Morgunblaðið - 05.05.2002, Side 60

Morgunblaðið - 05.05.2002, Side 60
Reuters Varið ykkur vinnu- veitendur því Stjörnustríðsvírus- inn er væntanlegur. ATVINNUREKENDUR og skóla- yfirvöld í Bandaríkjunum hafa miklar áhyggjur af því að fjöldi fólks muni skrópa í vinnu og skóla til að geta verið með þeim fyrstu til að sjá nýju Stjörnustríðsmyndina, Árás klónanna, sem verður forsýnd um gervöll Bandaríkin fimmtudag- inn 16. maí. Af eftirvæntingunni að dæma er gert ráð fyrir að myndin slái frum- sýningarmet en atvinnurekendur eru hræddir um að alltaf þrjár milljónir vinnandi manna muni skrópa í vinnunni á forsýning- ardaginn til þess að bíða í biðröð eftir því að komast inn á sýningar á Árás klónanna. Nú þegar hafa hundruð komið sér fyrir í bið- röðum, sem voru farnar að myndast í janúar. Síðasta Stjörnustríðs- myndin, Ógnarvaldurinn, þénaði 5,7 milljónir dollara, eða 527 millj- ónir króna, vestanhafs fyrsta sýn- ingardaginn og er búist við því að sú nýjasta taki inn ennþá meira. Áætlað er að fjarvistir vegna Stjörnustríðsmyndarinnar kunni að kosta bandarískt atvinnulíf hátt í 30 milljarða króna. Margir munu vissulega fá góðfúslegt leyfi yfir- manna sinna til að fara í bíó en aðr- ir tilkynna veikindi eða taka sér launalaust frí í leyfisleysi. Margir Bandaríkjamenn munu fá Stjörnustríðsveikina Vinnuveitendur óttast árás klónanna 60 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Mbl DV Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 337. Kvikmyndir.com Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mánudag kl. 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 370. Sýnd kl. 6. Enskt tal. Vit 368 kvikmyndir.is  kvikmyndir.com ÓHT Rás 2 ½ SG DV Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd sumarsins er komin til Íslands. „The Scorpion King“ sló rækilega í gegn í Bandaríkjunum. Frá framleiðendum The Mummy Returns.  kvikmyndir.is  MBL Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i.12 ára. Vit 375. Mánudagur kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit 379. Mánudagur kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8. B.i. 12. Vit 335. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit 367 Mánudagur kl. 4, 6, 8 og 10.  kvikmyndir.is Sýnd í lúxus kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B. i. 16. Vit nr. 360. Mánudagur kl. 4, 6, 8 og 10. DV ÓHT Rás 2 Frá framleiðendum AustinPowers2 Frá framleiðendum AustinPowers2 kemur þessi sprenghlægilega gamanmynd um mann sem legg- ur allt í sölurnar til að fara á vit ævintýranna. Annað eins ferðalag hefur ekki sést! Sýnd kl. 2 og 4. Mánudag kl. 4. Ísl tal. Vit 358. MYND EFTIR DAVID LYNCH Sýnd kl. 4, 7 og 10. Mánudag kl. 7 og 10. B. i. 16. HK DV HJ Mbl Hér er hinn nýkrýndi Óskarsverðlaunahafi Denzel Washington kominn með nýjan smell. Hér leikur hann JOHN Q, föður sem tekur málin í sínar hendur þegar sonur hans þarf á nýju hjarta að halda og öll sund virðast lokuð. Frá framleiðendum The Mummy Returns. kvikmyndir.is ½ SG DV ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 8 og 10.15. Mán 5.45 og 8. FRUMSÝNING: Treystu mér Sannkölluð verðlaunamynd. Laura Linney var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta leikkona í aðalhlutverki. Auk þess var handrit myndarinnar tilnefnt sem besta handrit ársins. Hlý og mannbætandi kvikmynd sem kemur öllum í gott skap. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Mánudag kl. 5, 7, 9 og 11. B.i.12 ára Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd sumarsins er komin til Íslands. „The Scorpion King“ sló rækilega í gegn í Bandaríkjunum. MULLHOLLAND DRIVE Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15. Mánudag kl. 5.45, 8 og 10.15. JOHN Q. Sýnd kl. 5. Síðustu sýningar. Ó.H.T Rás2 Strik.is SG. DV Sýnd kl. 3. Ísl. tal. Sýnd kl. 10. B. i. 16. Sýnd kl. 7.30. B.i. 12. Sýnd sun. kl. 6. Mán. kl. 10.30.  ÓHT Rás 2 RAGNHEIÐUR Gröndal sigraði söngvakeppni Samfés fyrir tveimur árum. Nú – 17 ára að aldri – er hún komin með eigin djasshljómsveit, Kvartett Ragnheiðar Gröndal, sem hefur vakið verðskuldaða athygli. Framtíðaráformin segir Ragnheiður vera „áframhaldandi tónlistarnám, píanóleik, söng og tónsmíðar“ en hún segist enn hafa flíkað eigin lög- um lítið. Spurð hvort von sé á tónleikum með kvartettinum hennar í bráð svarar hún: „Kannski við skellum okkur á djasshátíð í Eyjum.“ Hvernig hefurðu það í dag? Mjög fínt, þakka þér fyrir. Hvað ertu með í vösunum? Síma og veski. Er mjólkurglasið hálftómt eða hálffullt? Hálffullt. Ef þú værir ekki tónlistarkona hvað vildirðu þá helst vera? Ég ætlaði nú alltaf að verða dans- ari … Hefurðu tárast í bíói? Nei, held ekki, en ég græt mikið þegar ég horfi ein á myndir, nú sein- ast yfir Bridget Jones’s Diary. Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á? Blokkflaututónleikar í tónlistarskól- anum þegar ég var fimm ára. Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Robin Williams. Hver er þinn helsti veikleiki? Mat- urinn hennar mömmu! Finndu fimm orð sem lýsa persónu- leika þínum vel? Lífsglöð, jákvæð, opin, stjórnsöm og fljótfær. Bítlarnir eða Rolling Stones? Bítl- arnir. Hver var síðasta bók sem þú last tvisvar? Bridget Jones’s Diary. Hvaða lag kveikir blossann? Þau eru frekar mörg sko … Ef ég á að nefna eitthvað frægt lag þá er það „Let’s Stay Together“ með Al Green. Hvaða plötu keyptirðu síðast? Blue Train með John Coltrane, mögnuð plata. Hvert er þitt mesta prakkarastrik? Setti steina, gras og ýmislegt fleira vafasamt drasl inn um gluggann hjá nágrönnum mínum. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur bragðað? Hálfsoðið pasta með grænu pestói og hráum sveppum í matarboði hjá vinkonu minni, hún eldaði það sjálf með minni hjálp. Hverju sérðu mest eftir í lífinu? Ég er ekki í þeim pakka, reyni bara að læra af mistökunum. Trúir þú á líf eftir dauðann? Já, ég held það. Gras í nágrannagluggann SOS SPURT & SVARAÐ Ragnheiður Gröndal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.