Morgunblaðið - 05.05.2002, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 05.05.2002, Qupperneq 51
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 51 Í laugardagsblaði Morgunblaðsins eru birtar sex greinar með málflutningi nafnkunnra sjálfstæð- ismanna gegn Reykja- víkurlistanum, þar af eitt langt lesendabréf, en einungis ein grein þar sem mál eru reif- uð út frá sjónarhóli Reykjavíkurlistans. Ritstjórn Morgun- blaðsins er vandi á höndum við val á um- ræðugreinum í blaðið þar sem þær berast nú í hundraðatali að hennar sögn vegna sveitarstjórnarkosninga um allt land. Val hennar er af þessum sök- um þeim mun athyglisverðara. Samkvæmt skoðanakönnunum má gera ráð fyrir að í hópi lesenda Morgunblaðsins séu að minnsta kosti jafnmargir stuðningsmenn R- lista og D-lista. Það ætti því að vera metnaðarmál ritstjórnar og hagsmunamál útgefenda að endur- spegla ólíkar skoðanir og halda jafnvægi í pólitískri umræðu á síð- um blaðsins. Í þessu sambandi er einnig at- hyglisvert að fimm af sex greinum þar sem sett er fram gagnrýni á Reykjavíkurlistann fjalla um fjár- mál. Sú áhersla er í samræmi við þá ákvörðun D-listans í Reykjavík að fylla allt umræðurými í fjöl- miðlum með umfjöllun um fjármál, enda þótt fram hafi komið í könn- un Gallups að kjósendur setji önn- ur mál á oddinn, til að mynda skóla- og leik- skólamál og skipu- lagsþróun borgarinn- ar. Morgunblaðið er gríðarlega öflugur fjölmiðill og því hljót- um við að gera til hans ríkar kröfur um fagmennsku og óhlut- drægni, ekki síst í að- draganda kosninga. Hér fyrr á árum þótt ekkert tiltökumál þótt Morgunblaðið beinlín- is gengi erinda Sjálf- stæðisflokksins á landsvísu og í sveit- arstjórnarmálum, en á seinni árum hefur það markað pólitískri af- stöðu bás í leiðurum og öðrum rit- stjórnargreinum. Þessi þróun hef- ur verið í takt við kröfur tímans og hefur styrkt mjög stöðu blaðsins sem fjölmiðils. Það er mikið um- hugsunarefni og um leið sorglegt ef nú hefur verið ákveðið að hverfa aftur til hinna fyrri tíma. Blað allra landsmanna á líka að vera blað allra borgarbúa. Aths. ritstj. Vegna greinar Ingvars Sverris- sonar er rétt að taka eftirfarandi fram: Í kosningabaráttunni sem nú fer fram fyrir sveitarstjórnakosn- ingarnar hefur Morgunblaðið lagt áherzlu á að veita aðsendum grein- um um kosningarnar forgang og að bið eftir birtingu slíkra greina sé sem stytzt. Greinar birtast að jafn- aði nokkrum dögum eftir að þær berast, jafnvel daginn eftir. Undanfarna daga hefur mun meira borizt blaðinu af greinum frá frambjóðendum og stuðnings- mönnum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en frá frambjóðendum og stuðningsmönnum Reykjavíkur- listans. Þegar greinum var raðað í laugardagsblað lágu fyrir tvær greinar frá stuðningsmönnum R- lista en á annan tug frá stuðnings- mönnum D-lista. Önnur greinin frá stuðningsmönnum R-lista þurfti að bíða birtingar fram yfir helgi vegna þess að greininni fylgdi ekki mynd og ekki var búið að útvega mynd af greinarhöfundi. Morgunblaðið gætir fyllsta jafn- ræðis í birtingu aðsendra greina, en það þýðir ekki að það seinki birtingu greina frá D-lista ef fáar greinar berast frá stuðningsmönn- um R-lista eða öfugt. Það væri í ósamræmi við þá stefnu blaðsins að vera opinn vettvangur fyrir skoðanaskipti. Þvert á móti fá báð- ir sömu þjónustu. Morgunblaðið getur heldur ekki sagt greinarhöfundum fyrir verk- um um val á umfjöllunarefni eða stungið undir stól greinum, sem fjalla um tiltekin málefni í kosn- ingabaráttunni. Engin breyting hefur orðið á þeirri stefnu blaðsins að taka ekki pólitíska afstöðu í fréttaskrifum eða í birtingu að- sendra greina og það er fráleitt af kosningastjóra Reykjavíkurlistans að gefa annað í skyn. Ritstj. Blað allra borgarbúa? Reykjavík Gera má ráð fyrir, segir Ingvar Sverrisson, að í hópi lesenda Morg- unblaðsins séu að minnsta kosti jafn- margir stuðningsmenn R-lista og D-lista. Höfundur er kosningastjóri Reykjavíkurlistans. Ingvar Sverrisson FRÉTTIR AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 AÐEINS innsiglaður sendiráðspóst- ur er undanþeginn öryggisleit á flug- völlum en allur handfarangur og far- angur sendiráðsstarfsmanna sætir leit, rétt eins og farangur annarra far- þega. Innsiglaðan sendiráðspóst má hvorki gegnumlýsa né leita í honum á annan hátt. Stefán Thordersen, for- stöðumaður öryggissviðs Flugmála- stjórnar á Keflavíkurflugvelli, segir að mælt sé fyrir um þetta í alþjóða- og Evrópuregum um flugvernd og í Vín- arsáttmálanum um diplómatísk sam- skipti. Sendimenn erlendra ríkja eigi að geta sent póst án þess að eiga á hættu að óviðkomandi komist að því hvað sé verið að senda á milli. Ábyrgðinni á því að skoða farangur- inn sé með þessu varpað yfir á við- komandi ríki en sendiráðspóstur hafi aldrei verið notaður til að stofna ör- yggi flugvéla í hættu. Spurður um hvort ekki ætti að vera óhætt að gegnumlýsa póstinn segir Stefán að gegnumlýsingavélar séu orðnar það góðar að greinilega sjáist hvað verið sé að flytja. Jafnvel þó að vélarnar greini ekki hvað stendur á skjölum sé gegnumlýsing talin vera leit sem er bönnuð samkvæmt alþjóðasamning- um. Í kjölfar hryðjuverkanna í Banda- ríkjunum 11. september sl. voru ör- yggiskröfur á flugvöllum hertar til muna. Aðspurður segir Stefán að ekki hafi komið til tals að breyta reglum um sendiráðspóst af þessum sökum. Þegar forseti Íslands kom til lands- ins úr heimsókn frá Rússlandi í lok síðasta mánaðar var nokkrum rúss- neskum sendiráðsstarfsmönnum meinað að taka með sér sendiráðspóst í handfarangri með vélinni frá Kaup- mannahöfn. Stefán segist ekki þekkja málavexti en hann viti til þess að sendiráðsstarfsmenn hafi keypt sér sérstækt sæti í flugvélinni fyrir póst- inn. Sérstakar reglur gilda um opinber- ar heimsóknir þjóðhöfðingja og hátt- settra embættismanna en hvorki er leitað á þeim sjálfum né í farangri þeirra. Ekki má leita í innsigluðum sendiráðspósti VERIÐ er að undirbúa rafkver um þvagfærasjúkdóma. Með rafkveri er átt við samantekt á tölvutæku formi sem sett verður á innra net Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Síðar er ráðgert að kverið verði aðgengi- legt fleirum. Valur Þór Marteinsson, sérfræð- ingur í þvagfæraskurðlækningum á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, er höfundur kversins. Í samtali við Morgunblaðið sagði hann tilgang rafkversins að gera upplýsingar um sjúkdóma í þvagfærum aðgengilegar læknum og læknanemum. Hann seg- ir aðrar heilbrigðisstéttir þó einnig geta nýtt sér fræðsluna. Þannig geti menn opnað kverið hvenær sem er á þessu rafræna formi til að leysa vandamál sem þeir glíma við í dag- legu starfi sínu. Upplýsingarnar eru að mestu leyti texti en Valur Þór segir einnig nokkrar skýringarmyndir fylgja. Hann segir ætlunina að uppfæra textann eftir því sem tilefni gefist til og framfarir innan þvagfæralækn- inga krefjist. Vonast hann til að þetta framtak geti aukið áhuga lækna- nema og annarra heilbrigðisstarfs- manna á þeim fjölþættu sjúkdómum sem falla undir þvagfæralækningar. Rafkver um þvag- færasjúkdóma
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.