Morgunblaðið - 19.04.2002, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 19.04.2002, Qupperneq 58
DAGBÓK 58 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sirri kemur í dag. Arnomendi, Erla, Hjalt- eyrin og Nordic Ice fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Lómur og Ludvik And- ersen komu í gær. Manai kom í gær og fór til Reykjavíkur, Nikolay Afansjev kom í gær og fer í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 leikfimi og vinnustofa, kl 12.45 dans, kl 13 bók- band, kl 14 bingó. Mið- vikud. 24. apríl verður farin um nýju hverfin í Garðabæ og Hafnarfirði. Leiðsögn. Kaffi drukkið í Félagsmiðstöð aldr- aðra í Hraunseli í Hafn- arfirði. Lagt af stað frá Aflagranda kl. 13. Skráning á skrifstofunni eða í s. 562 2571. Árskógar 4. Kl. 13– 16.30 opin smíðastofan. Sunarfagnaður verður síðasta vetrardag 24. apríl dansleikur kl. 20.30–22.30. Allar upp- lýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9–12 bókband, kl. 9–16 handavinna, kl. 10– 17 fótaaðgerð, kl.13 frjálst að spila. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13-16.30, spil og fönd- ur. Kóræfingar hjá Vor- boðum, kór eldri borg- ara í Mosfellsbæ á Hlaðhömrum fimmtu- daga kl. 17–19. Les- klúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga á föstudögum kl. 11. Pútt- kennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014, kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8-16. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 9 opin handa- vinnustofan. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara Garðabæ. Félagsfundur í Kirkjuhvoli laugard. 20. apríl kl. 14. Mynda- sýning frá Ísafjarð- arsýslum. Ættfræði- forrit kynnt. Kaffiveitingar. Allir vel- komnir. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10. 30 guðsþjónusta, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13. „Opið hús“ spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Félagsvist í Kirkjuhvoli 23. apríl kl. 19.30. Uppskerudagar – sýningar á tómstunda- starfi vetrarins 22-24. apríl kl. 13–18. Fjöl- breyttar sýningar og skemmtidagskrá. Kaffi- veitingar. Garðaberg, ný félagsmiðstöð á Garða- torgi. Opið kl. 13-17. Kaffiveitingar. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Myndlist og brids, kl. 13.30 .Dans- leikur miðvikud. 24. apr- íl „Síðasta vetrardag“ kl. 20.30 Hljómsveitin Cabrí Tríóið leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Ferða- kynning á innanlands- ferðum félagsins í sumar ásamt myndasýningu úr eldri ferðum kl. 16. Silf- urlínan er opin mánu- og miðvikudögum kl. 10–12 í s. 588 2111. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12 sama síma- númer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 myndlist og rósamálun á tré, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 9.30 gönguhópur, kl. 14 brids. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Félagsstarfið Furu- gerði. Kl. 9 aðstoð við böðun, smíðar og út- skurður, kl. 14 messa prestur sr. Ólafur Jó- hannsson. Furugerð- iskórinn syngur undir stjórn Ingunnar Guð- mundsdóttur. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar frá hádegi, spila- salur opinn. Á morgun, laugardag, vortónleikar í Fella- og Hólakirkju hjá Gerðubergskórnum kl. 16, stjórnandi Kári Friðriksson, undirleik- arar Benedikt Egilsson, Arngrímur Marteinsson og Unnur Eyfells, ein- söngur Kári Friðrikson. Fjölbreytt dagskrá allir velkomnir. Mánud. 22. apríl: heimsókn í starf aldraðra í Kirkjulundi Garðabæ á upp- skerudaga, sýningu á tómstundastarfi aldr- aðra, lagt af stað frá Gerðubergi kl. 13.15 skráning hafin. Upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 9.15 ramma- vefnaður, kl. 13 bók- band, kl. 13.15 brids. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 10 glerlist, Gleði- gjafarnir syngja kl. 14. –15 Hraunbær 105. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 9 handavinna, bútasaumur, kl. 11 spurt og spjallað, kl. 14 bingó. Kaffiveitingar. Allir vel- komnir. „Ég býð þér dús mín elskulega þjóð,“ leik- og söngskemmtun byggð á ljóðlist Halldórs Lax- ness, verður flutt föstud. 26. apríl kl. 14. 30 að Aflagranda 40. Til- kynnið þátttöku fyrir 23. apríl á skrifstofu eða í s. 587 2888. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, leikfimi og postu- lín, kl. 12.30 postulín. Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17 hár- greiðsla, kl. 10 boccia. Félagsstarfið er opið öll- um aldurshópum, allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 handa- vinna, kl.13-14 verður sungið við flygilinn við undirleik Sigurbjargar Petru Hólmgrímsdóttur. Tískusýning kl.14. Sýnd- ur verður dömufatnaður í vor og sumarlínunni. Að lokinni sýningu verð- ur dansað við lagaval Sigvalda, kaffiveitingar, allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bók- band og morgunstund, kl. 10 leikfimi og fótaað- gerðir, kl. 12.30 leir- mótun, kl.13.30 bingó. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laug- ardögum. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur á morgun kl. 21 í Konna- koti Hverfisgötu 105, nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga Ungt fólk með ungana sína. Hitt Húsið býður ungum foreldrum (ca. 16 - 25 ára) að mæta með börnin sín á laugard. kl.15–17 á Geysir, Kakó- bar, Aðalstræti 2 (Geng- ið inn Vesturgötu- megin). Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Borgfirðingafélagið í Reykjavík. Spilavist á morgun kl. 14 að Suður- landsbraut 30. Allir velkomnir. Gigtarfélag Íslands: Gönguferð um Laug- ardalinn laugard. 20. apríl kl. 11 frá húsa- kynnum félagsins að Ár- múla 5. Klukkutíma ganga sem ætti að henta flestum. Einn af kenn- urum hópþjálfunar gengur með og sér um upphitun og teygjur. Allir velkomnir. Ekkert gjald. Upplýsingar í s. 530 3600. Minningarkort Minningarkort Graf- arvogskirkju, eru til sölu í kirkjunni í síma 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálg- ast kortin í Kirkjuhús- inu, Laugavegi 31, Reykjavík. Í dag er föstudagur 19. apríl 109. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu, en hygginn maður þegir. (Orðskv. 11, 12.) LÁRÉTT: 1 vitskertar, 8 væntir, 9 lækka, 10 mánuður, 11 þróunarstig skordýra, 13 öngla saman, 15 svalls, 18 sanka saman, 21 kjöt, 22 suða, 23 í vafa, 24 him- inglaða. LÓÐRÉTT: 2 stendur við, 3 freka menn, 4 blóðsugan, 5 hryggð, 6 helmingur heil- ans, 7 betrunar, 12 fant- ur, 14 dveljast, 15 harm, 16 blóm, 17 háð, 18 fjár- rétt, 19 holdugt, 20 kven- fugl. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hugga, 4 múgur, 7 grund, 8 næpan, 9 att, 11 lygn, 13 erti, 14 ennið, 15 krús, 17 Asía, 20 ála, 22 aspir, 23 gamli, 24 tóman, 25 arðan. Lóðrétt: 1 hugul, 2 grugg, 3 alda, 4 mont, 5 gapar, 6 rengi, 10 tungl, 12 nes, 13 eða, 15 kjaft, 16 úlpum, 18 samið 19 alinn, 20 árin, 21 agða. K r o s s g á t a Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur það fyrir regluað beina viðskiptum sínum til verzlana sem hafa verðmerkingar í búðargluggum eins og lög gera ráð fyrir. Hann hefur t.d. aldrei komið inn í sumar fínustu fatabúðirnar af því að þessar merkingar vantar æv- inlega hjá þeim. Auglýsingar hafa svipuð áhrif á Víkverja; hann er lík- legri til að skipta við fyrirtæki, sem tilgreina verð í auglýsingum, en þau sem láta það eiga sig. Þannig voru tvær auglýsingar í Morgunblaðinu í gær, þar sem reiðhjól voru auglýst til sölu. Í annarri voru skilmerkilegar verðmerkingar en þær vantaði með öllu í hinni. Víkverji er ekki í nokkr- um vafa um í hvora verzlunina hann ætlar til að skoða hjól handa börn- unum. x x x ALGENGT er að í hérlendumverzlunum, sem eru hluti af al- þjóðlegum keðjum eða hafa gert samning við eina slíka, liggi frammi vörulisti alþjóðlegu keðjunnar. Oft hefur Víkverji flett í þessum listum og andvarpað yfir því að sömu hlut- irnir, frá sömu framleiðendunum, væru svona miklu dýrari hér á landi en í útlöndum. Á þessu eru þó undantekningar. Á dögunum fór Víkverji í Habitat í Askalind og skoðaði leðurklæddan hægindastól, sem honum leizt dálítið vel á en keypti reyndar ekki. Í verzl- uninni í Kópavogi kostaði stóllinn 89.700 krónur, en samkvæmt brezka verðlistanum sem liggur frammi í verzluninni, kostar hann 699 pund, sem eru tæplega 98.000 krónur. Fótskemill mikill, sem hægt er að kaupa með stólnum, kostaði 39.400 í búðinni en í verðlistanum 349 pund, sem eru heilar 48.860 krónur. Þessi verðmunur kom Víkverja þægilega á óvart. Ekki hefur hann gert könnun á því hvort sama á við um allar vörur í búðinni, en vonar að sjálfsögðu að svo sé. x x x VÍKVERJI heyrði fyrir stuttu afatvinnurekanda, sem bar sig aumlega vegna þess að tveir eða jafn- vel þrír af karlkyns starfsmönnum hans voru í fæðingarorlofi á sama tíma. Atvinnurekandinn lýsti því víst yfir að nú myndi hann fara að spyrja karla, sem sæktu um vinnu hjá hon- um, út í það í atvinnuviðtalinu hvort þeir hygðu á barneignir. Um leið var auðvitað gefið í skyn að slíka menn stæði ekki til að ráða í vinnu. Líklega er þetta til merkis um að nýju fæðingarorlofslögin séu byrjuð að virka eins og þau eiga að gera; þau jafna stöðu kynjanna. Þetta hafa kon- ur auðvitað mátt búa við áratugum saman; að fá dónalegar spurningar í atvinnuviðtölum um það hvort þær ætli að eignast börn og gera vinnu- veitandanum þann skelfilega óleik að vera frá vinnu einhverja mánuði af þeim sökum. Hins vegar væri að sjálfsögðu æskilegra að allir atvinnu- rekendur tækju barneignum starfs- fólksins og nauðsynlegum fjarvistum þeirra vegna sem þeim náttúrulega hlut sem þær eru. Ef allir atvinnu- rekendur hugsuðu eins og sá, sem Víkverji frétti af, væri hætta á að fólk hætti bara að eignast börn og þá yrði atvinnulífið uppiskroppa með nýtt starfsfólk þegar fram liðu stundir. Enn hefur tækninni ekki fleygt svo fram að vélar geti búið til börn, geng- ið með þau, fætt í heiminn og hugsað um þau þegar þau eru þangað komin. Frábær Abba-sýning MIG langar til að deila með ykkur frábærri Abba- sýningu sem ég fór á sl. laugardagskvöld. Ég var stödd í Kringlunni laugar- daginn 13. apríl ásamt systur minni. Við urðum vitni að því að ungt fólk var að syngja góðu Abba- lögin á íslensku. Við höfðum ekkert heyrt hvaða fólk þetta var en þar sem við vorum Abba-fíklar fórum við að hlusta. Svo auglýstu þau að þau ætl- uðu að gefa 10 miða á sýn- ingu þá um kvöldið. Ég og systir mín unnum hvor sína tvo miðana. Við buð- um mönnum okkar með en við vissum ekkert hvernig þessi sýning væri. Síðan byrjaði sýningin og hún stóð í u.þ.b. tíma. Við frétt- um í hléinu að þetta væru krakkar úr Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti sem héldu þessa sýningu. Þetta var sú stórkost- legasta sýning sem ég hef nokkurn tíma séð og það er orðið ansi langt síðan ég hef hlegið eins mikið. Ég vil hvetja alla Abba-aðdá- endur að sjá þessa sýningu og við krakkana vil ég segja: Húrra, húrra. Með kærri þökk fyrir okkur og vegni ykkur vel í framtíðinni. Sólrún og Árni, Ester og Andrés. Neikvæður alþingismaður ÞAÐ sagði við mig um daginn vænn maður í Vestmannaeyjum og þar þekktur, að Ögmundur Jónasson væri í öllum um- ræðum neikvæður. Þetta er sannleikur, slíkir menn eiga ekkert erindi inn á Al- þingi Íslendinga. Það hlakkar í Ögmundi þessa dagana. Hafið þið lesið „Varnaðarorð formanns BSRB um rauða strikið“ þar sem hann ræðir um verðbólguskot í maí? Ög- mundur segir: „maður er farinn að sperra eyrun“. Lýðskrumarar þurfa ekki alltaf að vera neikvæðir. Jón Magnússon, kt. 200328-4699. Ekki á réttri hillu MIG langar að benda Gísla Marteini Baldurssyni á að hann er ekki á réttri braut núna. Það er með hann eins og fleiri góða sjón- varpsmenn í tímans rás, að þegar þeir fara út í stjórn- mál missa þeir þann sjarma sem þeim var svo eðlilegur á skjánum. Ég get bent á Magnús Bjarn- freðsson, Eið Guðnason og Ögmund Jónasson. Þessir menn voru frábærir á skjánum en þegar þeir komu út í stjórnmálin, voru þeir ekki svipur hjá sjón og hálfannkannalegir. Það bendir allt til þess að Gísli Marteinn komist ekki í borgarstjórn og er það vel, svo vonandi getur hann snúið sér að sínu gamla starfi aftur. Kt. 270826-2619. Tapað/fundið Kerrusvunta týndist Blá kerrusvunta týndist í miðbæ eða vesturbæ Reykjavíkur þann 15. apríl síðastliðinn. Skilvís finn- andi vinsamlegast hafi samband í síma 699 7040. Dýrahald 2ja ára kisi fæst gefins Hvítur og gulbrúnn tveggja ára kisi fæst gef- ins á gott heimili. Upplýs- ingar gefur Aðalbjörg í síma 862 5522. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Það vekur athygli mína þegar ég geng um vest- urbæinn að nokkrir bif- reiðaeigendur virðast hafa eignað sér gang- stéttirnar sem „bíla- stæði“ undir bíla sína. Þeir leggja bílunum uppi á gangstéttirnar svo illmögulegt er að komast framhjá, án þess að ganga út í umferðina, til að sneiða hjá þeim. Mér verður sérstaklega hugsað til blindra og annarra fatlaðra sem þurfa að ferðast óhindr- að um gangstéttirnar án þess að eiga það á hættu að slasa sig við að rek- ast á þessar blikkbeljur borgarinnar – velta á hliðina í hjólastólunum... eða eiga það á hættu að verða undir bíl, við að komast framhjá. Ég hvet lögregluna til að taka á þeim vanda sem þarna hefur skapast – og aðstandendur lam- aðra, fatlaðra og aldr- aðra (sem margir búa á þessu svæði) að láta í sér heyra, verði ekki ráðin bót á. Byrgjum brunninn áð- ur en „barnið“ fellur í hann. Og umræddir bif- reiðaeigendur! – Þið teljið ykkur e.t.v. eiga bágt vegna bílastæða- vandans í borginni... Það er ekki burðugt að leysa þennan vanda með því að níðast á þeim sem síst skyldi. Sýnum umhyggju fyr- ir náunganum! Einn hugsandi. Gangstéttir fyrir gangandi – eða bifreiðastæði? 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.