Morgunblaðið - 11.05.2002, Side 29
NEYTENDUR
KJARTAN Kristjánsson sjóntækja-
fræðingur í Optical Studio RX í
Smáralind hefur látið sérframleiða
Lindberg títan-gleraugnaumgjarðir
fyrir 1–3 ára börn sem hann segir
hægt að „sveigja og beygja“ án þess
að þær brotni. Umrædd gleraugu
koma hingað til lands frá Lindberg
Optic Design í Danmörku og eru
sömu gerðar og títan-umgjarðir sem
Poul-Jorn Lindberg hannaði í sam-
vinnu við dönsku arkitektastofuna
Dissing & Weitling á tíunda áratug
síðustu aldar og fengið hafa viður-
kenningu frá iF Product Design.
Títan-umgjarðir eru innan við
þrjú grömm að þyngd, rúmur milli-
metri á breidd og snúnar saman,
ekki skrúfaðar, og segir Kjartan
þær aðra bestu hugarsmíð danskra
hönnuða á eftir Lego-kubbum.
Lindberg títan-barnaumgjarðir
hafa ekki verið framleiddar fyrir 1–3
ára börn hingað til og segir Kjartan
að fulltrúar Lindberg Optic Design
hafi tekið vel í málaleitan hans í árs-
byrjun. „Ég er búinn að starfa í
þessari grein í 20 ár og taldi mig
vera kominn með ákveðna lausn á
þeim vanda sem foreldrar barna
með gleraugu þurfa að glíma við,
sem er endurteknar viðgerðir. Þess-
ar umgjarðir þola mjög mikið hnjask
og eiga ekki að brotna eða aflagast
við illa meðferð, þótt það sé alls ekki
óhugsandi, enda í sjálfu sér hægt að
eyðileggja alla hluti,“ segir hann.
Þriggja ára ábyrgð er á umgjörð-
unum og segir Kjartan númer grafið
á hverja umgjörð með leysigeislum
svo ekki fari á milli mála hvort
ábyrgðin standi, komi eitthvað upp
á. Sjónglerin eru úr öryggisplasti og
eiga jafnframt að þola mikið álag,
þótt þau geti að vísu rispast að hans
sögn.
Sjónstöð borgar ekki vegna
barnagleraugnaumgjarða
„Sjónstöð Íslands tekur þátt í
kostnaði vegna sjónglerja í barna-
gleraugum og einungis upp að vissu
marki, en ekki í kostnaði við um-
gjarðir, sem auðvitað eru engin rök
fyrir. Margir uppalendur lenda í
endurteknum útgjöldum vegna hefð-
bundinna umgjarða, sem bæði geta
brotnað á nefstykkinu og örmunum
vegna álags og þarf sífellt að vera
sjóða saman. Það er ekki auðvelt að
koma gleraugum á minnstu börnin
eða verja þau hnjaski og ég tel Lind-
berg títan-barnagleraugnaumgjarð-
ir svar við þessum vanda foreldra,“
segir hann.
Lindberg barnaumgjarðirnar eru
til í fjölmörgum litum sem foreldrar
og börn geta valið af litaspjaldi og
segir Kjartan algengt að keyptar
séu tvílitar eða þrílitar umgjarðir
fyrir smáfólkið. Tvær vikur tekur að
láta útbúa umgjörðina og segir
Kjartan hana 3.000 krónum ódýrari
hér á Íslandi en í Danmörku. Hver
Lindberg títan-barnagleraugnaum-
gjörð kostar 16.300 krónur. „Lind-
berg Optic Design vildi framleiða
þetta sérstaklega fyrir okkur þótt
ekki sé um stórt markaðssvæði að
ræða enda telja þeir að framleiðslan
sé bara til enn meiri bóta fyrir
ímynd fyrirtækisins,“ segir hann að
síðustu.
Morgunblaðið/RAX
Hægt er að jaga títan-barnagleraugnaumgjarðir talsvert til án þess að
þær brotni, að sögn Kjartans Kristjánssonar sjóntækjafræðings.
Umgjarðir fyrir 1–3 ára
sem má sveigja og beygja
Hekla Björt Hólmarsdóttir er rúmlega 1 1/2 árs og notar Lindberg-
barnagleraugu. Tvíburasystir hennar, Katla Dögg, er í bakgrunni.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 29
ÖRVERUÁSTAND samloka og
smurðs brauðs á sölustöðum er gott
samkvæmt könnun sem Hollustu-
vernd ríkisins og Heilbrigðiseftirlit
sveitarfélaga gerðu í mars og apríl á
þessu ári. Kannað var örveruástand
samloka og smurbrauðs á átta heil-
brigðiseftirlitssvæðum á landinu.
Stefnt var að því að taka 104 sýni en
71 sýni barst af samlokum/langlok-
um og smurðu brauði og 41 samloka
var pökkuð í plastumbúðir, að því er
segir í niðurstöðum.
Um var að ræða sýni af brauði
með aspas, eggjasalati, skinku og
ýmsu áleggi, salami, beikoni, osti,
túnfiski, hangikjöti, kjúklingi, kalk-
úni, laxi, rækjum, nautahakki,
grænmeti, pepperoni, roast beef og
spæleggi og beikoni og var leitað að
bacillus cereus, staphylococcus aur-
eus og saurkólígerlum sem gefa til
kynna persónulegt hreinlæti starfs-
fólks og almennt hreinlæti við holl-
ustu vörunnar.
Túnfisksamloka með of miklu
af staphylococcus aureus
Sýnin voru rannsökuð á rann-
sóknastofu Hollustuverndar ríkis-
ins.
Eitt sýni af 71 var talið ósöluhæft,
sem er 1,4%, vegna of mikils fjölda
af staphylococcus aureus og var þar
um að ræða túnfisksamloku í plast-
umbúðum. „Athugasemdir voru
gerðar við merkingar á sex sýnum, í
tveimur tilvikum vegna dagstimpl-
unar, í tveimur tilvikum vegna síð-
asta söludags og í tveimur tilvikum
var um algjörar vanmerkingar að
ræða. Niðurstöður þessa eftirlits-
verkefnis sýna að samlokur eru al-
mennt undir viðmiðunarmörkum og
merkingar yfirleitt fullnægjandi,“
segir loks í niðurstöðum.
Reuters
Örverufræðilegt ástand smur-
brauðs virðist gott hérlendis.
1,4% smurbrauðs-
sýna ósöluhæf
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Járn + C vítamín
fyrirbyggir járnskort.
C-vítamínið
eykur nýtingu járns.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum