Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ dómi í gær var Rekstrarfélagi
Kringlunnar gert að setja aftur upp
rúllustiga sem voru fjarlægðir í jan-
úar 2001. Þetta skal gert innan 30
daga. Jafnframt var fellt úr gildi leyfi
byggingarfulltrúans í Reykjavík fyrir
framkvæmdunum, enda hafði rekstr-
arfélagið ekki heimild til að sækja um
það.
Stjórn Rekstrarfélags Kringlunnar
tók ákvörðun um að fjarlægja rúllu-
stigana í lok árs 2000. Þessari ákvörð-
un mótmæltu verslunareigendur í ná-
grenni rúllustiganna sem sögðu að
stjórnin hefði ekki umboð til að taka
slíkar ákvarðanir. Eftir að stigarnir
voru fjarlægðir höfðuðu átta verslun-
areigendur mál gegn rekstrarfélag-
inu auk Sparisjóðs Hafnarfjarðar
sem rekur S24.
Það er álit Arngríms Ísbergs hér-
aðsdómara, eftir að hafa kynnt sér að-
stæður á vettvangi og gögn málsins,
að brottnám rúllustiganna hafi valdið
gjörbreytingu á umferð milli hæða
sem hafi með breytingunum verið
beint á aðra staði í Kringlunni. Þetta
hljóti að hafa í för með sér breytingu á
umferð viðskiptavina og kunni þar
með að hafa áhrif á verslun þeirra.
Samkvæmt þessu er það niðurstaða
dómsins að brottnám rúllustiganna sé
veruleg breyting á fasteigninni. Því
hafi stjórn Rekstrarfélags Kringl-
unnar ekki verið heimilt að taka
ákvörðun um að fjarlægja stigana án
þess að bera þá ákvörðun fyrst undir
félagsfund en ¾ hluta atkvæða hefði
þurft til að samþykkja breytingarnar.
Björn Ólafur Hallgrímsson hrl.
flutti málið fyrir hönd verslunareig-
enda. Ragnheiður Ólafsdóttir hdl. var
til varnar fyrir rekstrarfélagið en
Hjörleifur B. Kvaran fyrir Reykja-
víkurborg.
Héraðsdómur dæmir Rekstrarfélag Kringlunnar
Setji rúllustigana upp á
nýjan leik innan 30 daga
SÆTTIR náðust í deilu læknanema
og Landspítala – háskólasjúkrahúss í
gær og að sögn Jóhannesar M. Gunn-
arssonar, lækningaforstjóra LHS,
eru allir ánægðir með niðurstöðuna.
Deilan stóð um meint loforð um
breytt laun læknanema en í yfirlýs-
ingu frá spítalanum og læknanemum
segir að hún hafi verið leyst í sam-
vinnu við læknadeild. „Spítalinn mun
efla handleiðslu og formlega kennslu
læknanema í sumarstarfi þannig að
læknadeild geti viðurkennt þennan
tíma sem hluta af kennslutíma þeirra
og þannig stytt heildarnámstímann,“
segir m.a. í yfirlýsingunni.
Jóhannes M. Gunnarsson segir að
mikill ávinningur fyrir alla sé fólginn
í því að þjappa náminu saman. Nem-
arnir komist fyrr út á vinnumarkað-
inn og þar liggi ansi miklir peningar.
Hann segir að þetta ætti að vera öðr-
um skólum fyrirmynd, því mikilvægt
sé að nýta tímann eins vel og hægt sé
og það sé ákveðinn ávinningur fyrir
skólann og samfélagið að reyna að
koma fólki í gegnum skólana á sem
skemmstum tíma án þess að slá af
kröfum.
Læknanemarnir hófu störf í gær
en um er að ræða 43 nema í Reykja-
vík og 3 á Akureyri. Jóhannes segir
að deilur séu hvimleiðar en niður-
staðan að þessu sinni komi öllum til
góða. Hugmyndin um fyrrnefnt fyr-
irkomulag sé ekki ný af nálinni en
deilan hafi flýtt fyrir því að hrinda
henni í framkvæmd.
Sættir í deilu lækna-
nema og Landspítala –
háskólasjúkrahúss
Vinnutími
hluti af
kennslu-
tíma
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra átti fund með Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í
höfuðstöðvum hans í Ramallah í
gær. Höfuðstöðvarnar bera enn
greinileg merki um umsátur Ísr-
aelshers og þurfti Halldór að
smeygja sér framhjá uppstöfluðum
sandpokum til að komast þar inn.
Hann segir fundinn þó hafa verið
mjög góðan og að hann hafi fundið
meiri friðarvilja hjá Arafat en hann
hafi kannski átt von á.
„Hann er ákaflega elskulegur
maður og ég hafði ánægju af því að
tala við hann,“ sagði Halldór eftir
fundinn. „Hann talaði mikið um sitt
líf og sína reynslu og ég tel að hann
hafi verið einlægur.“ Þá sagðist
Halldór ekki telja að Arafat hafi
staðið á bak við hryðjuverkaárásir á
Ísraela. „Það er vissulega eitt að
bera ábyrgð á hlutunum og annað
að gera sitt besta til að koma í veg
fyrir þá, en ég tel ekki að Arafat
standi á bak við hryðjuverk,“ sagði
hann.
„Met heimsóknina mikils“
Að fundinum loknum fylgdi Ara-
fat Halldóri út úr byggingunni þar
sem hann þakkaði honum sér-
staklega fyrir að koma á þessum
erfiðu tímum. „Ég met heimsóknina
mikils,“ sagði hann. „Við þurfum á
hjálp að halda við að bjarga frið-
arferli hinna hugrökku.“
Arafat sagði Palestínumenn enn
vilja standa við þá friðarsamninga,
sem þeir Rabin hafi undirritað, þrátt
fyrir að þeir búi við mjög erfiðar að-
stæður og allir innviðir stjón-
skipulags þeirra hafi verið eyðilagð-
ir. Þá sagði hann það ekki einungis
hagsmunamál Palestínumanna að
geta búið í friði með börnum sínum
og barnabörnum heldur einnig Ísr-
aela enda sýni nýjustu skoð-
anakannanir að 59% Ísraela styðji
friðarferlið.
Hann lagði þó áherslu á mikilvægi
þess að alþjóðasamfélagið legði sitt
af mörkum til að bjarga friðarferl-
inu og sagði að þar sem væri vilji
væri von. Halldór tók undir það að
alþjóðasamfélagið yrði að koma að
lausn deilunnar fyrir botni Miðjarð-
arhafs þar sem hann telji útilokað að
Ísraelar og Palestínumenn geti sjálf-
ir leyst þau mál.
Hæfilega bjartsýnn
„Ég er hæfilega bjartsýnn,“ sagði
hann. „Ég tel að það séu ákveðnir
möguleikar í þessari stöðu. Ég er
búinn að tala við mjög marga og eft-
ir að hafa talað við Yasser Arafat er
ég fullviss um að það er hægt að
finna lausn á vandanum en það verð-
ur þó að gerast á næstu dögum.“
Halldór sagðist hafa rætt þessi
mál við ýmsa þjóðarleiðtoga að und-
anförnu og kvaðst ætla að halda
áfram að vinna að lausn deilunnar
að því marki sem honum væri unnt.
Hann teldi það þó ekki vera hlut-
verk Íslendinga að grípa inn í deil-
una með beinum hætti.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hitti Arafat í Ramallah
Ákaflega elsku-
legur maður
Morgunblaðið/Sigrún Birna
Arafat heldur í hendur Halldórs Ásgrímssonar og Hauks Ólafssonar, sendifulltrúa á alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Helgi Ágústsson, sendi-
herra Íslands í Ísrael, er vinstra megin á myndinni. Eins og sjá má var Arafat léttur í lundu og lék á als oddi þegar hann hitti hina íslensku gesti.
Halldór heimsótti gömlu borgina í Jerúsalem í fyrradag.
Ramallah. Morgunblaðið.
Utanríkisráðherra notaði tækifærið og baðaði sig í Dauðahafinu í gær.
FRÁFARANDI bæjarstjórn Borg-
arbyggðar samþykkti á fundi sínum í
gær að semja við Njarðtak ehf. um
sorphirðu í sveitarfélaginu og rekst-
ur gámastöðvar í Borgarnesi næstu
fjögur árin. Að sögn Stefáns Kal-
mannssonar bæjarstjóra er samn-
ingurinn upp á 16,3 milljónir árlega
næstu fjögur árin. Samþykkt bæjar-
stjórnar var gerð á grundvelli úr-
skurðar kærunefndar útboðsmála
sem ógilti ákvörðun bæjarstjórnar
frá 14. mars sl. um að hafna öllum til-
boðun í sorphirðu og bjóða verkefnið
út að nýju.
Búist er við að viðræður við Njarð-
tak hefjist strax á næstu dögum.
Sorphirða
í Borgarbyggð
Samþykkt
að semja við
Njarðtak
♦ ♦ ♦