Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Átak landlæknis gegn fordómum Lærum að virða allt fólk Landlæknisembættiðgengst nú fyrir vit-undarvakningu gegn fordómum. Jónína Margrét Guðnadóttir, upp- lýsinga- og útgáfustjóri Landlæknisembættisins, svaraði nokkrum spurning- um. – Hvert er tilefnið? „Beint tilefni vitundar- vakningarinnar „Sleppum fordómum“ var frumkvæði Héðins Unnsteinssonar, verkefnisstjóra Geðrækt- ar. Landlæknisembættið stendur að Geðrækt ásamt öðrum aðilum og það þótti sjáldsagt að embættið stæði að verkefninu með Geðrækt, enda eru for- varnir og heilsuefling með- al hlutverka embættisins. Fordómar hafa skaðleg áhrif á heilsu og líðan, það er margsannað mál, og það er því full þörf á að vekja fólk til umhugsunar um þá og reyna að vinna á þeim. Það var leitað til annarra sam- taka og stofnanna um samstarf og það reyndist mikill áhugi á verk- efninu. Samstarfsaðilarnir eru: Al- þjóðahúsið, Félag eldri borgara, Félagsþjónustan í Reykjavík, Heilsuefling í skólum, Hitt húsið, jafnréttisnefnd og Stúdentaráð Háskóla Íslands, Miðborgarstarf KFUM og K og þjóðkirkjunnar, Rauði kross Íslands, Samtökin ’78 og Öryrkjabandalag Íslands. Það gefur átakinu mikið gildi að fá svo fjölmenn og öflug samtök til sam- starfs.“ – Hver eru markmiðin? „Vakningunni er fyrst og fremst ætlað að fá fólk til að staldra við og líta í eigin barm. Ígrunda hvort fordómar leynist í eigin brjósti. Með því að kannast við fordómana og viðurkenna þá er um leið verið að stíga fyrsta skrefið til að losa sig við þá, sleppa þeim. Takist okkur að vekja einhverja landsmenn til að gera þetta er von til þess að skaðleg áhrif fordóma á líf og líðan dvíni. Við viljum ekki beina átak- inu gegn fordómum heldur vekja til umhugsunar um fordóma.“ – Hvenær hófst átakið? „Því var formlega hleypt af stokkunum 1. maí sl. með glæsi- legum tónleikum í Listasafni Reykjavíkur. Þar komu fram nokkrir af okkar fremstu tónlist- armönnum á sviði dægurtónlistar, þau Andrea Gylfadóttir, Ragnhild- ur Gísladóttir, Fabúla, Egill Ólafs- son, Karl Olgeirsson, Ragnar Bjarnason, Magnús Kjartansson, Stefán Karl Stefánsson, Jakob Frímann Magnússon, Pálmi Sig- urhjartarson, Gunnar Þórðarson og Jón Ólafsson. Þau sungu og léku undir á slaghörpu og komu fram endurgjaldslaust og var það ómetanlegur stuðningur. Tón- leikanna sóttu um 900 manns og vöktu feiknahrifningu tónleika- gesta.“ – Helstu áherslur? „Við ákváðum að leggja höfuð- áherslu á sjálfskoðunina sem ég nefndi. Samstarfshóp- urinn gerði með sér sáttmála. Kjarni hans snýst um að við lærum að virða allt fólk og gef hverjum og einum tækifæri til að kynna sig á eigin forsendum án þess að dæma hann eða hana fyrirfram á grundvelli al- hæfinga og staðalmynda því að engin manneskja er aðeins tals- maður ákveðins hóps.“ – Hvernig verður átakið kynnt? „Á tónleikunum 1. maí hófst dreifing á blöðrum og póstkortum með boðskap sem ætlað er að vekja til umhugsunar, fá fólk til að skoða hug sinn og svara spurning- um um eigin fordóma. Blöðrurnar eru tákn fordómanna og þegar við- takendur hafa hugleitt boðskap kortanna og vilja losa sig við for- dómana á táknrænan hátt verður sleppt fordómablöðrunum, óupp- blásnum, á afgreiðslustöðvum Skeljungs þar sem þeir fá að laun- um smáglaðning frá Skeljungi. Ætlunin er að dreifa 35.000 blöðr- um og kortum á níu stöðum á land- inu næstu vikurnar. Auk höfuð- borgarsvæðis fer fram dreifing á Akranesi, Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi, í Vestmannaeyjum og Reykja- nesbæ. Á höfuðborgarsvæðinu njótum við góðvildar Strætó bs., sem hefur lánað okkur gamlan strætisvagn. Verður honum ekið í öll hverfi og nágrannabæi og fylgja honum sjálfboðaliðar sem dreifa blöðrum og kortum, maður á mann. Dreifingin stendur til 18. maí en þann dag verður blöðrunum safn- að saman, þær blásnar upp og sendar upp í himinhvolfið samtím- is á öllum ofangreindum stöðum klukkan 17.30. Í Reykjavík verður blöðrunum sleppt á Ingólfstorgi í lok tónleika og fjölskylduskemmt- unar sem hefst klukkan 15. Þetta verður hinn táknræni hluti vitund- arvakningarinnar.“ – Hvernig verður átakinu fylgt eftir? „Við sem að þessu stöndum ger- um okkur auðvitað ljóst að það er ekki vinnandi vegur að útrýma for- dómum, allra síst með átaki sem stendur í fá- einar vikur. Landlækn- isembættið hóf umræðuna um miðjan apríl sem hluta heilsuefl- isátaksins „Heilsan í brennidepli“ og sú umræða heldur áfram fram í miðjan júní, m.a. á síðum Morg- unblaðsins, í Ríkisútvarpinu, á Doktor.is og fleiri fjölmiðlum. Það er hins vegar ljóst að umræðu um fordóma þarf að halda sívakandi ef árangur á að nást.“ Jónína Margrét Guðnadóttir  Jónína Margrét Guðnadóttir er fædd 17. mars 1946 í Reykja- vík. Cand. mag. í ensku frá HÍ og lögg. skjalaþýðandi og dómtúlk- ur. Ritstjóri Flugorðasafnsins 1993 og Hagfræðiorðasafnsins (ásamt öðrum) 2000. Ritstýrði 19. júní 1978–88, ritstjóri Konur, hvað nú, yfirlitsrits um kvenna- áratuginn 1985, þýðandi á Hag- stofunni 1992–2000, ritstjóri Lækjarbotnaættar 2001 og nú upplýsinga- og útgáfustjóri Landlæknisembættisins frá 2001. Maki er Sveinn Snæland, fram- kvæmdastjóri hjá Norðuráli. Börn eiga þau þrjú. Það reyndist mikill áhugi á verkefninu Sestu aftur, Stefán minn, það er ekkert að óttast. Klukkan hjá þessu stuttbuxnaliði er bandvitlaus. STOKKANDARPAR hefur tekið sér búsetu við innganginn í höfuðstöðvar Íslenskrar erfða- greiningar í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Ósagt skal látið hvort endurnar hafi sérstakan áhuga á líftækni og erfðamengi mannsins og þeirri starf- semi sem fram fer í húsinu en þeim virðist líka vistin þar vel enda er ábyggilega ágætt skjól að fá þar fyrir norðanvindinum. Hart hefur verið deilt um 20 milljarða króna ríkisábyrgð til handa fyrirtækinu á Alþingi og í fjölmiðlum að undanförnu, en gera má ráð fyrir að endurnar kæri sig kollóttar um þær fyrirætlanir. Efst í huga parsins þessa dagana er eflaust hreið- urgerð, enda fer nú í hönd varptími stokkand- arinnar. Morgunblaðið/Golli Stokkönd í skjóli í Vatnsmýrinni FJÁRHAGSLEG samskipti fram- kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs við sjóðinn sæta nú skoðun ríkisendur- skoðunar að beiðni menntamálaráðu- neytisins. Þorfinnur Ómarsson, fram- kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs, seg- ist fagna úttekt ríkisendurskoðunar, en hann hefur verið framkvæmda- stjóri sjóðsins síðan 1996 og er þetta í þriðja skiptið sem ríkisendurskoðun gerir úttekt á umsýslu sjóðsins. „Þetta er bæði mjög sjálfsagt eft- irlit og leiðbeinandi fyrir mig og starfsmenn sjóðsins,“ segir Þorfinn- ur. „Ég tel enga ástæðu til að óttast úttektina og tek henni fagnandi.“ Aðspurður segir hann að formaður stjórnar sjóðsins hafi lagt til að stjórnin færi fram á það við mennta- málaráðuneytið að framkvæmda- stjórinn yrði áminntur og tilsjónar- maður settur þangað til uppgjöri fyrir árið 2001 yrði lokið, en ekki tókst að ljúka því á tilsettum tíma nú í febrúar. Tillagan var ekki samþykkt í í stjórn sjóðsins og var því bréf formannsins sent í hans nafni en hafnað í ráðuneyt- inu og málið sent ríkisendurskoðun. Framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs Óttast ekki úttekt rík- isendur- skoðunar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.