Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 20
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
20 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Kristín Cardew á vinnustofu sinni.
ÞAÐ gerist ekki á hverjum degi að
fólk taki sig upp í París og setjist
að á Eyrarbakka.
Þetta gerðu þau þó, Kristín Car-
dew og eiginmaður hennar Tristan
Cardew ásamt dætrunum, Lilju,
sem er þriggja og hálfs árs og Bel-
indu sem er tveggja ára.
Síðan eru liðin tæp tvö ár og
þeim hefur bæst sonur í fjölskyld-
una, Duncan sem er aðeins fimm
mánaða Eyrbekkingur.
Kristín er fatahönnuður, hannar
og framleiðir kvenfatnað sem hún
síðan selur í gegnum fyrirtæki með
verslun sem hún rekur ásamt
tveimur konum og ber nafn henn-
ar.
Verslunin er við Skólavörðustíg í
Reykjavík. Tristan aðstoðar Krist-
ínu og prjónar með henni voðirnar,
sem hún síðan sníður úr og saumar
margvíslegar flíkur, jafnt peysur
sem fínustu kjóla.
Þau flytja sjálf inn garnið sem er
mjög misgróft, eftir því sem fram-
leiða skal. Nú er sumarlínan á
prjónunum, ef svo má segja.
Kristín fer oft í viku hverri til
Reykjavíkur og segir það ekki mik-
ið mál, það er sjaldan verulega vont
á veturna og ferðin tekur ekki
meiri tíma en fólk þarf til að kom-
ast milli heimilis og vinnustaðar
víðast hvar í erlendum borgum.
Henni finnst kyrrðin, góða loftið
og hreina vatnið vera hreinasta dá-
semd.
Þau Kristín og Tristan kynntust
er þau voru við nám í þverflautu-
leik við tónlistarskóla í París. Krist-
ín hefur bæði leikið opinberlega og
kennt, m.a. á námskeiði á Akureyri
ásamt Manuelu Wiesler. Aðspurð
segist Kristín alveg hætt að spila,
en segir að Tristan spili dálítið.
Hún kveðst einnig hafa lokið 8.
stigi í söng frá Söngskólanum.
Húsið þeirra Eyrargata 30, betur
þekkt undir nafninu Reginn (Há-
eyri) var byggt árið 1907. Það er
tvílyft og stendur á háum kjallara,
sem er reyndar sá fyrsti gerður af
steinsteypu á Eyrarbakka og senni-
lega á Suðurlandi. Upphaflega var
járnsmíðaverkstæði í kjallaranum,
gullsmíðastofa á hæðinni, auk þess
að þar var fyrsta símstöðin, er sím-
inn kom 1909. Einnig var svo íbúð í
húsinu.
Prjóna- og hönn-
unarverkstæði
Eyrarbakki
OPINN fundur um málefni ferða-
þjónustu í Sveitarfélaginu Árborg
var haldinn nýlega í veitingasalnum
Inghól á Selfossi. Þar var kynnt ný
stefna Sveitarfélagsins Árborgar í
ferðamálum. Meginmarkmið stefn-
unnar er að styrkja grundvöll ferða-
þjónustu í sveitarfélaginu og búa í
haginn fyrir frekari sókn á þeim
vettvangi.
Rögnvaldur Guðmundsson, ferða-
málafræðingur hjá Rannsóknum og
ráðgjöf ferðaþjónustunnar ehf.,
kynnti skýrslu sem hann vann fyrir
sveitarfélagið til undirbúnings
stefnumótuninni. Einnig vann hann
rannsókn á viðhorfum innlendra og
erlendra ferðamanna til Árborgar,
en til Árborgar teljast Selfoss, Eyr-
arbakki, Stokkseyri og dreifbýli Ár-
borgar. Vinna við verkefnið hófst ár-
ið 1999. Í skýrslunni koma fram
fjölmargar hugmyndir sem geta
nýst bæði sveitarfélaginu og sjálf-
stæðum aðilum ferðaþjónustu í Ár-
borg. Einnig kynnti Sverrir Sv. Sig-
urðarson, deildarstjóri atvinnu- og
upplýsingadeildar hjá Árborg, en
hann sinnir ferðamálum fyrir hönd
Árborgar, sín viðhorf í stuttu máli og
kynnti ferðamannabækling sem nú
er unnið að.
Þar kom fram að ákveðið hefði
verið að nota persónuna Bjössa á
mjólkurbílnum til kynningar á Ár-
borg. Suðurland er sem kunnugt er
stærsta mjólkurframleiðslusvæðið á
landinu, og er stærsta fyrirtækið
sem sinnir vinnslu mjólkurafurða,
Mjólkurbú Flóamanna, á Selfossi.
Bjössi verður byggður upp sem per-
sóna frá sjötta áratugnum, glað-
hlakkalegur og brosandi, sem býður
gesti velkomna til svæðisins. Hefur
verið ráðinn teiknari til að skapa
persónu Bjössa.
Fagráð stofnað
Einnig er líklegt að Bjarni Herj-
ólfsson verði nýttur í kynningu á Ár-
borg, en hann kom fyrstur manna af
evrópskum uppruna að meginlandi
Ameríku og vísaði m.a. Leifi heppna
veginn. Bjarni var frá Eyrum þar
sem nú er Eyrarbakki, og sigldi það-
an í sína sögufrægu ferð. Loks fylgdi
Sverrir úr hlaði hugmynd um að
stofna fagráð ferðaþjónustunnar í
Árborg, sem var ein af megintillög-
um í skýrslu Rögnvaldar. Var ákveð-
ið að halda fund til undirbúnings
stofnunar fagráðsins.
Um 50 manns sóttu fundinn og
sköpuðust fjörugar umræður á fund-
inum. Stefna sveitarfélagsins,
skýrsla Rögnvaldar og samandregn-
ar tillögur úr skýrslunni eru fáan-
legar á vef sveitarfélagsins, www.ar-
borg.is.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Stefna Árborgar í ferðamálum kynnt
Nota Bjössa á mjólkurbíln-
um og Bjarna Herjólfsson
Selfoss
SÍÐUSTU skóladagarnir eru í
mörgum skólum nýttir til að brjóta
upp hefðbundna kennslu og læra
annað en það sem stendur í
kennslubókunum. Hér í Hveragerði
kallast þessir dagar „Vorsmellir“ og
er höfundur þeirrar nafngiftar Sig-
urður Davíðsson sem kenndi hér
fyrir nokkrum árum.
Í ár var mikið um að vera, nem-
endur 10. bekkja fóru í sína út-
skriftarferð á Vestur- og Norður-
land. Nemendur 9. bekkja og hluti
8. bekkinga undirbjuggu og ráku
útvarp Baggalút 29. maí. Nemend-
ur 5.–8. bekkja fengu að velja sér
viðfangsefni sem voru m.a. sund,
hjólatúr, karókísöngur, hljómsveit-
arspil, stomp, mosaíkmyndagerð,
handbolti, hönnun, ljósmyndamara-
þon, fréttagerð, myndbandagerð og
fleira. Nemendur á yngsta stigi
1.–4. bekkja notuðu dagana til að
fara í dagsferðir út úr bænum,
heimsækja fyrirtæki og stofnanir
bæjarins og fara í sund. Útbúin var
leikjahringekja og var öllum nem-
endum skipt í 8 hópa sem voru
ákveðinn tíma á hverjum stað. Síð-
asta daginn var endað á því að
grilla pylsur fyrir alla nemendur og
starfsfólk. Það voru 10. bekkingar
sem sáu um grillið ásamt starfsfólki
mötuneytisins og með því kvöddu
þeir nemendur og starfsfólk og
þökkuðu fyrir samfylgdina sl. 10 ár.
Matreiðslubók elstu
krakkanna seldist grimmt
Vegna byggingaframkvæmda við
skólann var skólaslitum 1.–9.
bekkja flýtt til 31. maí. Skólaslitin
fóru þannig fram að nemendur tón-
listarskólans léku nokkur lög, verð-
laun voru afhent og síðan fóru nem-
endur hver inn í sína stofu og tóku
við launum vetrarins, námsmati
sínu. Á þessum skólaslitum var
enginn kórsöngur eins og venja hef-
ur verið, vegna þess að kór elsta
stigs ásamt undirleikurum, kór-
stjóra og fleirum lagði upp í Græn-
landsferð þennan dag. Kórkrakk-
arnir eru búnir að standa fyrir
söfnunum og uppákomum í vetur til
að gera þessa ferð að veruleika og
hefur verið gaman að fylgjast með
dugnaði þeirra og eljusemi. Síðasta
rósin í hnappagatið var útgáfa
þeirra á matreiðslubók sem kom út
núna á dögunum og hefur selst
grimmt.
Vorsmellir í skólalok
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Grillmeistarar úr hópi nemenda og starfsfólks mettuðu fjöldann.
Hveragerði
AÐSÓKN á golfvöllinn í Þorláks-
höfn hefur stöðugt farið vaxandi og
vorið núna slær öll aðsóknarmet
segir Davíð Ó. Davíðsson, umsjón-
armaður vallarins.
Davíð sagði að fjölgunin væri hjá
aðkomumönnum sem kæmu víða að
en flestir af Reykjavíkursvæðinu.
Félögum í Golfklúbbi Þorláks-
hafnar hefur fjölgað um 30 nú í vor
þannig aukningin er einnig hjá
heimfólki. Formaður Golfklúbs Þor-
lákshafnar er Friðrik Guðmunds-
son. Davíð sagði að vorið hefði verið
kalt í upphafi og völlurinn seinna til
en síðastliðið vor, en þá var hægt að
byrja að spila fyrir miðjan apríl. Síð-
ustu vikurnar hafa verið mjög góð-
ar og í dag lítur hann mjög vel út.
Völlurinn sem er eini raunveru-
legi „linksvöllur“ landsins að sögn
Davíðs, það er strandvöllur al-
gjörlega byggður á sandi og var
hann hannaður af Hannesi Þor-
steinssyni. Golfari sem var á ferð
hér nýlega sagði að völlurinn minnti
sig á Jubby-völlinn í Saint Andrews.
Í dag er spilað á níu holum en búið
er að ganga frá öðrum níu og ef tíð-
arfar verður gott vonast menn til að
hægt verði að spila á öllum átján
holunum.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Feðgarnir Júlí Halldórsson og Halldór Viðarsson mættir í slaginn.
Stóraukin aðsókn
að golfvellinum
Þorlákshöfn