Morgunblaðið - 05.05.2002, Qupperneq 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar
línur
á
nýjum stað
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
FÁIR tónlistarmenn skera sigeins úr popp/rokkflóðinu ogbandaríski sérvitringurinnTom Waits og þá ekki bara
fyrir fjölsnærðar lagasmíðar og tor-
skilda texta, heldur er hann með ein-
staklega sérkennilega söngrödd sem
menn ýmist elska eða hata. Rúm
þrjátíu ár eru síðan Waits tók upp
fyrstu lögin og 29 ár síðan fyrsta
platan kom út. Þær eru ekki margar
þó að ferillinn sé svo langur, enda
Waits jafnan farið eigin leiðir og lítt
hirt um markaðssetningu, sölu-
mennsku og annað það sem þykir við
hæfi hjá stjörnunum; hann hefur
sent frá sér plötur þegar hann hafði
eitthvað að segja. Waits-vinum
þykja það því mikil tíðindi að á
morgun koma út tvær breiðskífur
með verkum hans, báðar leik-
hústengdar, Alice og Blood Money.
Fyrstu lögin 1971
Tom Waits tók upp fyrstu lög sín
1971 á vegum umboðsmanns Franks
Zappa sem þótti hann söluvænlegur
furðufugl. Þau lög komu þó ekki út
fyrr en löngu síðar, en fyrsta breið-
skífan 1973. Sú hét Closing Time og
þótti og þykir bráðgóð, þótt hún
jafnist ekki á við það sem síðar átti
eftir að koma. Næstu árin var Waits
iðinn við kolann, sendi frá sér átta
breiðskífur á tíu árum; The Heart of
Saturday Night 1974, Nighthawks at
the Diner 1975, Small Change 1976,
Foreign Affairs 1977, Blue Valentine
1978, Heartattack and Vine 1980,
Bounced Checks 1981 og One from
the Heart 1982. Waits var ekki bara
á kafi í tónlist á þessum árum heldur
lék hann einnig í kvikmyndum og
samdi kvikmyndatónlist, var meðal
annars tilnefndur til óskarsverð-
launa fyrir tónlistina í One from the
Heart, en hann lék einnig í Paradise
Alley, Rumble Fish, The Outsiders
og The Cotton Club.
Tímamótaplata
Tímamótaplata á ferli Toms Waits
var Swordfishtrombones sem kom
síðan út 1983, en á henni mátti meðal
annars heyra að leikhússtarfið var
farið að hafa veruleg áhrif á tón-
smíðar hans og hugmyndaheim, og
tilraunamennska í hávegum, óvenju-
leg hljóðfæri fengu að hljóma og út-
setningar voru býsna ævintýralegar.
Plötunni var almennt vel tekið þó
mörgum þætti tilraunin ekki takast
að fullu, en næsta skífan, Rain Dogs,
frá 1985, var skotheld og er yfirleitt
talin besta verk Waits.
Í kjölfar Rain Dogs varð leik-
húsvinnan æ fyrirferðarmeiri, næsta
plata, Frank’s Wild Years, sem kom
út 1987, var þannig tónlist úr söng-
leik sem Waits samdi með konu sinni
Kathleen Brennan, en á Swordfish-
trombones var einmitt lag sem hét
Frank’s Wild Years. Ári síðar kom
út tónleikaskífa og síðan plata með
tónlist úr kvikmynd Jim Jarmusch
sem bar heitið Night on Earth. 1986
lék Waits í Down by Law, 1987 í
Candy Mountain og Ironweed, 1988 í
Bearskin: An Urban Fairytale, Cold
Feet og Wait Until Spring, 1991 í
Queens’ Logic, The Fisher King og
At Play in the Fields of the Lord.
Enn ein afbragðsplatan
Fyrsta hljóðversskífan eftir langt
hlé var síðan enn ein afbragðsplatan,
Bone Machine, sem kom út 1992 og
fékk meðal annars Grammy-
verðlaun. Waits var þó ekki hættur
að leika í myndum, lék í Deadfall og
Bram Stoker’s Dracula 1992. Ári síð-
ar kom svo út platan The Black Rid-
er sem á var tónlist úr söngleik sem
hann og Brennan sömdu með Will-
iam Burroughs, og byggðist á þýskri
þjóðsögu, en það ár lék Waits líka í
myndinni Short Cuts. Leikstjóri The
Black Rider var Robert Wilson og
Waits og Brennan kona hans sömdu
einnig tónlist við ann-
að leikverk fyrir Wil-
son, óperuna Alice,
sem er á öðrum diskn-
um sem getið er um í
upphafi.
Waits og Brennan
sömdu síðan tvö lög
fyrir Dead Man Walk-
ing og Waits átti einn
lag í mynd Wims
Wenders End Of Viol-
ence. Hann lagði einn-
ig til rödd í stór-
merkilegt tónverk
Gavins Bryars Jesus’
Blood Never Failed
Me Yet. Waits og
Brennan sömdu síðan
tónlistina í verðlauna-
stuttmyndina Bunny
og tvö lög fyrir kvik-
myndina Liberty
Heights sem Barry Levinson leik-
stýrði.
Eins og sjá má af þessu hafði
Waits, og þau hjón bæði reyndar, í
nógu að snúast á næstu árum og
skýrir það meðal annars hvers vegna
sjö ára bið varð á næstu hljóðvers-
skífu, en 1999 kom út platan Mule
Variations sem fékk fína dóma, þó
ekki þætti mönnum hún standa
Swordfishtrombones, Rain Dogs eða
Bone Machine á sporði.
Áður er getið samvinnu Toms
Waits, Kathleen Brennans og Ro-
berts Wilsons við The Black Rider
og Alice, en þriðja verkið sem þessi
þrenning kemur að var uppfærsla
Wilsons á Woyzeck, leikriti Þjóð-
verjans Georgs Buchners sem lést
1837. Leikritið segir frá her-
manninum Woyzeck sem myrðir
heitmey sína, en fræg er ópera
Albans Bergs sem samin er uppúr
leikritinu og ber sama nafn. Leik-
gerð Wilsons með tónlist Waits og
Brennans var svo frumsýnd í Kaup-
mannahöfn í nóvember fyrir tveimur
árum um það leyti sem leikritið varð
164 ára gamalt. Uppfærslan þykir
mikið meistaraverk, ekki síst fyrir
tónlist Waits, og hana er að finna á
disknum Blood Money sem sagt er
frá í upphafi.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Bandaríski furðufuglinn Tom Waits er ekki síst
frægur fyrir að fara eigin leiðir hvort sem er í tón-
list eða leiklist. Undanfarin ár hefur hann eytt æ
meiri tíma í að vinna fyrir leikhús og á morgun
koma út tveir diskar með leikhústónlist hans.
Tvöfaldur Tom Waits
BANDARÍSKI leikarinn Alan Alda
og þeir sem enn eru á lífi úr leikaraliði
sjónvarpsþáttanna Spítalalíf, eða
M*A*S*H eins og þeir heita á frum-
málinu, munu koma saman í nýjum
þætti af Spítalalífi. Um er að ræða
tveggja klukkustunda endurfunda-
þátt. Þættirnir sem fyrst voru sýndir
árið 1972 voru sýndir í íslensku sjón-
varpi á sínum tíma við miklar vin-
sældir. Þessi þrjátíu ára afmælisþátt-
ur verður sýndur 17. maí á Fox-
sjónvarpsstöðinni en þættirnir voru
upprunalega sýndir í 11 ár á sjón-
varpsstöðinni CBS.
Þættirnir eru byggðir á vinsælli
kvikmynd Roberts Altmans þar sem
deilt var á stríðsrekstur. Alda var í að-
alhlutverki þáttanna sem herlæknir-
inn Hawkeye Pierce en hann og fé-
lagar stofnuðu m.a. hrekkjalómafélag
til að halda geðheilsunni í Kóreustríð-
inu.
Í afmælisþættinum munu auk Alda
koma fram: Wayne Rogers („Trapper
John“ McIntyre), Mike Farrell (B.J.
Hunnicut), Loretta Swift („Hot Lips“
Houlihanx), Gary Burghoff („Radar“
O’Reilly undirliðþjálfi), Jamie Faar
(klæðskiptingurinn Klinger), William
Christopher (Mulcahy prestur),
Harry Morgan (Sherman Potter lið-
þjálfi) og David Ogden Stiers (Charl-
es Emerson Winchester). Þá verða í
þættinum einnig sýndar myndir frá
raunverulegu starfi herlækna og
hjúkrunarfólks í Kóreustríðinu.
Hluti af leikaraliði M*A*S*H.
M*A*S*H á skjáinn á ný
Haukauga
snýr aftur
ÞRIÐJUDAGINN síðasta stóðu
samtökin Heimsþorp – samtök
gegn kynþáttafordómum á Íslandi
fyrir tvennum rokktónleikum undir
yfirskriftinni Rokk gegn rasisma.
Fyrr um kvöldið léku Dys, I Adapt
og Maus í Hinu húsinu en seinna um
kvöldið léku Sólstafir, Down to
Earth, Myrk, Noise og Mute á
Grand Rokk.
Heimsþorp eru samtök ungs
fólks sem „berst gegn kynþátta-
fordómum og misrétti með upp-
byggilegri umræðu og fræðslu“
eins og segir á heimasíðu samtak-
anna (sjá hér að neðan).
Meðfylgjandi myndir eru frá
fyrri tónleikunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það vantar sjaldnast stuðið í ungt hugsjónafólk.
Rokkað gegn rasisma
I Adapt á sviði.
TENGLAR
.....................................................
www.heimsthorp.is
Í VOR unnu 7. bekkir Lang-
holtsskóla verkefnið „Dag-
blöð í skólum“ og því var rök-
rétt framhald af þeirri vinnu
að kíkja í heimsókn til Morgunblaðs-
ins til að dýpka enn frekar skilning-
inn á starfsemi dagblaða. Á dög-
unum kom til okkar 7. GB ásamt
kennaranum, Guðrúnu Svövu Jak-
obsdóttur, og var hópurinn bæði
fjallhress og fróðleiksfús. Morg-
unblaðið kann þeim Alexöndru,
Önnu Birnu, Ástmari, Benedikt, Biu,
Erlu Maríu, Grími, Hjörvari, Jó-
hanni, Jökli, Lindu Ósk, Margréti,
Sigríði, Sveini, Þorsteini Andra og
Þórunni bestu þakkir fyrir ánægju-
lega heimsókn.
Dagblöð í skólum
Fjallhress
og fróð-
leiksfús