Morgunblaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 53
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 53
PÁLL Agnar Þórarinsson hafði
tryggt sér sæti í landsliðsflokki fyr-
ir lokaumferðina í aukakeppni
áskorendaflokks. Hann gerði stutt
jafntefli við Snorra Guðjón Bergs-
son í lokaumferðinni sem tefld var
á miðvikudagskvöld. Mikil spenna
ríkti hins vegar um úrslit hinnar
viðureignarinnar í síðustu umferð-
inni. Þar börðust þeir Sævar
Bjarnason og Sigurbjörn Björns-
son um hitt sætið sem áskorenda-
flokkur á í landsliðsflokki. Sigur-
björn stóð betur að vígi, hafði eins
vinnings forskot á Sævar. Sævar
gat hins vegar haldið möguleikum
sínum opnum áfram með sigri á
Sigurbirni. Sigurbjörn, sem hafði
lengst af leitt keppnina, sigraði
hins vegar í skákinni og fylgir því
Páli Agnari upp í landsliðsflokk,
sem verður tefldur á höfuðborgar-
svæðinu í haust. Lokastaðan í
aukakeppninni varð þessi:
1.–2. Páll Agnar Þórarinsson og
Sigurbjörn Björnsson 4 v.
3.–4. Snorri Bergsson og Sævar
Bjarnason 2 v.
Það kom ýmsum á óvart þegar
það var greint frá því hér í skák-
þættinum, að FIDE hygðist birta
skákmenn með allt niður í 1.000
stig á alþjóðlega skákstigalistan-
um. Eftir að FIDE fór að skoða
málið í meiri smáatriðum sáust ým-
is tormerki á því að fara jafnhratt í
málið og fyrirhugað var. Hins veg-
ar er fyrirhugað að taka skref í
þessa átt frá og með næsta stiga-
lista, sem birtur verður í júlí. Þá
stendur til að teygja listann niður í
1.800 stig.
Sem stendur eru um 40.000
skákmenn á listanum og neðri
mörkin eru við 2.000 skákstig. Mið-
að við forsendur FIDE má jafnvel
reikna með að 400.000 skákmenn
verði á listanum þegar hann fer
niður í 1.000 stig. Jafnframt má bú-
ast við að reikna þurfi 30–40.000
skákmót á hverju ári. Þessi mikla
fjölgun hefur auðvitað ýmis vanda-
mál í för með sér og vekur ýmsar
spurningar. T.d. þarf að lengja
„kennitölu“ skákmanna frá því sem
nú er. Þá er útreikningur á öllum
þessum fjölda skákmóta ómögu-
legur nema Netið verði nýtt til hins
ýtrasta og nauðsynlegt verður fyrir
skáksamböndin að skrá alla sína
skákmenn í kerfið. Þá þarf einnig
að velta fyrir sér hvort og þá
hvernig t.d. íslensku stigin verða
yfirfærð í FIDE-kerfið.
Erfiðasta vandamálið sem FIDE
stendur hins vegar frammi fyrir er
útfærsla stigakerfisins til þess að
það endurspegli raunverulegan
styrkleika skákmanna í mikilli
framför. Ekki hafa enn sést tillögur
um breytingar á stigakerfi FIDE
til að bregðast við þessu vandamáli.
Í núverandi kerfi FIDE, og sér-
staklega meðan stigalágmarkið var
2.200, var þetta ekki vandamál.
Geurt Gijssen: Hannes
– Stefán ½–½
Á vefsíðu Chess Cafe er ítarleg
umfjöllun um hið merkilega atvik í
skák Hannesar Hlífars og Stefáns
Kristjánssonar á Reykjavíkurskák-
mótinu. Þetta atvik var rakið í
skákþætti Morgunblaðsins, en
keppendur sömdu um jafntefli eftir
að klukka Hannesar féll. Skákdóm-
ararnir töldu að klukkan gilti og
óheimilt væri að semja um jafntefli
eftir að hún fellur. Niðurstaða
Geurt Gijssen, eins mesta sérfræð-
ings heims í skáklögunum, er hins
vegar sú að úrslitin sem standa á
skorblaðinu ráði, en keppendur
höfðu þar skráð úrslit skákarinnar
sem jafntefli.
VN-mótaröðin
Hefst á laugardag kl. 14. Þátt-
tökurétt hafa allir skákmenn. Teflt
verður á Grandrokk, Smiðjustíg 6.
Íslandsmót stúlkna 2002
Íslandsmót stúlkna (grunnskóla-
mót) fyrir árið 2002 verður haldið
sunnudaginn 21. apríl í húsnæði
Skáksambands Íslands, Faxafeni
12, Reykjavík. Mótið hefst kl. 13.
Voratskákmót Hellis
Hið árlega voratskákmót Tafl-
félagsins Hellis hefst mánudaginn
22. apríl. Því verður svo fram hald-
ið mánudaginn 29. apríl. Umhugs-
unartími er 25 mínútur á skák.
Mótið er öllum opið. Teflt verður
í Hellisheimilinu, Álfabakka 14a í
Mjódd. Sami inngangur og hjá
SPRON.
Páll Agnar og Sigurbjörn
Björnsson í landsliðsflokk
SKÁK
Skáksamband Íslands
ÁSKORENDAFLOKKUR – AUKAKEPPNI
10.–17. apríl 2002
Daði Örn Jónsson
VORFERÐ barnastarfs Seljakirkju
verður næstkomandi laugardag 20.
apríl og er ferðinni heitið í Hafn-
arfjörðinn. Haldin verður barna-
guðsþjónusta í Hafnarfjarð-
arkirkju. Barnakórar Seljakirkju
syngja við guðsþjónustuna og að
sjálfsögðu tökum við vel undir.
Lagt verður af stað frá Seljakirkju
kl. 11. Ef veður leyfir munum við
finna okkur stað á leiðinni til baka
og bregða þar á leik. Allir fá óvænt-
an glaðning og í lokin verður hin
rómaða pylsuveisla við Seljakirkju.
Reiknað er með að ferðinni ljúki
milli kl. 14 og 15.
Allir krakkar eru velkomnir í
ferðina og foreldrar með þeim.
Þessar ferðir hafa ekki síður verið
skemmtiferðir fyrir foreldrana.
Ferðin og veitingar eru í boði safn-
aðarins. Munið viðeigandi klæðnað
eftir veðri.
Hittumst við Seljakirkju laug-
ardaginn 20. apríl kl. 11 og eigum
saman góðan dag.
Kaffihúsamessa
í miðborginni
KAFFIHÚSAMESSA verður í
Ömmukaffi, Austurstræti 20 (Gamli
Hressingarskálinn) laugardags-
kvöldið 20 apríl kl. 21.
Hinn eini sanni Þorvaldur Hall-
dórsson tónlistarmaður (sem söng
„Á sjó“ hér forðum) ætlar að leiða
lofgjörðina ásamt þeim sem sækja
kaffihúsið heim. Bjarni Karlsson
sóknarprestur mun predika, en
Jóna Hrönn Bolladóttir miðborg-
arprestur og Þorvaldur Hall-
dórsson leiða stundina að öðru
leyti.
Ömmukaffi er bjart og reyklaust
kaffihús í hjarta borgarinnar og
það er vel þess virði að líta þangað
inn, en ekki síst á laugardags-
kvöldið þar sem hægt er að kaupa
eðalkaffi og taka þátt í upp-
byggilegri samverustund.
Ömmukaffi og
miðborgarstarf KFUM/K.
Morgunblaðið/Jim Smart
Seljakirkja
Vorferðalag
barnastarfsins
í Seljakirkju
Háteigskirkja. Samverustund eldri borg-
ara kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufull-
trúa.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05 alla virka daga nema mánudaga.
Mömmumorgunn kl. 10–12 í
umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir
börn.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í
Varmárskóla kl. 13.15–14.30.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð,
barnasaga, prédikun og biblíufræðsla.
Barna- og unglingadeildir á laugardögum.
Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl.
10, 13 og 22 á FM 105,5.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma í kvöld kl. 21.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Flóamarkað-
ur frá kl. 10–18.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Biblíurannsókn og bænastund á miðviku-
dagskvöldum kl. 20. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Maxwell
Ditta.
Samlestrar- og bænastund á föstudags-
kvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guð-
mundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Sam-
lestrar og bænastund í safnaðarheimilinu
á fimmtudögum kl. 17.30. Allir hjartanlega
velkomnir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11.
Ræðumaður Einar Valgeir Arason. Biblíu-
rannsókn/bænastund á miðvikudags-
kvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
Úrslitakeppni
í málmsuðu
ÚRSLITAKEPPNI framhaldsskól-
anna í málmsuðu verður haldin föstu-
daginn 19. apríl í Borgarholtsskóla kl.
10 á vegum Iðnmenntar, samtaka iðn-
og starfsmenntaskóla á Íslandi,
Málmsuðufélags Íslands og Fræðslu-
ráðs málmiðnaðarins.
Forkeppni hefur þegar farið fram í
framhaldsskólum sem kenna málm-
suðu. Hver skóli sendir í úrslita-
keppni tvo keppendur og munu þeir
keppa sem einstaklingar og sem
keppnissveit síns skóla.
Baldur Gíslason skólameistari, for-
maður stjórnar Iðnmenntar, setur
keppnina kl. 9.50. Keppt er í þremur
mismunandi suðuaðferðum, pinna-
suðu (MMA), suðustaða PB; logsuðu,
suðustaða PA, og hlífðargassuðu
(MAG), suðustaða PA. Verðlaunaaf-
hending er áætluð í sal Borgarholts-
skóla kl. 14. Allir eru velkomnir.
Bókasafn Hafn-
arfjarðar flutt
og stækkað
Í DAG, föstudaginn 19. apríl, kl. 16
verður tekið í notkun nýtt húsnæði
Bókasafns Hafnarfjarðar í Strand-
götu 1. Húsnæðið er alls um 1.500 fer-
metrar. Húsið er á fjórum hæðum og
gert ráð fyrir að skjalasafn Hafnar-
fjarðar verði einnig þar til húsa. Jarð-
hæðin á Austurgötu 4 verður enn-
fremur tengd við bygginguna og
stækkar tónlistardeild safnsins til
muna við það.
Nýja húsnæðið er um 1.700 ferm.
en núverandi húsnæði í Mjósundi 12
er 536 ferm. Knútur Jeppesen arki-
tekt var ráðinn til að hanna húsnæðið
í samstarfi við Pétur Örn Björnsson
en Verkþjónusta Kristjáns ehf. hafði
yfirumsjón með verkinu. Aðalverk-
taki framkvæmda var Háberg ehf.
Aðalfundur og
ráðstefna FENÚR
AÐALFUNDUR FENÚR, Fagráðs
um endurnýtingu og úrgang, verður
haldinn í Veislusalnum Turninum,
Hafnarfirði, föstudaginn 19. apríl
2002 og hefst kl. 11:00.
Í framhaldi af aðalfundi eða kl.
13:00 verður haldinn ráðstefnan
Endurvinnsla og úrgangsmál; For-
tíð, nútíð og ný tækifæri. Á ráðstefn-
unni verða flutt fjölmörg erindi en
dagskrá ráðstefnunnar má finna á
heimasíðu Fenúr www.fenur.is
Frumkvöðlaviðurkenning Fenúr
verða veitt í byrjun ráðstefnunnar
og er það í fyrsta sinn sem Fenúr
heiðrar fyrirtæki eða einstakling
sem hefur sýnt framsýni og þor inn-
an greinarinnar.
Meðal þeirra erinda sem flutt
verða á ráðstefnunni eru erindi um
nýtt fyrirkomulag umhverfismála í
Reykjavík og breytt sorphirðukerfi;
framtíðarhugsun í umhverfissið-
fræði; förgun og endurnýtingu úr-
gangs 1970 – 2020; urðunartilskipun
ESB og lífrænan úrgang; og líftíma-
greining (LCA) úrgangslausna.
3.500 kr fyrir félagsmenn Fenúr,
5.000 kr fyrir aðra.
Keppt í skólaskák
ÍSLANDSMÓT framhaldsskóla-
sveita í skák 2002 hefst í félagsheim-
ili Taflfélags Reykjavíkur að Faxa-
feni 12 í dag , föstudaginn 19. apríl
kl. 19.30. Keppninni lýkur laugardag
20. apríl. Hver sveit skal skipuð fjór-
um nemendum á framhaldsskóla-
stigi (f. 1981 og síðar), auk 1-4 til
vara. Tefldar verða sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi, ef næg þátttaka fæst.
Að öðrum kosti munu sveitirnar tefla
einfalda skák fyrir hvern keppanda.
Rætt um mannlífið
í miðbænum
Í LAUGARDAGSKAFFI Kjör-
dæmafélags Samfylkingarinnar í
Reykjavík á morgun, laugardaginn
20. apríl, kl. 11, fjallar Jóna Hrönn
Bolladóttir miðborgarprestur um
mannlífið í miðbænum frá sínum
bæjardyrum. Hún er jafnframt í 12.
sæti á Reykjavíkurlistanum. Að því
loknu verður stefna Reykjavíkurlist-
ans í miðborgarmálum rædd.
Kynningar-
fundur 40–60
KLÚBBURINN 40–60 er hópur
fólks á aldrinum 40–60 ára sem vill
lifa lífinu lifandi, hittast og fara sam-
an í óvissuferðir. Klúbburinn heldur
kynningarfund um starf klúbbsins
og hvað er framundan mánudaginn
22. apríl kl. 21:00 í skátaheimili
Garðbúa, Hólmgarði 34, Reykjavík.
Allir áhugasamir eru velkomnir.
Laugardagskaffi
VG í Reykjavík
ÞAÐ verður heitt á könnunni og ný-
bakað meðlæti á Torginu, Hafnar-
stræti 20 á laugardaginn frá klukkan
11 til 13. Óformlegt spjall um borg-
armál, landsmál og ekki sízt heims-
málin. Félagar eru hvattir til að
mæta og allir eru velkomnir.
Athugasemd
frá Sólheimum
í Grímsnesi
FRAMKVÆMDASTJÓRN Sól-
heima hefur sent frá sér eftirfar-
andi athugasemd:
„Framkvæmdastjórn Sólheima
mótmælir fréttaflutningi af drög-
um að skýrslu Ríkisendurskoðunar
um stjórnsýsluendurskoðun á
starfseminni. Samkvæmt stjórn-
sýslulögum eiga Sólheimar rétt á
því að koma á framfæri athuga-
semdum og skýringum áður en
slík skýrsla er birt opinberlega.
Ályktanir og vangaveltur ríkisend-
urskoðanda í drögunum byggjast á
hæpinni lögfræðilegri túlkun um
að þjónustusamningur milli Sól-
heima og félagsmálaráðuneytisins
sé í fullu gildi enda þótt honum
hafi verið sagt upp í samræmi við
ákvæði hans og enginn nýr samn-
ingur hafi tekið gildi.
Framkvæmdastjórn Sólheima á
ekki í neinum vandræðum með að
gera grein fyrir ráðstöfun fjár-
muna sem sjálfseignarstofnunin
hefur fengið frá hinu opinbera til
þjónustu við fatlaða einstaklinga
sem þátt taka í samfélaginu á Sól-
heimum. Fyrirliggjandi drög út-
heimta fjölþættar athugasemdir og
leiðréttingar af hálfu fram-
kvæmdastjórnar Sólheima sem
unnið verður að því að taka saman
á næsturnni. Telur framkvæmda-
stjórn Sólheima útilokað annað en
að fyrirliggjandi drög eigi því í
lokagerð eftir að breytast í grund-
vallaratriðum frá fyrirliggjandi
drögum. Sú staðreynd að brotinn
hefur verið trúnaður milli aðila að
málinu og andmælaréttur Sól-
heima þannig vanvirtur, er til vitn-
is um að tilgangurinn með því að
leka drögum ríkisendurskoðanda í
fjölmiðla er að koma höggi á starf-
semina.
Framkvæmdastjórnin vekur at-
hygli á því að á 71 ára starfsferli
Sólheima hefur framkvæmdavaldið
gert ítrekaðar tilraunir til þess að
vega að hugmyndafræði og sjálf-
stæði Sólheima til þess að fylgja
henni fram. Tilraunir þessar hafa
snúist um að fella Sólheima inn í
sama munstur og gildir almennt
hjá hinu opinbera í þjónustu við
fatlaða. Takist það lokast sá val-
kostur að gefa fötluðum einstak-
lingum kost á að vera jafngildir
þátttakendur í samfélagi sem
byggist á lífrænni ræktun og sjálf-
bærri þróun. Samfélagið á Sól-
heimum hefur vakið heimsathygli
og er talið í hópi 14 helstu sjálf-
bærra byggða í heiminum.
Framkvæmdastjórn Sólheima
harmar að svo hrapallega skuli
staðið að málum, eins og hér er að
framan lýst, í þann mund sem und-
irbúningur að 100 ára ártíð Sessel-
íu Sigmundsdóttir, frumkvöðuls og
stofnanda Sólheima, stendur sem
hæst.“
SAGT var í frétt blaðsins 12. apríl að
notuð fíkniefnasprauta hefði fundist
á lóð leikskólans Sæborgar við Star-
haga. Sprautan var utan lóðarmark-
anna og leiðréttist það hér með. Beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
Rangt nafn
Rangt var farið með nafn Sighvats
Arnarssonar hjá Fasteignastofu
Borgarverkfræðings í frétt af fram-
kvæmdum við Hlíðaskóla í blaðinu í
gær. Er beðist velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT