Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 29
Harmonikutónleikar í kvöld kl. 20
Rússnesku snillingarnir Juri og Vadim Fyodorov flytja
útsetningar á vinsælum rússneskum þjóðlögum.
Miðasala við innganginn.
Listasafn Íslands
Fríkirkjuvegi 7,
Reykjavík.
Hin nýja sýn
Stórsýning frá Tretjakov-safninu í Moskvu.
Viðamikil dagskrá með tónleikum, fyrirlestrum og leiðsögn.
Sjá vef safnsins http://www.listasafn.is.
Safnið er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
- Smáréttir í kaffistofu.
- Ný safnbúð með fjölbreyttu úrvali bóka,
gjafavöru og listaverkakorta.
- Góð aðstaða fyrir hreyfihamlaða.
KRISTINN Pálmason hefur verið ötull við sýning-
arhald undanfarin misseri og verk hans í stöðugri þró-
un. Það sem er mest spennandi við verkin er sú sífellda
endurskoðun sem hann stundar á málverkinu, bæði í
efnislegu tilliti sem og hugmyndafræðilegu – ekki til að
brjóta það niður heldur til að færa það á annað stig.
Í Gallerí Skugga stillir listamaðurinn í öndvegi tveim-
ur áþekkum stórum dökkum málverkum sem við fyrstu
sýn virðast vera nokkurs konar áferðarmálverk. Lista-
maðurinn bætir lagi ofan á lag og skapar einskonar
vitnisburð um athöfnina að mála og tímann sem leið við
gerð þess. Hnúðar hér og þykkildi þar með rákum og
rispum og nægri málningu og útkoman er málverk sem
líkja má við persónulega landkönnun.
Verkin eru unnin með olíu á ál sem er ekki hefð-
bundið en sýnir að Kristinn er ekki einungis að velta
fyrir sér yfirborðinu heldur málverkinu öllu sem heild-
stæðum hlut.
Skammt undan er svo andstæða dökku verkanna,
verk sem ber heitið Án titils eins og hin málverkin gera
reyndar einnig, en þar vinnur Kristinn með krómúða og
hár á spegil sem festur er á MDF plötu. Hér eru til-
raunir með efni einnig á ferðinni auk þess sem má
ímynda sér að Kristinn fáist við hið karllæga, skegghár,
spegill og raksápa (krómúðinn); morgunraksturinn!
Inni í klefa er samvinnuverk Kristins og Gulleiks Án
titils. Gulleik hefur smíðað umgjörð og Kristinn málað
verk inn í þá umgjörð. Hér fer saman húsgagnahönnun,
málverk og hugsanleg gjörningalist, þ.e. verkið krefst
þess að einhver setjist á áfastan stól og góni á mál-
verkið, líkt og um einhvers konar meðferð væri að ræða,
eða þá að viðkomandi setjist og snúi baki í málverkið og
leyfi öðrum að horfa á sig í umgjörðinni sem þeir lista-
mennirnir hafa skapað.
Í kjallaranum eru verk Gulleiks Lövskar. Í fremri sal
er afar þægilegur en smekklega hannaður steinsteyptur
stóll sem er ætlaður til notkunar utan húss. Inni í her-
bergi eru svo verkin Stóll sem snýst og Ruggi, en það
eru stólar úr forpressuðum spóni með eikaryfirborði.
Þarna nýtur hugmyndaauðgi Gulleiks sér einkar vel. Þó
að Gulleik sé menntaður húsgagnasmiður og hönnuður
hefur hann átt við myndlist og gjörninga og finnst mér
tilfinning hans fyrir manneskjunni og líkamanum end-
urspeglast í hönnuninni. Það að setjast í stólana verður
að gjörningi, stóllinn lætur manni líða eins og maður sé
dálítið „spes“ en á sama tíma hvílist maður. Tengingar
við myndlistarverk greindi ég einnig í hönnuninni og
varð mér þá einkum hugsað til ávalra forma í verkum
listamannanna Richards Deacon og Tony Cragg.
Sýning þeirra Kristins og Gulleiks er áhugaverð.
Heildaryfirbragðið ber fagmennsku vitni og ástæða er
til að hvetja fólk til að líta við í galleríinu.
Málverk
og ruggu-
stólar
Þóroddur Bjarnason
MYNDLIST OG HÖNNUN
Gallerí Skuggi
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13–17. Til 5. maí.
Kristinn Pálmason og Gulleik Lövskar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá sýningunni í Galleríi Skugga.
LEIKSTJÓRINN John McTiern-
an man eflaust sinn fífil fegurri, en á
ferli sínum hefur hann sérhæft sig í
gerð þéttra og oft mjög vandaðra en
fyrst og fremst söluvænlegra spennu-
mynda (Die Hard og The Hunt for
Red October eru þar góð dæmi). Nýj-
asta kvikmynd leikstjórans, Roller-
ball, ber þess skýrt vitni að blóma-
skeið leikstjórans sé löngu búið, þó
svo að hann sjálfur sé hvergi af baki
dottinn í hasarmennskunni. Roller-
ball er nefnilega hvort tveggja í senn,
B-mynd gerð eftir handriti sem hefur
talsvert litla sjálfsvirðingu, og nokkuð
þétt hasarmynd.
Í myndinni er sagt frá blönkum
adrenalínfíkli sem lætur til leiðast að
taka þátt í mjög svo vafasamri og villi-
mannslegri íþrótt sem ástunduð er á
hinum ýmsu stöðum í fyrrverandi
Sovétríkjunum. Þar hendast tvö lið
um áttu-laga braut á línuskautum og
mótorhjólum, og reyna að ryðja and-
stæðingum frá með fantabrögðum og
yfirkeyrslum til að koma bolta í mark.
Nánari leikreglur eru á rússnesku.
Með þátttökunni vonast Jonathan til
að græða nógu mikið af peningum til
að koma sér í háskóla, en kemst síðar
að því að ekkert er til sem heitir skjót-
fenginn gróði. Hin framtíðarkennda
sviðsetning myndarinnar er dálítið
skemmtileg í ómerkilegheitum sín-
um, enda er þar leikið á öfgafullan
hátt með þrá fólks eftir villimanns-
legri skemmtun sem nær allt frá
ljónagryfjum Rómverja til Survivor-
þátta nútímans. Og þótt handritið sé á
köflum vandræðalega einfeldnislegt
tekst gamla hasarleikstjóranum vel
að halda áhorfandanum við efnið.
Villimannsleg skemmtun
KVIKMYNDIR
Smárabíó
Leikstjóri: John McTiernan. Handrit:
Larry Ferguson, John Pogue. Byggt á
smásögu og handriti William Harrison.
Aðalhlutverk: Chris Klein, Jean Reno, LL
Cool J og Rebecca Romijn-Stamos. Sýn-
ingartími: 95 mín. Bandaríkin. MGM,
2002.
ROLLERBALL (LÍNUBOLTI) Heiða Jóhannsdóttir