Morgunblaðið - 26.05.2002, Blaðsíða 37
✝ Unnur Káradótt-ir fæddist á Sig-
ríðarstöðum í Ljósa-
vatnsskarði í Suður
Þingeyjasýslu hinn
28. september 1951.
Hún lést á heimili
sínu, Kötlufelli 1,
laugardaginn 18. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar eru Arn-
fríður Róbertsdóttir,
f. 17.10. 1921, og Kári
Angantýr Larsen, f.
15.4. 1913, d. 2.6.
1994. Systkini Unnar
eru: Róbert Kárason,
f. 11.8. 1939, var kvæntur Ragn-
hildi Pálsdóttur og eiga þau fjögur
börn; Helgi Kárason, f. 22.7. 1940;
Herborg Káradóttir, f. 14.4. 1942,
gift Geir Erni Ingimarssyni og
eiga þau fimm börn; Pálmi Kára-
son, f. 29.5. 1944, var kvæntur
Droplaugu Eiðsdóttur og eiga þau
tvö börn; Stefán Kárason, f. 18.2.
1948, kvæntur Margréti Hadds-
dóttur og eiga þau þrjú börn;
Steindór Ólafur Kárason, f. 3.1.
1955, kvæntur Jónu
Þórðardóttur og
eiga þau tvö börn.
Sonur Unnar er
Kári Arnar Guð-
mundsson, f. 19.5.
1971. Faðir hans er
Guðmundur Skarp-
héðinsson, f.
18.3.1951.
Árið 1975 giftist
Unnur Eiði Guð-
mundssyni, f. 6.10.
1954. Þau skildu.
Sambýlismaður Unn-
ar síðastliðin átta ár
er Vignir Hjörleifs-
son, f. 5.11. 1950. Unnur fluttist til
Akureyrar ásamt fjölskyldu sinni
árið 1959 og lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Akureyrar
árið 1968. Hún vann m.a. í mörg ár
sem meinatæknir við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Hún flutt-
ist til Reykjavíkur haustið 1991.
Útför Unnar verður gerð frá
Akureyrarkirkju á morgun,
mánudaginn 27. maí, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku Unnur mín. Nú ertu farin í
þína hinstu för. Söknuður minn er
ólýsanlegur er ég þarf að horfa á eft-
ir bestu vinkonu minni yfirgefa okk-
ur á besta aldri.
Ég mun alltaf minnast þess tíma
er við sátum saman í Kötlufellinu,
spjölluðum um allt milli himins og
jarðar og drukkum saman kaffi. Oft
komstu líka og heimsóttir mig í bak-
aríið og alltaf varð ég jafn glöð að sjá
þig. Við höfum verið vinkonur allt frá
unglingsárum og sá þráður hefur
aldrei slitnað þó að síðasta árið hafi
samverustundirnar verið fleiri. Síð-
asta kvöldið verður mér alltaf minn-
isstætt þegar við Siggi heimsóttum
ykkur Vigni og við áttum góða stund
saman. Við ætluðum svo að hittast
daginn eftir, en margt fer öðruvísi en
ætlað er.
Unnur var yndisleg og góð kona
sem öllum vildi vel. Oft reyndist
henni lífið þó erfitt og oft þurfti hún
að mæta miklu mótlæti, en alltaf gat
hún þó brosað í gegnum tárin.
Elsku Vignir minn. Hugur okkar
Sigga er hjá þér á þessum erfiðu tím-
um. Megi Guð styrkja þig og styðja í
sorginni. Kára Arnari, Öddu og öðr-
um aðstandendum sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Ég kveð þig, elsku vinkona, og
þakka þér fyrir allt sem þú varst
mér.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
( V. Briem.)
Þín vinkona,
Droplaug Eiðsdóttir.
UNNUR
KÁRADÓTTIR
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 37
!
"# # $ %&
!
" ! #
!
$
%#!%
&
'
'$# ( )!# *#!## (+
,-(!# .( $# .( $ + ( #/ ! (
!0 1-0 .( $ ( /2# /2# +
$!3 $# !'.( $ ( !! ( +
(3 ( *#!# (
(!,# *#!#+ 4
(
+1 1 10 &
!
!
" !
#$
$##
%
&
& "
'
(
"#
$ %
&##
'
(!!
#&##
)
&# &&
%
!!
#&&
*
&&
!
+&##
!'
'&#
!
" #$
%
!
!
&
'(
!"
!"
#$
!
% !&$'!
( #
& &'
!' &'
!
! !' &' )
! "
#" $ " % ! ! % &$ '" (
✝ Sigríður Skarp-héðinsdóttir
fæddist í Króki í Víði-
dal 12. apríl 1919.
Hún lést á sjúkrahús-
inu á Hvammstanga
laugardaginn 18. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjón-
in Þuríður Kristín
Árnadóttir, f. 7. júní
1898, d. 14 septem-
ber 1980, og Skarp-
héðinn Skarphéðins-
son, f. 2. júní 1892, d.
2 febrúar 1978.
Systkini Sigríðar
eru: Þuríður, f. 12 apríl 1919, d.
12. júní 2000, Árni, f. 4. júní 1923,
Anna, f. 17. maí 1929, og Baldur, f.
17. október 1930. Dóttir Sigríðar
og Gunnars J. Júlíussonar er
Kristín Gunnarsdóttir, f. 3. sept-
ember 1951. Börn hennar eru Atli
Vignir Hannesson, f. 22. júlí 1974,
og Ólafur Ísberg
Hannesson, f. 22.
febrúar 1981. Árið
1962 giftist hún
Magnúsi Jónssyni
frá Huppahlíð í Mið-
firði, f. 27. maí 1910,
d. 29. ágúst 1997.
Sigríður ólst upp í
Króki í Víðidal hjá
foreldrum sínum.
Sigríður og Magnús
hófu búskap á Hlíð-
arfossi og bjuggu
þar í rúman aldar-
fjórðung en fluttu þá
á Laugabakka í Mið-
firði. Síðustu fjögur árin dvaldist
Sigríður á Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Melstaðakirkju á morgun, mánu-
daginn 27. maí og hefst athöfnin
klukkan 14.
Amma Sigga er látin og komið er
að kveðjustund. Upp birtast margar
minningar um þessa gjafmildu og
hlýju konu sem allt vildi fyrir okkur
gera. Á okkar yngri árum dvöldum
við heilu og hálfu sumrin í Hlíð og
létum dekra við okkur. En amma
hafði alltaf miklar áhyggjur af því að
við fengjum ekki nóg að borða
heima fyrir. Eitt sinn varð Atli svo
bústinn eftir heimsóknina að
mamma og pabbi ætluðu ekki að
þekkja hann er þau komu og sóttu
hann. Þannig var amma, alltaf að
stjana við mann og passaði vel uppá
að aldrei yrði maður svangur. Var
því alltaf mikill matur jafnt sem
kökur á boðstólum, enda öll sumur
mikill gestagangur og allir voru vel-
komnir.
Í Hlíð hafði háaloftið að geyma 8
lítil herbergi og fannst manni þetta
vera eins og stór höll og var Magnús
þar konungur, Guðjón hirðmaður
hans og amma réð ríkjum bak við
tjöldin. Í kjallaranum lifði hundur-
inn Sámur í samlyndi við köttinn og
fengu þau afganginn af matnum.
Gaman þótti okkur að hjálpa til við
búverkin og sáum við þá oftast um
að gefa hænsnunum og elta mýsnar.
Á kvöldin var svo slappað af og
byggðir kastalar úr spilastokkum
sem hrundu jafnóðum og hurðum
var skellt.
Amma hugsaði alltaf meira um
heilsu og vellíðan annarra en sína
eigin og spurði hún ávallt hvort við
værum að fá kvef þegar hún heyrði
minnsta hóst eða ræskingar. Þegar
heilsu Magnúsar fór svo að hraka
urðu þau að bregða búi og fluttu þá
til Laugabakka. Á Laugabakka voru
húsverkin léttari og losnaði hún þar
við búverkin. Gat hún þá sinnt
áhugamálum sínum af meiri kappi,
en spilamennskan átti hug hennar
allan. Við gleymdum okkur þá oft
tímunum saman yfir manna, marías
og fleiri skemmtilegum spilum.
Áhugi ömmu á spilunum dvínaði
ekkert er hún færði sig um set á
sjúkrahúsið á Hvammstanga, en þar
hafði hún góðan félaga, Adda bróður
sinn.
Elsku amma, við vitum að ef ein-
hver á vísan stað í ríki Guðs þá ert
það þú. Við vitum líka að þú passar
upp á okkur núna eins og þú gerðir í
lifanda lífi og við biðjum Guð að
passa upp á þig.
Ólafur og Atli Vignir.
SIGRÍÐUR SKARP-
HÉÐINSDÓTTIR
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.