Morgunblaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 11
MIKIL óánægja er nú meðal heilsu-
gæslulækna, jafnt á höfuðborgar-
svæðinu sem víða á landsbyggðinni,
með kjör sín og starfsumhverfi og
hafa uppsagnir þeirra streymt til
stjórna heilsugæslustöðva. Nú síðast
ákváðu níu læknar á heilsugæslu-
stöðinni Sólvangi í Hafnarfirði, sem
eru sérfræðingar í heimilislækning-
um, að segja upp starfi frá næstu
mánaðamótum en í síðustu viku
gerðu starfsbræður þeirra á Heilsu-
gæslustöð Suðurnesja hið sama.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru uppsagnir heilsugæslu-
lækna yfirvofandi víða á lands-
byggðinni, t.d. í Kópavogi og
Vestmannaeyjum, og í Reykjavík og
Garðabæ hafa fjórir læknar nýlega
hætt störfum eða farið í langt leyfi.
Þá hefur einn heilsugæslulæknir á
hvorum stað, Selfossi og Húsavík,
sagt upp störfum. Oft er um yfir-
lækna að ræða en einnig almenna
heilsugæslulækna.
Í Gúlag-fjötrum
innan girðingar
Sólvangur sinnir svæði sem um 22
þúsund manns búa á, þ.e. Hafnar-
firði og Bessastaðahreppi. Aðspurð-
ur um ástæður fyrir uppsögnunum
segir Emil L. Sigurðsson, yfirlæknir
á Sólvangi, að um uppsafnaða
óánægju sé að ræða með „aðfarir“
heilbrigðisyfirvalda gagnvart þeim.
Heilsugæslulæknar séu ósáttir við
að vera haldið „innan girðingar“ á
lægstu laununum, þ.e. að þeir hafi
ekkert val um starfsvettvang, ann-
aðhvort starfi þeir hjá hinu opinbera
eða ekki og hafi þá ekki heimild til
að starfrækja læknastofur samfara
vinnu á heilsugæslustöð.
„Okkur eru úrskurðuð laun sem
eru sambærileg við laun sjúkrahús-
lækna á stofnunum. Þeir hafa hins
vegar möguleika á að fara út í bæ og
reka sínar stofur. Við fáum ekki að
gera það og höfum því ekki mögu-
leika á að auka okkar tekjur. Við
líkjum þessu við að vera í Gúlag-
fjötrum innan girðingar. Það eru
vissulega stór orð en við erum þó lif-
andi og okkur er ekki misþyrmt lík-
amlega. Miðstýringin á kerfinu er þó
sambærileg. Vottorðamálið, sem
kom upp um áramótin, var bara
kornið sem fyllti mælinn. Þetta er
ekki bara spurning um launakjör
okkar heldur um grundvöll starfs
okkar. Við lítum í raun á þetta eins
og sjálfstæðisbaráttu,“ segir Emil.
Hann segir að stjórn Sólvangs
hafi verið tilkynnt um uppsagnirnar
sl. miðvikudagskvöld. Stjórnin hafi í
raun verið vængbrotin í málinu og
ítrekað óskað leiðbeininga frá heil-
brigðisráðuneytinu, en ekki fengið
nein svör enn. „Menn eru einfald-
lega orðnir fullsaddir á þessari fram-
komu. Girðingin verður að rofna,“
segir Emil og bætir við að það sé
forsenda þess að heimilislækningar
fái að lifa áfram hér á landi.
Emil segir að ef engin breyting
verði á starfskjörum heilsugæslu-
lækna sé beinlínis verið að hrekja þá
út í einkarekstur, þar sem sjúkling-
ar munu þurfa að greiða fullt þjón-
ustugjald ef ekki takist að ná samn-
ingum við ráðuneytið og Trygginga-
stofnun. Það geti varla talist þjóð-
hagslega hagkvæmt. Hann segist
vita til þess að menn séu farnir að
líta í kringum sig með aðstöðu undir
einkarekstur. Á hann ekki von á því,
að óbreyttu, að læknarnir á Sólvangi
haldi áfram störfum að loknum
þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Stjórn stöðvarinnar hafi þó heimild
til að framlengja uppsagnarfrestinn
um aðra þrjá mánuði. Þórir B. Kol-
beinsson, formaður Félags íslenskra
heimilislækna, segir að félagsmenn
séu að grípa til aðgerða hver á sínum
stað. Þrátt fyrir baráttu frá síðustu
launadeilu heimilislækna árið 1996
hafi lítið gerst í viðræðum við stjórn-
völd um að fá að starfa sjálfstætt
með samningi við ríkið. Nauðsynlegt
sé fyrir fagið að bjóða upp á aðra
kosti.
Flótti úr stéttinni
Þórir segir unga lækna ekki fara í
framhaldsnám í faginu að óbreyttu.
Að hans sögn eru um tuttugu læknar
í framhaldsnámi erlendis í heimilis-
lækningum og eru þeir mislangt á
veg komnir. Þórir minnir á að árlega
sé þörf fyrir tólf heimilislækna til
viðbótar hér á landi en sú endurnýj-
un eigi sér ekki stað.
Þá veit hann dæmi þess að heim-
ilislæknar hafi hætt sem slíkir og
farið í framhaldsnám í öðrum grein-
um læknisfræðinnar. Um sé að ræða
um tuttugu lækna síðastliðinn ára-
tug. Í því sambandi minnir hann á að
fyrir nokkrum árum hefðu fjórir sér-
fræðingar í heimilislækningum
reynt að fá samning við Trygginga-
stofnun, en verið hafnað að undirlagi
heilbrigðisráðuneytisins. Þórir segir
að þrír af þessum fjórum læknum
séu komnir í aðrar sérgreinar í dag,
m.a. geðlækningar.
„Þar var fimm ára framhaldsnám
lagt á hilluna og menn bara breyttu
um fag. Þetta eru ekki hótanir held-
ur einfaldlega staðreyndir sem við
höfum verið að benda ráðherra og
ráðuneytinu á. Þeir verða að bregð-
ast við ef það á að halda mönnum
áfram í stétt heimilislækna. Ef fram
heldur sem horfir verða engir
læknar á heilsugæslustöðvum held-
ur eingöngu hjúkrunarfræðingar,“
segir Þórir.
Staðan kynnt fyrir
norrænum starfsbræðrum
Hann er staddur þessa dagana í
Kaupmannahöfn á vorfundi nor-
rænna heimilislækna. Þórir segir að
staða íslenskra lækna verði kynnt
þar og ráða leitað hjá norrænum
starfsbræðrum, sem flestir séu í
betri málum, einkum í Danmörku og
Noregi.
Þórir segir að í Svíþjóð sé ófremd-
arástand að skapast í heilsugæslu-
stöðvum en af öðrum ástæðum en
hér. Þar séu læknar leigðir út frá
fyrirtækjum á vegum þeirra og
kannanir sýna að ánægjan sé mest
meðal þeirra sem starfi utan heilsu-
gæslunnar.
Óánægja meðal heimilislækna á heilsugæslustöðvum í garð heilbrigðisyfirvalda
Þolinmæðin brost-
in og uppsagnir
streyma inn
OLÍUFLUTNINGASKIPIÐ Kyndill strandaði í
innsiglingunni í Hornafjarðarhöfn um kl. 13.30
í gær og losnaði af strandstað um þremur
klukkustundum síðar. Útfall var þegar skipið
strandaði og mikill straumur og kann það að
hafa valdið því að skipið tók ranga stefnu.
Að sögn Sigfúsar Harðarsonar hafnsögu-
manns hélt straumurinn Kyndli utan í sand-
bakka við Mikley. Var stefni skipsins 5 til 7
metra frá landi. Skipið losnaði síðan af strand-
stað um kl. 16.30. Þá hafði fallið út og straum-
urinn hélt skipinu ekki lengur uppi í bakk-
anum. Hafnsögumenn Hornafjarðarhafnar á
Birni lóðs aðstoðuðu skipverja á Kyndli við að
losa skipið.
Að sögn lögreglunnar á Höfn var ekki vitað
til þess að skipið hefði skemmst né heldur að
olía hefði farið í sjóinn við óhappið.
Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson
Ekki var talið að olía hefði farið í sjóinn vegna strands Kyndils sem hér sést við Mikley.
Olíuflutningaskip strandaði í Hornafirði
TVEIR menn um tvítugt voru
staðnir að skemmdarverkum á
rauðljósamyndavél á mótum
Sæbrautar og Holtavegar í
Reykjavík á fjórða tímanum í
fyrrinótt. Starfsmaður Öryggis-
miðstöðvarinnar sá til mann-
anna og gerði lögreglu viðvart.
Hann veitti öðrum mannanna
eftirför uns lögreglu bar að. Eft-
irförinni lauk með því að lög-
reglumenn hlupu manninn uppi
í Breiðholti.
Lögregla hefur vitneskju um
hver hinn maðurinn, sem stóð að
skemmdarverkunum, er. Tjónið
er umtalsvert því að sögn lög-
reglu hleypur kostnaður rauð-
ljósamyndavélar á milljónum.
Staðnir að
skemmd-
um á rauð-
ljósa-
myndavél