Morgunblaðið - 19.04.2002, Qupperneq 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 25
K l e t t a g a r ð a r 8 - 1 0 • H j ó l b a r ð a d e i l d 5 9 0 5 0 6 0 • H e i m a s í ð a w w w. h e k l a . i s • N e t f a n g h e k l a @ h e k l a . i s
GOODYEAR HJÓLBARÐAR
Okkar hönnun - þín upplifun
Umboðsmenn um land allt
HEKLA hefur opnað nýtt og glæsilegt hjólbarðaverkstæði að Klettagörðum 8-10
Láttu ekki sumarið koma þér á óvart
HALDINN verður fundur fulltrúa
Atlantshafsbandalagsins, NATO, og
Rússlands 28. maí í Róm og þar
staðfest formlega samkomulag um
nýtt skipulag í samskiptum Rússa
við bandalagið. Kom þetta fram í yf-
irlýsingu frá NATO í gær en tekið
var fram að staðfestingin væri að
sjálfsögðu háð því að eining næðist
um málið á fundi utanríkisráðherra
NATO og Rússlands á fundi þeirra í
Reykjavík 14.-15. maí.
George Robertson, framkvæmda-
stjóri NATO, sagði aðspurður að
hann hlakkaði til fundarins í Róm.
„Ef lokasamningar takast mun nýr
kafli í samskiptum NATO og Rúss-
lands hefjast, merkilegur kafli í
hnattrænu samstarfi í varnarmál-
um,“ sagði Robertson. Hann sagði
að tækjust samningar myndi ekki
verða eingöngu um samvinnu í
fræðilegum skilningi að ræða heldur
í reynd.
Hugmyndirnar sem rætt er um
ganga út á að teknar verði sameig-
inlegar ákvarðanir á ýmsum sviðum.
Hins vegar fengju Rússar ekki neit-
unarvald í sambandi við hugsanleg-
ar aðgerðir bandalagsins.
Hyggjast staðfesta
samkomulag í Róm
Brussel. AFP.
NORSKI vísindamaðurinn og ævin-
týramaðurinn Thor Heyerdahl lést úr
heilakrabbameini á heimili sínu á Ítal-
íu í gær, 87 ára að aldri. Hann varð
þekktur um allan heim árið 1947 er
hann sigldi ásamt fimm félögum sín-
um á rúmum 100 dögum frá Perú til
Marquesas-eyja á Kyrrahafi, um
8.000 kílómetra leið, á Kon Tiki,
litlum fleka úr balsaviði. Vildi hann
þannig rökstyðja þá kenningu sína að
menning Suðurhafseyjabúa hefði átt
upptök sín í Suður-Ameríku. And-
stæðingar kenningarinnar höfðu
meðal annars bent á að inkar og aðrir
indíánaþjóðir hefðu ekki átt nægilega
öflug skip til úthafsferða.
Með honum í förinni voru fjórir
Norðmenn og einn Svíi. Bók er
Heyerdahl ritaði um Kon Tiki-ferðina
varð mjög vinsæl, hún var þýdd á um
70 tungumál og hefur selst í um 20
milljónum eintaka, að sögn Dagblad-
et. Margar af bókum Heyerdahls hafa
komið út í íslenskri þýðingu. Heimild-
arkvikmynd um Kon Tiki-leiðangur-
inn fékk á sínum tíma Óskarsverð-
launin í flokki slíkra mynda.
Kenningar hans eru afar umdeild-
ar og hafa flestir fræðimenn í þjóð-
fræði í stórum dráttum hafnað þeim.
Að sögn blaðsins eru rit hans yfirleitt
ekki notuð við háskóla, svo hæpnar
þykja sumar aðferðir hans. En Hey-
erdahl var snillingur í að vekja áhuga
almennings og fjölmiðla á hugmynd-
um sínum.
Ein af helstu kenningum Heyer-
dahls var að mun meiri samgangur
hefði verið milli fjarlægra heimshluta
en áður hefði verið talið. Hann stund-
aði meðal annars rannsóknir á forn-
minjum á Páskaey á sjötta áratugn-
um. Á sjöunda og áttunda áratugnum
lét hann smíða haffæra báta úr reyr
og papýrus og sigldi í tilraunaskyni á
þeim með fjölþjóðlegri áhöfn um Atl-
antshaf og Indlandshaf. Einn af bát-
um hans, Ra I, sökk skammt frá
Barbados á Atlantshafi 1969 en allir
komust lífs af. Heyerdahl stundaði
síðar fornminjarannsóknir og upp-
gröft á Maldive-eyjum á Indlands-
hafi, einnig í Perú og á Tenerife. Árið
1998 kom hann hingað til lands til að
segja frá áformum sínum um rann-
sóknir í S-Rússlandi en hann taldi frá-
sagnir í íslenskum fornritum sýna að
Óðinn hefði verið af þeim slóðum.
Heyerdahl lærði á sínum tíma
dýrafræði en fékk áhuga á þjóðfræði
er hann dvaldist ásamt þáverandi eig-
inkonu sinni, Liv, á Suðurhafseyjum
árin 1937–1938. Um það leyti voru
enn mannætur á þeim slóðum en þau
náðu góðu sambandi við íbúana og ein
af bókum Heyerdahls, Brúðkaups-
ferð til Paradísar, fjallar um ferðina.
AP
Thor Heyerdahl fyrir framan Ra II í hafnarborginni Safi í Marokkó áð-
ur en hann gerði aðra tilraun til að komast yfir Atlantshafið.
Ævintýramaðurinn
Heyerdahl látinn