Morgunblaðið - 26.05.2002, Side 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 39
KIRKJUSTARF
Sumarferð
Öldrunarstarfs
Bústaðakirkju
FARIÐ verður frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 5. júní kl. 10:30.
Áfangastaður er sem fyrr kynntur í
rútunni. Komið til baka að kirkj-
unni kl. 17:00. Kostnaður á mann er
kr. 2.000. Innifalið er rúta, hádeg-
ismatur, síðdegiskaffi, leiðsögn og
aðgangur að söfnum og sýningum.
Þátttaka sé tilkynnt til kirkju-
varða Bústaðakirkju í síma
553 8500 eða til Sigrúnar Sturlu-
dóttur í síma 553 0048 og 864 1448.
Vortónleikar
Grafarvogskirkju
VORTÓNLEIKAR Grafarvogs-
kirkju verða haldnir sunnudaginn
26. maí kl. 17:00.
Barna- og unglingakórinn flytur
kórlögin úr „Sálmar um lífið og
ljósið“ eftir Hjálmar H. Ragnarsson
og Kristján Val Ingólfsson ásamt
verkum eftir W.A.Mozart,
Ch.Gounod og C. Franck.
Kirkjukórinn flytur meðal ann-
arra verka messu eftir Joseph Ha-
ydn ásamt kammersveit og ein-
söngvara sem er Kristín María
Hreinsdóttir. Stjórnendur Oddný
Jóna Þorsteinsdóttir og Hörður
Bragason.
Morgunblaðið/Jim Smart
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borg-
ara í Setrinu á neðri hæð safnaðarheim-
ilis mánudag kl. 13.
Laugarneskirkja. 12 spora fundur mánu-
dag kl. 20. Margrét Scheving sálgæslu-
þjónn leiðir starfið. (Sjá síðu 650 í Texta-
varpi.)
Neskirkja. Mánudagur: Bænastund kl.
18 í kapellu. Litli kórinn, kór eldri borg-
ara, þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga
J. Backman.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bæna-
hópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum
alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 587-
9070.
Hjallakirkja: Þriðjudagur: Prédikunar-
klúbbur presta í Reykjavíkurprófastsæmi
eystra kl. 9.15-10.30. Umsjón: Dr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf
fyrir 9-12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánu-
dögum kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon
fundur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á
mánudagskvöldum í Lágafellskirkju kl.
20. Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla kl.
13.15-14.30. TTT-fundir í safnaðarheim-
ili kl. 16-17. Fundir í æskulýðsfélaginu
Sánd kl. 17-18.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnu-
dag, kl. 19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf
kirkjunnar í Hrakhólum mánudag kl.
17.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Vegurinn. Síðasta fjölskyldusamkoma
vetrarstarfsins kl. 11:00, allir velkomnir.
Óvissuferð, farið í rútu, allir klæði sig
eftir veðri, kostnaður kr. 750 f. full-
orðna, kr. 500 fyrir börn. Bænastund kl.
19:30. Samkoma kl. 20:00, Wynne
Goss predikar, lofgjörð, fyrirbænir og
samfélag. Allir hjartanlega velkomnir.
Ath. aðalfundur safnaðarins verður mið-
vikudaginn 29. maí kl. 20:00. Kynning-
arfundur ársreiknings verður kl. 18:30.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu syngur. Ræðu-
maður Wynne Goss. Barnakirkjan tekur
þátt í samkomunni. Allir hjartanlega vel-
komnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601. Sunnu-
dagur: Vitnisburðarsamkoma kl. 14.
Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30.
Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barna-
starf fyrir börn frá eins árs aldri. Þriðjud.:
Bænastund kl. 20.30. Miðvikud.: Sam-
verustund unga fólksins kl. 20.30. Mikil
lofgjörð og orð guðs rætt. Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Fundur í Æskulýðs-
félaginu í kapellu kl. 17. Mánudagur:
Konur eru konum bestar kl. 20.30 í
safnaðarheimili. Samskipta- og sjálfs-
styrkingarnámskeið fyrir konur, fyrri hluti.
Skráning í síma 462-7700 f.h.
Safnaðarstarf
ÁRLEG vorferð eldri borgara
starfsins í Langholtssöfnuði
verður farin frá kirkjunni 29.
maí kl. 12. Allir eldri borgarar í
sókninni velkomnir. Takið með
ykkur gesti.
Farið verður í útsýnisferð um
Reykjavík. Fararstjóri er Ást-
ríður Guðmundsdóttir frá Leið-
sögumannafélagi Íslands. Ef
veður verður gott er ráðlegt að
vera á góðum skóm svo hægt sé
að fara í smá gönguferð. Ann-
ars er ferðin farin út í óvissuna
í trausti til fararstjórans. Kaffi-
veitingar í Kaffivagninum á
Granda kl. 15.30 þar sem hægt
er að anda að sér gamalkunnum
bryggjuilmi. Ferðinni lýkur við
Langholtskirkju kl. 17. Far-
arkostnaður er 2000 krónur á
mann (innifalið fararstjórn, far-
gjald og veitingar). Greitt skal í
upphafi ferðar. Umsjón með
ferðinni hefur Svala Sigríður
Thomsen djákni Langholtssafn-
aðar. Þátttaka tilkynnist í síð-
asta lagi þriðjudaginn 28. maí
fyrir kl. 14 í síma 520 1300.
Vorferð eldri borgara í Langholtssöfnuði
! "
#
!
! "#$$%
&# $#&&
' "#$#&& ( ')$ &*+$$%
, ,- %' , , ,-
!"
#$
% #
$#$
&$ ! ' (
)
!
" # $%## &
'(%)
(* # $%##
& + # $%## , -)
" # $%##
"#)
* *
) *!
!
!
#
$
% "#$ ! %& #%%&
&%! ' &(
& #
&% #%%& )& %& &
&%(
"#$ & & & #%%&!
!"# $
% &'% &'"
()%% &'* % * +
#(%,&-%"
% &'% &'" (% . / 0"% * %
& % &'* % &%$+%"
"#,%,-%$
smátt kenndi hún okkur að spila.
Ég var ekki orðin þriggja ára þeg-
ar amma byrjaði að spila við mig.
Spilin voru líka notuð sem bygg-
ingarefni, hún kenndi okkur að
byggja hús úr spilum. Einkunn-
arorð hennar voru: Engin börn eru
of ung til þess að læra – og þessu
lifði hún eftir og við nutum góðs
af.
Amma var aldrei rík af verald-
legum gæðum en samt var hún
ríkasta amma í heimi, því Guð gaf
henni svo mikið af þolinmæði, ein-
lægni og gæsku. Stundum fannst
mér ég ekki þurfa að segja ömmu
ef mér leið illa, hún bara vissi það,
og þegar við vorum búnar að tala
saman leið mér miklu betur.
Amma mín þurfti að taka inn lyf
og það fannst henni ekki gott, ég
skildi hana mjög vel því að ég er
svona líka. Stundum stríddi
mamma henni á þessu og sagðist
myndu vilja gera allt fyrir hana,
en meðulin yrði hún sjálf að taka.
Það eru svo margar minningar
sem koma upp í hugann þegar hún
amma mín er annars vegar. Ég
veit að núna er hún hjá öllum ást-
vinum okkar sem eru hjá Guði.
Valur pabbi minn dó fyrir tveimur
mánuðum, hann var frumburður
ömmu og Magnúsar afa, núna geta
þau huggað og passað hvort ann-
að, okkur ömmu og Hreini frænda
leið svo illa þegar hann dó, hann
var svo mikið hjá þeim. Það var
alltaf svo gaman að gera eitthvað
fyrir ömmu, það þurfti ekki að
vera mikið eða stórt, samt var eins
og við hefðum gefið henni gull,
slíkt var þakklæti hennar og gleði.
Henni fannst mjög gaman að
ferðast, bæði á Íslandi og í útlönd-
um. Heilsa hennar leyfði ekki löng
ferðalög síðustu árin, en í fyrra fór
Eyja frænka út með hana og
Hrein frænda í viku, þetta fannst
ömmu toppurinn á tilverunni. Allt-
af þegar talið barst að ferðinni
brosti hún sínu einlæga og fallega
brosi og blik kom í augun.
Elsku amma mín, ég bið að
heilsa Vali pabba og öllum hinum.
Ástarþakkir fyrir alla þína ást,
þolinmæði og einlægni í minn
garð. Ég ætla að geyma minning-
arnar um þig í hjarta mínu, nú og
um alla framtíð.
Far vel að eilífu ástvinur minn,
annist þig guðdómsins kraftur.
Ég kveð þig með tárum í síðasta sinn,
í sæluvist finnumst við aftur.
(Guðlaugur Sigurðsson.)
Guð geymi þig og varðveiti um
aldur og ævi.
Þitt barnabarn,
Kolbrún Rósa.
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er,
að símanúmer höfundar/send-
anda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í
blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina