Morgunblaðið - 26.05.2002, Page 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Unnur Bjarklindfæddist í Reykja-
vík 22. mars 1951.
Hún lést á gjörgæslu-
deild Landspítala við
Hringbraut 16. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar eru Sigríð-
ur B. Bjarklind, f.
28.10. 1925, og Jón S.
Bjarklind, f. 4.12.
1913. Systkini Unnar
eru: Sveinn Aron, f.
16.4. 1935, kvæntur
Gerði G. Bjarklind, f.
10.9. 1942, Björn, f.
1.9. 1946, kvæntur
Ásu Elísabetu Sæmundsdóttur, f.
24.8. 1948, Sigurður, f. 7.12. 1947,
kvæntur Margréti Ástu Skúla-
dóttur, f. 23.7. 1947, og Jón, f. 1.7.
1949, kvæntur Steinunni Önnu
Óskarsdóttur, f. 28.7. 1950. Unnur
giftist 27.11. 1971 Sigurði Hólm, f.
16.7. 1946, en þau skildu. Börn
þeirra eru: 1) Jón Benedikt, f.
19.1. 1971. Barnsmóðir hans er
Edda Hrund Hall-
dórsdóttir, f. 22.5.
1974, og eiga þau
þrjú börn: Ólöfu
Hörpu, f. 5.11. 1998,
Ívar Bjarka, f. 23.3.
2000, og Ísak Harry,
f. 1.2. 2002. 2) Andr-
ea, f. 13.12. 1973.
Eiginmaður hennar
er Hassan Jamil
Chahla, f. 4.6. 1963,
og eiga þau þrjú
börn: Yasmini Unni,
f. 11.11. 1997, Jamil
Sigurð, f. 8.3. 2000,
og Signý Isabellu, f.
18.9. 2001. 3) Sigurður, f. 4.12.
1984.
Unnur hóf störf á skrifstofu Al-
þingis árið 1969 og frá árinu 1995
starfaði hún hjá Vinnumiðlun rík-
isins.
Útför Unnar verður gerð frá
Fossvogskirkju á morgun, mánu-
daginn 27. maí, og hefst athöfnin
klukkan 15.
Það er sárt að horfa á eftir Unni.
Hún var ávallt til reiðu fyrir fjöl-
skyldu sína, með hjartað fullt af kær-
leik og elsku. Síðastliðin ár hafa verið
Unni og fjölskyldu hennar erfið þar
sem hún háði hetjulega baráttu við
krabbamein en þegar litið er til baka
stendur uppúr sá kraftur sem hún bjó
yfir til hinstu stundar.
Unnur var mikil vinkona mín og
eins og hverjum góðum vinkonum
sæmir þá bæði greindi okkur á og við
gátum hlegið saman. Hún var trúuð
kona og áttum við margar skemmti-
legar samræður í símanum á kvöldin
um þau mál. Allt síðasta ár er mér
mjög ljúft í minni því þá ríkti mikil
gleði í lífi hennar og hún skemmti sér
vel. Unnur hafði mjög gaman af að
ferðast og síðasta haust, eftir ferð til
Ítalíu og heimsókn til frænku sinnar
til Skotlands, var hún alsæl og
óþreytt og tilbúin að takast á við
næstu mánuði eftir erfiða lyfjameð-
ferð.
Ég veit að börnin mín munu sakna
þess að hafa ekki fengið að hafa
ömmu sína lengur hjá sér. Hún talaði
iðulega um hversu rík kona hún væri
þegar hún sat með þau í fanginu, lit-
aði með þeim, las og studdi þau þegar
þau voru að taka fyrstu skrefin. Þeg-
ar ég bað þau um að segja mér eitt-
hvað um ömmu Unni fóru þau strax
að tala um kisurnar hennar en hún
var einstakur dýravinur og er ég
löngu búin að missa töluna á öllum
þeim köttum, hundum og fuglum sem
hún átti og hugsaði um í gegnum tíð-
ina.
Mér finnst viðeigandi að kveðja
hana með vísu sem amma hennar og
nafna orti:
Tíminn vinnur aldrei á,
okkar bestu stundum,
æfilangt þær anga frá,
urðar- helgilundum.
(Hulda.)
Með söknuð í hjarta kveð ég Unni,
hún var einstök kona.
Elsku Nonni minn, Andrea, Siggi
yngri og eldri, Sigga, Jón, aðrir að-
standendur og vinir. Mín dýpsta sam-
úð er með ykkur öllum.
Edda Hrund.
Elskuleg vinkona mín, Unnur
Bjarklind, er dáin. Löngu og erfiðu
stríði er lokið. Hún kvaddi þetta líf
svo snögglega og allt of fljótt.
Það er mikið lán að eiga góða vini
og samferðamenn. Unnur var einn af
þeim. Hún var einstaklega hlý og góð
manneskja sem gott var að eiga að.
Alltaf tók hún svo fallega á móti
mér þegar ég kíkti í heimsókn. Koss á
kinn og faðmlag. Það var hennar hátt-
ur. Í mínum huga var hún einstök.
Hvernig hún tók örlögum sínum á
sinn æðrulausa hátt.
Elsku Unnur mín. Ég kveð þig með
söknuði. Ég hefði viljað fá að njóta
vináttu þinnar miklu lengur, en ég er
þakklát fyrir að hafa fengið að kynn-
ast þér og verið þér samferða hluta
leiðarinnar.
Aðstandendum Unnar sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Halldóra.
Kær vinur og vinnufélagi er fallinn
frá langt um aldur fram.
Unnur Bjarklind hóf störf á Vinnu-
miðlun höfuðborgarsvæðisins haustið
1995. Frá upphafi ávann hún sér
traust og vináttu allra starfsmanna.
Unnur var um margt óvenjuleg
kona. Þrátt fyrir áralanga baráttu við
erfiðan sjúkdóm gafst hún aldrei upp
og stundaði vinnu sína fram á síðasta
dag. Hún var einstaklega ljúf og glað-
sinna, kom jafnt fram við alla og kom
sér vel hvar sem hún fór.
Hún var æðrulaus vegna eigin
veikinda, trúði á lífið, sá sólina alls
staðar og mátti ekkert aumt sjá.
Börnin og barnabörnin voru sólar-
geislarnir í lífi hennar.
Unnur var skemmtilegur og góður
vinnufélagi, mikill dýravinur, mann-
vinur, fordómalaus og jafnréttissinn-
uð sem kom vel fram í störfum henn-
ar. Þá var einnig gaman að heyra
hana tala um kisurnar sínar. Húm-
orinn hennar naut sín vel í frásögnum
af þeim.
Unnur skrifaði ljóð sem hafa birst í
Lesbók Morgunblaðsins.
Þú ert friðardúfa.
Litla barn.
Þegar þú fæðist
breytast tár mín
í fallegar perlur
handa þér.
Þessar ljóðlínur lýsa Unni betur en
flest annað.
Við vinnufélagarnir söknum henn-
ar sárt og sendum ástvinum hennar
okkar einlægustu samúðarkveðjur.
Starfsmenn Vinnumiðlunar
höfuðborgarsvæðisins.
UNNUR
BJARKLIND
!
"#
! "#
$ %
&'
( )**
+
#, ! -
.
)/ ///
$ %& '(#&
'(#$
) &
$ &
# &
$ *+& '(#
,
!"
##$
!
! "
!"
##$
!""# $" "%&#" "'
! !""# () *%+' "'
! !"'
,-.% !""# ! /*% !)"'
#! .0.*
!
"# $%&! '# " %
"#$$ !
" "# %"#$$ !
"# %"#$$
& %$"(" )
!
!
"
# #
$%
!
% '
$
!
#$
!
%
!"#" #$%"#&''($)
!" #$ %%& ' %%$ (%
%% %! !(% ! )$%&&
!
!
" "#!
!" #$#!"%&' (
!!"