Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 49

Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 49
Nýr konsert- flygill vígður í Dalvíkur- kirkju AÐALFUNDUR Sparisjóðs Svarf- dæla var haldinn síðasta vetr- ardag. Við það tækifæri var vígð- ur nýr konsertflygill í Dalvíkur- kirkju. Hér er um að ræða flygil af gerðinni Bösendorfer. Vandaðan grip sem á að vera sambærilegur við bestu konserthljóðfæri lands- ins. Verðmæti hans er um fimm milljónir króna. Hann verður í eigu Sparisjóðs Svarfdæla en stað- settur í Dalvíkurkirkju. Þar með á Dalvíkurkirkja að geta orðið eitt af fremstu tónlistarhúsum lands- ins því fyrir var kirkjan mjög vin- sæl til tónleikahalds vegna góðs hljómburðar og þar var raunar fyrir ágætur flygill sem nú verður fluttur að Rimum í Svarfaðardal. Það var Helga Bryndís Magnús- dóttir píanóleikari sem valdi hljóð- færið og vígði það við hátíðlega at- höfn að loknum aðalfundi Spari- sjóðsins. Úthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla Fastur liður á aðalfundum Sparisjóðs Svarfdæla er úthlutun úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla. Að þessu sinni var út- hlutað 1,4 milljónum króna en þess má geta að frá því menningarsjóð- urinn var stofnaður árið 1984 hef- ur verið úthlutað um 30 milljónum króna á núvirði til menningar- verkefna. Eftirtaldir 10 aðilar fengu úthlutun að þessu sinni: Einar Eimilsson, Dalvík, 100.000 kr. til starfa að myndlist. Tónlistarkennararnir Vigdís Klara Aradóttir og Guido Baeum- er á Dalvík, 100.000 kr. til tón- leikahalds. Húsfélagið Hákarla-Jörundur í Hrísey, 150.000 kr. til sýning- arhalds. Eigendur íbúðarhússins á kirkjustaðnum Völlum í Svarf- aðardal, 150.000 kr. vegna end- urbóta á húsinu. Gallerý Perla í Hrísey, 150.000 til uppbygging- arstarfs. Barnakórinn Góðir hálsar á Húsabakka í Svarfaðardal, 150.000 kr. Kór Stærri-Árskógskirkju, 150.000 kr. Kirkjukórinn í Hrísey, 150.000 kr. Samkór Svarfdæla, 150.000 kr. Karlakór Dalvíkur, 150.000 kr. Dalvíkurbyggð. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Guðmundur Ingi Helga Bryndís Magnúsdóttir vígir nýjan flygil í Dalvíkurkirkju. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 49 Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989 Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591 Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 4564936 Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281 Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni ÞAÐ er ekki óalgengt, aðbörn og unglingar, ograunar margir full-orðnir líka, rugli samantveimur merk- isatburðum í sögu kristinnar trú- ar, annars vegar upprisunni og hins vegar uppstigningunni. Og það er skiljanlegt, enda eru orðin mjög svo áþekk í íslensku máli, í fljótu bragði, a.m.k. Samt er lang- ur vegur þarna á milli í tíma; upp- risan er hápunktur páskadags- morguns, uppstigningin kveðjustund meistarans, 40 dög- um síðar. Líkt og hvítasunnan, ein af þremur stórhátíðum kirkjuársins, hefur fallið í skugga hinna tveggja, jóla og páska, hefur uppstigning- ardagur gleymst dálítið, þar sem hann lendir á milli tveggja bjartra sóla. Uppstigningardagur á þó mikla perlu í fórum sínum, kristniboðs- eða skírnarskipunina. Í Matteus- arguðspjalli 28:16–20, segir um það: „En lærisveinarnir ellefu fóru til Galíleu, til fjallsins, sem Jesús hafði stefnt þeim til. Þar sáu þeir hann og veittu honum lotningu. En sumir voru í vafa. Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: ,,Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar.“ Þessi texti er lesinn upp við hverja einustu skírnarathöfn. Í Postulasögunni (1:12) segir Lúkas guðspjallamaður okkur, að þetta hafi gerst á Olíufjallinu, hæðinni, sem gnæfir yfir Jerúsal- em, handan Kedrondals. Þar stendur nú minningarkirkja þessa atburðar. Síðasta verk Jesú frá Nasaret á jörðu var að blessa lærisveinana. Um það segir Lúkasarguðspjall ennfremur (24:51): „En það varð, meðan hann var að blessa þá, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins.“ Þannig lauk fyrsta uppstigning- ardegi. Og nú, 2000 árum síðar, lítum við senn til þessa dags í fyrndinni og rifjum upp það sem gerðist. Þetta var nauðsynleg skiln- aðarstund, það er okkur ljóst núna. Sonurinn varð að hverfa þarna burt af sviðinu, til að næsti þáttur gæti hafist. Í undirbúningi var nefnilega eitthvað enn meira, í vændum stærri hlutir, eldur hvíta- sunnunnar, gjöf og verk heilags anda, tíu dögum síðar, þegar kirkj- an varð til sem raunverulegt al- heimsafl. Um það verður fjallað eftir hálfan mánuð. Árið 1982 var uppstigningar- dagur útnefndur kirkjudagur aldr- aðra hér á landi, í samráði við elli- málanefnd þjóðkirkjunnar. Hugmyndina að því átti Pétur Sig- urgeirsson biskup. Síðan þá hefur eldri borgurum og fjölskyldum þeirra verið boðið sérstaklega til guðsþjónustu í kirkjum landsins þann dag. Og svo verður einnig nú og í komandi framtíð. Er það vel, enda hefur sá aldurshópur jafnan verið tryggasti þegn og vinur ís- lenskrar kristni. Og ekki er verra ef þetta hjálpar til að minna reglu- lega á arfinn, sem þessir ein- staklingar hafa skilað þjóðarbúinu á langri ævi, en er þó víða lítils eða einskis metinn. Því æskudýrkun samtímans hefur leitt af sér nánast algjört virðingar- og skilningsleysi gagnvart þeim, sem við eigum þó tilveru okkar og hagsæld að þakka. Dagsverk þessa nú aldraða fólks er hornsteinninn, sem nú- tímasamfélagið byggir á. Að neita að horfast í augu við þá staðreynd, að tregast við að þakka, með til- heyrandi niðurlægingu fyrir þol- endurna, er óafsakanlegt með öllu, æpandi og meiðandi svívirða, og á ekki að líða. Aldraðir íbúar þessa lands eiga ekki að vera í hlutverki olnbogabarna þjóðarinnar; við eig- um að líta til þeirra með stolti, og búa þeim áhyggjulaust ævikvöld. Það er við hæfi að Sigurbjörn Einarsson biskup, vitrasti maður Íslands, sem nú er sjálfur kominn í hóp aldinna, eigi síðasta orðið hér. Í ræðu, sem hann flutti árið 1972, og er að finna í bókinni Helgar og hátíðir, segir hann m.a.: „Guði sé lof fyrir gamla fólkið í kirkjubekknum. Öldruð ásjóna, mótuð af langvaranlegri nánd hins heilaga – þú sérð ekki fallegri sjón … Aðeins eitt er jafnfagurt og aldrað andlit í helgu húsi: Barn hjá biðjandi móður, barn á bæn, ungur svipur, sem brosir við Kristi … Einu sinni var gamla fólkið ungt. Og þeir ungu verða einhvern tíma gamlir, ef þeir lifa. Það er algengur hugarburður, að trú og trúrækni sæki á gamla menn eins og hver önnur ellimörk, að ekki sé sagt elliglöp. Ellin út af fyrir sig gerir ekkert í því tilliti. Það sem innra býr segir aðeins betur til sín oft, berar en áður. Gamalmennið á trú ef það hefur sinnt um hana áður. Gamalt fólk getur líka verið mjög svo snautt að trausti og von og friði. Og þá er það fátækt. Sá sem vill eiga birtu í elli sinni skyldi leita hennar áður en dimmir að undir lokin. Og sá sem vill gefa barninu sínu eitthvað, sem stenzt og heldur, þegar annað bregzt og bilar, og lýsir upp húmið, sem bíð- ur allra, skyldi kenna því að meta helgidóminn, trúna, bænina.“ Dagur aldraðra Uppstigningardagur, sem er á fimmtudaginn næstkomandi, 9. maí, er í þjóðkirkjunni helg- aður öldruðum. Sigurður Ægisson lítur til baka, rifjar upp gamla biblíulega atburði og horfir svo til nútímans. sigurdur.aegisson@kirkjan.is HUGVEKJA Verkalýðsfélag Húsavíkur Félagar rúmlega 900 AÐALFUNDUR Verkalýðsfélags Húsavíkur var haldinn sunnudaginn 28. apríl sl. Samkvæmt ársreikning- um félagsins stendur félagið á sterk- um grunni og hagnaður varð af flest- um sjóðum félagsins. Hinn 31. desember 2001 voru 912 félagsmenn í Verkalýðsfélagi Húsa- víkur, þar af 447 karlar og 465 konur. Samþykkt var að virða „rauðu strikin“ og hafa félagsgjöld óbreytt árið 2002 það er 1% af launum sem er með því lægsta sem gerist hjá sambærilegum stéttarfélögum innan Starfsgreinasambands Íslands á Norðurlandi, segir í fréttatilkynn- ingu. Á fundinum urðu töluverðar um- ræður um atvinnumál. Á árinu 2001 var nokkurt atvinnuleysi meðal félgsmanna í Verkalýðsfélagi Húsa- víkur. Á árinu fengu 210 félagsmenn atvinnuleysisbætur þar af 93 karlar og 117 konur. Skráðir atvinnuleys- isdagar voru 10.501 og greiddir 10.155. Samtals voru greiddar 25.000.749 kr. í atvinnuleysisbætur, með mótframlagi í lífeyrissjóði 26.432.092 kr. sem er nokkur aukn- ing milli ára. Alls nutu 228 félagsmenn bóta frá sjúkrasjóði félagsins á árinu. Sam- tals námu greiðslur vegna sjúkra- dagpeninga, annarra sjúkrabóta og styrkja 7.449.214 kr. sem er nokkur lækkun frá fyrra ári. Öflug fræðslustarfsemi var hjá fé- laginu á síðasta ári og um 22% fé- lagsmanna tóku þátt í námskeiðum á vegum félagsins. Þá fengu um 150 fé- lagsmenn styrki til starfsmenntunar frá Landsmennt, sem er fræðslu- sjóður verkafólks á landsbyggðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.