Morgunblaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 28
HÖRÐUR Ágústsson opnar sýningu
á verkum sínum í i8 galleríi, Klapp-
arstíg 33, í dag kl. 17.
Verkin voru öll unnin á árunum
1955 til 1975. Í efra rými gallerísins
verða stór límbandsverk sem Hörður
er hvað þekktastur fyrir og á neðri
hæðinni verða teikningar og þrykk.
Flest verkin á sýningunni eru til sölu.
Hörður Ágústsson, sem er áttræð-
ur á árinu, er kunnur fyrir myndlist
sína sem og grafíska hönnun og
áhuga á byggingarlist. Árið 1998 gaf
Húsafriðunarnefnd ríkisins út bókina
Íslensk byggingararfleifð I, ágrip af
húsagerðarsögu 1750 til 1940 eftir
Hörð, en hann hlaut Íslensku bók-
menntaverðlaunin fyrir hana þetta
sama ár.
Aðalsteinn Ingólfsson segir m.a. í
sýningarskrá: „Stundum er haft á
orði að nútíðin breyti fortíðinni. Hér á
landi, og raunar einnig á meginlandi
Evrópu, hafa myndlistarmenn sam-
tímans í auknum mæli hneigst til
gagngerrar einföldunar myndræna
eiginda og/eða til skipulagðar hug-
myndavinnu. Ástæðulaust er að hafa
mörg orð um sögulegar forsendur
þessarar tilhneigingar, arfleifð þeirra
Mondrians eða Malevich, þar sem
hún er fyrst og fremst afsprengi nú-
tímalegra aðstæðna.
Öðrum þræði er þessi nauma og
einskæra myndlist tilraun til að verj-
ast þeim spjótum sem í dag standa á
listamönnum og öðrum skapandi ein-
staklingum. Þar má nefna linnulaust
áreitið sem varnar mönnum skýra
hugsun, þrýstinginn til að laga sig að
markaðslögmálum eða fyrirfram
skilgreindum ,,tíðaranda“ listspekúl-
antanna, þeim plagsið til að gera lítið
úr hugsjónum og viðteknum sannind-
um í nafni póstmódernískrar afstæð-
ishyggju og loks fánýtt orðagjálfur
kenningasmiða.
Þessi viðleitni hefur leitt til endur-
skoðunar á ýmsum afleggjurum eldri
myndlistar. Meðal helstu gleðitíðinda
af þeim vettvangi er vaxandi áhugi á
verkum Harðar Ágústssonar frá ár-
unum 1955–1975. Utanaðkomandi
sérfræðingar í málaralist hafa ýmist
skilgreint þessi verk sem merkileg
framlög til norrænnar konkretstefnu
eða sem undanfara mínímalismans,
naumhyggjunnar, og vísa þá til
skipulegrar notkunar listamannsins
á iðnaðarframleiðslu, þ.e. lituðum
límböndum. Altént hefur þessi áhugi
orðið til þess að gera þessi verk virk í
nútímanum. Og sérstaklega ánægju-
legt að fá að berja þau aftur augum á
þessum tímamótum í lífi listamanns-
ins.“
Sýningin stendur til 5. maí og er
opin þriðjudaga til laugardaga 13-17.
Endurskoðun eldri verka
Verk eftir Hörð Ágústsson í i8 galleríi.
Límbandsverk Harðar Ágústssonar í i8 galleríi
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 21. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.diesel.com
www.forval.is
Libia Mjódd
Nana Hólagarði
Hagkaup Kringlunni
Hagkaup Smáralind
Hagkaup Skeifunn
Hagkaup Spönginni
Laugarnes Apótek
Zitas Hafnarfirði
Gallery Förðun Keflavík
Árnes Apótek Selfossi
Baron Selfossi
Casa Selfossi
Apótek Vestmannaeyja
Bjarg Akranesi
Stykkishólmsapótek
Ísold Sauðárkróki
Silfurtorg Ísafirði
Hagkaup Akureyri
Jara Akureyri
Húsavíkurapótek.
Siglosport Siglufirði
Okkar á milli Egilsstöðum
Apótek Seyðisfjarðar
Nýr ilmur
frá
þeirra eigin útsetningar á þekktum
lögum úr ýmsum áttum.
Alliance Française, Hringbraut
121, JL-húsið Friðrik Rafnsson
verður með rabb kl. 20.30 undir yf-
irskriftinni „Að gilja heiminn – hug-
leiðing um þrjár nýlegar franskar
neðanbeltisskáldssögur“. Friðrik
veltir fyrir sér þremur nýlegum met-
sölubókum: Ríddu mér, eftir Virginie
Despentes, Plateform, eftir Michael
Houellebecq og
Kynlíf Catherine
M., eftir Cather-
ine Millet en þess-
ar bækur hafa
verið þýddar á
fjölmörg tungu-
mál undanfarin
misseri. Meg-
inspurning
kvöldsins verður:
hvort var útkoma
þessara bóka bókmenntaviðburður
eða fjölmiðlafár?
Seltjarnarneskirkja Vortónleikar
Húnakórsins verða kl. 20. Stjórn-
andi er Elín Ósk Óskarsdóttir og pí-
anóleikari Hólmfríður Sigurð-
ardóttir. Á efnisskránni eru íslensk
sönglög, frá þjóðlögum til okkar tíma,
m.a. frumflutt lag eftir Björgvin Þ.
Valdimarsson við ljóð Dýrmundar
Ólafssonar en höfundur ljóðsins
færði kórnum lag og ljóð að gjöf.
Safnaðarsalur Seljakirkju Menn-
ingarkvöld Kvennakórsins Selja
verður kl. 20. Kórinn flytur íslensk og
erlend lög. Einsöngvari er Ingibjörg
Guðjónsdóttir. Undirleikari á píanó
er Gróa Hreinsdóttir organisti kirkj-
unnar. Þá vera lesin ljóð m.a. eftir
Halldór Laxness, Guðmund Kamban
og Björn Guðna Guðjónsson. Elín
Björk Jónsdóttir, 10 ára, leikur nokk-
ur lög á harmonikku.
Listasafn Reykjavíkur - Kjarvals-
staðir Myndlistarmaðurinn Hannes
Lárusson verður með fyrirlestur kl.
17 þar sem hann fjallar um eigin verk
og þá sérstaklega um sýninguna Hús
í hús sem nú stendur yfir. Aðgangur
er ókeypis.
Kaffileikhúsið, Hlaðvarpanum Dú-
ettinn Disappearhear leikur á djass-
klúbbnum Múlanum kl. 21. Dúettinn
er skipaður þeim Sissel Vera Petter-
son sem syngur og leikur á slagverk,
o.fl. og píanóleikaranum Davíð Þór
Jónssyni, sem leikur einnig á hljóð-
smala við þetta tækifæri. Á efnis-
skránni er frumsamin tónlist og
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Friðrik
Rafnsson
VIGDÍS Grímsdóttir rit-
höfundur og JPV-útgáfa
hafa gengið frá samningi
um að JPV-útgáfa fari
með öll útgáfumál hennar
hér á landi og erlendis.
Undanfarin ár hefur Ið-
unn annast útgáfu á bók-
um Vigdísar.
Í samningum felst að
JPV-útgáfa gefur út nýjar
bækur Vigdísar auk
endurútgáfu á eldri
bókum hennar. Þá annast JPV-
útgáfa öll réttindamál Vigdísar
gagnvart erlendum útgefendum en
bækur hennar hafa vakið athygli
erlendis.
Vigdís hefur á liðnum
árum sent frá sér fjölda
verka og hlotið margvís-
lega viðurkenningu fyrir
verk sín, m.a. Íslensku
bókmenntaverðlaunin, DV-
verðlaunin í bókmenntum,
Davíðspennann og viður-
kenningu Ríkisútvarpsins.
Hún hefur einnig verið til-
nefnd til Bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs.
Með annarra rithöfunda
sem JPV-útgáfa gefur út eru Guð-
bergur Bergsson, Ólafur Gunnars-
son, Sigurður Pálsson, Fríða Á.
Sigurðardóttir og Þórunn Valdi-
marsdóttir.
Vigdís Gríms-
dóttir til JPV
Vigdís
Grímsdóttir
rithöfundur.