Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 31 MBA-nám • Öll kennsla fer fram á ensku. • 11 mánaða almennt MBA-fjármálanám. • Nemendur alls staðar að. • Meðalaldur 32 ár og 7 ára starfsreynsla. • „Hands-on“ ráðgjafarverkefni. Inntökuskilyrði • Háskólagráða eða tilsvarandi starfsreynsla. • A.m.k. þriggja ára starfsreynsla. • GMAT-próf. • 3 meðmælabréf. • Viðtal. Ertu að spá í alþjóðlegt MBA-nám í haust? vinsamlegast hafðu samband við Norwegian School of Management BI, Postboks 9386 Grønland, 0135 Oslo, Noregi. Sími +47 22 57 62 00, eða mba@bi.no Ef þú óskar eftir að komast að í MBA-námið sem hefst í byrjun ágúst Netfang: mba@bi.no http://www.bi.edu Verð kr. 39.863 M.v. hjón með 2 börn, 2 – 11 ára. Flug, gisting, skattar, 22. maí, viku- ferð. Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.860. Verð kr. 49.950 M.v. 2 í íbúð, 22. maí, vikuferð. Flug og gisting, skattar. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.450. Verð kr. 49.865 M.v. hjón með 2 börn, 2 – 11 ára. Flug, gisting, skattar, 22. maí, 2 vikur. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.360. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Benidorm þann 22. maí í 1 eða 2 vikur. Sumarið er komið og yndislegt veður á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Aðeins 18 sæti í boði Stökktu til Benidorm 22. maí frá 39.863 4X4 sendibíll Skrd: 3/1999. Ekinn 48.000 km. Vél: 2500 cc dísel. Einn eigandi. Búnaður m.a.: Samlæsing. Rafdrifnir speglar. Útvarp og segulband. Vökvastýri. „Topp bíll á frábæru verði” Opnunartíminn er 9-18 virka daga og 13-17 laugardaga Bíldshöfða 6, sími 515 7025 www.brimborg.is . Tilboð 1.290.000 kr. Ford Transit 4X4 Verð 1.750.000 kr. . . . Einstakt stemmningsverk. Húmor og innlifun. Áhugasamir geta farið inn á slóðina: www.simnet.is/ding og skoðað ljósmyndir af verkinu. Málverk til sölu VORTÓNLEIKAR söngfélagsins Sálubótar verða haldnir í kvöld kl. 21 í Dalvíkurkirkju. Þetta eru fimmtu tónleikar Sálubótar nú á vordögum en þegar hafa verið haldnir tvennir tónleikar í Þor- geirskirkju við Ljósavatn og fyrir nokkru var sungið á Húnavöku í boði Karlakórs Bólstaðarhlíð- arhrepps og einnig hafa Sálubót- arfélagar sungið í Miðgarði nýlega. Á efnisskránni er að finna íslensk þjóðlög og lög eftir m.a. Emil Thor- oddsen, Oliver Guðmundsson, Ás- kel Jónsson og Sigfús Halldórsson. Þá syngur söngfélagið negrasálm, írskt þjóðlag og mörg önnur kóra- lög frá ýmsum löndum. Einsöngvarar kórsins á þessum tónleikum eru Dagný Pétursdóttir sem syngur Haust eftir stjórnand- ann Jan Alavere, Hildur Tryggva- dóttir sem syngur m.a. Aldrei einn á ferð úr Carousel og Spiel mir das lied úr Ungverska brúðkaupinu. Karl Ingólfsson syngur Mona Lisa við lag og texta Jay Livingstone og Ray Evans. Þá syngur Steinþór Þráinsson einsöng í m.a. Di Prov- enza il mar, il suol úr La Traviata og hann og Hildur syngja tvísöng í lögunum Hríslan og lækurinn og Þegar til mín blítt þú brosir við texta Friðriks Steingrímssonar og lag Jaan Alavere. Hljómsveit Sálubótar skipa Jaan Alavere, píanó, Sigurður Birgisson, trommur, og Tarvo Nomm, bassi. Fiðluleik annast Marika Alavere. Sálubót er nú að ljúka sínu ní- unda starfsári og hafa félagar ferðast víða um land og einnig til Eistlands á heimaslóðir stjórnand- ans, Jaans Alaveres. Hann er orð- inn Þingeyingum að góðu kunnur, en hann er tónlistarkennari við Stórutjarnarskóla og hefur einnig leikið með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hann lærði kórstjórn í heimalandinu, lék mikið á fiðlu og var trommuleikari í rússneska hernum í tvö ár. Þá starfaði hann við tónlistar- stjórn í Tartu við eitt af elstu leik- húsum landsins. Þetta er fjórða starfsár hans með söngfélaginu. Í Sálubót eru nær fjörutíu karlar og konur, aðallega úr Bárðardal, Fnjóskadal, Ljósavatnshreppi og Reykjadal og fara æfingar fram í Stórutjarnarskóla einu sinni í viku alla vetrarmánuðina. Söngfélagið Sálubót á Dalvík Morgunblaðið/Atli Vigfússon Frá vortónleikum söngfélagsins Sálubótar í Þorgeirskirkju 1. maí síð- astliðinn. Hildur Tryggvadóttir söng einsöng með kórnum. Laxamýri. Morgunblaðið. BEETHOVEN og Ravel eru við- fangsefni á tón- leikum í Salnum kl. 20 annað kvöld. Flytjendur eru Laufey Sig- urðardóttir fiðlu- leikari, Richard Talkowsky selló- leikari, Krystyna Cortes píanóleik- ari og Garðar Thór Cortes tenór. Tónleikarnir eru í Tíbrá, tónleikaröð Kópavogsbæjar. Eftir Ludwig van Beethoven verð- ur flutt Tríó II í G dúr op. 1 nr. 2 og Sex skosk ljóð op. 108. Eftir Maurice Ravel verður flutt Tríó frá árinu 1914. Þrjú hljóðfæri og tenór í Salnum Garðar Thór Cortes ♦ ♦ ♦ BILLY Strayhorn var eitt helsta tónskáld djasssögunnar og dálítið merkilegt að Duke Ellington hafi ráð- ið hann fyrst til sín sem textahöfund. Þá þegar hafði hann samið Lush Life, eina lífseigustu ballöðu síðustu aldar. Hún er um margt ólík þeim ballöðum sem hann samdi síðar og Johnny Hodges blés jafnan, enda hafði Stray- horn þá ekki komist í návígi við undraveröld Ellingtons. Lush Life var að sjálfsögðu á dag- skrá Villilúðurs og túlkun þeirra fé- laga frábær. Upphófst sem dúett Jó- els og Agnars og lauk á píanótrói. Það hefði verið gaman ef Jóel og Agnar hefðu leikið einhverja ballöðu Stray- horns sem dúett, ekki síst Lotus Blossom, sem Ellington lék gjarnan í lok tónleika eftir dauða Strayhorns eða einn í frakkanum meðan hljóm- sveitarfélagar voru að pakka saman eftir tónleika. Þá var vinur hans og samstarfsmaður til áratuga honum efst í huga. Kvartettinn hóf tónleikana á Isfah- an úr The Far East Suite er Ellington og Strayhorn sömdu og hljóðrituðu 1967. Þessa ballöðu hefur Sigurður Flosason oft blásið fallega á nótum Johnny Hodges, en túlkun Jóels var í anda nýboppsins. Það var U.M.M.G. einnig en hrynsveitin heldur líflaus, í það minnsta kveikti hún ekki glóð í hugum þeirra sem aldir eru upp við Betlehemútgáfuna frá 1956. Sama má segja um útgáfu kvartettsins á Rainc- heck, en það er erfitt að hlusta á það verk án þess að Webstersólóinn ótrú- legi trufli. Aftur á móti var túlkun þeirra félaga á Johnny Come Lately vel heppnað nýbopp og slegið var í sveiflufákinn í ópus Ellingtons og Strayhorns: Just A-Sittiń And A Rockin, sem gekk undir vinnuheitinu Sweé Pea, er var gælunafn Stray- horns. Jóel getur verið hreint maka- laus þegar hann hleypir öllum tilfinn- ingum lausum í svíngskotnum blæstri. Það sama var uppá teningn- um í einföldum blús, Sweet And Pun- get af Blues In Orbit frá 1958. Þar blés Jóel langar líðandi línur í anda Paul Gonsalves og ekki var Agnar síðri í hljómum hlöðnum spennusóló. Valdimar Kolbeinn lék laglínuna í upphafi The Flower Is A Lonesome Thing, sem Ella söng svo fallega með Ellington-bandinu. Það var snyrti- lega gert en ljóðið kviknaði ekki fyrr en Jóel upphóf tenórsóló sinn, tær lýrík studd markvissum hljómum Agnars Más. Jóel blés Chelsea Bridge fallega í minningu vinar síns Kristjáns Eld- járn, en Kristjáni, sem sá gjarnan hinar skoplegri hliðar lífsins, kom ávallt í hug tannréttingarbasl dóttur Clintons Bandaríkjaforseta er nafn þessarar ballöðu var nefnt. Svo var aukalag og þeim sem eitt- hvað þekkja til Billy Strayhorns kem- ur ekki á óvart hvaða ópus það var: Take The A Train; kynningarlag Ell- ingtons frá því hann hljóðritaði það 1941. Ásamt Lush Life er þetta það lag Strayhorns sem oftast hljómar og þeim félögum tókst að finna nýjan flöt á því. Þetta voru úrvalstónleikar þótt hrynsveitin hefði mátt vera sterkari í sveiflunni á köflum, en sólóar Jóels og Agnars voru hverjum öðrum betri. Með slíka úrvalslistamenn innan- borðs er Íslandsdjassinn ekki í hættu. Strayhorn í ýmsum myndum DJASS Múlinn í Kaffileikhúsinu Jóel Pálsson tenórsaxófón, Agnar Már Magnússon píanó, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassa og Erik Qvick tromm- ur. Fimmtudagskvöldið 2.5. 2002. VILLILÚÐUR Vernharður Linnet Í LISTASAFNI Íslands stendur yfir sýning á rússneskri myndlist (1880- 1930). Í tengslum við sýninguna verða ýmsar uppákomur. Í kvöld kl. 20 verða tónleikar með rússnesku tvíburabræðrunum og harmoniku- leikarana Juri og Vadim Fyodorov. Harmonikur í Listasafni Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.