Morgunblaðið - 26.05.2002, Síða 55

Morgunblaðið - 26.05.2002, Síða 55
upp gamla tíma. „Við vorum svo heppnir að þegar við byrjuðum spiluðum við ekki fyrir krónu en spilagleðin var svo mikil að við lifðum í rauninni bara á því að spila saman í hljómsveit. Þó að þetta færi að vinda upp á sig, fjárhagurinn að batna og vinsældirnar að aukast höfum við ekkert tapað spilagleð- inni, þvert á móti. Við erum einmitt sömu hamhleypurnar og við vorum, sérstaklega við Keli.“ „Ég ætla nú svosem ekki að taka það af þér Jónsi minn, þú ferð þarna í broddi fylkingar í hamagangi og vitleysu,“ skýtur Hrafnkell inn í. „Ég þarf auðvitað góða stuðnings- fulltrúa og þar ert þú, Hrafnkell, mín hægri og vinstri hönd. Þannig að ef stelpurnar eru ekki hrifnar af mér og Kela fyrir djöfulganginn hafa þær Áka, sem er stóíska róin uppmáluð,“ segir Jónsi. „Við erum svona eins og Spice Girls þar sem hver hljómsveit- armeðlimur hefur sín persónu- einkenni,“ grínast Hrafnkell við góðar undirtektir félaga síns. Þeir eru því jafnharðan komnir í djúpar pælingar um hver væri hvað ef um Kryddpíurnar væri að ræða. „Er Doddi ekki Baby-Spice?“ byrjar Jónsi. „Jú og þú ert Sporty-Spice,“ segir Hrafnkell. „Hver er ég? Posh?“ „Nei þú ert Ginger, Einar er Scary og Áki er Posh,“ segir Jónsi, greinilega með staðreyndir á hreinu. Ablutak eða Drifskaft Hljómsveitin Í svörtum fötum hefur verið til í hálft fjórða ár en þeir félagarnir hafa að eigin sögn farið fremur óhefðbundna leið í tón- listarflutningi. „Við byrjuðum á því að spila ein- göngu balltónlist fyrir mun eldra fólk en við spilum fyrir í dag,“ byrj- ar Hrafnkell. „Við byrjuðum á að spila soul- tónlist og okkar aðalstaður var Kaffi Reykjavík. Það var ekki fyrr en við vorum búnir að spila í svona eitt ár sem við fórum að búa til okkar eigið efni. Svo ætluðum við alltaf að breyta nafninu á hljómsveitinni en svo varð það of seint.“ „Já, annars hétum við ábyggilega Ablutak eða Drifskaft í dag,“ segir Jónsi. Nú er tónlistarmarkaðurinn á Ís- landi fremur lítill og komast trúlega færri að en vilja. Er ekkert erfitt að halda sér í baráttunni um vinsæld- irnar? „Ég held að það sé ekki erfitt ef maður hefur gaman af þessu,“ svar- ar Jónsi. „Ég held að þetta verði erfitt um leið og maður fer að hugsa um þetta sem einhverja brjálaða samkeppni. Þetta er bara svo gaman að maður nennir ekki að velta sér upp úr því,“ segir Hrafnkell og þeir félagar halda áfram á bjartsýnu nótunum. „Þetta er æskudraumurinn minn að rætast. Vitanlega er þetta vinna, en þetta er bara svo skemmtileg vinna,“ segir Jónsi. „Já, en þetta getur verið erfitt því maður er kannski misvel stemmdur persónulega,“ segir Hrafnkell. „En það bara má ekki, maður er svona eins og leikari og er búinn að lofa áhorfandanum sýningu.“ Höfum engu stolið Eigið þið ykkur einhverjar fyr- irmyndir? „Mér finnst hinir strákarnir í hljómsveitinni vera svolítið mínar fyrirmyndir og ég væri til í að til- einka mér kostina þeirra,“ svarar Jónsi. „Svo get ég nefnt Vilhjálm Vilhjálmsson og konuna mína. Mér finnst hún vera dugleg og sterk.“ „Ég á mér náttúrulega fullt af fyr- irmyndum í lífinu,“ segir Hrafnkell. „Vissulega er fullt af hljómsveitum sem hafa komið á undan okkur sem maður hefur óneitanlega horft til.“ „Maður er jú alltaf að safna í sarpinn og búa meira til úr þessari listsköpun sinni sem þessi sveita- ballamarkaður er og þá hef ég svo- lítið verið að stela …“ segir Jónsi en Hrafnkell grípur fram í fyrir hon- um: „Nei þú hefur engu stolið.“ „Nei, allt í lagi,“ samsinnir Jónsi. „Ég hef ekki stolið nokkrum sköp- uðum hlut frá Guano Apes eða Sys- tem of a Down.“ Að lokum langaði blaðamann að forvitnast um sann- leiksgildi þeirrar flugufregnar að liðsmenn hljómsveitarinnar klædd- ust alltaf einhverri svartri flík á tón- leikum til að standa undir nafni. Þær upplýsingar eru honum lagðar í té að söngvarinn klæðist alltaf svörtum sokkum á sviði og að hann hafi hér með gert það að þeirri hjátrú að gera það alltaf í framtíð- inni. birta@mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 55 sældalistunum þegar Elísabet held- ur upp á valdaafmælið fyrstu vik- una í júní. Lagið naut mikilla vinsælda árið 1977 þótt það væri lít- ið i spilað í breskum útvarps- eða sjónvarpstöðvum og komst í 2. sæt- ið á breska vinsældarlistanum á eft- ir laginu „I Don’t Want to Talk About It“ með Rod Stewart. Enn er orðrómur á kreiki um að selst hafi fleiri eintök af lagi Sex Pistols. Reuters Johnny Rotten og Sex Pistols tróðu upp á Hróarskelduhátíð- inni í Danmörku árið 1996.                

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.