Morgunblaðið - 26.05.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 19/5 –25/5
ERLENT
INNLENT
KOSNINGAR til bæjar-
og sveitarstjórna fóru
fram í gær. Á kjörskrá
voru 204 þúsund kjós-
endur í 105 sveit-
arfélögum.
SAUTJÁN manns,
sennilega frá Rúmeníu
eða Albaníu leituðu hælis
hér á föstudag sem póli-
tískir flóttamenn. Hafði
hópurinn komið til lands-
ins með Norrænu daginn
áður. Er þetta stærsti
hópur sem leitað hefur
hælis hér á landi í einu
lagi.
HÉRAÐSDÓMUR
Reykjavíkur dæmdi á
fimmtudag Guðmund Inga
Þóroddsson í fimm ára
fangelsi fyrir e-töflusmygl
sem hann skipulagði frá
Litla-Hrauni þar sem
hann beið dóms Hæsta-
réttar vegna innflutnings
á 3850 e-töflum.
GREINT var frá því í
vikunni að hræ af búfén-
aði lægju óurðuð í landi
Vatnsness í Grímsnesi til
að egna fyrir tófur að
sögn ábúandans þar á bæ.
Hollustuvernd ríkisins
segir um brot á reglugerð
landbúnaðarráðuneytisins
að ræða.
ÍSLENSKA karlalands-
liðið í handknattleik vann
Svía 31:23 í landsleik á
móti í Belgíu á föstudag.
Er þetta fyrsti sigur Ís-
lendinga á Svíum í hand-
bolta í 14 ár.
ÍSLENSKUR maður á
fertugsaldri var fram-
seldur frá Hollandi til Ís-
lands í vikunni í tengslum
við hvarf Valgeirs Víð-
issonar árið 1994.
Gengu út af fundi Al-
þjóðahvalveiðiráðsins
ÍSLENSKA sendinefndin á ársfundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem haldinn
var í Japan í vikunni, gekk út af fundi
ráðsins á þriðjudag eftir að hafa mót-
mælt vinnubrögðum sem viðhöfð voru
deginum áður þegar nýju aðildarskjali
Íslendinga að ráðinu var hafnað. Þá
var tillaga formanns ráðsins um að
ekki bæri að líta á aðildarskjal Íslend-
inga, sem Ísland lagði fram í vikunni á
undan, sem nýtt aðildarskjal, sam-
þykkt með 25 atkvæðum gegn 20.
Stefán Ásmundsson, formaður ís-
lensku sendinefndarinnar á ársfundin-
um sagði að með þessu hefði verið
brotið gróflega gegn þjóðréttarlegum
reglum, stofnsáttmála og fundarsköp-
um ráðsins.
Í aðildarskjali Íslands var því lýst
yfir að landið skuldbyndi sig til að
hefja ekki atvinnuveiðar fyrr en lokið
væri vinnu við endurskoðaðar veiði-
reglur sem unnið hefur verið að um
árabil.
Viðræðum haldið
áfram til 18. júlí vegna
álvers í Reyðarfirði
SAMKOMULAG um að halda viðræð-
um áfram vegna mögulegrar þátttöku
bandaríska álfyrirtækisins Alcoa í
byggingu álvers í Reyðarfirði var und-
irritað á fimmtudag milli Fjárfesting-
arstofunnar – orkusviðs og forstjóra
Alcoa. Hefur fyrirtækið áform um að
byggja 320 þúsund tonna álver í einum
áfanga og fjármagna það alfarið sjálft.
Samkomulagið gildir til 18. júlí
næstkomandi en þá verður tekin
ákvörðun um hvort haldið verði áfram
með verkefnið og viljayfirlýsing und-
irrituð. Samkvæmt heimildum blaðs-
ins hefur Alcoa mikinn áhuga á að
kaupa Reyðarál, sem er í eigu Norsk-
Hydro og íslenskra fjárfesta í Hæfi og
undirbúið hefur álver í Reyðarfirði.
Pakistanar segjast
vera búnir undir stríð
PAKISTANAR vilja frið en eru „við-
búnir átökum“ ef ráðist verður á þá, að
sögn talsmanns pakistanska utanrík-
isráðuneytisins á miðvikudag þegar
stjórn landsins brást í fyrsta sinn við
hótun forsætisráðherra Indlands,
Atals Beharis Vajpayees, um stríð
vegna deilna ríkjanna um Kasmír.
Vajpayee sagði í heimsókn til Kasmír
að tími væri kominn til „afgerandi
átaka“.
Vajpayee sagði á fimmtudag að ekki
kæmi til greina að ræða við Pakistana
fyrr en forseti þeirra, Pervez Mushar-
raf, fylgdi í verki þeim orðum sínum að
stemma stigu við aðgerðum herskárra
skæruliða í indverska hluta Kasmír.
Jack Straw, utanríkisráðherra Bret-
lands, varaði við því að blóðug átök
milli Indverja og Pakistana við landa-
mærin síðustu daga gætu orðið að
kjarnorkustríði.
Átökin hófust eftir blóðugt tilræði
skæruliða í Kasmír 14. maí sem kost-
uðu 35 manns lífið. Óþekktir menn
myrtu Abdul Ghani Lone, leiðtoga
helstu hreyfingar aðskilnaðarsinnaðra
múslíma í Kasmír, á þriðjudag. Hann
hafði beitt sér fyrir friðarviðræðum við
Indverja.
Bush og Pútín
undirrita afvopn-
unarsamning
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti
og Vladímír Pútín Rússlandsforseti
undirrituðu á föstudag samning sem
skuldbindur ríkin til að fækka kjarna-
vopnum sínum um tvo þriðju næstu tíu
árin. Er þetta mesta fækkun kjarna-
vopna sem ríkin hafa samið um. Sam-
kvæmt samningnum, sem var undirrit-
aður í Kreml, mun hvort ríki ráða yfir
1.700–2.200 kjarnaoddum í lok samn-
ingstímans. Hvort ríki er nú með 6.000
kjarnaodda í vopnabúrum sínum.
TILLÖGUR stjórnar
Ariels Sharons, forsætis-
ráðherra Ísraels, um að-
haldsráðstafanir í efna-
hagsmálum voru
samþykktar á þingi
landsins á miðvikudag
með 65 atkvæðum gegn
26. Við fyrri atkvæða-
greiðslu á mánudag voru
tillögurnar felldar og
Sharon rak ráðherra
tveggja flokka strangtrú-
aðra gyðinga úr stjórn-
inni eftir að þeir neituðu
að styðja tillögurnar.
Stjórnin hefur nú aðeins
tryggan stuðning 60
þingmanna af 120. Talið
er að Sharon reyni að fá
miðflokkinn Shinui í
stjórnina til að fá aftur
þingmeirihluta.
DICK Cheney, vara-
forseti Bandaríkjanna,
segir að „næsta öruggt“
sé að önnur hryðjuverka-
árás verði gerð í Banda-
ríkjunum, og geti það
orðið „á morgun, í næstu
viku eða á næsta ári“.
Bandaríska alrík-
islögreglan, FBI, varaði
yfirvöld í New York-borg
við því á þriðjudag að
hryðjuverkamenn kynnu
að gera árásir á Frels-
isstyttuna og ýmis þekkt
mannvirki í borginni.
ALI Khamenei erki-
klerkur, trúarleiðtogi Ír-
ans, hafnaði á miðviku-
dag hugmyndinni um
viðræður við Bandaríkin,
lýsti henni sem „land-
ráðum“ og „heimsku“, og
reyndi að kveða niður
orðróm um að ríkin hefðu
hafið leynilegar við-
ræður.
HÆSTIRÉTTUR Íslands hefur
staðfesti úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur um að skilyrði hafi
verið fyrir því að setja lögbann á
sýningu kvikmyndarinnar Í skóm
drekans, sem fjallar um fegurðar-
samkeppnina Ungfrú Ísland.is.
Þá staðfesti Hæstiréttur einnig
úrskurð héraðsdóms um að hafna
beiðni aðstandenda myndarinnar að
teknar yrðu skýrslur fyrir dómi af
fjórum nafngreindum vitnum í
tengslum við lögbannsmálið.
Aðstandendur fegurðarsam-
keppninnar og keppendur kröfðust
þess að lagt yrði lögbann við því að
kvikmyndin yrði sýnd opinberlega.
Hrönn Sveinsdóttir, sem gerði
myndina, var meðal keppenda og
tók hún og aðrir sem hún fékk til
liðs við sig upp á myndband talsvert
efni frá undirbúningi og fram-
kvæmd keppninnar, sem sneri bæði
að henni sjálfri og öðrum keppend-
um.
Virtu grundvallarreglu einka-
málaréttarfars að vettugi
Við meðferð málsins fyrir Hæsta-
rétti lögðu aðstandendur kvikmynd-
arinnar fram eintak af myndinni. Í
dómi Hæstaréttar segir að aðstand-
endur myndarinnar hafi þrátt fyrir
þetta lítið sem ekkert vísað til þessa
eintaks af myndinni í málatilbúnaði
sínum fyrir réttinum.
,,Liggur þannig ekki nægilega
fyrir hvað sóknaraðilar telja sannað
með þessu gagni í einstökum atrið-
um. Til þess verður einnig að líta að
í greinargerð sóknaraðila fyrir
Hæstarétti er tekið fram að þetta
eintak af kvikmyndinni sé aðeins til
afnota fyrir dómendur, en um helm-
ingur varnaraðila hafi ásamt lög-
manni horft á þessa gerð hennar 11.
maí sl. og geti á þeim grunni tjáð
sig um verkið ef efni eru talin til
þess. Með þessu háttalagi við
gagnaöflun hafa sóknaraðilar virt
að vettugi þá grundvallarreglu
einkamálaréttarfars að jafnræðis
beri að gæta um rétt málsaðila til
að kynna sér og tjá sig um sönn-
unargögn gagnaðila síns. Auk þessa
hafa sóknaraðilar með því að leggja
fyrst fram á þessu stigi eintak af
kvikmyndinni raskað í öllum meg-
inatriðum þeim grundvelli, sem þau
kusu sjálf að reisa málatilbúnað
sinn á fyrir héraðsdómi. Þegar alls
þessa er gætt eru ekki skilyrði til
að taka tillit til þessa sönnunar-
gagns við úrlausn málsins fyrir
Hæstarétti.
Samkvæmt framansögðu verður
dómur felldur á mál þetta á þeim
grunni, sem það kom til úrlausnar
fyrir héraðsdómi. Með vísan til for-
sendna hins kærða úrskurðar verð-
ur hann staðfestur,“ segir í dómi
Hæstaréttar, þar sem hinn kærði
úrskurður héraðsdóms er staðfest-
ur.
Var sóknaraðilum gert í samein-
ingu að greiða varnaraðilum 15 þús-
und kr. hverjum fyrir sig í kæru-
málskostnað.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Markús Sigurbjörns-
son, Árni Kolbeinsson og Gunnlaug-
ur Claessen.
Hæstiréttur stað-
festir lögbann á
sýningu myndar
MAÐUR brenndist alvarlega í
eldsvoða í risíbúð við Laugaveg í
býtið í gærmorgun og er talinn í
lífshættu. Að sögn slökkviliðs er
ekki vitað um eldsupptök en mest-
ur var eldurinn í eldhúsi í kringum
eldavél.
Slökkviliði barst tilkynning um
eld í húsi á mótum Laugavegar og
Klapparstígs laust fyrir klukkan
sex í gærmorgun en um er að ræða
timburhús á þremur hæðum. Þeg-
ar slökkviliðið kom á staðinn stóð
mikill eldur og reykur út um
glugga á rishæðinni og undan þak-
kanti. Voru lögregla og starfsmenn
Securitas þá þegar búin að bjarga
manninum út úr húsinu og var
hann fluttur á spítala.
Mestur eldur reyndist
vera við eldavélina
Þá fóru reykkafarar frá slökkvi-
liðinu inn í íbúðina og leituðu frek-
ar í henni. Fljótlega náði slökkvilið
tökum á eldinum en hann var
mestur í eldavél í eldhúsi. Að sögn
varðstjóra hjá slökkviliðinu er þó
ekki hægt að staðfesta eldsupp-
tökin þar sem málið fer nú í rann-
sókn. Var slökkvistarfi að mestu
lokið um sjöleytið en alls voru
slökkviliðsmenn frá þremur stöðv-
um á höfuðborgarsvæðinu á vett-
vangi.
Að sögn yfirlæknis á gjörgæslu-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss við Hringbraut þar sem mað-
urinn, sem bjargað var út, liggur,
er hann alvarlega brenndur og í
lífshættu.
Ekki er vitað hversu mikið tjón
varð á húsinu en í því er einnig
veitingastaður, gullsmíðaverkstæði
og antikverslun. Kanna átti að-
stæður í húsinu í gær.
Í lífshættu eftir
bruna í risíbúð
Morgunblaðið/Júlíus
Greiðlega gekk að slökkva eldinn í húsinu við Laugaveg en Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins sendi lið frá þremur stöðvum á eldstað.
BÚIST er við að um 30 þúsund
farþegar komi til Reykjavíkur
með skemmtiferðaskipum í
sumar. 27 þúsund farþegar
komu í fyrra og er búist við 27
til 30 þúsund farþegum í sumar.
Koma skemmtiferðaskipa er
þegar hafin, en tvö skip hafa
komið til Reykjavíkur í maí-
mánuði. Fleiri skip eru vænt-
anleg á næstu dögum og vikum.
Alls er búist við 48 skipum
frá maí til september og flest
koma í júli, eða 22 skip. Flest
skipanna hafa komið áður til
landsins og er fjöldi þeirra svip-
aður og undanfarin tvö sumur.
Hættu við vegna
atburðanna í New York
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurhöfn hættu 7-8
skip við að koma í sumar vegna
hryðjuverkanna í Bandaríkjun-
um 11. september og því stend-
ur fjöldinn nánast í stað frá í
fyrra. Raunar fækkar um tvö
skip því 50 skip komu í fyrra.
Eitt stærsta skipið sem kem-
ur í sumar, A’Rosa Blue frá
Líberíu, kemur 8. júlí, en um er
að ræða rúmlega 70 þúsund
brúttótonna skip sem jafnast á
við 35 stóra frystitogara. Von
er á fleiri stórum skipum en
ekki jafn stórum og þessu.
Búist við 30
þúsund farþegum
Stærsta
skipið 70
þúsund
tonn