Morgunblaðið - 19.04.2002, Side 16

Morgunblaðið - 19.04.2002, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ meistar inn. is ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI SELTJARNARNESBÆR hefur hafnað kröfu ÁHÁ-bygginga um skaðabætur vegna meintra ólög- mætra vinnubragða við útboð á Hrólfsskálamel. Hljóðar krafan upp á 585 milljónir króna. Lögmaður verk- takafyrirtækisins segir að til standi að láta reyna á málið fyrir dómstól- um. Guðrún Helga Brynleifsdóttir, frambjóðandi í fyrsta sæti Neslistans á Seltjarnarnesi í komandi sveitar- stjórnarkosningum, reit grein í Morgunblaðið í gær þar sem hún skýrði frá kröfunni. Að sögn Sigur- geirs Sigurðssonar, bæjarstjóra á Seltjarnarnesi, hefur bærinn látið kanna lögmæti kröfunnar og ákveðið hafi verið að ganga ekki til samkomu- lags við kröfuaðila. „Það er ekkert um að semja vegna þess að öllum til- boðunum var hafnað skýrt og greini- lega. Lögmenn bæjarins telja að krafan eigi ekki við rök að styðjast,“ segir hann. Hann segir ekkert hafa gerst í mál- inu um nokkurn tíma og síðustu bréfaskipti vegna þess hafi farið fram í febrúar. Engar viðræður séu í gangi sem stendur né bréfaskriftir og hafi bærinn talið að málið væri úr sög- unni. Vísað af bæjarstjórnarfundi við umræðu um málið Í grein sinni segir Guðrún að meirihluti bæjarstjórnar hafi lagt sig fram um að leyna málinu, „m.a. með því að bóka kröfuna í fundargerð bæjarstjórnar sem „erindi“ frá Jóni Steinari Gunnlaugssyni hrl. vegna ÁHÁ-verktaka. Af vinnubrögðum meirihlutans sést að ekki stendur til að upplýsa bæjarbúa um skaðabóta- kröfuna, þrátt fyrir þá staðreynd að nái hún fram að ganga mun hún hafa gífurleg áhrif á framtíð Seltjarnar- nesbæjar,“ segir í greininni. Í því sambandi bendir Guðrún á að fjár- hæð kröfunnar sé hærri en árleg framlög bæjarins til fræðslumála. Sigurgeir hafnar alfarið því að bærinn hafi reynt að leyna kröfunni. „Það er mesti misskilningur því þeg- ar krafan kom var hún kynnt báðum flokkunum í bæjarstjórn og báðir að- ilar fengu greinargerð um málið. Þannig að það er tóm endaleysa. Að vísu erum við ekki að auglýsa svona kröfur ef við fáum þær á okkur.“ Hann segir rétt að málið hafi verið bókað sem „erindi“ í fundargerð í stað þess að tilgreina að um skaða- bótakröfu hafi verið að ræða. „Það er einfaldlega vegna þess að við viljum ekki dreifa þessu að óþörfu ef ekkert verður af því.“ Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru utanaðkomandi áheyr- endur látnir víkja af bæjarstjórnar- fundi við umræðu málsins þegar það var tekið fyrir í seinna skiptið. Sig- urgeir staðfestir þetta. „Það var að vísu ekki nema einn áheyrandi en við gerðum það vegna þess að við vildum geta rætt þetta mál til þrautar þannig að menn gengju ekki gruflandi að því hvað þarna væri að gerast. Það er að vísu ekki algengt í bæjarstjórnum að slíkt sé gert en það er ekki óalgengt heldur ef einhver mál koma upp sem menn vilja vinna án þess að þau fari í almenna umræðu. En þarna var ekki verið að leyna hvorugum pólítísku öflunum í bæjarstjórn neinu. Málið er rekið í gegnum skipulagsnefnd bæj- arins og þar sitja menn bæði frá meiri- og minnihluta og það hefur aldrei orðið neinn ágreiningur í skipulagsnefnd um þetta mál.“ Ýtrasta krafa send bænum Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmaður, sem rekur erindi ÁHÁ-bygginga, segir umbjóðanda sinn telja að bærinn hafi brotið á sér í umræddu útboði og að semja hefði átt við fyrirtækið um verkið. Segir hann kröfuna, sem send var bænum, snúast um þann hagnað, sem fyrir- tækið hafi misst, við það að verða af verkinu. „Auðvitað er það þannig að þegar svona er málum háttað er ýtrasta krafan send út en í því felst ekki nein vísindaleg nákvæmni.“ Hann segir bæinn hafa neitað því að hann hafi brotið rétt á umbjóðanda hans og hafnað öllum kröfum en leið- in til að fara með málið áfram sé að fara með það fyrir dómstóla. „Það stendur til að láta á þetta reyna fyrir dómi, nema þeir vilji ræða við okkur. Það var boðið upp á samn- inga um málið strax og það boð stend- ur þannig að ef bærinn vill tala við okkur og semja um bótaskyldu sína og hæfilegar bætur þá erum við til umræðu um það.“ Að öðrum kosti sé dómstólaleiðin sú leið sem menn verði að fara. Skaðabótakröfu verktaka upp á 585 milljónir króna hafnað af bæjaryfirvöldum Hyggst fara með málið fyrir dómstóla Seltjarnarnes ÁRIÐ 1959 kom hingað til lands forláta bróderívél sem kona að nafni Selma Ant- oníusardóttir lét flytja inn fyrir sig. Tækið atarna þótti mikið undur, ekki síst fyrir þær sakir að það gat saumað út í fjögur stykki samtímis og lauk hinum flóknustu mynstrum í þau á innan við þremur kortérum. Þessi saumavél hefur þjónað eig- endum sínum í sængur- fataversluninni Verinu dyggilega í yfir 40 ár en síð- astliðinn miðvikudag tók nýr kafli við í sögu hennar þegar Árbæjarsafn fékk hana til varðveislu. Það er Erna Krist- insdóttir, núverandi eigandi Versins, sem hefur stýrt vél- inni allt frá árinu 1962, en þá hóf hún störf við verslunina. „Forsagan er sú að Selma, sem hafði verið berkla- sjúklingur, fékk hæsta vinn- inginn í Happdrætti SÍBS,“ segir Erna. „Þetta var mjög framsýn kona og hana lang- aði til að gera eitthvað við peninginn annað en að láta hann fara í salt í grautinn. Svo hún gaf sig á tal við Magnús Þorgeirsson í Pfaff og ræddi við hann um það að eignast einhverja svona vél sem hún hafði heyrt að væri komin á markaðinn í Þýska- landi.“ Erna segir Emilíu Þor- geirsdóttur, systur Magn- úsar, hafa gengið til liðs við Selmu og fóru þær til Þýska- lands til að læra á vélina áð- ur en þær settu hana upp hér heima og fóru að sauma á hana og selja afraksturinn. Sömu mynstur í 40 ár Tækið virkar með þeim hætti að sjálfvirkir pinnar sem ganga í gegn um það stjórna því hvernig mynstrið er saumað í efnið. Gataðar ræmur á rúllum, sem rennt er gegn um vélina stjórna síðan því hvaða pinnar fara í gegn og hvenær. Hver gataræma samsvarar síðan einu mynstri. Að sögn Ernu er ekki hægt að fá ný mynstur í vélina í dag þannig að enn er unnið eftir sömu mynstrum og síð- astliðin 40 ár. Þessi mynstur eru þau í fullri notkun því á saumastofu Versins er önnur samskonar vél, að vísu 10 ár- um yngri og sem getur saumað út í sex stykki í einu. Að sögn Ernu þótti gestum og gangandi vélin mikið undratæki enda tók það hana aðeins þrjú kortér að ljúka flóknustu mynstrunum. Maður getur því ímyndað sér þá lukku sem vélin hlýtur að hafa vakið hjá konum sem eyddu kannski vikum í að sauma út eitt slíkt munstur. „Það var alveg rosalega gaman að horfa á hana vinna,“ segir Erna. „Og ef fólk rakst inn á saumastof- una á meðan hún var í gangi stóð það alveg hugfangið að sjá þetta skapast. Það var mjög skemmtilegt.“ Þær Selma og Emilía opn- uðu verslunina Verið árið 1960 í gömlu húsi við Berg- staðastræti en að sögn Ernu fór Emilía fljótlega út úr því samstarfi og Selma rak fyr- irtækið ein í mörg ár. Síðar eignuðust hjónin Kristín Árnadóttir og Sveinbjörn Jónsson verslunina en fyrir átta árum keypti Erna hana og í dag rekur hún hana ásamt dóttur sinni. Hún leggur áherslu á að þessi verslun hafi ávallt verið rek- in af konum. „Það má segja að þetta sé enn rekið á mjög svipuðum grunni og þær byrjuðu með, Selma og Em- ilía. Til að byrja með voru þær fyrst og fremst að bródera í vöggusett og síðan fóru þær að stækka við sig en alla tíð hefur þetta verið rekið sem mjög mikið þjón- ustufyrirtæki fyrir fólk sem getur komið með sínar sér- þarfir og persónulegu óskir. Ég held að það séu ekki mörg fyrirtæki sem eru orð- in þetta gömul sem eru rekin svona, þetta er að verða svo- lítið antíkfyrirtæki – eins og vélin.“ Hluti af iðnsögunni Vélin góða er ennþá vel starfhæf en að sögn Ernu hefur hún lítið verið notuð síðan verslunin keypti inn tölvustýrða vél. Því hafi ver- ið tilvalið að gefa hana á Ár- bæjarsafn í stað þess að aka henni á haugana. „Okkur fannst kominn tími til að hún fylgdi iðnaðarsögu okkar Ís- lendinga, ekki síst í dag þar sem mikil samkeppni er orð- in við erlenda framleiðslu. Við vildum minna á að þetta hafi svosem verið gert hér því við vitum ekki hvað verð- ur í framtíðinni, við vitum ekki hvort svona lagað á nokkurn tíman eftir að verða gert hér meir. Þróunin er slík að maður gæti ímyndað sér að það yrði ekki og þá heyrir þetta sögunni til. En það er full ástæða til að minna á þetta því hér er á ferðinni íslensk framleiðsla sem hefur staðist samkeppni við allan þennan innflutning og annað slíkt í yfir 40 ár.“ Árbæjarsafn fær til varðveislu yfir 60 ára gamla bróderívél Fólk horfði hugfangið á vélina vinna Morgunblaðið/Kristinn Erna Kristinsdóttir afhendir Helga Sigurðssyni, deildarstjóra á Árbæjarsafni, vélina góðu. Kvittun þýska framleið- andans fyrir vélinni en hún kostaði 9.555 mörk. Árbær FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ hefur efnt til opinnar sam- keppni um hönnun nýrrar ráðuneytisbyggingar á stjórn- arráðsreitnum. Um er að ræða um 3.350 fermetra byggingu sem hýsa mun dóms- og kirkjumálaráðu- neytið, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið og um- hverfisráðuneytið. Byggingin mun rísa við Sölvhólsgötu 9–11 og verður 4 hæðir en undir henni er gert ráð fyrir tveggja hæða bíla- kjallara. Í byggingunni verða auk ráðuneytanna fundarsalir og mötuneyti til sameigin- legra afnota ráðuneytanna og annarra stofnana og ráðu- neyta á Stjórnarráðsreitnum. Að sögn Skarphéðins Stein- arssonar, skrifstofustjóra hjá forsætisráðuneytinu og for- manns dómnefndar sam- keppninnar, er um opna sam- keppni að ræða sem einnig verður auglýst á EES-svæð- inu. Sem fyrr segir er bygg- ingin ætluð dóms- og kirkju- málaráðuneytinu, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og umhverfisráðuneytinu. „Húsnæðismál þessara ráðu- neyta hafa verið mjög óviðun- andi og ætlunin er að bæta úr því,“ segir Skarphéðinn. „Skipulag borgarinnar og stjórnarráðsins gerir ráð fyrir því að það sé byggt upp fyrir ráðuneytin á stjórnarráðs- reitnum og þar verði öll ráðu- neytin nema forsætisráðu- neytið og utanríkisráðuneyt- ið. Þetta er fyrsti áfanginn í þeirri uppbyggingu.“ Upplýsingar og gögn sam- keppninnar er að finna á heimasíðu forsætisráðuneyt- isins, sem hefur slóðina www.forsaetisraduneyti.is en Skarphéðinn hvetur þá sem hyggjast taka þátt til að sækja gögn til Ríkiskaupa svo þeir fái örugglega svör við öll- um fyrirspurnum. Samkeppn- inni lýkur 19. júní næstkom- andi en hún er haldin í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Samkeppni um ráðuneyta- byggingu við Sölvhólsgötu                     Miðborg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.