Morgunblaðið - 19.04.2002, Page 4

Morgunblaðið - 19.04.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær, í umræðum ut- an dagskrár um þróun matvæla- verðs á Íslandi í samanburði við önn- ur Norðurlönd, að skæri í augu sú mikla hækkun sem hefði orðið á grænmeti hér á landi, einkum á tímabilinu 1995 til 2000. Vitnaði hann þar til þess sem fram hefði komið í skriflegu svari Hag- stofu Íslands við fyrirspurn Rann- veigar Guðmundsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Í svarinu kemur m.a. fram að vísitala fyrir grænmeti á Íslandi hefði hækkað úr því að vera 91,2 stig árið 1995 í 115 stig árið 2000. Í Noregi hækkaði þessi vísitala úr 100,2 stigum í 116,8 stig á sama tímabili, í Svíþjóð lækkaði hún úr 111,1 stigi í 103,3 stig, í Finnlandi hækkaði hún úr 101,1 stigi í 105,4 stig og í Danmörku lækkaði hún úr 100,9 stigum í 87,6 stig. „Það hafa engar reglur breyst hjá okkur á þessu tímabili en samt hækkar þetta svona mikið,“ sagði forsætisráðherra. „Þetta er athug- unarefni fyrir alla þá sem að þessum markaði starfa sem og fyrir stjórn- völd sem bera ábyrgð á því að um- gjörð markaðarins sé með þeim hætti að samkeppni sé tryggð eins og mögulegt er. Ég vil ekki fjölyrða hér um ástæður þessarar hækkunar – þær kunna að vera fjölmargar og flóknar – en við hljótum að vænta þess að þær breytingar sem gerðar hafa verið að undanförnu á verð- myndun á grænmetismarkaði komi til með að skila sér til neytenda í formi lægra verðs.“ Síðan sagði ráð- herra: „Út af fyrir sig hlýtur maður þó að hugsa að kannski megi rekja einhverjar af þessum hækkunum þráðbeint upp í Öskjuhlíð.“ Forsætisráðherra sagði það einn- ig athyglisvert hvernig matvöruverð hefði þróast hér á síðasta áratug. „Framan af áratugnum hækkaði matvöruverð minna en neysluverð- lag. Það má án efa rekja til mikillar og harðrar samkeppni á matvöru- markaði. En síðan er sláandi hvern- ig þróunin hefur orðið eftir miðjan áratuginn. Þá hækkaði matvælavísi- talan umfram neysluverðlag svo um munar. Á sama tíma hefur orðið mjög mikil samþjöppun á matvöru- markaði. Þetta er umhugsunarvert og hlýtur að kalla á mikla athygli. Bæði ég og háttvirtur formaður Samfylkingarinnar [Össur Skarp- héðinsson] höfum á undanförnum mánuðum og misserum vakið at- hygli á þessari þróun og mér finnast þessar tölur ýta undir það að þetta verði tekið til gaumgæfilegrar at- hugunar,“ sagði ráðherra. Rannveig Guðmundsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, var máls- hefjandi umræðunnar en í framsögu sinni vísaði hún til fyrrgreinds skrif- legs svars frá Hagstofu Íslands sem nýlega var dreift á Alþingi en í svarinu er farið yfir þróun verðlags- vísitölu matar- og drykkjarvara á öllum Norðurlöndunum síðasta ára- tug. Í svarinu kom m.a. fram, eins og greint hefur verið frá í Morgun- blaðinu, að þessi vísitala hafi verið hæst á Íslandi af öllum Norðurlönd- unum árið 2000. Það ár var hún 113,7 á Íslandi, 113,3 í Noregi, 104,0 í Svíþjóð, 103,9 í Finnlandi og 106,4 í Danmörku. Velti Rannveig því m.a. upp hvort ástæðuna fyrir þessum mun mætti rekja til tengsla land- anna við Evrópusambandið, þ.e. þau lönd sem væru með lægstu vísitöl- una væru aðilar að ESB. Ástæðan ekki ESB Davíð Oddsson varaði hins vegar við því að draga of miklar ályktarnir af fyrrgreindum tölum. „Til dæmis er varhugavert að álykta sem svo að þessi gögn sýni með einhverjum hætti að hag almennings í þeim löndum sem séu í Evrópusamband- inu sé betur borgið en hag almenn- ings í þeim löndum sem kjósa að standa utan sambandsins eins og Noregur og Ísland.“ Forsætisráð- herra sagði raunhæfara að bera löndin saman með tilliti til kaup- máttarþróunar. „Kaupmáttarþróun endurspeglar betur en flestir aðrir mælikvarðar hversu vel þjóðfélaginu farnast og hversu vel þeim tekst að bæta lífskjör almennings,“ sagði hann og bætti því við að Þjóðhags- stofnun hefði nýlega gert grein fyrir samanburði á þróun kaupmáttar ráðstöfunartekna á Norðurlöndun- um fyrir árið 1995 til 2000. Þar kæmi fram að kaupmáttur Finna hefði aukist mest á tímabilinu eða um 30%, kaupmáttur Íslendinga hefði aukist um 20%, kaupmáttur Norðmanna um tæp 18%, kaupmátt- ur Svía um 11% og kaupmáttur Dana um 4%. Benti forsætisráð- herra á að fyrir utan Finna hefði kaupmáttur aukist mest á Íslandi og í Noregi, þeim löndum sem stæðu utan ESB. „Þessar tölur gefa að mínu mati ágæta mynd af því hvernig lífsaf- koma fólks hefur verið að batna á öllum Norðurlöndunum, mismikið þó, en alls staðar hafa kjörin batnað og það er gleðiefni. Mér þykir það áhugavert að fyrir utan Finnland hefur kaupmáttur vaxið mest í þeim tveimur löndum sem standa utan Evrópusambandsins, þ.e. á Íslandi og í Noregi. Það er þó engan veginn hægt að draga þá ályktun að það sé vegna þess að löndin standi utan við ESB.“ Ráðherra ítrekaði að mat- vöruverð hefði hækkað meira hér á landi en í Noregi og hinum Norð- urlöndunum en á sama tíma hefði kaupmáttur almennings á Íslandi aukist. Hagur almennings hér á landi hefði því ekki versnað í sam- anburði við hin Norðurlöndin heldur hefði hann þvert á móti batnað um- fram það sem gerst hefði í t.d. Sví- þjóð og Danmörku. Davíð Oddsson forsætisráðherra ræðir hækkun grænmetisverðs á Alþingi Kannski má rekja hækkanir þráðbeint upp í Öskjuhlíð MATVÖRUKEÐJURNAR hafa brugðist fljótt við verðlækkunum hjá Hagkaupum og létu kanna verð þar strax í gær og eru að vinna úr þeim upplýsingum. Talsmenn Samkaupa og Nettó segjast ætla að bregðast við og raunar lækkaði verð á nokkr- um tegundum hjá Nettó strax í gær. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, segir að Bón- us kanni verð á matvöru á hverjum degi. „Það er það mikill verðmunur á vörum í Bónus og Hagkaupum að við teljum okkur vart vera að keppa á sama markaði og þeir. Ég segi bara: betur má ef duga skal hjá þeim ef þeir ætla að keppa við okkur í verði.“ Fylgjast grannt með markaðnum Hjá Samkaupum fengust þær upplýsingar að fylgst væri með verði í öðrum verslunum dag frá degi. Stjórnendur Samkaupa segjast eiga von á því að þeir muni bregðast sér- staklega við verðlækkunum hjá Hag- kaupum en taka fram að í Samkaup- um sé mest verslað með matvöru en minna með sérvöru; búið sé að senda menn af stað til þess að gera verð- könnun hjá Hagkaupum og hún verði síðan notuð til þess að meta stöðuna og lækka verð ef það á við. Nettó gerði verðkönnun hjá Hag- kaupum í gær og þar á bæ voru menn að byrja að fara yfir tölurnar. Stjórnendur Nettó segjast fylgjast grannt með markaðinum og raunar sérstaklega nú vegna lækkunar Hagkaupa. Þeir segjast munu bregðast við þegar allar niðurstöður verðkönnunar hjá Hagkaupum liggi fyrir en verð á nokkrum tegundum hafi verið lækkað strax í gær. Gísli Sigurbergsson í Fjarðar- kaupum segir menn hafi þegar skoð- að lækkanirnar hjá Hagkaupum. „Miðað við hvernig þetta var auglýst hélt ég að meira væri lagt í þetta og verð lækkað á fleiri vörum. Ég get ekki séð að þetta skipti miklu máli fyrir heildarinnkaupin hjá fólki og þeir slá okkur ekki við. Við þurfum ekki að laga mikið hjá okkur til þess að vera mun ódýrari en þeir í mat- vörunni, það er sáralítið.“ Gísli segir að Hagkaup séu í nánasta umhverfi við Fjarðarkaup, eins og Garðabæ og Smáralind, og Fjarðakaup eigi viðskiptavini á þessu svæði. „En við erum mun lægri en þeir í verði og er- um ennþá mun lægri eftir þessa lækkun hjá þeim.“ Hagkaup hafa til- kynnt um verðlækkun á um 700 vörutegundum, þar af um 300 teg- undum matvöru. Fram kemur í til- kynningunni að matvara lækki að meðaltali um 8% en aðrar vörur frá 10–40%. Um er að ræða ákveðna stefnubreytingu hjá Hagkaupum þar sem lögð er áhersla á ódýrari vörur án þess þó að dregið sé úr þjónustu. Lækkar vísitölu neysluverðs um 0,15–0,2% Að undanförnu hafa kannanir Hagstofunnar á kauphegðun al- mennings leitt í ljós að neytendur versli nú í meira mæli en áður í versl- unum með lágt vöruverð. Þetta kem- ur fram í mati greiningardeildar Búnaðarbankans. Á síðustu fimm mánuðum hafa tvívegis verið gerðar leiðréttingar á verslunarvog vísitöl- unnar þar sem vægi lágvöruverslana hefur aukist. Samkvæmt upplýsingum frá Sam- keppnisstofnun gerir greiningar- deild ráð fyrir að markaðshlutdeild Hagkaupa í matvöru, á landinu öllu, sé í kringum 17%. Það er mat grein- ingardeildarinnar að áhrif aðgerða Hagkaupa á vísitölu neysluverðs verði á bilinu 0,15% til 0,2% til lækk- unar í maí. Keppinautarnir eru í viðbragðsstöðu Nettó lækkaði verð á nokkrum vörutegundum í gær í kjölfar verðlækkunar Hagkaupa MIKIL ásókn er í kennarastöður í grunnskólum Akureyrar og muna menn ekki annað eins. Að sögn Gunnars Gíslasonar, deildarstjóra skóladeildar, hafa mun fleiri rétt- indakennarar sótt um vinnu í grunnskólum bæjarins en hægt er að ráða og sagði að hann að þessi mikli áhugi hefði farið fram úr björtustu vonum manna. Hann sagði að skólastjórar gætu nú valið úr umsóknum og að það væri alveg ný staða. Nokkuð er um að kenn- arar séu að flytja með fjölskyldur sínar til bæjarins. Skóladeild Akureyrarbæjar aug- lýsti lausar stöður við grunnskóla bæjarins um síðustu helgi og sagði Gunnar að þar væri nær eingöngu um að ræða sérgreinastöður, sem alltaf hefði verið erfitt að ráða í. Hins vegar séu allar almennar kennarastöður í skólum bæjarins að verða fullmannaðar nú þegar. „Það var að mörgu leyti mjög gott ástand í þessum málum í fyrra en þetta er alveg nýtt fyrir okkur og slær það ár alveg út.“ Gunnar sagði að laun kennara hefðu mikil áhrif á þessu jákvæðu þróun. „Það varð veruleg kjarabót í síðustu samningum en einnig hafa menn nefnt að atvinnuástand á almenn- um markaði hafi einnig áhrif en sjálfur er ég ekki viss um að svo sé. Þarna er um að ræða bæði nýút- skrifaða kennara, aðallega frá Há- skólanum á Akureyri og þá hef ég orðið var við að reyndir kennarar eru að flytja sig á milli sveitarfé- laga.“ Gunnar sagði að skilyrði til bú- setu á Akureyri væru stöðugt að batna og að það gæti líka haft áhrif. Einnig væri mikill hugur í skólum bæjarins og ákveðin bjart- sýni ríkjandi. Þegar unnið var að starfsáætlun fyrir grunnskóla Akureyrar sl. haust var stefnt að því að geta boð- ið upp á 92% hlutfall réttindakenn- ara. Gunnar sagði að það stefndi í að þetta hlutfall yrði 95% og þar yfir á næsta skólaári. Það réðist þó af því hvernig gengi að ráða í áð- urnefndar sérgreinastöður. Margir umsækjendur um kennarastöður við grunnskólana á Akureyri Skólastjórar geta valið úr umsóknum Morgunblaðið/RAX UNNIÐ er nú hörðum höndum að því að ljúka undirbúningi fyrir opn- unarhátíð Knattspyrnuhússins, fyrsta áfanga stærstu íþróttahallar landsins, sem opnaður verður á sum- ardaginn fyrsta. Íþróttahöllin er við Fossaleyni í Grafarvogi og koma fram á opnun- arhátíðinni nokkur hundruð knatt- spyrnudrengir og -stúlkur frá öllum knattspyrnudeildum Reykjavíkur- félaganna. Borgarstjóri, forseti ÍSÍ og formaður KSÍ munu flytja ávarp og síðan verður fyrsti opinberi knattspyrnuleikurinn leikinn í höll- inni. Styttist í opnun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.