Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablaðið „Útivist &
ævintýri“ frá Íshestum.
Blaðinu verður dreift um allt
land.
KRAFTUR, einbeiting og sig-
urvilji einkenndi framgöngu og
fas þessara körfuboltastráka sem
iðkuðu einn vinsælasta knattleik
heimsins á skólalóð Austurbæjar-
skóla í vikunni. Snerpa og styrk-
ur í bland við leikni og útsjón-
arsemi er hverjum körfuknatt-
leiksmanni nauðsynleg og
líkamshæðin skiptir líka máli,
þótt ekki séu allir körfuknatt-
leiksmenn risavaxnir. En góður
stökkkraftur er stolt hvers leik-
manns og tilþrif í vítateignum
höfða ávallt til áhorfenda, sem
vilja sjá boltanum troðið í körf-
una eða glæsilega hávörn.
Morgunblaðið/Golli
Kraftur
í körfu-
bolta-
strákum
UM 650 umsóknir eftir húsnæði eru
hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík,
en þær voru 606 um mánaðamótin
mars/apríl. Biðtími er mismunandi,
allt frá innan við einn mánuður og
upp í 99 mánuði, sem er reyndar
sérstakt tilfelli, en reynt er að hafa
biðtímann ekki lengri en 3–4 ár.
Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir,
verkefnisstjóri á þróunarsviði hjá
Félagsþjónustunni í Reykjavík, seg-
ir að um 650 umsóknir eftir húsnæði
séu hjá Félagsþjónustunni og þar af
séu um 300 manns, sem geti varla
beðið lengur eftir húsnæði. Ekki sé
beint hægt að segja að þessi 300
manna hópur sé á götunni, því sumir
búi inni á ættingjum, á gistiheim-
ilum eða í öðru tímabundnu hús-
næði. Þessir hópar séu samt skráðir
húsnæðislausir, þar sem þeir eigi
ekki öruggt heimili.
Um 380 umsóknir eru vegna eins
eða tveggja herbergja íbúða, um 190
umsóknir vegna þriggja herbergja
íbúða og um 80 umsóknir vegna
fjögurra herbergja íbúða eða stærri.
Umsóknir um minnstu íbúðirnar eru
fyrst og fremst frá einstaklingum og
í einstaka tilfellum frá hjónum en
undantekning er ef barnafólk sækir
um þær, að sögn Aðalbjargar Dísu.
Mismunandi biðtími
Biðtími eftir íbúð er mjög mis-
munandi langur og fer eftir aðstæð-
um hverju sinni. Aðalbjörg Dísa
segir að þegar fólk leggi inn umsókn
séu aðstæður metnar og fólk sem
búi við mjög erfiðar aðstæður bíði
mun skemur heldur en þeir sem búi
við skárri aðstæður. Hins vegar hafi
allir á biðlistanum þörf fyrir ódýrt
húsnæði á leigumarkaðnum og
reynt sé að hafa biðtímann aldrei
lengri en þrjú til fjögur ár.
Í fyrra beið fólk í 30 mánuði að
meðaltali eftir eins til tveggja her-
bergja íbúðum, í 17 mánuði að með-
altali eftir þriggja herbergja íbúðum
og í 11 mánuði að meðaltali eftir
fjögurra herbergja íbúðum eða
stærri. Dæmi er um einstakling sem
beið í minna en einn mánuð eftir
minnstu stærð íbúðar en svo hefur
einstaklingur þurft að bíða í 99 mán-
uði eftir eins til tveggja herbergja
íbúð, en þar er um einstakt, sértakt
tilfelli að ræða. Þar fyrir utan er
lengsta bið 54 mánuðir eftir minnstu
íbúð. Eftir þriggja herbergja íbúð
var minnsta bið 4 mánuðir en sú
lengsta 50 mánuðir og samsvarandi
tölur fyrir stærstu íbúðirnar voru 1
mánuður og 35 mánuðir.
Átak fyrir dyrum
Aðalbjörg Dísa segir að Félags-
þjónustan hafi fyrir skömmu sett af
stað starfshóp um stefnu í uppbygg-
ingu leiguhúsnæðis í Reykjavík með
ýmsum sem komi að leigumarkaðn-
um. Til standi að gera ákveðið átak í
fjölgun leiguíbúða og Félagsþjón-
ustan hafi ákveðið frumkvæði að því
að gerð verði stefna í þessum mál-
um, sem byggist á fræðilegum
grunni og samþætti skipulags-, fjár-
mála- og félagsleg sjónarmið, auk
hugmynda hagsmunaaðila, því ljóst
sé að ákveðinn hópur verði alltaf í
leiguhúsnæði.
650 umsóknir um húsnæði
hjá Félagsþjónustunni
Um 300 manns geta varla beðið
lengur að mati starfsmanna
ÞYRLA danska sjóhersins
flutti sjúkling frá Snæfellsnesi
til Reykjavíkur í fyrrinótt.
Óskað var eftir aðstoð Land-
helgisgæslunnar en þyrlur
gæslunnar voru ekki flughæf-
ar. TF-LÍF var í 500 tíma skoð-
un og TF-SIF í viðgerð. Land-
helgisgæslan hafði því
samband við danska eftirlit-
skipið Hvidbjörnen, sem er
statt í Reykjavíkurhöfn, og
óskaði eftir því að þyrla skips-
ins tæki verkefnið að sér, að því
er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu Landhelgisgæslunnar.
Þyrla varnarliðsins var einnig
sett í viðbragðsstöðu.
Tilkynning barst til Land-
helgisgæslunnar klukkan
23.40. Þyrla danska sjóhersins
var komin í loftið tæpri klukku-
stund síðar. Þyrlan var látin
lenda á þjóðveginum sunnan
við Vegamót í Miklaholtshreppi
og stöðvaði lögregla umferð á
meðan. Sjúklingurinn var kom-
inn á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús um tvöleytið.
Landhelgisgæslan gerði
samning við danska sjóherinn
1996 þar sem kveðið er á um
samvinnu, m.a. um björgunar-
aðgerðir. Á þeim grundvelli var
leitað til danska eftirlitsskips-
ins í fyrrakvöld.
Dönsk þyrla
fengin til
að sækja
sjúkling
GLÓSUR, sem höfðu að geyma upp-
lýsingar um námsefni úr réttarfari á
þriðja ári í lagadeild Háskóla Ís-
lands, fundust á salerni, en próf í
náminu fór fram á föstudagsmorgun.
Lagadeild hyggst í samráði við
kennara í réttarfari og prófstjóra
senda bréf til þeirra nemenda, sem
eru skráðir í prófið, þar sem skorað
er á þann sem á glósurnar, eða kom
þeim fyrir, að gefa sig fram. Að öðr-
um kosti liggi allir nemendur, sem
eru skráðir í prófið, undir grun.
Glósurnar fundust á kvennasal-
erni við upphaf prófsins, sem fram
fór í Odda frá kl. 9–12 á föstudag.
Kolbrún Linda Ísleifsdóttir,
kennslustjóri lagadeildar HÍ, sagði
við Morgunblaðið að 45 nemendur
hefðu verið skráðir í prófið og 40
hefðu mætt.
Glósur úr lagadeild fundust á salerni
NÚ þegar allir framboðslistar
liggja fyrir vegna sveitarstjórnar-
kosninganna sem fram fara 25. maí
næstkomandi geta gestir kosn-
ingavefjar mbl.is lagt spurningar
fyrir einstök framboð, eða þau öll,
og verður lögð á það áhersla að
svör birtist við þessum spurningum
sem skjótast. Þessi þjónusta verð-
ur virk frá og með morgundeg-
inum, mánudeginum 5. maí.
Á upphafssíðu hvers sveitarfé-
lags er hnappur sem nægir að
smella á til að skrifa spurninguna,
Fyrirspyrjandi slær inn fyrirsögn
og skrifar spurninguna í framhaldi.
Hann getur síðan valið hvort
spurningunni er beint til allra
framboða í viðkomandi sveitarfé-
lagi eða eins ákveðins framboðs.
Gefa verður upp nafn, heimili,
síma, netfang og kennitölu fyrir-
spyrjanda. Þegar spurningin er
skoðuð á vefnum sést þó aðeins
nafn spyrjanda.
Spurningar eru settar beint á
upphafssíðu hvers sveitarfélags
eftir að þær hafa verið lesnar yfir.
Þegar framboðin hafa svarað
spurningunni birtist tengillinn
„Svar“ fyrir aftan spurninguna.
Morgunblaðið áskilur sér rétt til
að hafna þeim spurningum sem
brjóta í bága við almennt velsæmi.
Spurt og
svarað á
kosninga-
vef mbl.is
SEX framboðslistar bjóða fram til
borgarstjórnar í Reykjavík í sveit-
arstjórnarkosningunum sem fram
fara 25. maí næstkomandi, en frestur
til að skila inn framboðslistum rann
út klukkan 12 á hádegi í gær. Tvö ný
framboð hafa komið fram, H-listi
húmanista með Metúsalem Þórisson
í efsta sæti, og Æ-listi Vinstri hægri
snú, sem Snorri Ásmundsson leiðir.
Þá eru í framboði R-listi með Árna
Þór Sigurðsson í efsta sæti, D-listi
Sjálfstæðisflokks sem Björn Bjarna-
son leiðir, A-listi Höfuðborgarsam-
takanna, með Guðjón Þór Erlends-
son í efsta sæti og er Ólafur F.
Magnússon efsti maður á lista F-
lista frjálslyndra og óháðra.
Fjöldi Ísfirðinga
tekur afstöðu
Á Ísafirði eru einnig sex listar í
framboði. sjálfstæðismenn, Samfylk-
ing, Framsóknarflokkur, Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð og F-
listi frjálslyndra og óháðra bjóða
fram og hefur nýtt framboð, A-list-
inn, sem kallast Nýtt afl, komið
fram. Efstur á lista þar er Halldór
Jónsson, sem áður hefur setið í bæj-
arstjórn fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokks, og er Gylfi Þ. Gíslason í öðru
sæti, en hann var áður í Samfylk-
ingu.
Á hverjum lista eru 18 frambjóð-
endur og er hver listi með 40–80
meðmælendur. Fylkir Ágústsson,
sem á sæti í yfirkjörstjórn, segir að
flestir listanna hafi skilað um 80
meðmælendum. Íbúar á Ísafirði eru
um 3.200 talsins og má því segja að
stór hluti kosningabærra manna í
sveitarfélaginu sé annaðhvort í
framboði eða meðmælendur listanna
sem eru í framboði.
Sex listar bjóða
fram í Reykjavík
FYRIR dyrum stendur í sumar að
ráðast í gerð kvikmyndar til minning-
ar um hinn annálaða pólska leikstjóra
Krzysztof Kieslowski og hefur Frið-
riki Þór Friðrikssyni verið boðið að
leikstýra hluta kvikmyndarinnar.
Myndin verður í tíu sjálfstæðum hlut-
um, sem hver er tíu mínútur að lengd,
og munu jafnmargir kunnir leikstjór-
ar gera hver sinn hluta. Aðalleikarar
verða ýmsir sem fóru með aðalhlut-
verk í myndum Kieslowskis, eins og
leikkonurnar Juliette Binoche, Iréne
Jacob og Julie Delpy, sem lék í Hvít-
um en hún mun einmitt fara með aðal-
hlutverkið í myndhluta Friðriks Þórs.
Að sögn Friðriks Þórs fjallar hluti
hans um konu af frönskum uppruna,
sem Julie Delpy leikur, en hún kemur
til Íslands að vitja ættingja sinna á
Austfjörðum þar sem franskir fiski-
menn sóttu sjóinn. Þau Delpy og
Friðrik Þór hittust nýlega í Holly-
wood til að ræða verkefnið. Tökur
verða í sumar og mun þá Julie Delpy
koma hingað til lands. Hún er rúm-
lega þrítug, hóf kvikmyndaleik hjá
Jean-Luc Godard en þykir nú í
fremstu röð evrópskra leikkvenna.
Friðrik Þór
heiðrar
Kieslowski
Julie Delpy/B20