Morgunblaðið - 17.03.2002, Síða 60

Morgunblaðið - 17.03.2002, Síða 60
60 SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ MERKILEGT má teljasthve sterkur sam-hljómur er í tónlistnýlenduþjóða og fyrr- um skattlanda þeirra og virðist einu skipta þótt samskiptaslitin hafi farið allt annað en vinsamlega fram. Þetta sést til að mynda vel þegar litið er til Portúgals og landanna sem þeir brutu undir sig á sínum tíma, Brasilíu, Angóla og Grænhöfðaeyja, en í tónlist þess- ara nýlendna allra er margt svo líkt að verður vart skýrt nema með menningartengslum í gegnum gömlu herraþjóðina. Flestir þekkja söngdrottninguna Cesariu Evoru sem er frá Græn- höfðaeyjum, en sá eyjaklasi undan strönd Afríku var nýlenda frá fimmtándu öld til 1975. Portúgalar áttu fleiri nýlendur í Afríku, þar á meðal Angóla, sem einnig fékk frelsi 1975. Tónlistarlíf í Angóla er ekki síður líflegt en á Græn- höfðaeyjum og skemmtilegt hve tónlist þaðan svipar til þess sem gerist á eyjaklasanum þótt langt sé á milli landanna. Þar ræður mikli tregatónninn sem einkennir tónlistina og þannig svipar morna- söngvum Cesariu Evora til fado Amaliu Rodrigues og semba Bonga, sem hér verður greint frá. Tónlistarmenn frá Angóla eru margir þekktir meðal þeirra sem dálæti hafa á þjóðlegri tónlist en skálmöldin sem þar hefur ríkt hef- ur vitanlega haft áhrif á menning- arstarf í landinu líkt og mannlífið allt. Hugsanlega þekkja einhverjir Waldemar Bastos sem gaf út af- bragðsskífu á vegum Davids Byrn- es (Luaka Bob/Warner) fyrir nokkrum árum en annar listamað- ur frá Angóla sem vert er að veita eftirtekt er Jose Adelino Barcelo de Carvahlo sem tók sér nafnið Bonga Kuenda. Í vikunni berst hingað til lands sérlega vel heppn- uð safnskífa þar sem stiklað er á því helsta sem Bonga hefur sent frá sér á undanförnum áratugum, en Bonga, sem átt hefur æv- Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Söngvin frelsishetja Angólski tónlistarmaðurinn Bonga sendi á dög- unum frá sér safnskífu sem spannar nærfellt tutt- ugu ára feril. Á skífunni má heyra hvar hann bræðir saman áhrif frá ólíkum löndum og minnir oftar en ekki á Cesariu Evora. Áttavilt (Lost and Delirious) Drama Kanada 2001. Góðar stundir VHS. Öllum leyfð (99 mín.) Leikstjórn Léa Pool. Aðal- hlutverk Piper Perabo, Jessica Paré og Mischa Barton. Á GULLALDARTÍMUM ung- lingamynda á borð við American Pie-myndirnar eru myndir á borð við Lost and Del- irious nauðsynlegt mótvægi. Svona á viðlíka hátt og Fucking Åmal. Það er einmitt margt sameiginlegt með þeirri sænsku ung- lingamynd og þessari fyrstu mynd kanadísku kvikmyndagerðarkonunnar Léu Pool, sem vakið hefur talsverða at- hygli á kvikmyndahátíðum víða um heim undanfarin misseri. Og skilj- anlega því hér er á ferð vönduð og tilfinninganæm mynd sem tekur á viðkvæmu og alltof sjaldgæfu við- fangsefni á afar heiðarlegan máta. Þótt sagan segi frá ungri hæglátri stúlku sem fer í nýjan heimavist- arskóla og kemst að því að herberg- isfélagar hennar eigi í lesbísku sam- bandi þá gengur myndin ekki beint út á hvernig er að vera samkyn- hneigður á þessum aldri heldur hef- ur hún mun víðtækari skírskotanir. Myndin segir trúverðugan hátt frá hinu stórum ýkta og margflókna til- finningalífi ungs fólks á tvítugsaldri. Um það leyti er maður er að finna fyrst fyrir og reyna að átta sig á til- finningum á borð við losta, girnd, af- brýði og ást.  Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Þegar ástin grípur unglingana Ó.H.T Rás2 HK DV Ekkert er hættulegra en einhver sem hefur engu að tapa! Ekkert er h ttulegra en einhver se hefur engu að tapa! Frá leikstjóra The Fugitive SCHWARZENGGER Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára Vit nr. 353 Sýnd kl. 5.35, 8 og 10.30. B.i. 12. Vit nr. 341. Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit 348. B.i. 16. Sýnd kl. 4. íslenskt tal. Vit 325 8 Tilnefningar til Óskarsverðlauna Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr335. B.i.12. Sýnd í Lúxus VIP kl. 2, 5.30, 8 og 10.40. Mán kl. 5.30, 8 og 10.40. B.i. 16. m.a. fyrir besta mynd, besta aðalhlut- verk, besta aukahlut- verk, besta leikstjórn, og besta handrit. Hlaut að auki 4 Golden Globe verðlaun og 2 Bafta verðlaun. kvikmyndir.is SG DV  kvikmyndir.com m.a. fyrir bestu mynd, besta aðalhlutverk, Úr sólinni í slabbið! Sýnd sunnudag kl. 2. Vit 328 2 Tilnefningar til Óskarsverðlauna Gleymdu því sem þú heldur að þú vitir. Will Smith sem besti leikari í aðalhlutverki. Jon Voight sem besti leikari í aukahlutverki. Magnaðasta kvikmynd Will Smith á ferlinum. Stórbrotin kvikmynd um stórbrotinn mann 8 1/2 Kvikmyndir.is Tilnefningar til Óskarsverðlauna DV 4 Sýnd kl. 3.45. E. tal. Vit 294 Sýnd kl. 2, 3 og 4. Mán kl. 4. Ísl. tal. Vit 338 FRUMSÝNING Sýnd kl. 1.45, 3.50 og 5.55. Mán kl. 3.50 og 5.55. Vit 349.  HJ Mbl ÓHT Rás 2 Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin Tilnefningar til Óskarsverðlauna m.a. fyrir besta mynd, besta aðalhlutverk, besta aukahlutverk, bestu leikstjórn, og besta handrit. Hlaut að auki 4 Golden Globe verðlaun og 2 Bafta verðlaun. 8 Sýnd kl. 7 og 9.30. B.i. 12. ÞÞ Strik.is ÓHT Rás 2  HL MblSG DV 4 Tilnefningar til Óskarsverðlauna 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 9.15. Mán kl. 9.30. B.i. 14. kvikmyndir.is SG DV ½kvikmyndir.com HJ Mbl ÓHT Rás 2 Ó.H.T Rás2 Strik.is SG. DV tilnefningar til Óskarsverðlauna5 Tilnefningar til frönsku Cesar - verðlaunanna13 Sýnd kl. 7. Mán kl. 5. Sýnd kl.1, 3 og 5. Íslenskt tal.  DV Sýnd kl. 1, 3 og 5. Sýnd kl. 3, 6 og 9. Mán kl. 6 og 9. B.i.12 ára. 2 Tilnefningar til Óskarsverðlauna Gleymdu því sem þú heldur að þú vitir. Will Smith sem besti leikari í aðalhlutverki. Jon Voight sem besti leikari í aukahlutverki. Magnaðasta kvikmynd Will Smith á ferlinum. Stórbrotin kvikmynd um stórbrotinn mann FRUMSÝNING Sýnd kl.3. Mán kl. 5.Sýnd kl. 6, 8 og 10. Mán kl 6 og 8. Edduverðlaun6 Sýnd sunnud. kl. 4. Sýnd kl. 10.30. Mán kl. 10.30. Sýnd kl. 8.15 og 10.30. Mán kl 7.15. B. i. 16. Forvarnaverkefnið KAKTUS, í samvinnu við Rás 2, gengst fyrir laga- og textasamkeppni meðal landsmanna. Fjögur lög úr keppninni verða gefin út á geisladiski, sem kemur út 1. júní 2002, en þá verða haldnir minningartónleikar í Laugardalshöll, sem tileinkaðir eru þeim sem farist hafa af völdum eiturlyfja, hraðaksturs eða sjálfsvíga. Þátttökureglur: 1. Öllum er heimil þátttaka. 2. Öll tónlist er gjaldgeng. 3. Verkið má flytja á öllum tungumálum. 4. Lagi skal skilað á geisladiski til rásar 2, merktu: TÁR Í TÓMIÐ, lagakeppni, Rás 2, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 8. apríl. 5. Textum skal skilað á blaði og fylgja hljóðriti. 6. Verkum skal skilað undir dulnefni, en nöfn höfunda og flytjenda, ásamt nánari upplýsingum, skal fylgja með í lokuðu umslagi. 7. Öllum innsendum verkum verður skilað að lokinni keppni. 8. Dómnefnd, skipuð fimm mönnum, velur fjögur verk úr innsendum lögum og textum. 9. Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum innsendum verkum. 10.Flytjendur vinningslaga komi fram á stórtónleikum í Laugardalshöll 1. júní. TÁR Í TÓMIÐ - nú er nóg komið! Laga- og textasamkeppni Kaktus forkaktus@islandia.is 553 - 7943 Nánari upplýsingar á ruv.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.