Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 57
Auðveldaðu þér leikinn
– með hagstæðu bílaláni
Veittur er 1%
afsláttur af lán-
tökugjaldi ef
lántakandi
greiðir í lífeyris-
sparnað hjá
Kaupþingi
www.fr jals i . is
Bílalán er án efa þægilegasta leiðin til að eignast nýjan bíl. Hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum býðst þér 100% bílalán, án útborgunar. Lánið borgar þú
til baka á 96 mánuðum eða skemmri tíma. 1)
Þú getur reiknað dæmið og sótt um bílalán á www.frjalsi.is eða hjá bílaumboðunum.
Þú getur einnig komið í Sóltún 26, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is og fengið
allar nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar.
1) Lánuð eru 100% af bílverði til allt að 96 mánaða ef bílalánið er með veði í bifreið og bakveði í fasteign. Heildarveðhlutfall fasteignar
með bílaláni má mest vera 90% af verðmæti fasteignar. Bílalán með veði í bifreið getur numið allt að 75% af kaupverði til allt að 84 mánaða.
Sjá nánari skilyrði fyrir lántöku á www.frjalsi.is.
Dæmi um mánaðarlega meðalafborgun af 1.000.000 kr.
m.v. jafnar afborganir án verðbóta
Lánsupphæð 60 mánuðir 72 mánuðir 84 mánuðir 96 mánuðir
1.000.000 kr. 20.401 kr. 17.612 kr. 15.620 kr. 14.126 kr.
Ef þú kaupir t.d. nýjan
Toyota RAV 4WD, 2,0,
16v* og færð 75%
til 84 mánaða er
lánsupphæðin 1.694.250 kr. Meðalafborgun
á mánuði er þá 26.464 kr.
(1.694.250/1.000.000x15.620 = 26.464)
*Verð: 2.259.000 kr. skv. verðskrá P. Sam. hf. í apríl 2002
Ef þú kaupir t.d. nýjan
Toyota Corolla 1,4,
16v* og færð 100%
lánuð til 96 mánaða
er lánsupphæðin 1.599.000. Meðalafborgun
á mánuði er þá 22.587 kr.
(1.599.000/1.000.000x14.126 = 22.587)
*Verð: 1.599.000 kr. skv. verðskrá P. Sam. hf. í apríl 2002
A
B
X
/ S
ÍA
HVAÐA mannsbarn þekkir ekki söguna
um Frankenstein? Þetta klassíska verk
Mary Shelley, þessa ódrepandi vís-
indaskáldsögu með undirliggjandi got-
neskum hryllingi? Söguna af doktor
Frankenstein sem tókst að skapa lifandi
mannveru úr líkamspörtum og oftsinnis
hefur verið kvikmyndagerðarmönnum
efniviður.
Allir þekkja þessa sögu, en færri vita
að doktor Frankenstein átti sér lifandi
fyrirmynd. Eða svo segja menn nú.
Hann hét James Lind og var sérvitur
skoskur læknir. Málið er að Mary Shell-
ey var gift rómantíska ljóðskáldinu og
uppreisnarseggnum Percy Shelley.
Hann var á sínum tíma skóladrengur í
Eton, þar sem dr. Lind kenndi víst
kauða og hafði mikil áhrif á hann. Talið
er að þegar hin 18 ára gamla Mary hafi
sest niður sumarið 1816 til að skrifa
þessa skemmtilegu sögu, hafi frásagnir
eiginmannsins af læriföðurnum verið
stór hluti af því sem komst á blað.
Vissulega hafði Mary mikla rithöf-
undahæfileika, en sérfræðingar eru
sammála um að hún vissi lítið sem ekk-
ert um vísindi.
Chris Goulding, sem stendur fyrir
þessari bráðnauðsynlegu rannsókn,
heldur því fram að bókin hefði orðið allt
öðruvísi, og alls ekki jafn áhrifarík, hefði
hún ekki notið þessa raunverulega inn-
blásturs. „Kjarni bókarinnar er að raf-
magn er krafturinn sem getur lífgað við
líkama. Þessar vísindalegu upplýsingar
fékk hún frá
Percy Shelley
sem fékk þær
frá James
Lind. Um-
hyggja henn-
ar var að-
allega á
samfélags- og
siðferð-
islegum nót-
um,“ sagði
Chris
Goulding ný-
lega við BBC
fréttastofuna.
Það er hins
vegar spurning hvort hún hefði yfirhöfuð
fengið hugmyndina að bókinni ef hún
hefði ekki heyrt söguna af lækninum,
sem sannanlega fékk froskalappir til að
hreyfast með raflosti.
Frankenstein fundinn?
Málverk R. Rothwell af
Mary Shelley hangir
uppi í National Por-
trait Gallery í London.
Veggspjaldið fyrir
Frankenstein-myndina
frá árinu 1931.
Samherjar
(Partners)
Gamanmynd
Bandaríkin, 1999. Skífan VHS. (92 mín.)
Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn: Joey
Travolta. Aðalhlutverk: Casper Van Dien,
Vanessa Angel og David Paymer.
ÞEGAR tölvublókin Bob er snið-
gengin við stöðuhækkanir í stór-
fyrirtækinu sem hann vinnur fyrir
ákveður hann að snúast til hefnda.
Stelur hann verðmætu forriti og
stingur af til Kaliforníu þar sem
hann ætlar að selja góssið. Á leið-
inni hittir hann
flækinginn Axel
sem samstundis
eygir gróðavon í
uppátæki Bobs og
slæst óbeðinn í för
með honum. Mikið
er gert úr ólíkum
persónuleikum
mannanna
tveggja, annars vegar er það
ósjálfbjarga tölvunördinn en hins
vegar lífsreyndur smákrimmi og
flestir brandarar myndarinnar
ganga út á brösótt samskipti þess-
ara „samherja“. Myndin líður
ósköp áreynslulaust hjá garði, án
nokkurra tilþrifa í jákvæðar eða
neikvæðar áttir. Það er ekki bein-
línis hægt að mæla með þessari
mynd en á hinn bóginn er engin
ástæða til að vara sérstaklega við
henni. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Óblíðir
félagar
Sporhundurinn
(The Finder)
Spennumynd
Ástralía 2001. Myndform VHS. (90 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Frank
Shields. Aðalhlutverk Simon Westaway,
Paul Mercurio.
ÞETTA er ein af þessum myndum
þar sem aðalsöguhetjan er harður
nagli sem er fyrrverandi-lögga-með-
vafasama-fortíð. Þessi er manna
færastur í að hafa uppi á týndu og
tröllum gefnu fólki. En meira að
segja hann klórar sér í hausnum er
hann fær hið kaf-
loðna verk að finna
dóttur moldríks
byggingarverktaka
sem, fyrir ein-
hverra hluta sakir,
vill alls ekki blanda
hinum lögbundnu
vörðum laganna í
málið. Og málið
verður loðnara eft-
ir því sem sporhundurinn kemst nær
lausninni og ekki auðveldar leitina að
fyrrverandi yfirmaður hans, lög-
reglustjórinn, grunar hann um
græsku og hótar að loka hann inni
ef …
Ekki ýkja frumlegur söguþráður
er það? Og það er einmitt stærsti
gallinn við þessa áströlsku sjón-
varpsmynd. Maður hefur séð þessa
fléttu hundrað sinnum áður og á
örugglega eftir að sjá hundrað sinn-
um í viðbót í einhverjum af hinum
óteljandi bandarísku lögguþáttum
sem keppast við að lýsa háskalífinu í
myrkvuðum öngstrætum stórborg-
anna eins og það er í alvörunni – já
einmitt.
En það sem hífir þessa mynd ögn
hærra en aðrar beint-á-myndband-
spennumyndir er dæmigerð fag-
mennska Ástralanna og hinn þokka-
legasti leikur. Skarphéðinn Guðmundsson
Fundvís
fantur