Morgunblaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 1
90. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 19. APRÍL 2002
LÍTIL flugvél af Piper-gerð skall
síðdegis í gær á skýjakljúf í Mílanó
á Ítalíu með þeim afleiðingum að
fjórir týndu lífi auk flugmannsins.
Um 60 manns slösuðust. Rétt áður
hafði flugmaðurinn sent frá sér
neyðarkall og tilkynnt, að hann
hefði misst stjórn á vélinni.
Talsmaður ítalska innanrík-
isráðuneytisins sagði ekkert benda
til annars en að um slys hefði verið
að ræða og ekkert hefði komið
fram, sem ýtti undir getgátur um
hryðjuverk. Verðfall varð á hluta-
bréfum er fréttir bárust af atburð-
inum á verðbréfamörkuðum í
Bandaríkjunum þar eð margir ótt-
uðust að um hryðjuverk af sama
tagi og 11. september væri að ræða.
Flugvélin lenti á 25. hæð Pirelli-
turnsins en þar eru aðalskrifstofur
yfirvalda í Langbarðalandi. Urðu
miklar skemmdir á allri hæðinni en
slökkviliðsmenn, sem komu strax á
vettvang, voru fljótir að slökkva
eldinn, sem kviknaði í flugvél-
arflakinu.
„Við héldum helst, að sprengja
hefði sprungið,“ sagði Signý Kol-
beinsdóttir í viðtali við Morg-
unblaðið, en hún stundar iðnhönn-
unarnám við Listaháskólann í
Mílanó. Býr hún ásamt vinkonu
sinni á sjöundu hæð í blokk skammt
frá Pirelli-turninum.
„Ég fór út svalir en sá ekki neitt
á jörðu niðri og fór því inn aftur. Þá
heyrðum við í þyrlum og aðvífandi
sjúkrabílum og þustum út á svalir
en með sama árangri og fyrr. Göm-
ul kona í næstu íbúð benti okkur þá
á að líta upp en ekki niður og þá
sáum við flugvélina standa út úr
miðjum turninum,“ sagði Signý.
Fabio Sunik blaðamaður, sem sá
flugvélina lenda á turninum, sagði,
að eldur hefði verið í henni áður en
hún lenti á honum. Er það einnig
haft eftir öðrum vitnum.
Celerissimo De Simone, yfirmað-
ur í lögreglunni í Mílanó, sagði í
gær, að áður en flugmaðurinn sendi
frá sér neyðarkallið, hefði hann
haft samband við flugturninn á Lin-
ate-flugvellinum í borginni og sagst
eiga í erfiðleikum með lending-
arbúnaðinn.
Ítölsk flugmálayfirvöld segja, að
flugmaðurinn hafi verið sviss-
neskur, Luigi Fasulo að nafni, 75
ára að aldri. Hann var einn í vél-
inni.
Pirelli-turninn í Mílanó er eitt
helsta kennileiti borgarinnar. Er
hann 32 hæðir og 120 metra hár.
Þar starfa að jafnaði um 1.300
manns. Helsta járnbrautarstöð Míl-
anó er skammt frá húsinu og var
henni lokað af ótta við að hryðju-
verkamenn hefðu verið á ferð. Á
innfelldu myndinni sjást borgar-
búar í grennd við Pirelli-turninn í
gærkvöldi.
Logaði er hún lenti á turninum
Mílanó. AP, AFP.
Reuters
NORSKI vísindamaðurinn Thor
Heyerdahl lést í gær á Ítalíu, 87 ára
að aldri. Hann varð frægur um allan
heim árið 1947 fyrir að sigla á balsa-
flekanum Kon Tiki yfir Kyrrahaf
ásamt fimm öðrum Norðurlandabú-
um.
Heyerdahl var skorinn upp í fyrra
en í ljós kom í apríl sl. að hann var
með ólæknandi heilakrabbamein.
Ákvað hann þá að hætta að matast
og neyta lyfja til að geta þannig dáið
á friðsælan hátt. Voru eiginkona
hans Jacqueline, og flest börn hans
hjá honum á dauðastundinni í gær.
Heyerdahl var einkum þekktur
fyrir ævintýralegar siglingar sínar
á frumstæðum farkostum. Er hann
var barn munaði minnstu að hann
drukknaði og sagðist hann hafa ver-
ið vatnshræddur fram yfir tvítugt.
Heyerdahl
látinn
Ósló. AP.
Ævintýramaðurinn/25
EF danska landsliðið í knatt-
spyrnu vinnur heimsmeistaratitil-
inn á næsta móti sem verður í Jap-
an og Suður-Kóreu í sumar fá
leikmenn dágóðan skilding fyrir
frammistöðuna: alls 24 milljónir
danskra króna, nær 280 milljónir
íslenskra króna, að sögn Berl-
ingske Tidende.
Leikmennirnir í hópnum sem fer
á mótið eru 23 og fær því hver
þeirra rúma milljón eða nær 12
milljónir ísl. kr. Ekki er gert upp á
milli manna eftir því hvort þeir
spila eða sitja á bekknum.
Titillinn
borgar sig
PALESTÍNUMENN í Jenín leituðu
í gær að ættingjum sínum og eigum í
húsarústum þrátt fyrir náþefinn af
líkum sem grafist hafa undir braki
og ekki verið fjarlægð. Terje Rød-
Larsen, sendimaður Sameinuðu
þjóðanna, gagnrýndi í gær harka-
lega hernað Ísraela í Jenín.
„Ekki er með nokkru móti hægt
að réttlæta slíkar aðgerðir og ægi-
legar þjáningarnar sem þeim
fylgja,“ sagði Rød-Larsen og taldi
borgina helst minna á jarðskjálfta-
svæði. „Þetta er skelfilegra en orð fá
lýst.“ Hann sagði að um 300 hús
hefðu verið jöfnuð við jörðu og um
2.000 manns væru heimilislaus.
Hvatti Rød-Larsen Ísraela til að
draga heri sína þegar frá borginni og
leyfa þjálfuðu fólki að hefja leit að lif-
andi fólk undir brakinu.
Fundist hafa um 30 lík en óljóst er
hve margra er saknað, leiðtogar Pal-
estínumanna saka Ísraela um fjölda-
morð í borginni. Ísraelar fullyrða að
reynt hafi verið að forðast eftir
mætti mannfall og sprengjugildrur
vígamanna hafi valdið mestu af tjón-
inu. Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, vísaði á bug tillögu Kofi
Annans, framkvæmdastjóra SÞ, um
að sent yrði alþjóðlegt gæslulið til að
stilla til friðar.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að för Colins Powells
utanríkisráðherra til Mið-Austur-
landa hefði ekki verið árangurslaus.
Powell hefði meðal annars tekist að
gera deiluaðilum ljóst að hryðjuverk
myndu ávallt draga úr líkum á því að
friður næðist. Sharon hefði staðið við
loforð um að draga heri á brott frá
ákveðnum svæðum og tímaáætlanir í
þeim efnum hefðu staðist.
Forsetinn sagðist skilja kröfur
Sharons um að Yasser Arafat, leið-
togi Palestínumanna, framseldi
meinta morðingja ísraelsks ráðherra
og sagði Sharon vera „mann friðar-
ins“. Saeb Erakat, helsti samninga-
maður Palestínustjórnar, sagði um-
mælin jafngilda því að Bush
verðlaunaði ríkisstjórn fyrir að
stunda hryðjuverk.
Árásir á Jenín
fordæmdar
Bush Bandaríkjaforseti segir
Sharon vera „mann friðarins“
Washington, Jenín. AP, AFP.
Stjórn/24
ÞÚSUNDIR íbúa Afganistans
tóku á móti fyrrverandi konungi
sínum, Mohammed Zaher Shah,
þegar hann sneri aftur til landsins
frá Ítalíu í gær í fyrsta skipti í
næstum þrjátíu ár. Lýstu margir
þeirri von að heimkoma Zahers
Shah boðaði friðsamlegri tíð en
segja má að stöðug átök hafi geis-
að í Afganistan frá því að Zaher
Shah var steypt af stóli árið 1973.
Zaher Shah, sem er 87 ára gam-
all, varð konungur Afganistans ár-
ið 1933. Frændi hans, Mohammed
Daoud, rændi hins vegar völdum
árið 1973 þegar Zaher Shah var
staddur á Ítalíu. Hefur konung-
urinn fyrrverandi dvalist þar æ
síðan, eða þar til hann sneri aftur
til Kabúl í gær.
„Ég er ánægður með að vera
kominn aftur hingað,“ sagði kon-
ungur í samtali við ítalska sjón-
varpsfréttamenn en hann sagðist
einnig vera orðinn tengdur Ítalíu.
„Tvenns konar tilfinningar bærast
með mér, annars vegar togar mitt
eigið land í mig, hins vegar tengsl-
in við ykkar land, hvað sem öðru
líður eru 30 ár langur tími.“
Gert hafði verið ráð fyrir að
Zaher Shah myndi snúa aftur til
Afganistans í mars en af því varð
ekki fyrr en nú vegna gruns um að
uppi væru áform um að ráða kon-
unginn fyrrverandi af dögum. Var
mikil öryggisgæsla í Kabúl í gær.
Er konungur var spurður um lík-
urnar á varanlegum friði í Afgan-
istan hóf hann hendurnar í átt til
himins og sagði: „Um það verðum
við að spyrja Guð.“
Margir telja, að þar sem Shah
hefur lengi verið í útlegð sé hann
rétti maðurinn til að sameina hina
sundruðu afgönsku þjóð. Aðrir
segja hins vegar útilokað að Zaher
Shah fái pólitískt hlutverk enda
hafi hann verið of lengi fjarver-
andi. Í samræmi við samkomulag
sem náðist í Þýskalandi í desem-
ber mun það þó falla í hlut Zahers
Shah að opna loya jirga, hið afg-
anska þjóðþing, í júní nk. en á
þinginu er gert ráð fyrir að skipuð
verði ný þjóðstjórn fyrir Afganist-
an.
Reuters
Mohammad Zaher Shah við kom-
una til Kabúl-flugvallar í gær.
Zaher Shah
fagnað í Kabúl
Kabúl. AP. AFP.
♦ ♦ ♦