Morgunblaðið - 19.04.2002, Page 35

Morgunblaðið - 19.04.2002, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 35 mkvæmd ngs Ís- andaríkj- naðarvið- andi? mig hefur ð svo sé Ralston mjög vel þýðingu öðvarinn- kkir mjög ndi og við mjög góð ið hann. vel skoð- erslur ís- rnvalda á og varn- marksvið- erslur eru af okkar viðræður andaríkj- arna á Ís- iða samn- arið fram m vikum. stöðu.“ örðun að ns til Evr- að sá við- verði hon- ð, verði í vo má að að koma u í stað firstjórnin ákvörðun eyta her- r með sér m staðsett uti af flug- sveit í Skotlandi. Þetta liggur fyrir þar sem það fylgir því að heyra und- ir Evrópuherstjórnina, að sá búnað- ur, sem hér verður, mun heyra undir æðsta yfirmann þeirrar herstjórnar, sem er Joseph Ralston. Hann hefur aðsetur í Mons í Belgíu en hluti að- alstöðva Evrópuherstjórnarinnar er í Stuttgart í Þýskalandi.“ Teljast þetta ekki mikil tíðindi í ís- lenskum öryggis- og varnarmálum? „Já, þetta eru mikil tíðindi og ís- lensk stjórnvöld hafa fram til þessa litið á þessi umskipti sem algjört trúnaðarmál. En nú þegar Banda- ríkjamenn hafa tekið sína ákvörðun varðandi breytingar á skipulagi her- stjórna og greint frá henni þá kemur þetta upp á yfirborðið. Ákvörðunin kemur okkur því ekki í opna skjöldu.“ Má vænta þess nú þegar þessi niðurstaða liggur fyrir og íslensk ör- yggis- og varnarmál hafa verið sett í „evrópskt samhengi“ að skriður komist á viðræðurnar við Banda- ríkjamenn um viðbúnaðinn hér? „Ég tel að þetta sé ótengt. Með þessu liggur fyrir að við Íslendingar tengjumst Evrópu frekar en áður og evrópskum öryggismálum. Aðalat- riðið er að hér á landi séu til staðar trúverðugar varnir. Það leggja stjórnvöld á Íslandi höfuðáherslu á. Við leggjum jafnframt á það gífur- lega áherslu að þessi ákvörðun Bandaríkjamanna verði á engan hátt til þess að veikja Atlantshafs- tengslin. Á því er vissulega hætta og þá ekki einungis vegna þessarar ákvörðunar Bandaríkjamanna held- ur einnig vegna þróunar, sem átt hefur sér stað í Evrópu og breytinga í evrópskum varnar- og öryggismál- um.“ Hvenær mun staða Keflavíkur- stöðvarinnar innan Evrópuher- stjórnarinnar skýrast? Þurfa að fara fram viðræður um hana? „Viðræður munu fara fram um það en ég get ekki sagt hvenær þær hefjast. Við Íslendingar erum til- búnir til viðræðna um þessi mál og sú afstaða tengist því að ár er nú lið- ið frá því að bókunin um fram- kvæmd varnarsamningsins féll úr gildi. Miklar tafir hafa orðið á því máli. Bandaríkjamenn eru að end- urskipuleggja allt sitt herstjórnar- og viðbúnaðarkerfi vegna árásarinn- ar 11. september. Þeir líta miklu frekar en áður til varna innan Bandaríkjanna. Ég tel að Banda- ríkjamenn hafi átt við ákveðinn tímaskort að glíma hvað varðar við- ræður við íslensk stjórnvöld. Ný rík- isstjórn var að taka við og síðan reið þessi hörmulegi atburður yfir þann 11. september. Ég tel því ekki að Bandaríkjamenn hafi sýnt Íslend- ingum og íslenskum varnarhags- munum áhugaleysi. Þeir hafa ein- faldlega verið algjörlega uppteknir við að skipuleggja viðbrögð sín í ljósi 11. september.“ Í grein í Morgunblaðinu í dag [þ.e. fimmtudag] kemur fram að í sam- tölum við ákveðna aðila innan stjórnkerfis Bandaríkjanna hafi komið í ljós að svonefnt „hættumat“ íslenskra stjórnvalda þyki um margt undarlegt og jafnframt er dregið í efa að Íslendingum stafi ógn af hryðjuverkamönnum. Hvert er þitt svar við þessu? „Á síðastliðnum áratug hefur ver- ið dregið mjög úr þeim herstyrk, sem heyrir undir varnarliðið á Ís- landi. Við teljum að í dag sé þar um að ræða lágmarksviðbúnað. Stjórn- völd á Íslandi telja nauðsynlegt að hér séu trúverðugar varnir og að til þess þurfi þann lágmarksviðbúnað, sem hér er að finna. Vissulega er rétt að lok kalda stríðsins höfðu í för með sér gjör- breytt hættumat í allri Evrópu. Varnarviðbúnaður hefur alls staðar verið skorinn niður og það á einnig við um Ísland. Mér er hins vegar ekki kunnugt um að varnir á borð við loftvarnir hafi beinlínis verið af- lagðar í nokkru ríki. Ekki hefur það t.a.m. gerst á hinum Norðurlöndun- um. Loftvarnir yrðu hins vegar af- lagðar á Íslandi ef orrustuþoturnar yrðu fluttar á brott. Við teljum ekki nægilegt að hafa í höndunum fyrir- heit um að hingað verði sendar orr- ustuþotur á hættutímum. Til þess að bregðast við hættu með litlum fyr- irvara og þeirri ógn, sem stafar af hryðjuverkamönnum, er það mat okkar að nauðsynlegt sé að orrustu- vélarnar verði staðsettar á Íslandi en ekki annars staðar. Ljóst er að hættumat gjörbreyttist í Bandaríkj- unum 11. september. Hættumat er ekki aðeins hernaðarlegs eðlis held- ur einnig pólitísks eðlis.“ ing á yfirstjórn varnarliðsins til Evrópu skil í um ör- álum“ ma hingað til lands og stöðin fái aukið vægi herra rekur í samtali við sú ákvörðun Bandaríkja- ðsins frá Bandaríkjunum og íslensk öryggismál. ’ Við teljum ekkinægilegt að hafa í höndunum fyrirheit um að hingað verði sendar orrustuþotur á hættutímum ‘ DAVÍÐ Oddsson for- sætisráðherra kveðst vera sammála Hall- dóri Ásgrímssyni ut- anríkisráðherra að óheppilegt sé að yf- irstjórn varnarliðsins á Íslandi verði flutt frá Norfolk í Banda- ríkjunum til Evrópu. Eðlilegt sé að yf- irstjórn varnarliðsins verði áfram í Banda- ríkjunum en eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær hefur verið ákveðið innan Bandaríkja- stjórnar að þessar tilfærslur verði gerðar sem liður í viðamiklum skipulagsbreytingum á yfirstjórn herafla Bandaríkj- anna. Myndi stinga í stúf við sjón- armið Bandaríkjaforseta ,,Þetta hefur komið upp áður í samskiptum Íslands og Bandaríkj- anna,“ sagði Davíð og benti á að verið hefði ágreiningur í banda- ríska stjórnkerfinu á sínum tíma þegar íslensk og bandarísk stjórn- völd unnu að sameiginlegri bókun við varnarsamninginn um fram- kvæmd varnarsamstarfsins. ,,Það leystist allt farsællega og ég vænti þess að það verði áfram þannig. Það þarf að byggjast á því að samningur- inn er gagnkvæmur og gengur út á sam- eiginlegar varnir. Þótt Bandaríkin eðli máls samkvæmt leggi fram varnarviðbúnað- inn, þá hefur stað- setningin hér einnig varnarlega þýðingu fyrir þá. Ég er þess fullviss að þegar öll mál liggja fyrir þá muni menn komast að sameiginlegri niðurstöðu. Það myndi algerlega stinga í stúf við þau sjónarmið sem Bandaríkja- forseti hefur kynnt um viðsjár vegna hryðjuverka í heiminum, að gera slíka breytingu í einu NATO-ríkjanna, sem býr við varnarsamning á milli ríkjanna,“ sagði forsætisráðherra. Davíð sagði að þessi mál væru á undirbúningsstigi viðræðna, sem standa fyrir dyrum um end- urskoðun bókunar um útfærslu varnarsamningsins, sem féll úr gildi 9. apríl á seinasta ári. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um hvenær eiginlegar viðræður við bandarísk stjórnvöld vegna end- urskoðunarinnar hefjast en Davíð segir að ekki hafi staðið á Íslend- ingum að fara út í þær viðræður. ,,Bandaríkjamenn hafa eins og allir vita verið að sinna öðrum hlutum, sem ég ber fulla virðingu fyrir og þarf auðvitað að taka ríkt tillit til,“ sagði hann. Varnarviðbúnaður hér er kominn í algjört lágmark ,,Í sjálfu sér teljum við ekkert knýja á um slíkar viðræður og teljum að málið sé í ágætum far- vegi þar sem það er. Við teljum að það séu ekki efni til breytinga frá þeim bókunum sem við gerð- um síðast. Varnarviðbúnaðurinn hér er kominn í algjört lágmark, þannig að það er ekki hægt að segja, ef hann verður skertur, að það sé lengur um eiginlegar varn- ir að ræða,“ sagði Davíð en tók jafnframt fram að hann ætti ekki von á að til þess myndi koma. Aðspurður segir forsætisráð- herra að íslensk stjórnvöld hafi verið sammála sjónarmiðum um að dregið sé úr umfangi varna með hliðsjón af breyttum tímum ,,en það hefur ákveðið gólf og ég tel að við séum á því gólfi núna,“ sagði hann. Davíð Oddsson forsætisráðherra Davíð Oddsson Væntir þess að málin leysist farsællega TALSMENN stjórnarandstöðu- flokkanna á Alþingi bregðast mis- jafnlega við þeim tíðindum að bandarísk stjórnvöld ætli að flytja yfirstjórn varnarliðsins frá Norfolk í Bandaríkjunum til Stuttgart í Þýskalandi. Formenn Samfylking- arinnar og Frjálslynda flokksins segjast helst hefðu kosið óbreytt ástand en þingflokksformaður VG telur flutninginn örva umræður hér á landi um framkvæmd varnar- samningsins við Bandaríkin. Ávinningur okkar kynni að breytast Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist ekki hafa kynnt sér öll rök með og á móti þeirri ákvörðun bandarískra stjórnvalda að flytja yfirstjórn varnarliðsins á Íslandi frá Nor- folk til Þýska- lands. Hann hefði þó kosið óbreytt ástand. „Það er kannski gamall kækur hjá mér að þrá þá stund að við getum búið ein í þessu landi, en þau skilyrði eru ekki fyrir hendi í heiminum um fyrirsjáanlegan tíma. Við höfum haft gífurlegan fjárhagslegan ávinning af veru Bandaríkjamanna hér. Ég geri ráð fyrir að það kynni að breytast, get þó ekki um það dæmt.“ Sverrir segist hafa óbifur á því að rífa upp með rótum meira en hálfr- ar aldar gamalt varnarsamstarf við Bandaríkjaher. Ómögulegt sé að segja til um hvað bíði okkar í nýju umhverfi. „Að lítt rannsökuðu máli, og aðeins af lausafréttum, þá sný ég nú höminni í þetta nýja veður.“ Hafi ekki áhrif á tvíhliða varnarsamning þjóðanna Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir flutning á yfirstjórn alfarið vera ákvörðun Bandaríkja- manna sjálfra, Íslendingar geti ekki gert miklar athugasemdir. Hann hefði kosið að hafa áfram beina tengingu til Banda- ríkjanna, sem gefist hafi vel undanfarna ára- tugi. „Það er um- hendis að þurfa að fara í gegnum Evrópu til að eiga samskipti um varnarlega mikilvæg málefni. Reynslan verður að leiða í ljós með hvaða hætti það gefst. Verði sú reynsla af samstarfi okkar óheppi- leg er ég sannfærður um að það verður leiðrétt,“ segir Össur og tel- ur mestu skipta að fyrirhugaður flutningur hafi ekki áhrif á tvíhliða samning þjóðanna um varnarsam- starf. „Mjög gott varnarsamstarf hefur verið milli þjóðanna. Að vísu hefur ekki enn tekist að ganga frá end- urnýjun á bókun við varnarsamn- inginn. Ég tel þó öldungis fráleitt að þessi nýja skipan mála muni í nokkru verða til þess að breyta raunverulegum varnarviðbúnaði eða draga úr nauðsynlegum um- svifum hér til að tryggja okkar varnir. Eftir þau tíðindi sem urðu í Bandaríkjunum í september á síð- asta ári tel ég afar ólíklegt að dreg- ið verði úr viðbúnaði á Keflavík- urflugvelli,“ segir Össur. Hér á ekki að vera her til frambúðar Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, VG, segir að það sé varla nema fyrir innvígða að gera sér grein fyrir áhrifum þessa flutnings til Evrópu fyrir varnarmál hér á landi. Á endan- um muni hags- munir Banda- ríkjanna ráða för. „Þetta mun án efa örva umræð- ur, sem fyrir löngu eru tímabærar, um framkvæmd varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna. Í síðustu viku var ár liðið frá því að bókun um framkvæmd samningsins rann út. Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði lögðum fram þingsályktunartillögu fyrir tveimur árum þar sem hvatt var til þess þá að taka upp viðræður við bandarísk stjórnvöld um brottför hersins af Keflavíkurflugvelli og yfirtöku Ís- lendinga á rekstri hans. Þetta var auðvitað ekki samþykkt þar sem um minnihlutasjónarmið á Alþingi er að ræða, þótt öðru máli gegni án efa í þjóðfélaginu. Okkar afstaða er ljós, hér á ekki að vera bandarískur her til frambúðar,“ segir Ögmundur. Misjöfn viðbrögð stjórnarandstöðunnar Sverrir Hermannsson Össur Skarphéðinsson Ögmundur Jónasson Flutningur yfirstjórnar varnarliðsins til Evrópu il Íslands frá Skotlandi en ekki frá Bandaríkjunum eins og nú er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.