Morgunblaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 18
SUÐURNES
18 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
EINAR Njálsson verður ekki endur-
ráðinn bæjarstjóri í Grindavík. Það
varð ljóst eftir að það slitnaði upp úr
viðræðum Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks um endurnýjun
meirihlutasamstarfs og sjálfstæðis-
menn gengu til samstarfs við Sam-
fylkinguna um myndun nýs meiri-
hluta.
Sjálfstæðismenn settu það skilyrði
í upphafi viðræðna við framsóknar-
menn í fyrrakvöld að ráðinn yrði nýr
bæjarstjóri og að þeir myndu ráða
hver það yrði. Hallgrímur Bogason,
efsti maður á lista Framsóknar-
flokksins, sagði að eftir stuttan fund
hefði verið ákveðið að framsóknar-
menn bæru saman bækur sínar í há-
deginu daginn eftir og svöruðu því
síðan hvort þeir væru reiðubúnir til
meirihlutamyndunar á þessum
grundvelli. Hann neitaði því að
fulltrúar framsóknarmanna hefðu
svarað þessari kröfu þarna um kvöld-
ið, þótt þeir hefðu vissulega látið þá
skoðun í ljós að það væru mikil mis-
tök að endurráða ekki Einar Njáls-
son, en sjálfstæðismenn hefðu greini-
lega gefið sér svör þeirra fyrirfram
fyrst þeir væru að mynda meirihluta
með Samfylkingunni.
Ómar Jónsson, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins, staðfesti það að
sjálfstæðismenn gerðu kröfu til bæj-
arstjórastólsins. Þeir hefðu náð því
fram í samstarfi við Samfylkinguna
en vildi ekki gefa upp hvaða mann
þeir væru með í huga, sagði að það
kæmi í ljós á mánudag. Nýr meiri-
hluti ætlaði að koma með ný viðhorf
og nauðsynlegt hefði verið að skipta
um bæjarstjóra. Tekur Ómar það
fram að málið snúist ekki um persónu
Einars Njálssonar, einungis um hann
sem bæjarstjóra.
Hallgrímur Bogason segir að
Grindvíkingar séu með besta bæjar-
stjóra landsins og honum hafi gengið
vel í störfum sínum. Það sé sorglegt
að talið sé nauðsynlegt fyrir menn að
vera í einhverjum sérstökum póli-
tískum litum til að geta unnið að góð-
um verkum fyrir bæjarfélagið.
Hörður Guðbrandsson, efsti mað-
ur á lista Samfylkingarinnar, segir
ekki óeðlilegt að skipta verkum með
þeim hætti sem gert er, meðal annars
að sjálfstæðismenn fái bæjarstjóra-
embættið. Samkvæmt viljayfirlýs-
ingu sem fulltrúar Samfylkingarinn-
ar og Sjálfstæðisflokksins undir-
rituðu seint í fyrrakvöld fær D-listinn
einnig formann bæjarráðs en S-list-
inn fær embætti forseta bæjarstjórn-
ar. Framboðin skipta á milli sín
nefndastörfum.
Eftir að útfæra
málefnasamning
Stefnt er að því að ganga frá mál-
efnasamningi nýja meirihlutans á
mánudag. Í viljayfirlýsingunni eru
einungis tvö mál nefnd, bæði áhuga-
mál S-listans. Kveðið er á um að
Grindavíkurbær muni sækjast eftir
því að gerast reynslusveitarfélag um
rekstur heilsugæslunnar og að fylgt
verði fast eftir samningi sem gerður
var við sýslumann um löggæslu í bæj-
arfélaginu. Hörður segir að útfærsla
málefna sé að öðru leyti óunnin og
tekur fram að ekki verði endanlega
ljóst hvort af meirihlutasamstarfi
þessara tveggja flokka verði fyrr en
hann hafi verið undirritaður.
Sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn hafa verið í meirihlutasam-
starfi í bæjarstjórn Grindavíkur síð-
astliðin 20 ár, fyrir utan tvö ár á
miðju því kjörtímabili sem nú er að
ljúka en þá unnu framsóknarmenn
með Samfylkingunni. Einar Njálsson
var ráðinn bæjarstjóri fyrir fjórum
árum en hann var áður bæjarstjóri á
Húsavík.
Viljayfirlýsing um meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
Sjálfstæðismenn ráða
næsta bæjarstjóra
Grindavík
ÍBÚAR Grindavíkur, Sandgerðis og
Reykjanesbæjar halda sjómannadag-
inn hátíðlegan á sunnudag. Í Grinda-
vík er sjómanna- og fjölskylduhátíð
alla helgina undir heitinu Sjóarinn sí-
káti.
Mikil hátíðahöld eru í Grindavík
alla sjómannadagshelgina, eins og áð-
ur á Sjóaranum síkáta. Í dag er þétt
dagskrá frá klukkan 11 og lýkur með
sjómannadagsböllum. Á sjómanna-
daginn heldur dagskráin áfram og
þar rísa hátíðarhöldin við höfnina
hæst en þau hefjast klukkan 14.
Dagskrá er báða dagana í Sand-
gerði, meðal annars sjómannaball í
Samkomuhúsinu í kvöld og skrúð-
ganga og hátíðarhöld við höfnina á
morgun.
Í Reykjanesbæ er sjómannamessa
í Ytri-Njarðvíkurkirkju í fyrramálið
og dagskrá í Reykjaneshöllinni
klukkan 15 á sjómannadaginn. Þá er
Bátasafn Gríms Karlssonar opið.
Mikil dag-
skrá á Sjóar-
anum síkáta
Suðurnes
ÞEMAVIKU í grunnskólanum í
Sandgerði lauk í gær með sýningu
nemenda á verkefnum um umhverfi
og umhverfisvernd sem þau höfðu
unnið að alla vikuna.
Umhverfið og umhverfisvernd
var umfjöllunarefni nemendanna á
þemavikunni. Markmiðið var meðal
annars að kenna þeim að umgang-
ast náttúruna og bera virðingu fyr-
ir henni, læra umhverfisvæn vinnu-
brögð og gildi gróðursetningar og
landgræðslu.
Unnu nemendur í tveimur hópum
að ýmsum verkefnum sem þessu
tengjast. Hópar kynntu sér lífræna
ræktun, sáðu grasfræi og lúpínu og
báru á áburð, tíndu rusl og flokk-
uðu, endurunnu pappír og könnuðu
umhverfisvitund íbúa í Sandgerði,
svo nokkur dæmi séu nefnd.
Í gær flutti Steingrímur Her-
mannsson, fyrrverandi forsætisráð-
herra, erindi um umhverfi og um-
hverfisvernd og opnuð var sýning á
afrakstri vikunnar. Pétur Brynj-
arsson skólastjóri segir að þema-
vikan hafi heppnast vel, börnin hafi
lært heilmikið og telur hann að tek-
ist hafi að skapa með þeim ákveðna
umhverfisvitund.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Nemendur fylgjast með erindi Steingríms Hermannssonar um umhverf-
ið og umhverfisvernd en hann miðlaði börnunum af reynslu sinni.
Læra um
umhverfið
og um-
hverfis-
vernd
Þetta rusl tíndu nemendur grunnskóla Sandgerðis af girðingum við inn-
keyrsluna í bæinn og víðar í upphafi þemavikunnar og sýndu í gær.
Sandgerði
HÁTT í 60 nemendur úr Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar taka þátt í
fyrsta lúðrasveitardeginum á Íslandi
en hann er í dag. Þrjár lúðrasveitir
skólans taka þátt í skrúðgöngu í
Reykjavík og leika á tónleikum þar.
Samtök íslenskra skólalúðra-
sveita, SÍSL, og Samband íslenskra
lúðrasveita, SÍL, standa fyrir lúðra-
sveitadeginum. Tilgangurinn er að
vekja athygli á starfsemi lúðrasveita.
Lúðrasveitir landsins eru hvattar
til að efna til einhverrar dagskrár í
sinni heimabyggð í tilefni dagsins, en
mestu hátíðarhöldin verða í Reykja-
vík. Dagskrá dagsins þar hefst með
því að bæði skólalúðrasveitir og
áhugamannalúðrasveitir af höfuð-
borgarsvæðinu safnast saman í
Hljómskálagarðinum þar sem verð-
ur samæfing kl.13.30. Þaðan leggur
svo skrúðganga af stað kl. 15 með öll-
um þátttökusveitunum, eftir Frí-
kirkjuvegi, niður á Lækjartorg, eftir
Austurstræti niður á Ingólfstorg,
þar sem verða tónleikar kl.15.40.
Lúðrasveitir nemenda úr Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar taka þátt í há-
tíðarhöldunum þar, eins og fyrr seg-
ir.
Taka þátt
í lúðra-
sveitardegi
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦
ANDARUNGI klaktist úr eggi við
hitaveiturör í fjölbýlishúsi í Kefla-
vík. Fannst unginn fyrir tilviljun í
gær og þar
sem enginn
íbúi hússins
kannaðist við
að hafa komið
eggi þarna
fyrir tóku
starfsmenn
Húsdýra-
garðsins í
Reykjavík að
sér að fóstra
hann.
Hilmar Bragi Bárðarson, ljós-
myndari Víkurfrétta, heyrði tíst í
forstofu fjölbýlishússins sem hann
býr í. Hélt hann fyrst að starra-
hreiður væri komið í húsið en
heyrði svo að hljóðið kom úr
stokki þar sem hitaveituinntakið
er. Þar reyndist vera andarungi,
greinilega nýskriðinn úr eggi.
Enginn kannaðist við að hafa sett
egg á þennan stað og telur Hilmar
líklegast að börn hafi verið að
verki.
Hilmar Bragi segir að illa hafi
gengið að koma brauði og vatni í
ungann og því hafi hann hringt í
starfsfólk Húsdýragarðsins í
Reykjavík og það boðist til að taka
ungann í fóstur eftir að hafa heyrt
sögu hans. Ók Hilmar Bragi með
fuglinn þangað og telur að hann sé
þar í góðum höndum.
Kom í heim-
inn í fjöl-
býlishúsi
Keflavík