Morgunblaðið - 26.05.2002, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DAGUR náttúruverndarsvæða í Evr-ópu var haldinn hátíðlegur sl. föstu-dag, en dagurinn var valinn til aðminnast þeirra tímamóta þegar níu
fyrstu þjóðgarðar álfunnar voru stofnaðir í Sví-
þjóð hinn 24. maí 1909.
Þrír þjóðgarðar hafa verið stofnaðir hér á
landi í samræmi við lög um náttúruvernd, það
eru Þjóðgarðurinn í Skaftafelli, Þjóðgarðurinn í
Jökulsárgljúfrum og Þjóðgarðurinn Snæfells-
jökull. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum var stofn-
aður með sérlögum árið 1928 og fer sérstök
nefnd, Þingvallanefnd, með stjórnun hans. Í
samræmi við lög um náttúruvernd getur um-
hverfisráðherra stofnað þjóðgarð á landsvæði
sem er sérstætt um landslag eða lífríki eða á því
hvíli söguleg helgi þannig að ástæða sé til að
varðveita það með náttúrufari sínu og leyfa al-
menningi aðgang að því eftir tilteknum reglum.
Í hverjum þjóðgarði starfar þjóðgarðsvörður
og annast hann daglegan rekstur þjóðgarðsins.
Sérstök reglugerð gildir um meðferð og rekstur
þjóðgarða og umgengni almennings. Yfir sum-
armánuðina starfa landverðir í þjóðgörðunum
við fræðslu, upplýsingagjöf, eftirlit og umhirðu.
Í görðunum hefur verið byggð upp aðstaða til
þess að taka á móti ferðamönnum og mótast sú
uppbygging af því að sem minnst röskun verði á
náttúrulegu landslagi og því vistkerfi sem fyr-
irfinnst á viðkomandi svæðum. Einnig er lögð
áhersla á að vernda sögulegt gildi staðanna.
Hvernig til tekst að samræma hið tvíþætta hlut-
verk þjóðgarðsins að vernda lífríki, jarðmynd-
anir og menningarminjar og tryggja möguleika
til útivistar er að miklu leyti undir ferðamann-
inum komið.
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli var stofnaður árið
1967 og er nú að flatarmáli um 1.700 ferkm.
Markmiði með stofnun þjóðgarðsins er best lýst
með orðum hins þekkta jöklafræðings, prófess-
ors Ahlmanns, sem lýsti svæðinu á eftirfarandi
hátt er hann var spurður um fegurð þess:
„Þeirri spurningu er afar erfitt að svara, því að
útsýnið hringinn í kringum okkur var gjörólíkt
öllu sem ég hef séð í öðrum löndum og líka eins-
dæmi á Íslandi. Hvergi í veröldinni býst ég við
að neitt sambærilegt sé til og það var ekki unnt
að bera það saman við neitt, sem menn eru orðn-
ir vanir að kalla fallegt eða ljótt. Það var ein-
hvern veginn öldungis einstætt án þess að
tengja það þekktum minningamyndum af því,
sem menning og smekkur eru búin að ætla
ákveðið fegurðargildi. Náttúran ein talaði sínu
sterka, einfalda máli.“
Skaftafellsland er mótað af rofi jökla og
vatns. Skriðjöklar setja svip sinn á landið og
jökulár renna frá þeim. Skeiðará er þeirra mest
og er kunnust fyrir Skeiðarárhlaup sem eiga
upptök í eldvirkni og jarðhita í Grímsvötnum.
Árið 1362 gaus Öræfajökull mesta vikurgosi
sem orðið hefur á Íslandi síðan sögur hófust og
lagði í auðn alla byggð í Öræfasveit.
Gróðurfar er fjölbreytt í Skaftafelli en um 220
tegundir háplantna vaxa þar. Gróðurfarið hefur
tekið miklum breytingum eftir að þjóðgarður-
inn var friðaður fyrir ágangi búfjár. Jökulaur-
arnir eru nú óðum að gróa upp. Fuglalíf er fjöl-
skrúðugt í þjóðgarðinum og verpa þar líklega
rúmlega 30 tegundir fugla.
Gönguleiðir eru margar í þjóðgarðinum og
má nefna gönguleið að Lambhaga, Hundafossi
og Svartafossi, en þar er hægt að sjá óvenju
reglulega bergstuðla er myndast hafa við hæg-
fara kólnun hraunlags. Vatnið hefur síðan
sprengt sig gegnum hraunhelluna og myndað
þessa einstöku umgerð um fossinn.
Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum
Þjóðgarðurinn í Jökulsárglúfrum var stofn-
aður árið 1973 og er hann um 120 ferkm. Mark-
miðið með stofnun hans er annars vegar að
vernda gljúfur Jökulsár á Fjöllum, landslag, líf-
ríki og sögu og hins vegar að veita almenningi
aðgang að þjóðgarðinum með þeim takmörk-
unum, sem nauðsynlegar eru til að tryggja
verndun hans.
Jökulsá í Öxarfirði á upptök sín í Vatnajökli
og rennur til sjávar í Öxarfjörð. Frá upptökum
rennur áin fyrst um aflíðandi hásléttu og heitir
þar Jökulsá á Fjöllum að Selfossi. Við hálend-
isbrúnina lækkar landið, straumurinn eykst og
áin steypist í stórum fossum niður í gljúfrin sem
eru við hana kennd. Jökulsárgljúfur eru stærstu
og hrikalegustu árgljúfur á Íslandi. Þau eru um
25 km á lengd, 1/2 km á breidd og dýptin víða
um eða yfir 100 m. Efri gljúfrin, frá Dettifossi að
Syðra-Þórunnarfjalli, eru dýpst og hrikalegust,
allt að 120 m djúp á kafla. Dettifoss er oft talinn
voldugasti foss í Evrópu. Hann er 45 m hár og
um 100 m breiður. Nokkru neðar er Hafragils-
foss, 27 m hár og litlu ofar er Selfoss, aðeins um
10 m hár en mjög breiður. Fossar þessir mynda
samstæðu sem á fáa sína líka í veröldinni.
Meðfram ánni er röð kletta og dranga, gömul
gígaröð þar sem áin hefur skolað allt lauslegt ut-
an af berginu. Þar eru Hljóðaklettar nyrst, mik-
ið völundarhús af ótal klettaborgum, með
hellum og skútum. Rauðhólar eru framhald
Hljóðakletta til norðurs. Skammt fyrir neðan
Rauðhóla hefjast gljúfrin að nýju og ná þaðan
um 9 km leið niður undir Ás.
Vestan gljúfranna er Ásheiði en inn í hana að
norðan skerst hamrakvosin Ásbyrgi.
Allt umhverfi gljúfranna er ungt á jarðsögu-
lega vísu. Í ísaldarlokin hefur Öxarfjörður verið
mun lengri og inn af honum dalur, sem Jökulsá
rann eftir. Fáeinum árþúsundum síðar urðu eld-
gos í dalkvosinni þar sem nú eru Rauðhólar og
Hljóðaklettar og um svipað leyti einnig í Rand-
arhólum. Frá þessum eldstöðvum hafa runnið
hraun í dalinn og þáverandi gljúfur og fyllt þau
upp að nokkru leyti. Nú sjást aðeins leifar
hraunanna sem þverhníptir bergstallar.
Ógurleg flóð, svonefnd hamfarahlaup, eru tal-
in hafa valdið þessu mikla rofi. Sjást merki
þeirra hvarvetna meðfram ánni, allt til Vatna-
jökuls. Einhver þessara hlaupa hafa grafið Ás-
byrgi.
Í Jökulsárgljúfrum þrífst fjölbreytilegur
gróður en mestu skógarnir eru í og kringum Ás-
byrgi, Áshöfða og við Landsbæina. Þar er hægt
að tína sveppi og ber á haustin.
Jökulsárgljúfur eru tilvalið land fyrir göngu-
ferðir. Merktar hafa verið fjölbreyttar göngu-
leiðir meðfram gljúfrunum, frá Ásbyrgi og suð-
ur að Selfossi. Einnig ganga allmargir
ferðamenn milli Jökulsárgljúfra og Mývatns-
sveitar. Í botni Ásbyrgis eru nokkrar léttar og
skemmtilegar gönguleiðir, t.d. að Hljóðaklett-
um og Rauðhólum. Frá bílastæðinu við Detti-
foss að austan er um 15 mín. gangur að foss-
inum. Frá Dettifossi liggur einnig merkt
gönguleið að Selfossi. Hringur að Dettifossi og
Selfossi er um 2,5 km og tekur 1 klst.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er yngsti þjóð-
garður Íslands, stofnaður 28. júní árið 2001 og
er um 170 ferkm. Hann er fyrsti þjóðgarður
landsins sem nær í sjó fram. Sérstæða þjóð-
garðsins byggist á samspili manns og sjávar. Í
þjóðgarðinum er gott tækifæri til að skoða æv-
intýraheim hafsins, fjöruna, sjófugla og annað
líf við og í sjónum. Ekki er síður áhugaverð sú
saga sem tengist sjónum á þessu svæði. Allt
fram undir lok 19. aldar var fjölmenn byggð á
utanverðu Snæfellsnesi og á ströndinni eru víða
ummerki þekktra verstöðva.
Þrátt fyrir þessa sérstöðu er þjóðgarðurinn
ekki síður ævintýraheimur þeirra sem áhuga
hafa á jarðfræði. Snæfellsjökull er formfögur
eldkeila, 1.446 m hár. Fjallið hefur hlaðist upp í
mörgum sprengi- og hraungosum á síðustu 800
þúsund árum en liðin eru nær 2000 ár frá síðasta
stórgosi í aðalgíg fjallsins. Innan þjóðgarðs-
marka og rétt utan þeirra er fjöldi hraunhella en
Purkhólahraun mun vera eitt hellaauðugasta
hraun landsins. Í hraunhellum er víða að finna
dropasteina sem mynduðust þegar hraunið
storknaði.
Strandlengja þjóðgarðsins er afar fjölbreytt
þar sem skiptast á iðandi fuglabjörg og lygnir
vogar. Í björgunum verpa margar tegundir sjó-
fugla. Meðfram ströndinni synda selir og liggja
á steinum. Stundum sjást smáhveli undan
ströndinni og bjóða ferðafrömuðir á Snæfells-
nesi upp á bátsferðir til hvalaskoðunar.
Svæðið undir Jökli hefur laðað til sín rithöf-
unda og skáld, en þar er m.a. sögusvið fornsög-
unnar um Bárð Snæfellsáss sem er sagður hafa
gengið að lokum í Jökulinn. Þar er einnig sögu-
svið Kristnihalds undir Jökli eftir Halldór Lax-
ness. Franski rithöfundurinn Jules Verne leiðir
lesandann í bók sinni, Leyndardómar Snæfells-
jökuls, í ferð gegnum iður jarðar niður um gíg
Snæfellsjökuls og upp um eldfjallið Strombólí á
Ítalíu. Snæfellsjökull er þekktur fyrir þann
mikla kraft sem sagður er stafa frá honum og
margir finna. Sagt er að hann sé ein af sjö
stærstu orkustöðvum jarðarinnar.
Margar og fjölbreyttar gönguleiðir eru í og
við þjóðgarðinn. Sumar þeirra eru stikaðar eða
merktar og verður áfram unnið að því.
Við Gufuskála eru elstu minjar um útgerð á
Norðurlöndum, fiskbyrgi sem hlaðin eru í
hrauninu.
Á Öndverðarnesi má sjá minjar eftir útræði
og búskap fyrri tíma. Á leiðinni út á Öndverð-
arnes er margt að sjá og margar fallegar göngu-
leiðir. Skarðsvík er paradís með ljósan sand í
skjóli kletta. Leiðin á milli Djúpalónssands og
Dritvíkur er vinsæl. Í friðlöndunum tveimur eru
líka vel þekktar og fallegar leiðir bæði um hið
einstaka Búðahraun og eftir ströndinni á milli
Arnarstapa og Hellna.
Þjóðgarðar eru þjóðareign
Þjóðgarðsverðir og landverðir í þjóðgörðun-
um bjóða ferðamenn velkomna í heimsókn.
Ferðamenn eru hvattir til þess að hafa samband
til að afla sér upplýsinga um þjóðgarðinn, dag-
skrá sem í boði er, gönguleiðir, náttúru og sögu.
Sérstaklega er bent á dagskrá fyrir börn sem í
boði er. Ferðamenn eru einnig hvattir til að
kynna sér þá þjónustu sem er í boði í nágrenni
þjóðgarðanna.
Tilgangur þjóðgarða er meðal ann-
ars sá að tryggja almenningi aðgang
að náttúruperlum og sögufrægum
stöðum. Í samantekt starfsmanna
Náttúruverndar ríkisins um ís-
lensku þjóðgarðana kemur fram að
afþreying og fræðsla er þar fjöl-
breytt yfir sumartímann.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Við Dettifoss í Þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Í Hellnafjöru í Þjóðgarðinum Snæfellsnesi.
Þar sem náttúran
talar sínu máli
Dagur náttúruverndarsvæða í Evrópu og saga íslensku þjóðgarðanna þriggja