Morgunblaðið - 19.04.2002, Síða 43

Morgunblaðið - 19.04.2002, Síða 43
hefðu verið að kveikja bál á lóð heima hjá þeim síðarnefnda, sem lá að lóð Vignis. Skyndilega breyttist vindátt og logarnir sleiktu hús Vign- is. Strákarnir reyndu að slökkva eld- inn en réðu ekki neitt við neitt. Þá kom Vignir til bjargar og í stað þess að hundskamma strákana eins og þeir bjuggust við og áttu skilið sagði hann aðeins góðlátlega: „Strákar mínir, þetta megið þið aldrei gera aftur.“ Löngu seinna sögðu strák- arnir frá því að við slökkvistarfið hefði Vignir tapað úrinu sínu, en það fékk hann ekki til að skipta skapi. Það er mikill söknuður að Vigni, hans stóra brosi og góða viðmóti. Gatan okkar verður ekki sú sama eftir að hann er farinn. Við sendum Guðrúnu og fjölskyldu okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Þorbjörg og Guðmundur. Sagt hefur verið um golfíþróttina að þar kynnist maður eiginleikum manna best. Íþróttin er leikin sam- kvæmt ströngum reglum og þar mæta menn margs konar hindrun- um sem erfitt getur verið að glíma við og margar áhættur í veginum. Við Vignir lékum saman nokkrum sinnum á Spáni aðeins fáeinum dög- um áður en hann lést. Það var mikil lífsreynsla að fá tækifæri til að leika með þessum gallharða og duglega dreng sem lét ekki aftra sér misjafnt veður til golfiðkunar heldur lagði ótrauður í ’ann á hverjum degi og lék samfleytt í tíu daga í ferðinni. Það var ótrúlegt að fylgjast með því hvernig hugur hans flutti hann áfram og yfirbugaði veikan líkam- ann. Mér er sérstaklega minnisstætt eitt atvik á vellinum á síðasta degi í golfmóti ferðarinnar en það var á ell- eftu holu sem við lékum þennan dag. Hann var ekki alveg sáttur við frammistöðu sína fram að henni en holan var 140 metra par þrjú hola og hann hafði ekki náð að skora nema fáeina punkta fram að þessu. Hann sló upphafshögg sem lenti í glompu rétt við flötina. Það var vel blautt á vellinum vegna mikilla rigninga og minn maður gekk að boltanum í glompunni og sló. En boltinn hrökk aðeins upp á bakkann í blautt grasið. Vignir varð dálítið pirraður yfir högginu og var það í fyrsta sinn í allri ferðinni sem ég sá hann skipta skapi. Hann sló boltann aftur með sandjárninu af 20 metra færi og beint í holu. Glæsilegt högg og nýr maður birtist okkur félögum hans. Fullur af lífskrafti og einstakri gleði lék hann restina af vellinum með glæsibrag og skoraði punkta á hverri holu. Það var síðan um kvöldið sem Vignir og Guðrún komu saman með ferðafélögunum og þar tók Guðrún við verðlaunum fyrir glæsilegan árangur á mótinu en hún lék einmitt á sínu besta skori í ferðinni. Vignir var alsæll og ánægður fyrir hönd sinnar heittelskuðu og verður þessi kvöldstund okkur öllum sem þar vorum saman komin minnisstæð. Minnisstæð fyrir það að hafa fengið tækifæri til að fylgjast með því hvernig maður getur tekist á við mjög erfiðan sjúkdóm og aldrei látið bugast þó að vissulega hafi oft verið ástæða til. Og minnisstæð ferð fyrir það að sjá hvað þau hjónin voru sam- stiga og hamingjusöm þegar þau dönsuðu síðasta dansinn. Ógleyman- leg stund. Vignir vildi ekki missa af neinu í ferðinni. Hann kom snemma í morg- unmatinn og sat með fólkinu á kvöldin. Hann naut félagsskaparins í hvívetna og var hvers manns hug- ljúfi með sitt fallega gefandi bros. Hann sagði mér að hann hefði hreinlega þráð það mest af öllu síð- ustu dagana í meðferðinni að fá að sjá sólina, grænt grasið, blómin og fulgana og það hefði verið ástæða þess að þau hjónin fóru í þessa ferð sem síðan reyndist verða þeirra síð- asta að þessu sinni. Það var okkur Margréti Guðsgjöf að fá að kynnast Vigni og Guðrúnu þessa fáu daga sem við áttum saman og öllum þeim sem í ferðinni voru. Megi minningin um góðan dreng styrkja þig, elsku Guðrún og fjöl- skyldur ykkar, á þessari sorgar- stundu. Hvíl í friði, góði drengur. Baldvin og Margrét. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 43 ✝ Baldvin S. Ott-ósson fæddist á Akureyri 4. apríl 1944. Hann lést 12. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru Þórlaug Baldvins- dóttir verslunarmað- ur, f. 3.11. 1922, og Ottó Valdimarsson rafmagnsverkfræð- ingur, f. 27.7. 1926, d. 13.12. 1998. Þór- laug var í sambúð með Friðriki Kjart- anssyni, ökukenn- ara, f. 21.5. 1924, d.22.11. 1988. Börn þeirra eru: Bryndís hárgreiðslumeistari, f. 10.9. 1948, Róbert kaupmaður, f. 10.2. 1950, og Kjartan bifreiða- stjóri, f. 5.2. 1952. Ottó flutti til Svíþjóðar og kvæntist þar Önnu Brittu Gustafsson. Þau slitu sam- vistum. Börn þeirra eru Mats Sverrir, f. 29.10. 1949, Lars Stef- án, f. 14.5. 1951, Kristján Valdi- mar, f. 19.7. 1953, María, f. 21.1. 1956, Tryggvi, f. 2.3. 1961, og Eva, f. 27.9. 1964 Baldvin ólst upp á Akureyri og ur, f. 2.7. 1953, og bjuggu þau í Ljósheimum 6, Reykjavík. For- eldrar hennar eru Sigríður Bjarnadóttir húsmóðir, f. 12.7. 1918, og Sigurður Einarssonar verkamaður, f. 21.9. 1918. Börn Álfheiðar eru: 1) Jón V. Bjarnason verslunarmaður, f. 14.8. 1971, kvæntur Lindu Jónasdóttur versl- unarmanni, f. 21.8. 1969. Börn þeirra eru Bjarni Ásgeir, f. 2.6. 1995, og Guðrún Saga, f. 25.3. 1997. 2) Sigríður Bjarnadóttir bók- ari, f. 23.7. 1973, og 3) Benedikt Bjarnason svæðanuddari, f. 18.8. 1978, kvæntur Ann-Sofie Lundh svæðanuddara, f. 31.12. 1976. Í maí 1967 hóf Baldvin störf hjá lögreglunni í Reykjavík. Þar starf- aði hann meðal annars í umferð- ardeild, sá um umferðarfræðslu í skólum, slysarannsóknadeild, við fjarskipta- og tölvumál embættis- ins um tíma og að lokum starfaði hann við fullnustudeild. Hann var gerður að aðalvarðstjóra 1988 og starfaði sem slíkur til dauðadags. Hann gekk í Ökukennarafélag Íslands 1979 og var virkur öku- kennari um árabil. Hann var for- maður Klúbbanna öruggur akstur frá 1981 til 1988 og sat í Umferð- arráði til margra ára. Baldvin var frímúrari frá 1983. Útför Baldvins verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. bjó þar fram yfir menntaskólaár. Hinn 27. nóvember 1965 kvæntist Baldvin Sigrúnu Sigurðar- dóttur, f. 23.12. 1942, d. 10.5. 2000, og fluttu þau til Reykjavíkur árið 1965. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: 1) Helga Rut viðskiptafræðing- ur, f. 5.10. 1968, gift Ólafi Kj. Halldórssyni viðskiptafræðingi, f. 7.4. 1963. Börn þeirra eru Daníel Smári Hallgrímsson, f. 9.11. 1990, Elísa Rut Hallgrímsdóttir, f. 26.10. 1992, og óskírður Ólafsson, f. 22.3. 2002. 2) Sigurður Birgir, lögreglumaður í Vík í Mýrdal, f. 23.10. 1973, í sam- búð með Lindu Lorange. Börn þeirra eru: Alexander Baldvin, f. 30.9. 1998, Kristófer Ingi, f. 9.4. 2000, Elsa Lind, f. 30.10. 1986, Kjartan Steinar, f. 11.3. 1991, Emelía Ósk, f. 14.5. 1995, Guð- björg María f. 28.1. 1998. Baldvin kvæntist hinn 27.1. 2001 Álfheiði Sigurðardóttur húsmóð- Baldvin, kær vinur, er nú horfinn á braut. Baldvin afi er dáinn. Baldvin kom seint inn í okkar líf er hann kynntist og seinna kvæntist Álfheiði móður okkar. Gleði okkar allra var mikil þegar þau byrjuðu að vera saman, gleði þeirra var áþreifanleg og innileg ást skein úr augum beggja. Öllum sem umgengust þau hjón var ljóst að djúp ást og ham- ingja umvafði þau bæði, ástfangnara og samrýndara par var erfitt að finna. Margar voru ferðirnar sem farnar voru út á land eða erlendis til að hitta fjölskyldu og vini, slaka á og skemmta sér á góðri stundu. Í hug- um barna okkar varð hann strax Baldvin afi, en börnin fundu strax sálufélaga í honum, hlýja hans og hrekkir gerðu öllum ljóst að hér fór lífsglaður maður. Þau voru dugleg að fá litlu krílin í heimsókn til dagsferða eða gistingar. Sorgin er því mikil því að á stuttum tíma fundum við börnin góðan vin og afa í Baldvin. Baldvin var góður vinur allra sem hann þekktu og vildi allt fyrir mann gera þegar eitthvað bjátaði á. Minning um góðan mann mun lifa áfram í hjört- um okkar og gleðin sem hann færði móður okkar er dýrmætasta gjöf sem hann gaf okkur öllum. Hvíldu í friði, elsku vinur. Þín börn Jovvi, Linda, Sigríður, Benedikt, Ann-Sofie, Bjarni Ásgeir og Guðrún Saga. Það var mikið áfall þegar móðir mín hringdi og sagði að Balli væri látinn. Þá fer hugurinn að reika og minnist ég Balla sem ungs manns á Akureyri. Balli giftist 1965 Sigrúnu Sigurðardóttur föðursystur minni sem lést 10. maí 2000. Mig langar að minnast Balla með nokkrum orðum um sorgina og gleðina eftir Kahlil Gi- bran (Spámaðurinn). „Hann svaraði: Sorgin er gríma gleðinnar og lindin, sem er upp- spretta gleðinnar, var oft full af tár- um. Og hvernig ætti það öðruvísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Er ekki bikarinn, sem geymir vín þitt, brenndur í eldi smiðjunnar? Og var ekki hljóðpípan, sem mildar skap þitt, holuð innan með hnífum? Skoð- aðu hug þinn vel, þegar þú ert glað- ur, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmædd- ur, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín, sum ykkar segja: „Í heimi hér er meira af gleði en sorg.“ Og aðrir segja: „Nei, sorgirn- ar eru fleiri.“ En ég segi þér, sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu. Þú vegur salt milli gleði og sorgar. Jafnvægi nærð þú aðeins á þínum dauðu stundum. Þegar sál þín vegur gull sitt og silfur á metaskálum, hlýtur gleðin og sorg- in að koma og fara.“ Elsku Helga, Óli, Siggi, Linda, barnabörn, móðir, systkini og Álf- heiður, megi góður Guð gefa ykkur styrk og ljós. Elsku Balli, hvíl þú í Guðs friði. Jórunn A. Sigurðardóttir, Stefanía G. Ástþórsdóttir, Tómas I. Jórunnarson. Góður samstarfsmaður til margra ára, Baldvin Ottósson aðalvarðstjóri í lögreglunni í Reykjavík, hefur ótíma- bært verið burtkallaður. Eftir sitja hjá mér minningar um margvísleg störf hans að umferðarmálum, sem hann sinnti með miklum ágætum. Hann annaðist m.a. umferðarfræðslu í skólum af hálfu lögreglunnar um margra ára skeið og náði mjög vel til barna og unglinga með fágaðri fram- komu sinni og reisn. Í tengslum við það starf áttum við saman margar ánægjustundir í útlöndum, þar sem Baldvin sá með öðrum um farar- stjórn íslenskra keppenda í hjólreiða- keppnum á vegum alþjóðasamtaka umferðarráða. Baldvin var virkur félagi í Klúbb- unum Öruggur akstur, sem Sam- vinnutryggingar ráku á árum áður. Ferðaðist hann þá víða um land og flutti fyrirlestra um umferðarmál á fundum þeirra mætu klúbba og á þeim vettvangi gat hann sér gott orð, svo og í Umferðarráði þar sem hann átti sæti fyrir klúbbana, í sex ár sem aðalfulltrúi og þrjú ár sem vara- fulltrúi. Þá lágu leiðir okkar saman á meiraprófsnámskeiðum þar sem við komum báðir að kennslu og þar að auki stundaði Baldvin ökukennslu um margra ára skeið. Hann kom oft fram í fjölmiðlum fyrir hönd lögreglunnar í Reykjavík þegar umferðarmál voru á dagskrá og vakti athygli fyrir vand- aðan málflutning og virðulega fram- komu. Síðustu samskipti okkar Baldvins tengdust svokölluðum rauðljósa- myndavélum í Reykjavík og er mér minnisstætt hve Baldvin var áhuga- samur um góðan framgang þeirra mála þegar þau voru falin honum af yfirstjórn lögreglunnar. Fyrir allt þetta vil ég fyrir hönd Umferðarráðs þakka Baldvini Ott- óssyni. Af óviðráðanlegum orsökum get ég ekki fylgt honum síðasta spöl- inn, en sendi ástvinum hans öllum hugheilar samúðarkveðjur. Minning hans er í mínum huga blessuð. Óli H. Þórðarson. BALDVIN S. OTTÓSSON Ég get ekki stillt mig um að setjast nið- ur á fögrum apríldegi á meðan sólin skín inn- um glugga mína og setja á blað nokkrar línur um Magga Torfa vin minn. Magnús var heillandi persónu- leiki. Hann hafði mikið jafnaðargeð, jafnan glettinn og fann húmor út úr öllu. Hann hafði frábæra frásagnar- gáfu, var oft grafalvarlegur þegar hann var að lýsa einhverju spaugi- legu. Maggi var stórbrotinn maður, elskaði fegurð og listir og var afar smekklegur. Þegar hann frétti að ég væri kisukona urðum við enn límd- ari saman því þar áttum við sameig- inlegt áhugamál. Um þetta áhuga- mál okkar gátum við talað endalaust. Hann sagði mér margar sögur af Síams fress-kettinum sín- um sem hann varð að láta frá sér og eftir það langaði hann alltaf í hrein- ræktaðan Persa-kött. Þar gat ég uppfyllt ósk hans. Við hjónin létum hann hafa fallega læðu sem hann gaf nafnið Coco-Chanel. Hún varð auga- steinninn hans síðustu dagana sem MAGNÚS TORFI SIGHVATSSON ✝ Magnús TorfiSighvatsson fæddist í Vestmanna- eyjum 19. ágúst 1944. Hann lést á heimili sínu í Reykja- vík 20. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Landakirkju 4. apríl. hann dvaldi hér á þess- ari jörð, – allt snerist um Coco. Síðasta dag- inn sem Maggi lifði dvaldi hann á heimili okkar hjóna og auðvit- að hafði hann Coco sína með sér því að hún var eins og barnið hans. Hann sagði okkur margar sögur úr starfi sínu sem hárgreiðslu- meistari. Í því fagi varð hann Norðurlanda- meistari, Hann tók þátt í að greiða Mar- gréti Þórhildi Dana- drottningu þegar hún gifti sig. Já, Magnúsi Torfa var margt til lista lagt, var feikilega flinkur í höndunum. Þennan umrædda dag sem hann dvaldi með okkur hjónum var ein- stök ró og friður yfir honum, já, him- neskur friður sem fyllti allt húsið. Hann gaf mér yndislegan lítinn eng- il sem var frá bernskuheimili hans. Ég lét hann á náttborðið mitt og sagði honum að þarna skyldi hann alltaf vera. Maðurinn minn ók hon- um heim og á leiðinni töluðu þeir margt saman. Hann ætlaði að koma með okkur í sumarbústaðinn okkar einhverja helgina og svo ætlaði hann að sýna okkur æskustöðvar sínar – Vestmannaeyjar, – já, margt átti að gera. Þegar heim var komið bað hann manninn minn að bíða augna- blik því að hann ætlaði að sækja svo- litla gjöf til okkar. Hann kom að vörmu spori með afar fallegan borð- dúk sem hann sagði að myndi passa á borðstofuborðið okkar og sagði um leið: „Þetta er búinn að vera ynd- islegur dagur.“ Þessi orð hafa sjálf- sagt verið hans síðustu því hann var látinn 20 mínútum síðar. Jú, auðvit- að hefur hann sagt eitthvað við Coco sína því hún kúrði í fanginu hans þegar að var komið. Magnús átti Drottin og trúin á hann var hans björgunarhringur í lífinu Við hjónin erum þakklát Guði fyrir að hafa mátt hafa hann á okkar heimili þessar síðustu stundir sem hann lifði og fá að kynnast honum, þessum yndislega, góða dreng og sönnum vini. Við „mekabeib“-stelpurnar hans kveðjum hann með söknuði: Þóra Björk, Ragga, Ellen, Karitas og Anna. Við vottum öllum systkinum hans og ættingjum innilega samúð og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur. Við mættumst á vetrarkvöldi. Snjóhvít mjöllin huldi jörð. Augun þín glömpuðu af glettni, svolítið bros á vör. Hvaða kona var komin? Mætt eins og drottning en ástandið alls ekki gott. Það var spurning í hjarta þínu. En brátt tókust með okkur kynni. Vináttuböndum við bundumst. Við eygðum betra líf. Já, margt átti að gera. Við hugðum bæði á framtíð bjarta og heillandi ár. Í lágreistu húsi með glaðværum hópi í Mosfellsbæ. En fljótt skipast veður í lofti. Áður en nokkur veit liggja sorgarskýin yfir. En Guð faðir ræður öllu. Nú ertu í arminum hans. Svo dansandi sæll og glaður. Frjáls frá harmi og kvöl. (Þ. Bj. Ben.) Þóra Björk Benediktsdóttir og Lúðvík Einarsson. Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til- tekna skilafrests. Skilafrestur minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.