Morgunblaðið - 26.05.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FORMAÐUR Sjávarnytja, Jón
Gunnarsson, vinnur að því á eigin
vegum að hvalbátar í eigu norskrar
útgerðar landi afla sínum hér á
landi í sumar og að sögn Jóns kem-
ur Seyðisfjörður helst til greina sem
löndunarhöfn. Aðrar hafnir á Norð-
austurlandi eru einnig inni í mynd-
inni. Þá hyggst Jón flytja inn 8 tonn
af hvalkjöti sem hann kaupir af
sömu útgerð og er beðið eftir leyfi
frá landbúnaðarráðherra fyrir þeim
innflutningi frá Norður-Noregi.
Jón segir að Norðmennirnir fari
oft á Jan Mayen-svæðið á hvalveið-
ar úr íslenska hrefnustofninum og
styttra sé að sigla hingað en til
Norður-Noregs til að landa aflan-
um.
„Norðmenn vinna þetta öðruvísi
en þegar við stunduðum hvalveiðar.
Þeir skera öll dýrin úti á sjó og
ganga þar frá aflanum í kæli-
geymslum. Síðan er ætlunin að selja
þetta hvalkjöt innanlands ef bátarn-
ir munu leggja hér að,“ segir Jón.
Embætti yfirdýralæknis hefur
óskað eftir frekari gögnum frá Jóni
varðandi innflutninginn á hvalkjöt-
inu. Af þessum 8 tonnum er helm-
ingurinn hvalrengi sem ætlunin er
að súrsa. Gögnin sem beðið er eftir
eru hefðbundin upprunavottorð
norskra yfirvalda og heilbrigðisvott-
orð um að kjötið sé laust við salmon-
ellu og aðrar sýkingar. Jón vonast
til að þessi vottorð komi frá Noregi í
næstu viku. Að því loknu eigi gatan
að vera greið. Jón segist vera búinn
að tryggja kaupendur að hvalkjöt-
inu og til standi að selja það í kjöt-
borðum matvöruverslana.
„Ég sé ekkert sem ætti að banna
þennan innflutning. Þetta yrðu
fyrstu alþjóðlegu viðskiptin hér með
hvalafurðir síðan árið 1989. Ég vil
sýna fram á að ekkert vandamál sé
að eiga þessi viðskipti ef afurðir og
markaðir eru fyrir hendi,“ segir Jón
Gunnarsson.
Áformað að
norskir hvalbátar
landi hér í sumar
UMTALSVERT tjón varð í
Kornhlöðunni í Sundahöfn eftir
að eldur kom þar upp í gær-
morgun. Það var starfsfólk,
sem mætti til vinnu um hálf níu
leytið sem varð eldsins vart.
Að sögn Friðriks Þorsteins-
sonar, varðstjórans sem stjórn-
aði aðgerðum á staðnum, kom
eldurinn upp í raflögnum á
fjórðu hæð í hlöðuturninum og
var býsna áhættusamt að eiga
við eldinn sem var ekki mikill
en hins vegar lagði mikinn
reyk frá lögnunum. „Við þurft-
um að fara þarna upp þrönga
stiga og þetta er í um 40 metra
hæð inni í Kornhlöðunni. Við
þetta vorum við að fást í allt að
þrjá tíma en höfðum tök á
þessu allan tímann enda kom-
umst við strax að eldinum.“
Sömuleiðis segir Friðrik að erf-
itt hafi verið að reykræsta eftir
að ráðið hafði verið niðurlögum
eldsins.
Hann segir að unnið hafi
verið í lögnunum deginum áður
og beinist grunur að því að eitt-
hvað hafi farið úrskeiðis við þá
vinnu. Töluverður eldsmatur
var í kornsalla sem lá yfir öllu í
hlöðunni en það tókst að forða
því að hann tæki eld.
Umtalsvert tjón varð í eld-
inum, bæði í raflögnunum og
sömuleiðis í tæknibúnaði sem
að sögn Friðriks fór meira og
minna úrskeiðis. Fólk var ekki
í hættu. „Aðalhættan var gagn-
vart okkar eigin mönnum sem
voru að starfa við erfiðar að-
stæður,“ segir hann en 10–12
manns frá tveimur stöðvum
voru á vettvangi.
Talsvert
tjón í eldi
í Korn-
hlöðunni
ÞAÐ er engu líkara en hópur smá-
vaxinna reiðmanna sé þarna á ferð
á húsþaki einu í Salahverfi í Kópa-
vogi. Gætu menn haldið að þarna sé
flokkur álfa og huldufólks í einum
af sínum margfrægu útreiðartúrum
þótt lítið hafi heyrst af ágæti hús-
þaka sem reiðstíga.
Ef betur er að gætt sést þó að
fákarnir og knapar þeirra eru
staddir í brekku fyrir ofan húsið en
ekki á þaki þess. Var þarna á ferð
um 40 manna hópur kjósenda frá
Vatnsenda sem kom ríðandi til
kjörstaðar í Salaskóla í gær og vildi
með þessu minna tilvonandi bæj-
arfulltrúa á að á Vatnsenda búi
ekki einungis fólk heldur líka
hross.
Hvort álfar eigi sér einnig bústað
á Vatnsenda skal hins vegar ósagt
látið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álfareið
á hús-
þaki?
TVEIR voru fluttir á sjúkrahús
eftir að stórum sportbíl var ek-
ið aftan á kyrrstæða bifreið á
Víkurvegi í Grindavík um eitt-
leytið í fyrrinótt. Ökumaður
sportbílsins var grunaður um
ölvun við akstur.
Þeir sem slösuðust voru í
kyrrstæða bílnum en voru ekki
taldir alvarlega meiddir og
fengu að fara heim að lokinni
skoðun.
Ölvaður ók
á kyrrstæða
bifreið
ÞRÖSTUR Ólafsson, stjórnarfor-
maður Máls og menningar-Heims-
kringlu hf., fagnar því að Björgúlfur
Guðmundsson sé orðinn meirihluta-
eigandi í Eddu-miðlun og útgáfu hf..
Hinn helsti eigandi fyrirtækisins er
Mál og menning-Heimskringla. „Ég
fagnaði því mjög þegar í ljós kom að
Björgúlfur hafði áhuga á því að
koma þarna inn,“ segir Þröstur. Mál
og menning-Heimskringla eignaðist
meirihluta í Eddu – miðlun og út-
gáfu í desember sl. eða 56% hlut,
eftir hlutafjáraukningu í félaginu.
Þröstur segir að Mál og menning
hafi þó aldrei stefnt að því að eiga
meirihluta í Eddu nema í skamman
tíma. „Þegar Mál og menning eign-
aðist meirihluta í Eddu lýsti ég því
yfir að það væri ekki markmið okk-
ar að eiga meirihluta í félaginu held-
ur töldum við okkur þurfa að eign-
ast meirihlutann tímabundið til að
bregðast við þeim fjárhagserfiðleik-
um sem þurfti að leysa.“ Aðspurður
segir Þröstur að það sé því ekki
mikil eftirsjá að meirihlutanum í
Eddu.
Þáttaskil
Þröstur segir að það séu þó að
sjálfsögðu þáttaskil fyrir Mál og
menningu-Heimskringlu að eiga
ekki lengur meirihluta eða helming í
Eddu. Með kaupum Björgúlfs á
meirihlutanum í Eddu sé Mál og
menning-Heimskringla ekki lengur
aðalrekstraraðili Eddu. „Við erum
nú í minnihluta og berum þar með
ekki sömu ábyrgð á rekstrinum þótt
við berum að sjálfsögðu áfram
ábyrgð á fyrirtækinu sem eigandi
að félaginu.“
Spurður að því hvort Mál og
menning-Heimskringla ætli að
hasla sér völl með einhverjum öðr-
um hætti í framtíðinni eftir þessi
umskipti segir Þröstur að engin
áform séu uppi um það enn sem
komið sé. „Það er hvorki búið að
kynna þessa breytingu í stjórn Máls
og menningar né í félagsráði. Við
eigum því eftir að átta okkur betur
á þessari niðurstöðu. Framhaldið
verður bara að koma í ljós.“ Að-
spurður hvort einhver óánægja sé
með þessa nýju útkomu meðal
þeirra sem koma að Máli og menn-
ingu-Heimskringlu segist Þröstur
ekki hafa orðið var við það. „Við
vorum að leita að fjárfesti sem vildi
eignast stóran og afgerandi hlut í
félaginu og koma inn með fé sem fé-
lagið þurfti nauðsynlega á að halda.
Við sem að þessu höfum staðið höf-
um fagnað þessari niðurstöðu enda
gerðum við allt sem í okkar valdi
stóð til þess að af þessu gæti orðið.“
Þröstur bætti því við að ef um
óánægjuraddir væri að ræða væru
þær fyrir utan þann hóp sem komið
hefði að þessu máli.
Þröstur Ólafsson, stjórnarformaður Máls og menningar-Heimskringlu
Fagnar nýjum eiganda
meirihluta í Eddu
ÞAÐ er óþarfi að láta garnirnar
góla í hita kosninganna, hvaða
flokk sem maður kann að styðja.
Þetta veit Gunnar Gunnarsson,
bakari í Suðurveri, sem hér heldur
á sérútbúnum kosningatertum sem
hann bakaði í tilefni dagsins í gær.
Líklega hafa terturnar atarna
runnið ljúflega ofan í kverkar solt-
inna kjósenda í borginni, hvort
heldur sem þeir hafa greitt R-lista
eða D-lista atkvæði sitt.
Góðgæti með skoðun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
EIRÍKUR Tómasson, formaður yf-
irkjörstjórnar í Reykjavík, sagði um
hádegisbil í gær, laugardag, að ekki
hefðu orðið nein teljandi vandræði á
kjörstöðum vegna þess að umboðs-
menn Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík væru inni í kjördeildum til að
fylgjast með framkvæmd kosning-
anna. „Það hafa sem betur fer ekki
orðið nein teljandi vandræði enn sem
komið er,“ sagði hann. „Ég veit þó til
þess að einstaka kjósendur hafa gert
athugasemdir við þetta. Engin alvar-
leg ágreiningsmál hafa þó borist.“
Engin teljandi vand-
ræði á kjörstöðum