Morgunblaðið - 21.03.2002, Síða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2002 39
Fermingartilbo›
Tilbo› flessi gilda í öllum verslunum Símans
um land allt dagana 15. mars til 30. apríl.
Me› öllum seldum GSM-símum getur flú vali› á milli eftirfarandi:
Far›u á vit.is og fá›u ókeypis áskrift
af tónum og táknum í einn mánu›
No
ki
a
33
10
Ver›: 16.980 KR.
Léttkaupsútborgun1.980 kr.
1.250 kr. næstu 12 mánu›i
færist á símreikning
Ver› á›ur 18.001 kr.
Símafrelsisstartpakki og 1500 kr. inneign
Aukahlutapakki (ver›mæti 1980 kr.)
2000 kr. inneign í Símafrelsi
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
N
M
0
5
3
1
5
•
sia
.is
Í NÝLEGRI skýrslu
Ríkisendurskoðunar
um framkvæmd bú-
vörusamnings 1995-
2000 er komist að þeirri
niðurstöðu að markmið
samningsins hafi náðst
að hluta. Samningurinn
kostaði ríkissjóð 10,5
milljarða og þar af fóru
7,4 milljarðar í bein-
greiðslur til bænda. Í
lok samningstímans
var staðan sú að sauð-
fjárbúum með greiðslu-
marki hafði fækkað um
208 en greiðslumarkið
hafði færst til. Öllum
keyptum ærgildum var
endurúthlutað með það að markmiði
að færa framleiðsluna á færri hendur
og búin hafa því stækkað en fram-
leiðslan í landinu ekki minnkað.
Engu að síður er það niðurstaða Rík-
isendurskoðunar að afkoma sauðfjár-
bænda sé afleit og afrakstur búanna
dugi engan veginn til að greiða eig-
endum þeirra mannsæmandi laun.
Því miður er það svo að síðan árið
2000 hefur dregið úr neyslu á kinda-
kjöti og nú á þessu ári hafa birgðir
hrannast upp. Ekki hjálpaði Goða-
ævintýrið upp á stöðuna en þeir
klykktu út með því að dengja öllu út-
flutningsskylda kjötinu sem var á
þeirra vegum út á innanlandsmarkað
og selja það þar á fullu verði þó að
ekki virðist það nú hafa dregið þá að
landi í þeirri makalausu stöðu sem
þeir voru búnir að koma sér og
stórum hluta bænda í landinu í í nafni
hagræðingar í greininni.
Næsta haust er útlit fyrir að þurfi
að auka útflutningsskylduna hjá
sauðfjárbændum og er talað um að
hún hækki upp í 25%, ekki síst vegna
fyrrnefndrar sölu á útflutningskjöti
og ekki lagast afkoma bænda við það.
Nú er fyrirhugað að tekin verði
upp gæðastýring í sauðfjárrækt og
hafa verið gerðar tilraunir í þá átt í
Þingeyjarsýslu. Þær þykja hafa gef-
ist vel en því er ekki að leyna að
margir bændur eru uggandi vegna
krafna sem þar eru gerðar til bók-
færslu hvers konar og einkum þó
landnýtingar. Það þarf að stíga var-
lega til jarðar í þessum málum og
gefa góðan tíma til aðlögunar ef unnt
á að vera að koma þess-
um tillögum til fram-
kvæmda. Þær munu
leiða til mikillar til-
færslu í greininni sem
vonandi verður til góðs
er fram líða stundir en
það þarf að gefa tíma til
aðlögunar og kynna
betur fyrir landsmönn-
um hvaða jarðir það
verða sem ekki standist
kröfur um beitiland og
verða því fyrir fjórð-
ungs skerðingu bein-
greiðslna. Það liggur
fyrir að bændur treysta
sér ekki til að halda
áfram búskap upp á
þau býti og stjórnvöld hljóta að þurfa
að styðja þá sérstaklega sem af þess-
um sökum verða að bregða búi.
Verð á kindakjöti til bænda er of
lágt, það held ég að allir sem lagt
hafa þessi mál niður fyrir sér séu
sammála um.
Það er því illt til þess að vita að slík
gæðavara sem bændur fá tiltölulega
mjög lágt fyrir sé orðin svo sliguð af
milliliðakostnaði þegar hún nær á
markað að verð hafi nánast þrefald-
ast þegar miðað er við kjöt sem selt
er í heilum skrokkum þar sem ekkert
fer til spillis og kaupandinn er að
greiða sama verð fyrir slögin og
banakringlurnar og lærin og lundirn-
ar. Ef varan er frekar unnin þá fer
verðið upp úr öllu valdi eins og allir
þekkja.
Það hlýtur nú að vera markmiðið
að lækka milliliðakostnaðinn svo
neytendur fái tækifæri til að kaupa
lambakjöt á verði sem er nær því sem
þarf að borga bændum til að hlutur
þeirra verði réttlátari.
Þá myndi að mínum dómi ekki
standa á fólki að velja sér lambakjöt
á sinn disk.
Lambakjöt
á hvern disk
Sigríður
Jóhannesdóttir
Höfundur er alþingismaður
fyrir Samfylkinguna í
Reykjaneskjördæmi.
Afkoma
Það hlýtur nú að vera
markmiðið, segir
Sigríður Jóhannes-
dóttir, að lækka
milliliðakostnaðinn.
VÉLAR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Plöstunar
Vefsíða: www.oba.is