Morgunblaðið - 26.05.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.05.2002, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 29 Almennt skrifstofunám • Tölvunotkun, bókhald, skrifstofutækni, tollskýrslur, íslensk og ensk viðskiptabréf, stjórnun og skipulag. Kostur á starfsþjálfun. Störf að loknu námi: Skrifstofustörf, ritarastörf, stjórnunaraðstoð. Fjármála- og rekstrarnám • Bókhald, rekstrarhagfræði, fjármál, markaðsfræði, stjórnun, fagtengd tölvunotkun, lokaverkefni fyrir fyrirtæki. • Nemendur útskrifast með VT skírteini í fjármálum og rekstri. Störf: Umsjón bókhalds í smærri fyrirtækjum, bókarastörf, störf í fjármáladeildum, rekstur eigin fyrirtækis. Markaðs- og sölunám • Markaðsfræði, markaðsrannsóknir og aðferðafræði, sölutækni, stjórnun, fagtengd tölvunotkun, lokaverkefni fyrir fyrirtæki. • Nemendur útskrifast með VT skírteini í markaðs- og sölumálum. Störf að loknu námi: Markaðsfulltrúi, sölufulltrúi, umsjón með markaðs- og kynningarmálum í smærri fyrirtækjum. Alhliða tölvunám • Nám sem brúar bilið milli kerfisstjórnunar og venjulegra tölvunámskeiða. Vélbúnaður, stýrikerfi, skrifstofuhugbúnaður, vefsíðugerð og forritun. Lokaverkefni. • Námið undirbýr fyrir ýmiss alþjóðleg próf: MOUS í Microsoft Office, A+ í tölvu- og nettækni, iNet+ í Internettækni og MCP próf í Windows. Starfssvið: Notendafulltrúi, fyrsta stigs kerfisumsjón, vefsíðugerð, aðlögun skrifstofuhugbúnaðar, milliliður milli tæknimanna og notenda. Komdu í heimsókn! Skólinn er opinn alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00 og á þriðjudagskvöldum til kl. 20:00. Viðskipta- og tölvuskólinn S K Ó L I V I Ð S K I P T A L Í F S I N S N Á M S E M L E I Ð I R T I L S T A R F S V i ð s k i p t a - o g t ö l v u s k ó l i n n · F a x a f e n i 1 0 ( F r a m t í ð ) · S í m i 5 8 8 5 8 1 0 · f r a m t i d @ v t . i s · w w w. v t . i s Innritu n hafin f yrir ha ustönn 2002 Fjórar stuttar starfsnámsbrautir veturinn 2002 – 2003 VIÐURKENNDUR AF MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU ÞAÐ er málverkið sem haft er í fyrirrúmi á vorsýningu tíu myndlist- armanna sem þessa dagana eiga verk í Húsi málaranna við Eiðistorg og kannski ekki svo undarlegt þegar nafn gallerísins – Hús málaranna – er haft í huga. Eigendur gallerísins hafa enda gefið í skyn að listmálarar í dag eigi í fá hús að venda á Íslandi – hug- myndalistin sé hér alls ráðandi – og því taki þeir það það upp á sitt ein- dæmi að vinna að því að efla málverk- ið og styrkja. Um slíkt einstaklingsframtak er ekkert nema gott eitt að segja. Það má óneitanlega færa viss rök fyrir því að málverkið hafi að nokkru leyti hin síðari ár beðið lægri hlut fyrir hug- myndalistunum og fátt sem mælir gegn því að listamennirnir sjálfir snúist til varnar fyrir sitt listform. Hvort listamennirnir tíu sem í Húsi málaranna sýna deila að fullu skoð- unum eigenda gallerísins er svo önn- ur saga. Vorsýningin sem Hús málaranna geymir býður upp á fjölbreytta blöndu listaverka þar sem sterkir lit- ir fá að njóta sín. Listamennirnir tíu fylgja ólíkum stefnum og straumum þó að fígúratíf list sé áberandi í verk- um margra þeirra. Þannig býður Bragi Ásgeirsson upp á þrjú verk unnin með blandaðri tækni, en verkin Kona manns VI-VIII sýna brjóst- mynd af konu sem er spartönsk og einföld í fyrstu og fangar athygli áhorfandans í einfaldleik sínum með sandlitu formi á hvítum grunni. Litur er síðan hægt og rólega kynntur til sögunnar í myndröðinni þar til hár- rauð lokamyndin æpir á athygli sýn- ingargesta. Málverk Einars Hákonarsonar eru öllu hefðbundnari, náttúran og mannveran eru listamanninum hug- leikin líkt og í hinni Laxnessnefndu Unglinginum í skóginum þar sem bláa veru ber við grænleita fleti skóg- arins og fígúratíft form hlutanna er virt til fulls. Öllu áhrifameiri er þó sjálfsmynd Einars þar sem sterkar svartar og bláar litastrokur kalla fram svipbrigðaríkt andlit málarans. Köflótt landslag Kristins G. Jóhanns- sonar veitir þá skemmtilegt tilbrigði við landslagsþemað og ekki laust við að listamaðurinn leiki sér að því að veita náttúrunni textílkennda áferð í verkum á borð við Hauststillukvæði við Pollinn. Þó fígúratíf list sé óneitanlega meira áberandi en abstraktlistin á þessari vorsýningu leita Kviðboga- strengir Elíasar B. Halldórssonar, þar sem grænir og bláir litatónar ráða ferðinni, óneitanlega í átt til formsins og hinar skemmtilega nefndu Vetur aftur vitjar lands og Sólin gaf mér litakassa III í verkum Óla G. Jóhannssonar sem kallast á í gráum og gulum litatónum njóta þess frelsis sem litagleði pensilsins veitir. Anna Sigríður Einarsdóttir MYNDLIST Hús málaranna – Eiðistorgi Á sýningunni eiga verk listamennirnir: Bragi Ásgeirsson, Einar Hákonarson, Elí- as B. Halldórsson, Erla Axelsdóttir, Guð- mundur Ármann, Jónas Viðar, Kjartan Guðjónsson, Kristinn G. Jóhannsson, Óli G. Jóhannsson og Pétur Gautur. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. Henni lýkur 31. maí. VORSÝNING 10 MYNDLISTARMANNA Fígúratíf litagleði Kviðbogastrengir eftir Elías B. Halldórsson. Kona VI eftir Braga Ásgeirsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.