Morgunblaðið - 26.05.2002, Qupperneq 1
MORGUNBLAÐIÐ 26. MAÍ 2002
TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
ferðalögSagnadagar í ReykholtibílarHraðskreiður flutningabíllbörnMexíkóbíóCannes
Kronos-kvartettinn
Safna tónlistarlegri upplifun
múm gefur út
nýja plötu og
heldur í hljóm
leikaferðalag.
Sunnudagur
26.maí 2002
Síðustu dagarnir fyrir
kosningar voru anna-
samir hjá oddvitum
stærstu framboðanna í
Reykjavík. Í nokkra daga
fylgdust ljósmyndarar
Morgunblaðsins með
ferðum Björns Bjarnason-
ar og Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur um borgina,
þar sem þau heimsóttu
vinnustaði, sóttu hvers-
kyns fundi og kynntu
stefnumál sín.
14–15 / 16–17
Í framboði
Frambjóðendur í Morgunblaðinu Á vinnustaðafundi las starfsmaður greinarnar í blaðinu og spurði svo frambjóðandann spjörunum úr
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
BTíu mál til Barnahúss
í hverjum mánuði
10
Fyrstu skrefin
til að losna
við fordóma 25
Tónlistin
ofar eigin
snilld
16
JÓHANNES Páll páfi heimsótti í
gær klaustur heilags Jóhannesar
af Rila í Búlgaríu og fór lofsam-
legum orðum um klaustur rétt-
trúnaðarkirkjunnar, lýsti þeim
sem „mikilli gjöf“ til allra krist-
inna manna í heiminum. „Hvað
hefði Búlgaría gert án klausturs-
ins í Rila sem á myrkustu tím-
unum í sögu landsins hélt ljósi
trúarinnar logandi?“
Páfi er í fjögurra daga heim-
sókn í Búlgaríu og er hún liður í
viðleitni hans til að bæta sam-
skipti kaþólsku kirkjunnar og
rétttrúnaðarkirkjunnar í Austur-
Evrópu.
Páfi fylgist hér með búlgörsk-
um dönsurum í Þjóðmenning-
arhöllinni í Sofíu.
Reuters
Klaustur
rétttrúnaðar-
kirkjunnar
vegsömuð
FARÞEGAÞOTA af gerðinni Boeing
747-200 í eigu taívanska flugfélagsins
China Airlines hrapaði í sjóinn undan
strönd Taívans í gær. 225 manns voru
í þotunni og ekki var vitað hvort ein-
hverjir þeirra hefðu komist lífs af.
Taívanskir fjölmiðlar sögðu að
björgunarmenn hefðu fundið meira
en hundrað lík í sjónum. Forsætisráð-
herra Taívans, Yu Shyikun, staðfesti
að þotan hefði hrapað í sjóinn nálægt
eyjunni Penghu, um 50 km vestan við
Taívan. „Björgunarmenn hafa fundið
nokkur björgunarvesti um 25 sjómíl-
ur norðaustan við Penghu,“ sagði
hann.
Ekki vitað um orsök slyssins
Sex þyrlur og tíu her- og varðskip
voru á svæðinu til að leita að fólki sem
kann að hafa lifað slysið af. Enginn
hafði fundist á lífi í gær, að sögn sam-
gönguráðherra Taívans. Hann sagði
að ekki væri vitað hvað olli slysinu og
veðrið hefði verið gott á þessum slóð-
um.
Þotan hvarf af ratsjárskjám klukk-
an 3.28 að staðartíma, 7.28 að íslensk-
um, 50 mínútum eftir flugtak frá Tai-
pei. Þotan sendi ekki frá sér
neyðarkall.
Þotan var á leiðinni til Hong Kong
með 206 farþega og 19 voru í áhöfn-
inni. 190 farþeganna voru frá Taívan,
14 frá Hong Kong og Macau, einn frá
Singapúr og einn frá Evrópu. Ekki
var greint frá þjóðerni Evrópubúans.
Smíðuð fyrir 22 árum
Þotan var smíðuð 1979 og sú síð-
asta af gerðinni Boeing 747-200 í flug-
flota China Airlines, stærsta flug-
félags Taívans. Níu flugslys, sem leitt
hafa til dauða, hafa orðið í sögu China
Airlines frá 1970. Mannskæðasta
slysið fram að þessu varð þegar þota
flugfélagsins af gerðinni Airbus 300-
600 flaug á hús þegar hún reyndi að
lenda á flugvellinum í Taipei í febrúar
1998. 202 fórust og var það mann-
skæðasta flugslys í sögu Taívans.
China Airlines var álitið eitt af
hættulegustu flugfélögum heims á
síðasta áratug en hefur lagt meiri
áherslu á öryggi flugvéla sinna á síð-
ustu árum.
Taívönsk þota hrapar í
sjóinn með 225 manns
Taipei. AFP, AP.
PAKISTANAR skutu eldflaug, sem
getur borið kjarnaodd, í tilrauna-
skyni í gær og sögðu að þótt þeir
vildu ekki stríð vegna deilunnar við
Indverja um Kasmír væru þeir undir
það búnir að verja sig.
„Við viljum frið en hræðumst ekki
stríð. Við erum undir það búnir að
heyja stríð,“ sagði Pervez Mushar-
raf, forseti Pakistans, eftir að her
landsins hóf kjarnorkutilraunir sem
á að ljúka á þriðjudag.
Skotið var eldflaug sem dregur
1.500–2.000 km. Musharraf sagði að
eldflaugin hefði hæft skotmarkið ná-
kvæmlega. „Við getum verið stolt af
þessu afreki.“
Her Pakistans sagði í yfirlýsingu
að markmiðið með eldflaugatilraun-
unum væri að sýna að Pakistanar
væru „staðráðnir í að verja sig, efla
varnir sínar og tryggja hernaðarlegt
jafnvægi í þessum heimshluta“.
Þetta eru fyrstu eldflaugatilraunir
Pakistana frá því í apríl 1999. Ind-
verjar og Pakistanar segjast ráða yf-
ir kjarnavopnum en ekki er vitað
hversu mörg þau eru.
Leiðtogunum
boðið á friðarfund
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
skýrði frá því í gær að leiðtogum
Indlands og Pakistans hefði verið
boðið að hefja viðræður í Kasakstan í
byrjun júní til að reyna að afstýra
því að átökin í Kasmír hörðnuðu og
leiddu til styrjaldar.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti, sem var í heimsókn í Rússlandi,
kvaðst telja að Pervez Musharraf og
Atal Behari Vajpayee, forsætisráð-
herra Indlands, myndu báðir sitja
fundinn.
Pakistan-
ar hefja
eldflauga-
tilraunir
Íslamabad, Moskvu. AP, AFP.
♦ ♦ ♦