Morgunblaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 59
DAGBÓK
Bankastræti 14, sími 552 1555
Stretsbuxur og -skyrtur
Gott verð
Framtíð grunnskólans
Opinn fundur með
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
og Birni Bjarnasyni
á Grand Hóteli Reykjavík
miðvikudaginn 24. apríl frá kl. 20-22.
Foreldrar í Reykjavík
Allir velkomnir
Stjórn SAMFOKS
BESTA spilmennskan í sex
spöðum suðurs er ekki
augljós í upphafi, en eitt
leiðir af öðru og fyrr en
varir er sviðið sett fyrir
glæsilega endastöðu.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ KG3
♥ ÁG92
♦ Á5
♣Á954
Vestur Austur
♠ 4 ♠ 976
♥ – ♥ K10874
♦ KDG107632 ♦ 94
♣D1072 ♣G83
Suður
♠ ÁD10852
♥ D653
♦ 8
♣K6
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 spaði
5 tíglar 6 spaðar Pass Pass
Pass
Vestur spilar út tígul-
kóng. Ásinn í borði á þann
slag og síðan er trompi
spilað þrisvar. Hvernig er
best að halda áfram?
Ekkert kostar að trompa
tígul og kanna betur leg-
una í þeim lit. Síðan er
hjarta spilað að blindum og
vestur hendir tígli. Nú er
tími til að staldra við. Vest-
ur á tólf spil í láglitunum
og ekki fleiri en átta tígla.
Hann á því a.m.k. fjórlit í
laufi, sem þýðir að það
verður ekki hægt að þvinga
austur í hjarta og laufi.
Nei, það þarf einhvers kon-
ar innkast á austur og það
er ekki tímabært að gefa
honum slag á hjartakóng.
Því er tekið á hjartaás
og laufi spilað þrisvar með
trompun. Staðan er þá
þessi:
Norður
♠ –
♥ G92
♦ –
♣9
Vestur Austur
♠ – ♠ –
♥ – ♥ K1087
♦ DG10 ♦ --
♣D ♣ --
Suður
♠ 8
♥ D65
♦ –
♣–
Það er vitað að austur á
ekkert nema hjörtu eftir.
Suður spilar hjarta á gos-
ann og leggur upp.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Agi þinn og sjálfstjórn er
með ólíkindum og sá kostur
gerir þér kleift að áorka
miklu. Þú munt fullgera
margt verkið á árinu og fá
tækifæri til að takast á við
ný ævintýr.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Upplagt að bjóða vinum
heim í dag og halda þeim
teiti. Umhyggja þín gerir að
verkum að fólk er þakklátt
fyrir vináttu þína.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í dag viltu vera meðal ást-
vina og munt njóta návistar
við þá.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú áorkar miklu í dag vegna
krafts þíns og harðfylgis;
ekkert viðfangsefni vefst
fyrir þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ástartilfinningar og vinátta
mun vaxa á öllum sviðum lífs
þíns í dag. Þér finnst lífið
ríkara og gjöfulla vegna
þessa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er sama hvað þú gerir,
þú hefur á þér ímynd árang-
urs og hamingju. Þó þú áttir
þig ekki á því öfunda margir
þig af því.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú kemst að því að fólk tek-
ur á vináttu og sambandi
með ólíkum hætti og sættir
þig því betur við þínar eigin
aðferðir í þeim efnum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Auður annarra verður þér
til framdráttar í dag. Náinn
vinur vill hjálpa og þú ættir
að taka því þar sem enginn
böggull fylgir skammrifi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú smitar alla í kringum þig
með léttlyndi og glaðværð.
Að blanda skapi við aðra í
dag mun veita þér mikla
ánægju.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér mun hætta til þess í dag
að sökkva þér um of í sæl-
gæti og sætindi hvers konar;
heldur enda að súkkulaði
örvi ástarstöðvar heilans?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Lappaðu upp á ástarsam-
bandið, tjáskipti á tilfinning-
arlegum nótum geta orðið til
þess að koma málum á
hreint.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Bjóddu vinum og vanda-
mönnum heim til þín í dag,
það mun veita þér mikla
ánægju.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú sækist eftir því að vera
með vinum í dag, og ekkert
er meira gefandi en þægi-
legar samræður við aðra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
BOÐUN MARÍU
Var leikið á sítar? Nei, vindurinn var það, sem rótt
í viðinum söng og næturró minni sleit.
Ég gat ekki sofið. Sál mín var dimm og heit.
Sál mín var dimm og heit eins og austurlenzk nótt.
Og ég reikaði þangað sem döggin úr dökkvanum hló
og á drifhvítum runnum hið gljúpa mánaskin las.
Og ég lagðist nakin í garðsins svalandi gras.
Sem gimsteina á festi nóttin stundirnar dró.
Svo nálgaðist sítarsöngurinn handan að,
og senn var hann biðjandi rödd, sem við eyru mér kvað.
Var það svefninn, sem vafði mig draumi sínum?
Og var það blærinn, sem brjóst mín og arma strauk,
og blærinn, sem mig í titrandi faðmi sér lauk,
með sæluna, er lokaði lémagna augum mínum?
Tómas Guðmundsson.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
e3 Bf5 5. Rc3 e6 6. Rh4 Be4
7. f3 Bg6 8. Db3 Dc7 9. Bd2
Rbd7 10. g3 Be7 11. cxd5
exd5 12. O-O-O O-O 13.
Rxg6 hxg6 14. Kb1 a5 15.
Dc2 c5 16. g4 cxd4
17. exd4 Rb6 18. h4
Hac8 19. h5 g5 20.
Bxg5 Rxg4 21. Bc1
Rf6 22. Bd3 Kh8 23.
Hdg1 Rc4 24. Dg2
Hg8 25. Bg6 Bf8 26.
h6 gxh6 27. Bxh6
Hxg6 28. Bf4+ Rh7
29. Bxc7 Hxg2 30.
Hxg2 Hxc7 31.
Hhg1 Rf6
Staðan kom upp á
Amber mótinu sem
lauk fyrir skömmu í
Monakó. Landarnir
Jeroen Piket (2659)
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
og Loek Van Wely (2697)
öttu hér kappi saman og
hafði sá fyrrnefndi hvítt. 32.
Rxd5! Hc6 32...Rxd5 gekk
ekki upp vegna 33. Hh2+ og
hvítur mátar. Framhaldið
varð: 33. Hh1+ Rh7 34.
Hgh2 Kg8 35. Hxh7 Rd2+
36. Ka1 Rxf3 37. a3 Rg5 38.
H7h5 Hg6 39. Rf4 og svart-
ur gafst upp.
Með morgunkaffinu
Nei, við fáum ekki að sjá amerískar sápuóperur hér.
En þeir í neðra sýna þær vist allan sólarhringinn.
Þorirðu að koma hing-
að upp og endurtaka
það sem þú sagðir ... ?
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
GRACE, sem er 30 ára,
óskar eftir íslenskum
pennavini. Áhugamál m.a.
eldamennska, ferðalög og
bréfaskriftir.
Grace Ennis,
# 1 Eden Ave.
Kingston 13,
Jamaica W.I.
DOREEN, sem er 32 ára,
óskar eftir íslenskum
pennavini. Áhugamál m.a.:
Ferðalög, náttúran og
ferðalög.
Doreen Bird,
Boone Hall Rd.
Lawrence Tacern P.O.
St. Andrew,
Jamaica W.I.
CORALINE, sem býr í
París og er stúdent á lista-
braut í háskóla, óskar eftir
pennavini. Hún hefur
áhuga á að læra íslensku.
Coraline Janvier,
31 rue du repos
75020 Paris,
hafdis2@aof.com
LEIF, sem er 60 ára
kvæntur Dani, óskar eftir
íslenskum pennavini.
Leif Christiansen,
Blytækkerporten 10,
2650 Hvidovre,
Danmark.
Pennavinir
FRÉTTIR
SAMNINGATÆKNI og Árang-
ursrík liðsheild verður kennd hjá
Endurmenntun HÍ, dagana 22. og
23. apríl kl. 16 – 20.
Kenndar verða aðferðir til að
efla liðsheild og auka samstarfs-
vilja starfsfólks í fyrirtækjum og
stofnunum. Hvað einkennir sam-
stillt lið? Hvað einkennir hugarfar
liðsmanna í árangursríkri liðs-
heild?
Helstu atriði í samskipta- og
leiðtogaþjálfun. Aðferðir til að efla
sjálfstraust og vinna með eigin
sjálfsmynd. Hugmyndaheimur af-
reksíþróttamanna yfirfærður á
ýmis svið í atvinnurekstri.
Kennari verður Jóhann Ingi
Gunnarsson sálfræðingur.
Verð: kr. 17.400. Nánari upplýs-
ingar og skráning: http://
www.endurmenntun.hi.is, segir í
fréttatilkynningu.
Námskeið um
árangursríka
liðsheild
GIGTARFÉLAG Íslands stendur
fyrir gönguferð um Laugardalinn
laugardaginn 20. apríl kl. 11 og verð-
ur gengið frá húsakynnum félagsins í
Ármúla 5. Gert er ráð fyrir klukku-
tíma göngu sem ætti að henta flest-
um. Einn af kennurum hópþjálfunar
gengur með hópnum og sér um létta
upphitun í byrjun og teygjur í lokin.
Öllum er frjáls þátttaka, bæði fé-
lagsmönnum GÍ og öðrum.
GÍ með göngu í
Laugardalnum
Í TILEFNI af alþjóðlegum kynn-
ingardögum ITC-þjálfunarsamtak-
anna 19. og 20. apríl hafa Landsam-
tök ITC á Íslandi valið Vigdísi
Finnbogadóttir, fyrrverandi forseta
Íslands, sem: samskiptajöfur ársins
2002. Hún mun veita útnefningunni
viðtöku við hátíðarkvöldverð á þingi
ITC sem haldið verður í Hásölum í
Hafnarfirði 11. maí nk.
Samskiptajöfur
ársins hjá ITC