Morgunblaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 49 ✝ Óli Halldórssonfæddist í Reykja- vík 14. mars 1950. Hann lést á Landspít- ala – háskólasjúkra- húsi í Fossvogi 3. apríl síðastliðinn. Foreldrar Óla voru hjónin Halldór Þor- valdur Ólafsson mat- sveinn, fæddur á Ísa- firði 17. maí 1923, og Ingibjörg Aðalheiður Gestsdóttir húsmóð- ir, fædd í Reykjavík 29. júlí 1925. Halldór Þorvaldur er sonur Ólafs Ólafssonar, sjómanns og bræðslumanns frá Berjadalsá á Snæfjallaströnd, f. 18. ágúst 1888, d. 3. mars 1957, og Jóneyjar Sig- ríðar Óladóttur, húsmóður frá Drangsnesi í Steingrímsfirði, f. 4. júlí 1893, d. 2. mars 1973. Ingi- björg Aðalheiður er dóttir Gests Magnússonar trésmiðs frá Teiga- koti á Akranesi í Mýra- og Borg- arfjarðarsýslu, f. 7. september 1889, d. 25. maí 1958, og Sigríðar Guðmundínu Ingvadóttur, hús- móður frá Snæfoksstöðum í Grímsnesi, f. 6. maí 1895, d. 17. nóvem- ber 1977. Systkini Óla eru Sigríður Gestrún, f. 10. mars 1949 í Reykjavík, maki Halldór Veigar Guð- mundsson; Gestur, f. 29. maí 1952 í Reykjavík, maki Marta Lunddal Frið- riksdóttir; og Magn- ús, f. 13. júní 1958 í Reykjavík. Óli var ókvæntur og barnlaus og bjó síðustu æviár sín í Hátúni 10 í Reykjavík. Óli ólst upp og bjó hjá foreldr- um sínum á Hverfisgötu 121 í Reykjavík. Hann vann ýmis störf, var iðnverkamaður í húsasmíði og handlangi ásamt jarðvegsvinnu við götulagnir. Nokkur ár starfaði Óli í Volvo-verksmiðjunum í Sví- þjóð en lengst af starfaði hann við sjómennsku frá Reykjavík. Útför Óla fer fram frá Fríkirkj- unni í Reykjavík í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku bróðir minn. Það er sárt að hugsa til þess að ég fái ekki að njóta samvista við þig lengur og þeirra stunda sem við átt- um saman í gegnum árin í blíðu og stríðu. Strengurinn er svo sterkur sem tengir okkur saman, kannski vegna þess hve stutt var á milli okk- ar, eitt ár og fjórir dagar, og líka hversu lík við vorum að mörgu leyti. Á þessum tímamótum hrannast minningarnar upp hver af annarri en ein er kannski sterkust. Við vorum átta og níu ára. Ég hafði veikst af rósahnútum og mátti ekki stíga í fæt- urna. Við vorum að hafa áhyggjur af framtíðinni. Ég átti kannski ekki eft- ir að geta gengið aftur að við héldum en þú varst ekki lengi að leysa það vandamál og hughreystir mig með því að annaðhvort smíðaðir þú hækj- ur handa mér eða bara bærir mig. Þetta var trúnaður í barnsins ein- lægni. En til þess kom aldrei. Unglingsárin komu, alvara lífsins hófst, ég stofnaði heimili en þú fórst út á vinnumarkaðinn. En lífið fer ekki alltaf eins og maður ætlar. Í jan- úar 1998 fékkstu heilablóðfall og á tímabili var þér ekki hugað líf. Þinn tími var ekki kominn þá. Heilablóð- fallið varð þess valdandi að þú lam- aðist vinstra megin og þurftir hjóla- stól eftir það. Örlögin höguðu því þannig að það var ég sem ýtti þér en ekki þú mér. Vegna einstakrar umönnunar á deild 32A á Landspítala og baráttu góðra manna eignaðistu yndislegt heimili í Hátúni 10. Þó að þú vildir hafa allt í bláa litnum varðstu að sætta þig við að hafa grænar sessur á eldhússtólunum og grænan borðdúk. Þú fékkst að njóta þessa yndislega heimilis í þrjú ár og áttir þar góða að sem báru hag þinn fyrir brjósti. Þú kvartaðir aldrei og það var al- veg sama á hverju gekk, þú hafðir það alltaf „allt gott“. Við fjölskyldan áttum saman nota- legar stundir um jól og áramót. Á sunnudegi eins og oft áður fór- um við síðasta helgarrúntinn okkar með mömmu og pabba. Við skrupp- um aðeins í Kolaportið, skoðuðum skipin í höfninni og komum við í Smáralindinni. Þú varst hálfslappur og ekki eins og þú áttir að þér að vera. En að það væri orðið svona al- varlegt óraði mig ekki fyrir. Þú naust góðrar aðhlynningar þann stutta tíma sem leið þar til yfir lauk. Þú Guð sem vakir öllu lífi yfir og öllum mönnum léttir hverja þraut. Þú sem verndar hvert það líf sem lifir og langa eða stutta markar braut. Taktu í faðminn þennan þreytta bróður til þín sem hverfur núna burt frá oss. Hann sem öllum vildi vera góður en varð að bera lífsins þunga kross. Af bróður svefnsins hvíld svo þreyttur þáði. Er þungu oki lífs var burtu svipt. Nú er hann laus við allt sem honum háði og hlekkjum öllum burtu verið lyft. Hann sem hafði alltaf gott að gefa þó gæfan væri minni en hjartarúm. Það mun líka söknuð okkar sefa. Hann svífur nú með englum vorsins húm. Víst er, bæði tekur Guð og gefur góður drengur þræddi stranga braut. Sá sem góða hjartalagið hefur hann mun engill bera um ljóssins braut. Lyftu Guð minn harmi þessum þungum þeirra er syrgja og vona nú til þín. Því foreldrunum öldruðum sem ungum Finnst alltaf sárt að jarða börnin sín. Þú leiðir hann í birtu betri heima og bætir það sem lífið ekki gaf. Með von í huga bjartra geislageima við greinum ljómað morgun roðans haf. Þegar dauðinn grein af hlyni heggur og hjartkær bróðir, sonur burtu fer. Þá engill Guðs þér hönd á herðar leggur og hann mun bera sorgina með þér. (Guðný Jónsdóttir.) Með vissu um að við hittumst aftur í nýrri vídd. Þín systir, Sigríður Gestrún og fjölskylda. Í dag verður borinn til grafar bróðir minn, Óli Halldórsson, sem lést 3. apríl síðastliðinn eftir erfið veikindi. Mig og fjölskyldu mína langar að minnast Óla í örfáum orð- um. Óli átti við veikindi að etja í fjöl- mörg ár en fyrir fjórum árum tóku veikindi hans óvænta stefnu er hann varð fyrir því áfalli að lamast vegna heilablæðingar er dró hann til setu í hjólastól og síðar til búferlaflutnings úr foreldrahúsum í íbúð í Hátúni 10 hjá Öryrkjabandalagi Íslands. Enn eitt áfallið varð um miðjan mars síð- astliðinn er hann greindist með krabbamein í lungnaberki sem á stuttum tíma hreif hann á brott inn í hvíldina eilífu og sálu til æðra lífs. Það er huggun harmi gegn að hann er laus við allar þrautir þessa lífs þótt ávallt er Óli var spurður hvernig líðan hans væri hefði svar hans verið: „Allt gott.“ Í öllum veik- indum sínum naut Óli ómældrar ást- úðar og umhyggju foreldra okkar og stuðnings fjölskyldu sinnar og vil ég sérstaklega þakka Siggu systur og Dúdda fyrir sína ósérhlífni og hjálp- semi við Óla. Óli átti erfitt með að sjá vamm annarra og var ávallt mikil barna- gæla. Til vitnis um það eru sögur systkinabarna af alúð og umhyggju hans í þeirra garð. Þegar ég var yngri áttum við Óli margt sameiginlegt og eru mér barna- og unglingsárin minnisstæð, en eins og með bræður, þar sem sá yngri sækist í að fylgja þeim eldri í leiðangra og á vit ævintýra unglings- áranna, þá var það ekki alltaf vinsælt og tekið með þegjandi þögninni, en Óli var ávallt til staðar og kom til hjálpar ef eitthvað bjátaði á hjá litla bróður og varði hann með kjafti og klóm ef þess þurfti með. Elsku bróðir, mágur og frændi, takk fyrir allt og líði þér vel í himna- ríki. Þó kveðji vinur einn og einn og aðrir týnist mér, ég á þann vin, sem ekki bregst og aldrei burtu fer. Þó styttist dagur, daprist ljós og dimmi meir og meir, ég þekki ljós, sem logar skært, það ljós, sem aldrei deyr. Í gegnum líf, í gegnum hel er Guð mitt skjól og hlíf, þótt bregðist, glatist annað allt, hann er mitt sanna líf. (Margrét Jónsdóttir.) Við sem eftir stöndum geymum minningarnar um þig í hjartanu og við vitum að handan við hafið færðu góðar móttökur ættingja og vina með útbreiddan faðm og bros á vör. Blessuð sé minning þín. Gestur Halldórsson og fjölskylda. ÓLI HALLDÓRSSON :      &  .  )     ) ! +     + !    ! 1 @41  1.44 + # ! "# ( +  AB,  "-) ( ) # (*  (* # % ( -) (  # % 1 ;) # +% -) ( ) # / %+0 #    / /0  %/ / /0 , ;0 +      +    1 144. .44 4 %% %0'#  # ( + />=''# ! "#      <       *        #%   %$% *'      0    + *) 8 () *  5 ) # 8 % 5%   # 5 +* 8 % # ( C 8 % # 4!8 %) , :      &  .  )  (.8 (     ) !   +     + !    !  42 1 D  .44 >/)#  ", *'      0    + () (   7 ( =   8 %. # ." %) # +!* +  #  "%9 (  (*,# >* +  # E/ %5%  ) #    % ;+ ) # >F)  / %-) (  #   ( + ) # ) !)  >* # C   +  # - /!0 %+) ) # 5% % % +  # + 0- % "*) # / /0  %/ / /0 , :      &  .  )  (.8 (     ) ! 41.313  .  1  /)# ) 9), % "(   () %!0 , Hún Bogga móður- systir mín hefur nú kvatt þennan heim fyrr en nokkurn gat órað fyrir. Hún lést á Landspítalanum 21. janúar sl. eftir aðeins skamma sjúk- dómslegu. Sigurborg Helgadóttir fæddist 7. október árið 1920 á Hvítanesi í Ísa- fjarðardjúpi, dóttir þeirra Helga Sal- ómonssonar og Guðmundínu Rann- veigar Ragúelsdóttur. Foreldrar Boggu bjuggu í Fola- fæti í Ísafjarðardjúpi, en þegar hún var nokkurra ára gömul skildu for- eldrar hennar og varð hún eftir hjá föður sínum, sem var sjómaður og reri frá Folafæti. Einnig dvaldi hún löngum hjá móðurforeldrum sínum sem áttu heima á næsta bæ, Grjót- hlaði. Seinna flutti faðir hennar til Hnífsdals, og móðurforeldrarnir SIGURBORG HELGADÓTTIR ✝ SigurborgHelgadóttir fæddist á Hvítanesi í Ísafjarðardjúpi 7. október 1920. Hún lést á Land- spítalanum 21. jan- úar síðastliðinn og var jarðsungin frá Bústaðakirkju 5. febrúar, en útförin fór fram frá Hnífs- dalskapellu 16. febr- úar síðastliðinn. einnig, og auk þess var móðir hennar búsett þar. Hjá föður hennar var vinnukona sem hét Margrét sem ég kann ekki deili á, en hún reyndist henni mjög vel á þessum árum. Þegar Bogga var sextán ára gömul flutt- ist hún að heiman til Reykjavíkur og vann lengi á Hressingarskál- anum,bæði áður en hún eignaðist fjölskyldu, og eins seinna eftir að syn- ir hennar flugu úr hreiðrinu, en hún eignaðist fjóra syni. Elstur þeirra er Ásgeir Sigurðsson, þá Ragnar, Auð- unn og Hafþór Guðmundssynir, sem hún átti með eiginmanni sínum Guð- mundi Auðunssyni sjómanni. En þau slitu samvistum. Þegar ég var smástelpa í Hnífsdal fannst mér að jólunum væri bjargað þegar jólapakkarnir til okkar systk- inanna frá Boggu og fjölskyldu voru komnir. Þá máttu jólin koma. Stundum fórum við systkinin með mömmu til Reykjavíkur og þá vorum við oftast hjá Boggu og Guðmundi, og var mjög gott og gaman að vera hjá þeim, fyrst í Akurgerðinu og svo í Langagerði þar sem Bogga bjó alla tíð. Hún var alltaf vöknuð fyrir allar aldir og maður vaknaði við söng því hún var mjög söngvin og söng við vinnu sína. Hún vann heima við að sauma fyrir ýmis fyrirtæki, s.s.Hag- kaup o.fl., á meðan synir hennar voru að vaxa úr grasi. Hún söng líka með okkur krökk- unum. Við Ragnar fórum í Þjóðleik- húsið á Kardimommubæinn og þá sungum við uppi í rúmi öll lögin úr leikritinu um kvöldið. Bogga hafði gaman af að koma vestur á æskuslóðirnar, hún dvaldist hjá okkur sl. sumar og áttum við ekki von á öðru en hún kæmi til okkar aft- ur í sumar. En allt er í heiminum hverfult. Hún Bogga frænka mín er horfin yf- ir móðuna miklu. Ég þakka henni samfylgdina og votta frændum mínum og fjölskyld- um þeirra samúð. Rannveig Pálsdóttir. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.