður alhliða upp-
lýsinga- og fræðsluvefur um Þórberg
Þórðarson og hér verður að finna
upplýsingar um ævi og störf Þór-
bergs, ritgerðir og greinar um verk
hans. Ábendingar um efni eru vel
þegnar og má senda á thorbergur@t-
horbergur.is og einnig er hægt að
skrá sig á póstlistann og fá fregnir um
nýtt efni á vefnum.“
Víkverji fagnar þessu framtaki.
x x x
VÍKVERJI flaug með FlugfélagiÍslands í vikunni og las um borð
tímaritið Ský sem vakti athygli hans.
Þar er m.a. fjallað um hagi innflytj-
enda hér á landi, aðlögun þeirra að ís-
lensku samfélagi og ekki síður aðlög-
un samfélagsins að þeim. M.a. er
spurt athyglisverðra spurninga: Hve-
nær fáum við gulan þingmann?
...svarta löggu? ...eða brúnan dómara?
Víkverji hefur oft glaðst yfir því að
stéttaskipting skuli ekki vera á Ís-
landi, þó að teikn séu að vísu á lofti,
því miður, um að það sé að breytast,
og þess vegna var gaman að lesa eft-
irfarandi setningu, í umfjöllun Skýja,
eftir stúlku frá Filippseyjum sem
skúrar á Landspítalanum: „Hér er
engin stéttaskipting. Hér standa
læknar í sömu röð og skúringafólkið í
matsalnum.“
Íslendingum kann að þykja þetta
sjálfsagt en svo er ekki alls staðar. En
þetta er fallegt, finnst Víkverja.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 tóbak, 8 ótuktarleg, 9
bjargbúar, 10 væg, 11
streymi, 13 meiðir,15
háðsglósur, 18 stöður, 21
ráðsnjöll, 22 fallegu, 23
fiskar, 24 hurðarhúns.
LÓÐRÉTT:
2 fuglinn, 3 pinni, 4
óhapps, 5 arfleifð, 6
snjór, 7 ósoðinn, 12
eyktamark,14 borðandi,
15 stofuhúsgagn, 16
reika, 17 sök, 18 uglu, 19
sterk, 20 gömul.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hæpin, 4 kæpan, 7 rellu, 8 týndi, 9 tía, 11 tína,
13 unna, 14 skálm,15 hási, 17 lund, 20 ask, 22 lyfin, 23
logið, 24 rausa, 25 rúmur.
Lóðrétt: 1 hyrnt, 2 pílan, 3 naut, 4 kuta, 5 pínan, 6 neita,
10 íláts, 12 asi, 13 uml,15 hylur, 16 syfju, 18 ungum, 19
dáður, 20 anga, 21 klár.
K r o s s g á t a
ÉG er ein af þeim sem
eru mjög slæm af vefja-
gigt ásamt vöðvabólgu í
öxlum og hálsi og hef í
mörg ár þjáðst vegna
þessa. Af rælni keypti ég
mér í apótekinu brúsa
með verkjaúða sem kall-
ast „Stopain“ og hef ég
úðað þessu efni þar sem
verkirnir hafa verið
slæmir. Hefur þetta sleg-
ið mjög vel á verkina hjá
mér og vil ég hvetja þá
sem þjást af verkjum að
prófa þetta efni, það gæti
hjálpað fleirum en mér.
Erla Gunnarsdóttir.
Gott við verkjumSkipin
Reykjavíkurhöfn:
Bremer, Uranus, Sel-
foss og Dornum koma í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 9 vinnustofa og
leikfimi, kl. 13 vinnu-
stofa, kl. 14 spilavist.
Aðstoð við skattafram-
tal verður veitt fimmtu-
d. 21. mars, skráning í
afgreiðslu s. 562 2571.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handavinnu-
stofan, kl. 10.15 leik-
fimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist. Allar upplýs-
ingar í síma 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10–17 fóta-
aðgerð, kl. 10 samveru-
stund, kl. 13.30–14.30
söngur við píanóið, kl.
13–16 bútasaumur.
Eldri borgarar, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið í Hlaðhömr-
um er á þriðju- og
fimmtudögum kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Lesklúbbur kl. 15.30 á
fimmtudögum. Jóga á
föstudögum kl. 11. Kór-
æfingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, á Hlað-
hömrum, fimmtudaga
kl. 17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu kl. 11 á
sunnudögum. Leik-
húsferð á leikritið „Með
fulla vasa af grjóti“
fimmtud. 21. mars.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8–16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð
og myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opin, kl. 11.10 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, framhald.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Á morgun kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. 21. mars fé-
lagsvist á Garðaholti kl.
19.30 á vegum Kven-
félags Garðabæjar.
Mán. 11. mars kl. 9
leir, kl. 9.45 boccia, kl.
11.15 og 12.15 leikfimi,
kl. 13.05 róleg stóla-
leikfimi, kl. 13 gler/
bræðsla, kl. 15.30 tölvu-
námskeið.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un félagsvist kl. 13.30,
púttæfingar í Bæjarút-
gerð kl. 10–11.30,
þriðjud: brids, nýir
spilarar velkomnir,
saumur undir leiðsögn
og frjáls handavinna,
kl. 13.30 spænsku-
kennsla kl. 16.30. Aðal-
fundur félagsins verður
haldinn fimmtud. 21.
mars kl. 14, venjuleg
aðalfundarstörf og
kaffiveitingar. Dans-
leikur föstudaginn 22.
mars kl. 20.30 Caprí-
tríóið leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Sunnud: Fé-
lagsvist kl. 13.30. Dans-
leikur kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Mánud: Brids kl. 13.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður.
Félagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB. Leikfélagið Snúð-
ur og Snælda sýnir í
Ásgarði í Glæsibæ
söng- og gamanleikinn
„Í lífsins ólgusjó“ og
„Fugl í búri“, drama-
tískan gamanleik. Sýn-
ingar: Miðviku- og fös-
tud. kl. 14 og sunnud.
kl. 16. Miðapantanir í s.
588 2111, 568 8092 og
551 2203.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi. Á morg-
un kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, handavinna
og föndur, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 14 félags-
vist. Ath. sunnudagana
17., 24., og 31 mars er
lokað.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag kl. 13–16 mynd-
listarsýning Braga Þórs
Guðjónssonar opin,
listamaðurinn á staðn-
um, veitingar í veit-
ingabúð. Á morgun kl.
9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. almenn
handavinna, frá hádegi
spilasalur opinn. Aðstoð
við skattframtal verður
veitt miðvikudaginn 20.
mars, skráning hafin.
Fimmtud. 21. mars
verður félagsvist í sam-
starfi við Hólabrekku-
skóla. Veitingar í veit-
ingabúð. Upplýsingar
um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun kl. 9 handa-
vinna, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.11
hæg leikfimi, kl. 13
lomber og skák, kl.
17.15 kórinn. kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
róleg stólaleikfimi, kl.
13 brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9 perlu-
saumur, postulínsmálun
og kortagerð, kl. 10
bænastund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia, kl.
13 frjáls spilamennska,
kl. 13.30 gönguferð.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Prjónatækninám-
skeið. Á morgun kl.
19.30–21.30 byrjar
prjónanámskeið, leið-
beinandi Lilja Eiríks-
dóttir. Allir velkomnir.
Þjónusta félagsþjónust-
unnar er öllum opin.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Félags-
starfið er opið öllum
aldurshópum, allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9–16 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði og hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerðir og sund, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og
spilað. Laus pláss eru í
fatasaum, körfugerð og
bútasaumsnámskeið.
Kvöldskemmtun verður
fimmtud. 21. mars kl.
18. Matur, söngur,
gleði, gaman. Allir vel-
komnir, skráning í s.
561 0300.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 alla
mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45. Spil
hefst kl. 13. Bridsdeild
FEBK í Gullsmára.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Kristniboðsfélag karla
Fundur í Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut
58-60, mánudagskvöldið
18. mars. kl. 20. Bene-
dikt Arnkelsson hefur
biblíulestur. Alir karl-
menn velkomnir.
Stokkseyringafélagið í
Reykjavík, árshátíðin
verður laugard. 23.
mars í Fóstbræðra-
heimilinu, Langholts-
vegi 111 og hefst með
borðhaldi kl. 20, húsið
opnað kl. 19. Uppl. og
skráning í s. 553 7495,
Sigríður, 553 7775, Lilja
eða 567 9573, Einar.
Kvenfélagið Seltjörn,
fundur verður í safn-
aðarstofu Seltjarnar-
neskirkju þriðjud. 19.
mars kl. 20.30. Margrét
Sigurðardóttir, for-
stöðumaður Selsins,
kynnir starfsemina þar.
Linda Gunnarsdóttir
tala um hvernig er að
vera kona í karlmanns-
starfi.
Kvenfélagið Keðjan.
Fundur mánudaginn
18. mars kl. 20.30 í
Húnabúð 11. Spilað
verður bingó.
Breiðfirðingafélagið,
Faxafeni 14. Félagsvist
kl. 14. fjórði dagur í
fjögurra daga keppni.
Kvenfélag Kópavogs.
Aðalfundur verður
fimmtud. 21. mars. kl.
20.30 í Hamraborg 10.
Venjuleg aðalfundar-
störf, önnur mál.
Í dag er sunnudagur 17. mars, 75.
dagur ársins 2002. Orð dagsins: Fel
þú Drottni verk þín, þá mun áform-
um þínum framgengt verða.
(Orðskv. 16, 3.)