Morgunblaðið - 05.05.2002, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 53
DAGBÓK
ÞÚ ERT í norður, í annarri
hendi, á hættu gegn utan.
Vestur vekur á einu hjarta
og þú kemur inn á einum
spaða:
Norður
♠ ÁKDG5
♥ KD54
♦ 972
♣G
Svo gerist þetta:
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta 1 spaði Pass Pass
4 hjörtu ?
Hver er sögnin?
Þessi vandi blasti við fjöl-
mörgum keppendum í úr-
slitum Íslandsmótsins í tví-
menningi og langflestir
stóðust ekki þá freistingu
að dobla til sektar. Er það
góður brids?
Ekki ef mælt er í árangri:
Norður
♠ ÁKDG5
♥ KD54
♦ 972
♣G
Vestur Austur
♠ 8 ♠ 109763
♥ ÁG1097632 ♥ 8
♦ Á ♦ 10543
♣D106 ♣ÁK7
Suður
♠ 42
♥ –
♦ KDG86
♣985432
Þetta eru léttir tíu slagir,
en 590 í AV var nánast með-
alskor.
Íslandsmeistarinn Aðal-
steinn Jörgensen var einn
þeirra örfáu sem sögðu
pass í sæti norðurs og upp-
skar vel fyrir stillinguna.
„Ég viðurkenni að ég víbr-
aði þegar vestur stökk í
fjögur hjörtu, en ég ákvað
að treysta honum,“ sagði
Aðalsteinn: „Hann gat mín
vegna verið með eyðu í
spaða.“
Þetta er dæmi um spil
sem sýnir að góður árangur
í tvímenningi byggist ekki
alltaf á sagnhörku. Stund-
um þarf að sýna stillingu og
treysta mótherjunum, en
vandinn stóri er að vita hve-
nær eigi að vera harður og
hvenær mildur.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ÉG HELD fáir velkist í
vafa um það, við hvað er
átt, þegar ofangreint nafn-
orð ber á góma og sama
gegnir um sagnorðið að
staðla og eins no. stöðlun.
Þessi orð munu vera þeim,
sem þurfa á þeim að halda,
svo töm, að þeir álíti þau
líklega allgömul í málinu.
Svo er þó ekki, því að um
þessar mundir er nær hálf
öld síðan góður kunningi
minn og starfsbróðir, Ólaf-
ur M. Ólafsson, sem lengi
kenndi íslenzku við
Menntaskólann í Reykja-
vík, varpaði þessum orðum
fram í samtali við mig og
spurði, hvernig mér litist á
þau í stað dönsku tökuorð-
anna standard og stand-
ardisera. Þegar hann hafði
útskýrt þessi nýyrði ræki-
lega fyrir mér, gat ég ekki
annað en fallizt á rök hans
og ekki sízt fyrir það, að
þau höfðu sama hljóða-
samband, st- , sem var í
upphafi tökuorðanna.
Ástæðan fyrir orðasmíð
Ólafs var sú, að hann las
um þær mundir prófarkir
að greinum í tímariti, sem
ný stofnun, Iðnaðarmála-
stofnun Íslands, gaf út og
nefndist Iðnaðarmál. Í
þessu riti birtust greinar,
þar sem eðlilega brá fyrir
erlendu orðafari, sem féll
ekki ævinlega vel að ís-
lenzku máli, en hafði samt
verið notað alllengi. Á ár-
unum kringum 1950 var
no. standard vel þekkt í
talmáli okkar og af því orði
var svo talað um að stand-
ardisera og standardiser-
ingu. No. standard er í
Danskri orðabók Frey-
steins Gunnarssonar frá
1926. Þar skýrir hann það
með orðunum mælikvarði;
lögákveðið mál; fyrir-
mynd; myntfótur. Nú datt
Ólafi í hug að gera hér
bragarbót á með no. stað-
all fyrir standard og so. að
staðla fyrir að standard-
isera. Hér hitti hann á
skemmtilega lausn, enda
hafa mörg orð samstofna
þessum orðum unnið sér
þegnrétt í máli okkar.
Meira um þetta efni í
næsta pistli. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Staðall
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert sannfærandi og hefur
gott innsæi. Þú hefur ríka
þörf fyrir að uppfræða aðra
og gefa þeim góð ráð. Næsta
ár mun færa þér marga
spennandi kosti.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert óvenju uppreisnar-
gjarn og sættir þig ekki við að
einhver reyni að halda aftur
af þér eða þagga niður í þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Kona í stjórnunarstöðu gæti
lent í uppnámi í dag. Þetta
getur annaðhvort haft bein
áhrif á þig eða þú horfir á það
úr fjarlægð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Aðili frá öðru landi gæti kom-
ið þér á óvart með framandi
siðum og viðhorfum. Það get-
ur verið auðvelt að gleyma
því að það gera ekki allir hlut-
ina á sama hátt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir fengið óvænta pen-
inga, gjöf eða lítinn vinning í
dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú vilt að hlutirnir gangi sinn
vanagang í dag og gætir því
átt það til að sýna einhverjum
óþolinmæði. Reyndu að sætta
þig við truflanir og sýna þol-
inmæði.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samstarfskona þín gæti vald-
ið vandræðum í vinnunni í
dag. Reyndu að vera umburð-
arlyndur og glettinn fremur
en dómharður.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Óvænt daður getur ruglað
þig í ríminu en gleymdu því
ekki að kurteisi á alltaf við.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einhver á heimilinu gæti
komist í tilfinningalegt upp-
námi í dag. Eitthvað verður
til þess að trufla heimilishald-
ið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu það ekki koma þér á
óvart þótt nágranni eða ætt-
ingi geri eitthvað ófyrirsjáan-
legt í dag. Gerðu ráð fyrir
nokkuð óvenjulegum degi því
allt getur gerst.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þig langar til að kaupa þér
eitthvað óhóflegt í dag en
ættir að reyna að hafa hemil á
þér. Hugsaðu þig tvisvar um
áður en þú eyðir laununum
þínum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert óþolinmóður, jafnvel
uppreisnargjarn í dag og læt-
ur allar takmarkanir fara í
taugarnar á þér. Þú vilt ekki
láta segja þér fyrir verkum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert óvenju skapstyggur í
dag en gerir þér ekki grein
fyrir ástæðu þess. Við skiljum
ekki alltaf skapsveiflur okkar
en verðum að reyna að lifa
með þeim og gera það besta
úr hlutunum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
LAGT Á MUNN HELGU
Sæl væra ek,
ef sjá mættak
Aðalþegnshóla
ok Öndvertnes,
Búrfell, Bala,
báða Lóndranga,
Heiðarkollu.
Úr Bárðar sögu Snæfellsáss
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 e6
4. e3 Rf6 5. Bxc4 c5 6. 0–0 a6
7. a4 Rc6 8. De2 cxd4 9. Hd1
d3 10. Bxd3 Dc7 11. Rc3 Bd7
12. e4 Rg4
Staðan kom upp á
meistaramóti Kúbu
sem lauk fyrir
skömmu. Reynaldo
Vera (2534) hafði
hvítt gegn Walter
Arencibia (2542). 13.
Rd5! exd5 14. exd5+
Re7?! 14 … Rce5 15.
h3 Bd6 hefði verið
mun fýsilegra en
textaleikurinn. Í
framhaldinu heldur
hvítur vel á spöðun-
um og nær að byggja
upp áhrífaríka sókn.
15. Bc4 Dd6 16. Hd4! Kd8
17. Bf4 Db6 18. a5 Dc5 19.
b4 Dxb4 20. Rg5 Rh6 21.
Re6+ fxe6 22. dxe6 Rhf5 23.
De5 Rd6 24. Hxd6 Dxc4 25.
Hxd7+ Ke8 26. Hc1 Db5 27.
Dc7 Db3 28. Hxe7+ og
svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
RÚBÍNBRÚÐKAUP. Í dag, sunnudaginn 5. maí, eiga 40 ára
hjúskaparafmæli hjónin Júlíana Helga Tryggvadóttir og
Guðmundur Ingvi Gestsson, Lækjargötu 34d, Hafnarfirði.
90 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 5. maí,
er níræður Sigurjón Sæ-
mundsson, fyrrv. bæjar-
stjóri og prentsmiðjueig-
andi frá Siglufirði. Hann
mun halda upp á afmælis-
daginn í faðmi fjölskyldunn-
ar á heimili dóttur sinnar á
Grandavegi 47 í Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Samþykki
afmælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Fermingarnáttföt
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Náttskyrtur - Sloppar
Mikið úrval
Opið mánudaga—föstudaga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 11-15
Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
Glæsilegt úrval minkapelsa
Áttu gamlan pels - langar þig í nýjan?
Komdu með þann gamla og við tökum hann
upp í nýjan.
í Suðurveri,
Stigahlíð 45-47, Reykjavík.
Tímabókunum veitt móttaka
í síma 533 1155.
Hef opnað tannlæknastofu
Ellen Flosadóttir, M.Sc., tannlæknir.
6 vikna námskeið í HATHA-YOGA
Við bjóðum mjög góðar alhliða æfingar, sem byggðar eru á
HATHA-YOGA, til viðhalds þrótti, mýkt og andlegu jafnvægi.
Byrjendatímar
Sér tími fyrir barnshafandi konur
Almennir tímar
Morgun-, dag- og kvöldtímar
Yogastöðin Heilsubót
Síðumúla 15, sími 588 5711
FRÉTTIR
Rætt um barnið
sem breytingaafl
JYRKI Reunamo lektor í upplýs-
ingatækni við leikskóladeild Há-
skólans í Helsinki heldur fyrirlestur
á vegum Rannsóknarstofnunar
KHÍ mánudag 6. maí kl. 16.15 í sal
Sjómannaskóla Íslands.
Í rannsóknum á börnum hefur
athyglin beinst að því að skoða
hvernig börnin og skilningur þeirra
þróast. Grunnhugmyndin með
rannsókn Reunamo er sú að
þroskasvæðis-hugtakið gefi mögu-
leika á að skoða hið gagnstæða:
Hvernig túlkun barnanna sjálfra
hefur áhrif á aðstæður og athafnir í
leikskólanum.
Reumano mun kynna niðurstöður
rannsóknar sinnar en þær gefa til
kynna að ólík sýn barnanna á að-
stæður tengist mismunandi athöfn-
um og breyti stefnu atburða á ólík-
an hátt, segir í fréttatilkynningu.