Morgunblaðið - 26.05.2002, Blaðsíða 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 12
mánudaginn 27. maí!
Blaðaukinn
Sumarferðir 2002
kemur út 1. júní
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða netfang: augl@mbl.is ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dans-
leikur öll sunnudagskvöld.
GAUKUR Á STÖNG: Blúskvöld
sunnudagskvöld kl. 21.
KAFFI KRÓKUR, Sauðárkróki:
KK með tónleika sunnudagskvöld.
O’BRIENS, Laugavegi 73: James
Hikman sunnudags- og fimmtudags-
kvöld.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
SKÁLKURINN Eminem erkominn aftur á kreik; útgáfuá nýjum disk hans hefur ver-ið flýtt þar sem tónlistin af
honum er komin á Netið. Útgefandi
kappans telur að fátt muni draga
eins úr sölu á disknum og ólögleg
fjölföldun, en ekki er bara að útgáfu
diskins er flýtt til að sjá við sjóræn-
ingjum, heldur fylgir disknum ým-
islegt aukaefni, þar á meðal DVD-
diskur með viðtali við pilt, aukalög-
um, myndbandi og teiknimynd..
Fáir tónlistarmenn hafa eins
stuðað menn vestan hafs og Em-
inem gerði með fyrstu skífu sinni,
The Slim Shady LP, sem kom út
fyrir þremur árum eða um það bil.
Það er gráglettni örlaganna að Em-
inem getur þakkað Netinu það hve
mikil spenna og eftirspurn mynd-
aðist eftir skífunni áður en hún kom
út, enda voru lög eins og
Guilty Conscience búin að slá
rækilega í gegn í netheimi áður en
platan kom út. Um leið og skífan
kom út má þó segja að Eminem hafi
ekki þurft á neinni aðstoð að halda,
hann varð umsvifalaust umdeildasti
tónlistarmaður Bandaríkjanna fyrir
orðbragð sitt og inntak textanna.
Það hefði þó dugað skammt ef ekki
væri meira í boði; það var tónlistin
sem gerði útslagið, flæðið hjá Em-
inem og frábærar útsetningar Dr.
Dre sem sannaði í eitt skipti fyrir
öll að í hiphopinu kemst enginn með
tærnar þar sem hann hefur hælana.
Hatrammar deilur
Deilurnar um Eminem áttu eftir
að verða enn hatrammari sem vin-
sældir hans jukust og íhaldsmenn
vestan hafs lögðust á eitt um að
reyna að múlbinda kappann. Hann
var sakaður um flest það sem
mönnum datt í hug; að spilla æsku
landsins, hvetja til eiturlyfjaneyslu
og ólifnaðar, vera upp fullur með
kvenfyrirlitningu og hommafælni
og svo má telja. Allt umtalið varð
svo til að halda honum í sviðsljósinu
og í ljósi þessa að hann var að ríma
um allt það sem krakkarnir ræddu
sín á milli en þorðu ekki að segja
inni í stofu, eins og segir í einu laga
hans, var varla nema furða að hann
varð eitt helsta átrúnaðargoð ung-
menna víða um heim.
Ári eftir að Slim Shady-skífan
kom út, og dró nafn sitt af auka-
sjálfi sem Eminem hafði komið sér
upp, kom svo næsta plata, The
Marshall Mathers LP, og vakti ekki
minni athygli. Sú plata, sem var
með bestu plötum ársins 2000, tók
af tvímæli með það að Eminem er
fyrst og fremst frábær rappari, með
magnað flæði og tímasetningu, en
hann er líka afbragðs textasmiður.
Það vildu þó margir ekki við-
urkenna, einna helst margir litir
rapparar, sem töldu að sér vegið,
hiphop væri bara fyrir blökkumenn;
einskonar öfugsnúið kynþáttahatur.
Ókræsilegt orðbragð
Orðbragðið var ekki kræsilegra
en á fyrri skífunni, en meira spunn-
ið í textana. Á fyrri plötunni átti
ekki að dyljast fyrir neinum að fíg-
úran Slim Shady var í aðal-
hlutverki, en þrátt fyrir það áttu
margir erfitt með að greina á milli
skáldskaparins og hins raunveru-
lega Eminems. Á Marshall Mathers
plötunni gefur Eminem þeim langt
nef og flækir málin svo um munar,
nánast ógerningur er að greina á
milli sannleika og skreytni á plöt-
unni, aukinheldur sem hann tekur
allt það jóss sem á honum dundi eft-
ir að Slim Shady-platan kom út og
nýtir sem skotfæri í harkalegri árás
á þá sem veist hafa hvað mest af
honum. Í því er hann eins og púkinn
á fjósbitanum, því meira sem menn
amast við honum eflist hann að
sama skapi. Eftir því var líka tekið
á skífunni að hans nánustu fengu að
finna til tevatnsins, sérstaklega
Kim barnsmóðir hans og móðir
hans. Um það leyti sem platan kom
út var móðir hans reyndar í máli við
hann, krafðist að fá hálfan milljarð
fyrir að Eminem hefði látið þau orð
falla á fyrri skífunni að hún hefði
verið dóphaus og óhæf sem foreldri.
Myndbönd sem gerð voru við lög
af skífunni urðu ekki til að draga úr
deilum um kappann, til að mynda
myndbandið við Stan sem var til í
þremur útgáfum mis-ritskoðuðum
eftir því hvenær dags átti að sýna
það.
Við sama heygarðshornið
Biðin hefur mörgum þótt vera
löng eftir nýrri skífu frá Eminem
og fjölmargir reyndar spáð því að
saga hans sé öll, umtalið og orð-
bragðið hafi selt plötur fyrir hann.
Á skífunni nýju, The Eminem
Show, sem var flýtt fram í byrjun
þessarar viku, er þó ekki annað að
heyra en kappinn sé í fínu formi,
textalega hefur hann ekki verið
betri og tónlist á plötunni er bráð-
vel heppnuð. Skotin eru föst, sjá til
að mynda upphafslag plötunnar þar
sem hann bendir enn á hræsni og
yfirdrepsskap bandarískra hægri-
manna og eiginkona Cheyneys
varaforseta fær sérstaklega til te-
vatnsins. Eins og Eminem bendir á
í laginu er rappið bara vandamál í
Boston, en ekki í Harlem og líkastil
hefði hann ekki vakið eins mikið og
illt umtal, og ekki náð eins mikilli
sölu, ef hann hefði ekki verið hvítur.
Fleiri fá á baukinn á skífunni
nýju, og óþarft að tíunda það frek-
ar, en nefna má þó að enn eitt upp-
gjör Eminems við móður sína er
þar að finna, óþægilega opinskátt
og grimmdarlegt.
The Eminem Shower er harðari
en fyrri skífur Eminems, ekki síst
fyrir það að hann stýrir sjálfur upp-
tökum á meira en helmingi laganna.
Óhætt er að spá því að hún eigi eftir
að seljast eins vel og fyrri verk
hans, ef ekki betur, en ekki má
gleyma því að hann er búinn að
selja 27 milljón eintök af þeim tveim
plötum sem hann hefur gefið út.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Eminem
á kreik
Bandaríski rapparinn Eminem sendir frá sér sína
þriðju breiðskífu í vikunni, en plötunni var flýtt til
að bregðast við dreifingu á Netinu.
Reglan
(The Order)
Spennumynd
Bandaríkin, 2000. Myndform VHS. (90
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn:
Sheldon Lettich. Aðalhlutverk: Jean-
Claude Van Damme, Vernon Dobtcheff,
Charlton Heston.
BELGÍSKA vöðvabúntið Jean-
Claude Van Damme hefur átt erfitt
uppdráttar síðustu ár líkt og aðrar
útblásnar hasarstjörnur í Hollywood
(s.s. Arnold og Sly) en þó er engan
bilbug að finna á kappanum. Reynd-
ar náði Jean-
Claude aldrei
neinni fótfestu í
dýrari tegund has-
armynda og því
e.t.v. auðveldara
fyrir hann en suma
aðra að brjóta odd
af oflætinu og
hreiðra um sig ódýrri fjöldafram-
leiðslu á borð við Regluna. En þótt
flugspörkin séu ekki jafnauðveld og
þau voru fyrir tíu árum og hasarsen-
urnar brotnar niður í fleiri klipping-
ar en áður, er Jean-Claude hér í fínu
formi og hasarinn stendur fyrir sínu.
Engar kröfur eru gerðar til áhorf-
enda aðrar en þær að þeir séu með á
nótunum í söguformúlunni og hafi
gaman af fjarstæðukenndum slags-
málaatriðum. Ef þessi lýsing á við
um þig bjóðast án efa verri kostir en
þessi á myndbandaleigunni. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Stirð
flugspörk
Fornbílaklúbburinn
(RPM)
Spennumynd
Bandaríkin, 2001. Bergvík VHS. (90
mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn:
Ian Sharp. Aðalhlutverk: David Arquette,
Emmanuelle Seigner og Famke Janssen.
FRÁSÖGN kvikmyndarinnar
RPM um samkeppni tveggja bíræf-
inna bílaþjófa á alþjóðlegri fornbíla-
sýningu í Frakklandi mun eflaust
veita áhugamönnum um sígildar bif-
reiðar umtalsverða ánægju en okkur
hinum reynist það
þrautin þyngri að
endast í gegnum
þessa hjákátlegu
og frumstæðu til-
raun til hasar-
myndagerðar.
Framvinda og per-
sónusköpun eru
einfeldningslegar svo ekki sé meira
sagt, leikarar eru til trafala hvað
varðar áherslu kvikmyndatöku-
manns á fallega fornbíla og yfir öllu
vakir síðan einhver einkennilegur
blær áhugamannavinnu eða hæfi-
leikaleysis sem gerir það að allt að
því vandræðalegri upplifun að horfa
á myndina. Vert er þó að ítreka þann
ótrúlega fjölda fallegra bifreiða sem
söguhetjurnar geysast á um franska
sveitalandslagið en þar með eru
kostir myndarinnar upptaldir. ½
Heiða Jóhannsdóttir
Fornbílar
í góðum gír