Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Leifur Björnssonvar fæddur á
Geitlandi við Mið-
fjarðarvatn í Húna-
vatnssýslu 9. október
1918. Hann lést á
heimili sínu í Hafnar-
firði 18. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Björn Konráð Sigur-
björnsson og Arndís
Guðmundsdóttir, en
Leifur var á fjórða
aldursári er móðir
hans féll frá. Bæði
voru þau ættuð úr
Húnavatnssýslu. Auk Leifs áttu
þau hjón annan son, Sigurbjörn
Guðmund, f. 17. mars 1921, d. 14.
ágúst 1986. Við fráfall móðurinn-
ar var Sigurbirni komið fyrir á
Súluvöllum og Leifi á Tjörn í
Húnavatnssýslu. Björn, faðir
þeirra, eignaðist síðar dóttur,
Jónínu, f. 1929.
Árið 1942 kvæntist Leifur
Stellu Haraldsdóttur (f. 11. apríl
1920, d. 29. mars 1997). Stella var
ættuð frá Skeggjastöðum í Garði,
dóttir hjónanna Haralds Jónsson-
ar og Bjargar Ólafs-
dóttur. Leifur og
Stella hófu búskap
sinn í Njarðvíkum,
en fluttu svo til
Hafnarfjarðar 1945.
Þeim varð fimm
barna auðið. Þau
eru: Guðrún, f. 16.7.
1942, maki Kristinn
Einarsson, sem nú
er látinn; Arnbjörn,
f. 1.6. 1944, maki
Sjöfn Jóhannsdóttir;
Haraldur, f. 3.3.
1946, maki Sigríður
Haraldsdóttir; Björg
f. 13.12. 1948, maki Kristinn Arn-
ar Jóhannesson; og Steinar Már,
f. 12.10. 1956, maki Ólöf Eygló
Jensdóttir.
Leifur starfaði sem lögreglu-
þjónn í Hafnarfirði frá árinu 1946
til ársins 1954. Hann hóf störf við
múraraiðn og lauk sveinsprófi í
þeirri grein og starfaði við það
ætíð síðan, síðustu árin hjá ÍSAL,
þar sem hann starfaði þar til hann
hætti fyrir aldurssakir árið 1988.
Útför Leifs fór fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði 30. apríl.
Hann tengdafaðir minn, Leifur
Björnsson, er látinn á áttugasta og
fjórða aldursári. Komið var að Leifi
látnum í húsbóndastólnum en hann
hafði ávallt kviðið spítalavist ef
þróttur hans hyrfi og sagði hann
oftar en einu sinni við mig að hann
óskaði þess að hann fengi að yf-
irgefa þennan heim í stólnum sín-
um heima. Honum varð blessunar-
lega að ósk sinni. Leifur hafði verið
lasburða síðustu árin en það helj-
armenni sem hann var kvartaði
hann aldrei og óskaði einungis eftir
því að fá að vera heima hjá sér.
Með Leifi er horfinn af sjónarsvið-
inu einstakur vinur minn, persónu-
leiki sem ólst upp við mjög bág kjör
á fyrri hluta síðustu aldar, var sam-
kvæmur sjálfum sér, með réttlæt-
issjónarmiðin að leiðarljósi og afar
stórt hjarta.
Ég kynntist Leifi þegar ég var á
unga aldri og tók hann mér í fyrstu
sem ég væri að stela dóttur hans en
þegar Leifur fann að við gátum tal-
að saman og ég gæti séð henni fyrir
lífsviðurværi fór hann að kalla mig
Kidda og þá vissi ég að ísinn var
brotinn og frá þeirri stundu urðum
við ævilangir vinir.
Leifur gat oft verið hrjúfur við
fyrstu kynni og oft var hann með
ósanngirni misskilinn en stríðinn
var hann mjög og hafði sérstaka-
lega gaman af því að taka þátt í
umræðum og hlusta á frásagnir og
reynslusögur. Leifur var múrari að
mennt og vann við almenn múr-
arastörf þar til hann hóf vinnu hjá
ÍSAL um fimmtugt og vann þar til
sjötugsaldurs. Honum leið mjög vel
að vinna hjá ÍSAL og hafði sterkar
tilfinningar til þess fyrirtækis.
Leifur tók fráfall konu sinnar,
Stellu, árið 1997 afar nærri sér
enda hans besti vinur og náði hann
vart gleði sinni eftir það. Frá því að
Leifur fór í aðgerð á hné um sjö-
tugt fannst honum hann aldrei vera
nógu stöðugur sem leiddi til þess að
hann varð meira og meira heima-
við. Verst þótti honum að geta ekki
keyrt bílinn en bíllinn var leiðin
þeirra Stellu til frjálsræðis en þau
gerðu mjög mikið af því að keyra
um og heimsækja sitt fólk. Heim-
sóknir Stellu og Leifs voru ávallt
mikið gleðiefni í fjölskyldunni.
Leifi þótti það mikið glæfraverk
hjá mér á sínum tíma að flytja með
fjölskylduna til útlanda og átti erf-
itt með að viðurkenna þá stöðu að
búa erlendis þar sem honum fannst
allt vera framandi og óöruggt. En
eftir fyrstu heimsókn þeirra Stellu
til okkar Bjargar til Svíþjóðar, sem
urðu nokkrar, breyttist viðhorf
hans til lífsins og sátum við ófáar
stundirnar nú í seinni tíð og rifj-
uðum upp skemmtileg atvik sem
gerðust þau ár sem þau komu í
heimsókn til okkar. Þessi tími er
okkur Björgu og börnum okkar
mjög minnisstæður sem við þökk-
um fyrir að eilífu.
Leifur fæddist í Húnavatnssýslu
og voru uppvaxtarár hans afar erfið
en móðir hans lést ung og var hon-
um komið fyrir á Tjörn á Vatns-
nesi, þá fjögurra ára gömlum. Sig-
urbirni bróður hans var komið fyrir
á Súluvöllum í sömu sveit. Leifur
fluttist nokkrum árum síðar að
Geitlandi við Miðfjarðarvatn þar
sem Gunnlaugur föðurbróðir hans
bjó. Björn faðir hans var þá kominn
til Reykjavíkur í atvinnuleit. Senni-
lega á tíunda ári fóru þeir Leifur og
Gunnlaugur gangandi til Borgar-
ness, sem þótti mikið ferðalag, en
Leifur hélt áfram ferðinni með
skipi til Reykjavíkur. Hann var síð-
an á flækingi (eins og Leifur orðaði
það) með pabba sínum í Reykjavík
og Hafnarfirði þar sem Björn sótti
hafnarvinnu. Árið 1930, snemma
vors, var Leifi komið fyrir austur í
Mýrdal á bænum Sólheimum, sem
þá var fjórbýli, til hjónanna Ísleifs
og Lilju. Hjá Ísleifi og Lilju bjó
Leifur unglingsárin, gekk þar í
skóla og síðla árs 1937, þá 19 ára að
aldri, flutti hann til Reykjavíkur og
hóf að lifa sjálfstæðu lífi.
Leifur mat þau hjón mjög mikils
og kom ávallt ákveðinn virðingar-
svipur á Leif þegar hann minntist
þeirra. Með fjölskyldu Leifs og
Stellu og Ísleifs og Lilju myndaðist
vinskapur mikill sem varir enn.
Leifur var snyrtimenni og bú-
maður mikill og ávallt tók hann
slátur, gerði skonsur og ræktaði
kartöflur og sá almennt til þess að
frystikistan væri full matar á
hverju hausti.
Stella og Leifur hófu búskap
1940 í Narðvíkum en fluttu síðar til
Hafnarfjarðar 1945 og áttu allan
sinn búskap þar. Heimili þeirra var
ávallt miðpunktur sem öll börnin
sóttu og var oft glatt á hjalla, mikið
rifist um pólitík og þrasað um dæg-
urmál. Nú síðustu mánuði fann ég
að Leifur var farinn að linast mjög
í skoðunum en hann fylgdist ætíð
vel með fréttum og pólitískri um-
ræðu.
Það verður tómarúm í hugskoti
fjölskyldu minnar og söknuður en
við vitum að nú er Leifur kominn í
hóp þeirra sem hann elskaði mest.
Ég og fjölskylda mín munum
sakna Leifs. Guð blessi minningu
hans en nú eru þau bæði endanlega
farin, Leifur og Stella, á aðrar vídd-
ir. Megi Guðs blessun fylgja minn-
ingu þeirra.
Kristinn Arnar Jóhannesson.
Þá ertu farinn, afi minn, þangað
sem þú ert búinn að bíða eftir að
fara síðan amma lést fyrir fimm ár-
um. Ég vissi að það hlaut að koma
að því, en samt er maður aldrei al-
veg undirbúinn. Ég mun sakna þín
ákaflega mikið, og heimsóknanna til
þín sem hafa alltaf verið fastur
punktur í lífi mínu. Ég er þó ákaf-
lega glaður yfir því að ég náði að
heimsækja þig svo skömmu áður,
ásamt Stellu og börnunum hennar.
Og ég veit að Stella Björg er ákaf-
lega glöð yfir því líka, enda voruð
þið alltaf sérstakir vinir.
Ég kynntist þér fyrst sem vini
þegar ég var unglingur og þú og
amma bjugguð hjá okkur í Fagra-
hvammi um nokkurra mánaða
skeið. Við sátum oft saman og
ræddum málin, ég, þú og amma
Stella. Það var afskaplega
skemmtilegur tími og við urðum
góðir vinir. Eftir það var ég tíður
gestur á Hjallabraut 33.
Við ræddum saman um allt milli
himins og jarðar. Ég gat alltaf sagt
þér frá öllu og þú hafðir sérstak-
lega gaman af pólitískri umræðu,
þó svo að við höfum ekki alltaf ver-
ið sammála. Þú fylgdist ákaflega
vel með þjóðmálunum, og ekkert
mátti koma í veg fyrir að þú bæði
sæir og heyrðir kvöldfréttatíma
helstu ljósvakamiðlanna. Þú tókst
ávallt afstöðu með lítilmagnanum,
enda máttir þú aldrei sjá aumur á
neinum og hafðir sterka jafnrétt-
iskennd. Þú studdir líka vel við
bakið á þinni stétt, og var Guð-
mundur Jaki í miklu uppáhaldi.
Eru mér hugstæð orð eins og
blýantanagarar og hvítflibbagengi,
sem þú notaðir þegar þér fannst
brotið á hag þíns fólks. Þú meintir
þetta allt vel, enda varstu ákaflega
hjartagóður og meyr.
Þú hafðir ákaflega gaman af að
segja mér sögur af því sem þú
hafðir upplifað. Í miklu uppáhaldi
var sagan af því þegar þú komst og
heimsóttir fjölskyldu mína í Sví-
þjóð, þegar ég var einungis eins
árs. Þú gast sagt mér frá þeirri
heimsókn, aftur og aftur, og mér
fannst það alltaf jafngaman, því þú
varðst alltaf svo glaður, og stórt
bros færðist yfir andlit þitt. Á þín-
um seinni árum, var þetta sennilega
stærsta gleðin í þínu lífi, þ.e. minn-
ingarnar.
Ég kveð þig nú, afi minn. Ég
mun alltaf geyma minninguna um
þig í brjósti mér. Það hefur gefið
mér mikið að kynnast þér og
ömmu, og mun ég ávallt vera þakk-
látur fyrir þau kynni.
Eyjólfur Magnús Kristinsson.
Elskulegur afi minn, Leifur
Björnsson, er látinn. Þegar mér
bárust þessar fréttir var mér mjög
brugðið, þótt þú hafir verið orðinn
mikið veikur, afi minn, og brugðið
gæti til beggja vona hvenær sem
væri. Ég hugga mig þó við það, afi
minn, að nú er þjáningum þínum
lokið og endurfundir ykkar ömmu
orðnir að veruleika. Mér er kunn-
ugt um það að þú nefndir það
stundum að þú fengir nú bráðum að
fá að fara til hennar ömmu, og
einnig hafðir þú óskað þér ákveðins
dauðdaga. Þér varð að ósk þinni, afi
minn, og fyrir það er ég þakklát.
Fyrstu minningar mínar tengdar
þér og ömmu eru frá því að þið
bjugguð á Blómvanginum. Þangað
fannst mér afskaplega gott að
koma og ófáar eru þær nætur er ég
fékk að gista hjá ykkur. Alltaf köll-
uð þið mig „litlu prinsessuna ykk-
ar“. Einnig eru mér minnisstæðar
veiðiferðirnar sem við fórum sam-
an, þú, amma og foreldrar mínir.
Ég bar nafn móður þinnar sem þú
misstir svo ungur, afi minn, og er
ég óx úr grasi hafði ég oft á tilfinn-
ingunni að þú tengdir mig á ein-
hvern hátt minningum um móður
þína sem þú fékkst ekki að njóta
samvista við nema fyrstu ár ævi
þinnar.
Eftir að þið amma fluttuð á
Hjallabrautina var ekki síður gott
að heimsækja ykkur þangað, ætíð
sama umhyggjan. Árin líða og hægt
og bítandi færðist aldurinn yfir og
heilsu ykkar tók að hraka. Það var
svo rétt fyrir páska árið 1997, að
amma veiktist skyndilega og lést
hinn 29. mars. Fráfall hennar varð
þér mikið áfall og var ætíð síðan
sem einhver strengur í hjarta þínu
hefði brostið. Það var auðvelt að sjá
að söknuður þinn var mikill, afi
minn. Það var fallegt að fylgjast
með þegar þú horfðir á litlu fallegu
myndina af henni ömmu sem þú
hafðir alltaf á borðinu fyrir framan
þig þegar þú sast í stofunni. Eng-
inn mátti hrófla við myndinni, hún
var þér nánast heilög.
Þær eru mér minnisstæðar
stundirnar síðustu árin þegar ég
kom til þín til að snyrta og klippa
hár þitt. Þá áttum við ætíð stund til
að ræða saman.
Ég vil með þessum fátæklegu lín-
um mínum þakka þér fyrir allt, afi
minn, þakka fyrir samfylgdina og
vona að þið amma hafið náð endur-
fundum á ný. Megi friðarins faðir
leiða ykkur til ljóssins í guðsríki.
Guð blessi minningu ykkar.
Arndís Steinarsdóttir.
Með fáum línum viljum við
kveðja þig, elsku afi, og þakka þér
fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur.
Við vitum nú að þú finnur ekki
lengur til og allar þrautir sem þú
áttir við að stríða eru horfnar. Það
huggar okkur líka, elsku afi, að vita
að þú hefur hitt ömmu sem farin
var á undan þér til Guðs og hefur
nú tekið á móti þér.
Við reyndum að heimsækja þig
eins oft og við gátum og oft leið
okkur illa að horfa á þig þegar þér
leið ekki vel. Þegar við heimsóttum
þig var það alltaf viðkvæðið hjá þér
að segja við okkur: „Gáiði nú hvað
er undir dúknum og skiptiði því á
milli ykkar,“ en þú hafðir þann
vana að setja smámynt sem af-
gangs var eftir búðarferðirnar und-
ir dúk á eldhúsborðinu. Sagðir okk-
ur að skipta því jafnt á milli okkar.
Þú vildir alltaf gleðja okkur á ein-
hvern hátt. Far þú í friði og hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
Minning þín mun ávallt vera í
hjarta okkar, elsku afi.
Steinunn og Lára
Steinarsdætur.
Við viljum með fáum línum
kveðja þig, elsku langafi. Nú vitum
við að þú ert hjá Guði. Þér var oft
búið að líða illa bæði á sál og lík-
ama og sérstaklega eftir að
langamma dó fór að halla undan
fæti. Við vitum að nú hefur
langamma tekið á móti þér og nú
líður ykkur vel hjá Guði og þrauta-
göngu þinni er lokið. Megi þið um
eilífð alla lifa í ljósi Frelsarans. Guð
blessi ykkur.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runninn
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgarþraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja
og gott er allt, sem Guði er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðidal.
(V. Briem.)
Minning um ykkur mun lifa í
hugskoti okkar alla tíð. Guð geymi
ykkur.
Kristrún Marta, Hafsteinn,
Katrín Sjöfn, Arnbjörn,
Thelma Karen
og Róbert Arnar.
LEIFUR
BJÖRNSSON
!"
# $$%&' (
)*&'
!" # $ %#
$
!"
" &'"(("
$$ !$+"+
, $$""&$
- $
$$""&$
./*$+ $$""&$0
!
!""#
"## $%&' $ (& ) *+
&)+"## (' $
$%& ( ' $ ,- & '& , ( *+
) $ $%&& ( *+ $%& - & + ' $
*% +%(#-+$+ -
!
"
#$ %
&
'
()**
!
" #$
%! ! !
$ &" #$
% # !
' " (!) $
* *+ $* * *+ "