Morgunblaðið - 19.04.2002, Síða 57

Morgunblaðið - 19.04.2002, Síða 57
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 57 MIG langar að koma með hugleið- ingu í umræðuna um ritalín. Um- ræða hlýtur að vera af hinu góða, gott er að endurskoða mál sem við- kemur börnum. Þessi umræða sem skapast hefur nú er hins vegar öll svo neikvæð. Ég hef verið að lesa bréf í blöðum sem eru skrifuð af fólki sem jafnvel veit ekkert um hvað málið snýst. Nýlegt lesenda- bréf sýndi glögglega fáfræði skrif- anda, sem heldur að það væri ábyggilega hægt að „lækna“ þetta með ást og umhyggju foreldra. (DV 15. apríl). Margir halda að „ofvirkni“ sé kvilli sem við foreldrar fundum upp þar sem við hreinlega nennum ekki að aga börnin okkar. Það sé miklu betra að gefa bara barninu pillu til að hafa það rólegt. Þessi fötlun sem ofvirkni er hefur alltaf verið með okkur, en það er bara fyrir 25 árum sem farið var að skoða þetta af al- vöru úti í heimi og enn síðar sem við Íslendingar fórum að viðurkenna þetta sem vandamál. Hver man ekki eftir „tossanum í bekknum“ eða honum Jóni sem bjó í götunni og var svo heimskur og óþekkur að allir voru vissir um að hann ætti sér enga framtíð. Enginn varð hissa þegar Jón lenti svo í dóp- inu og fangelsi. Þetta geta verið lýs- ingar á ofvirkni. ADHD/ADD (Attention Deficit Hyperactivity Disorder) eða ís- lenska þýðingin ofvirkni/athyglis- brestur, veldur oft misskilningi. Fólk sér fyrir sér barn sem á erfitt með að sitja í sætinu sínu eða er á þeytingi um allt, en ofvirknin er ekki bara í líkamanum heldur líka í huganum. Sjáið fyrir ykkur barn sem situr fallega í sætinu sínu í ís- lenskutíma. Kennarinn er að kenna að þekkja stafina, barnið horfir á en á meðan fljúga 30 hugsanir um hug- ann í einu; fótbolti, hádegismatur, sumarfríið, frímínútur, veðrið úti. Barnið getur ekki stoppað hugsan- irnar, hugurinn er ofvirkur. Svona eru allar kennslustundirnar. Líkam- inn er í kennslustofunni en hug- urinn er að gera eitthvað miklu skemmtilegra. Frá sjónarmiði barnsins: Erfitt að læra, umhverfið verður neikvætt, ertu heimsk/ur, ertu tossi?Barnið elst upp við vonda sjálfsmynd (ég er ómöguleg/ur, enginn vill vera vinur minn því ég er heimsk/ur). Svo þeg- ar unglingsárin koma þá finnur barnið „huggun“ í vímuefnum. Þetta eru ekki ýkt dæmi, við sem erum foreldrar barna með ADHD/ADD sjáum þetta alltof oft. Þó að sonur minn taki ritalín eru vandamálin ekki úr sögunni. Hann þarf meiri aga en önnur börn, meira eftirlit, hann verður að hafa allt í sömu skorðum (bara að sofa ekki með sína sæng er mikið mál). Upp- eldisþátturinn er mjög mikilvægur og ég trúi nú ekki öðru en að for- eldrar geri sér grein fyrir því. Ein pilla kippir ekki öllu í lag. Með því að taka lyfið hægist á huganum, hann er duglegur í skólanum, á góða vini, hefur góða sjálfsvirðingu, líður vel. Þegar unglingsárin koma líður honum vonandi það vel með sjálfan sig að hann þurfi ekki að leita í vímuefni til að fá sjálfsvirð- ingu. Mér finnst alltaf skondið þegar fólk heldur því fram að það sé verið að gefa börnum ritalín til að róa þau. Fyrst er að benda á að lyfið er örvandi en ekki róandi. Því segir skynsemin manni að ef barn sem ekki er ofvirkt tekur inn lyfið þá ró- ist barnið ekki mikið. Barn sem er ofvirkt og tekur ritalín situr ekki eins og klessa í róandi vímu. Það hægist aðeins á hraðanum og barnið verður eins og ég og þú. Svo er það líka að lyfið hentar ekki öllum, sum- ir geta alls ekki tekið það inn. Í þessum heimi eru því miður alltaf einhverjir sem misnota að- stöðu sína. Það var skelfileg frétt þegar upp komst að ritalín er selt á skólalóðum og þetta séu jafnvel lyf sem ofvirk börn eiga. Foreldrar þurfa að herða eftirlitið með lyfja- gjöfum barnanna. En að ráðast á foreldra fyrir að leita börnun sínum læknishjálpar vegna ofvirkni er í besta falli heimskuleg framkoma. Sleggjudómar á þeim nótum ganga út yfir öll velsæmismörk. ANNA ARNOLD, dagmóðir og móðir ofvirks barns. Út yfir velsæmismörk Frá Önnu Arnold: FYRIR áratugum, þegar innflutn- ingshöft voru hér allsráðandi voru engar hömlur á viðskiptum við kommúnistaríkin austantjalds. Á þessum tíma vorum við nokkrir sem sóttum árlega vörusýningar í Leipzig eða A-Berlín og stundum til Prag. Samtímis voru rauðir og rót- tækir ungir menn við nám þar eystra. Þeir kynntust daglega hinni sví- virðilegu kúgun og harðstjórn, sem þarna ríkti. Samt högguðust þeir aldrei í trúnni á kommúnismann. Það væri hægt að nefna nokkur þjóðkunn nöfn en ég læt tvö nægja að þessu sinni sem sýnishorn, þá Hjörleif Guttormsson og Svavar Gestsson. Þeir upplifðu báðir daglega of- stækið án þess að depla auga! Það þurfti sannarlega mikla forherðingu til að menntast þar eystra og halda áfram að vera gallharður kommi! Smánarmúrinn Ofsatrúin á félaga Stalín var slík að sjálfur smánarmúrinn, sem reist- ur var þvert yfir Þýskaland til að- greiningar var sígild og æpandi háðung, sem blasti við augum allra, sem þarna voru á ferð, hvað þá þeirra sem menntuðust eða bjuggu austanvert við múrinn. Yngri kyn- slóðin hér á landi hefir því miður ekki verið upplýst um glæpastarf- semi kommúnismans sem alls stað- ar markast af miskunnarlausri kúg- un og ofbeldi. Sífelld sálarleg áþján allra þjóða þar sem hann sölsar undir sig völdin. Hér á landi hefir reynst óhjá- kvæmilegt að skipta oft um nafn og númer á kommaflokknum. Gamlir Stalínistar þurfa sífellt að fela skuggalega pólitíska fortíð sína og nú síðast urðu þeir „Vinstri grænir“ á einni nóttu! Í dag fylkja þeir sér að baki kær- ustunnar Ingibjargar Sólrúnar og treysta því að þar með sé fortíð þeirra grafin og gleymd! Það er með ólíkindum að þessi fölsun virðist hafa heppnast full- komlega. Kvennalistinn sálugi er því hækjan sem nú skal styðjast við. Samkvæmt skoðanakönnunum nægir að mála gömlu rauðu og slitnu hækjuna græna! Já, þeir rauðu og róttæku brosa mjög um þessar mundir og gerast feiknarlega saklausir á svipinn: Hjörleifur, Steingrímur og Ög- mundur. R-listinn á býsna sorglegan feril þegar fjármál borgarinnar eru at- huguð. Í 8 ár hafa þeir sóað 9 millj- ónum á dag. Sukk og ráðleysi ein- kennir þeirra feril. Hins vegar er stöðugleiki og ábyrg fjármálastjórn ríkisins ein- kennandi undir stjórn Sjálfstæðis- flokksins. Björn Bjarnason, óumdeildur heiðursmaður, gefur nú kost á sér og hefir þegar markað skýra stefnu til bjargar á ótal sviðum borgarmál- efna. Farsæld borgarinnar byggist á því að hann fái tækifæri til að hefja hreingeringu í ruslakistu R-listans. Engin véfengir dugnað hans og heiðarleik. GUÐMUNDUR GUÐMUNDARSON, Lynghaga 22, Reykjavík. Svikamyllan á vinstri væng Frá Guðmundi Guðmundarsyni: sjálfir. Þetta hugtak virðist vera að deyja út í poppinu og er rokkið enn nokkuð óspillt en við megum ekki sofna á verðinum því þessir fjölda- framleiðendur eru að kanna rokk- markaðinn, samanber hljómsveitir líkt og Linkin Park. Þá er ég kominn að kjarna máls- ins; rokkhljómsveitir eru það eina ekta sem eftir er í lífi margra ung- menna. Ungt fólk lifir meira fyrir tónlist en eldra fólk þótt það sé ómerkilegt af mér að alhæfa svona þá lítur þetta svona út frá mínu sjón- arhorni. Rokkhljómsveitir eru að semja tónlist með tilfinningu og text- um um það sem krakkarnir skilja og það höfðar til þeirra. Það sem fólk heyrir sem hávaðasarg við fyrstu hlustun getur breytt lífi þess þegar það kafar dýpra og byrjar að skilja tónlistina. Versti hávaði sem virkar líkt og glerbrot sem sker í hljóð- himnuna breytist skyndilega í guð- dómlega tóna sem enginn heyrir nema þú og nokkrir útvaldir. Loks- ins átt þú eitthvað sameiginlegt með hópi fólks í sömu aðstöðu og þú og ert því orðinn hluti af samfélagi sem þú hefur aldrei orðið var við áður. Rokktónlistarmenn semja oftast texta sem fjalla um hluti sem brenna í brjósti þeirra. Það er sama hvað þeir eru ómerkilegir í eyrum hlust- andans þá eru þetta þeirra tilfinn- ÉG HEF orðið var við það frá því að ég byrjaði að spila í rokkhljómsveit fyrir tveimur árum að fólk, sérstak- lega eldra fólk, lítur niður á þetta form tónlistar og lítur á rokk sem tímabundið ástand í lífi ungs fólks sem er á mótþróaskeiðinu. Fólk hefur spurt mig: „Hvernig getur þú hlustað á og spilað þetta háva- ðagarg?“ Ef ég leyfði nú þessu sama fólki að heyra þyngstu tónlist- ina sem ég hlusta á þá yrði líklega að loka það inni á hæli næstu árin á eft- ir. Það þýðir ekki að rífast við þetta fólk því það hefur gert upp hug sinn og dæmt okkur fyrir fram. Hér á eft- ir ætla ég að reyna að útskýra fyrir fólki hvað vakir fyrir okkur rokkur- um og hvet ég alla efasemdarmenn að lesa þetta gaumgæfilega. List er einn stærsti hluti hugtaks- ins menning og flokkast tónlist undir þann hatt. Rokk er að mínu mati margþætt eins og flest annað í nú- tímaþjóðfélagi og því miður hafa peningagráðug fjöldaframleiðslufyr- irtæki á seinni árum náð að koma krumlum sínum í rokkið sem er hræðileg staðreynd þegar litið er á hvað þeir sömu andskotar gerðu poppinu. Það eru einhverjir stórir karlar í stórum fyrirtækjum sem reikna út hvað þarf til þess að gera hljómsveit vinsæla og út frá því setja þeir saman hljómsveitir með strákum og stelpum sem þekkjast ekki neitt en eiga það öll sameigin- legt að vera ómissandi hlekkir í fyr- irfram ákveðnum lífsstíl sem heila- þvegnir unglingar kaupa svo. Þess vegna eru vinsælustu hljómsveitir poppsins í dag ekki með vott af frum- leika og hafa ekkert að segja. Svo eru það virkilega góðu tónlist- armennirnir sem berjast við það að borga fyrir stúdíótíma og koma plöt- um sínum út sem græða ekki helm- ing á við þessar barbídúkkur tónlist- ariðnaðarins. Hljómsveit er, að mínu mati, nokkrir vinir sem ákveða að stofna hljómsveit og semja lög sín ingar og þeir fá andlega útrás með því að túlka lögin með eins persónu- legum hætti. Þegar þið heyrið söngvara öskra þá hugsið þið líklega að það sé ekki söngur. Þessir menn eru ekki bara að öskra til þess að vera óþolandi heldur eru þeir að túlka tilfinningar sínar og eru að reyna að miðla þeim áfram til áheyr- enda svo þeir skilji hvernig söngv- aranum líði. Söngvarar rokksins í dag láta sér ekki nægja að semja djúpa texta heldur verða þeir að túlka þá eins vel og þeir geta. Rokk getur verið hreint og fallegt listform sem hreyfir við fólki og skapar nýja menningarheima innan samfélagsins. Með þessum hugleið- ingum er ég ekki að reyna að ráðast að einum eða neinum, ég vil bara benda á að fólk gæti verið örlítið skilningsríkara og virt menningar- form unga fólksins. Til er eldra fólk sem hlustar á rokk enda er rokk ekk- ert nýtt á markaðnum en ég er að tala um nútímarokk. Ungt fólk í dag verður að læra að virða eldra fólk en eldra fólk verður einnig að læra að virða unga fólkið. Við verðum að koma til móts hvert við annað svo hver tónlistarunnandi geti notið sinnar tónlistar í friði. HLYNUR BENEDIKTSSON Starmýri 7, Neskaupstað Rokk er menning Frá Hlyni Benediktssyni: Listamennirnir James Hetfield og Kirk Hammett í hljómsveitinni Metallica munda hér hljóðfæri sín. Hlynur Benediktsson. KRINGLUNNI • sími 568 4900 LAUGAVEGI 32 • sími 552 3636 Vorvörurnar Mikið úrval komnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.