Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 25

Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 25
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 25 SAMNINGUR milli Verðbréfa- skráningar Íslands og Verðbréfa- skráningar Danmerkur er nú á lokastigi, en í samningnum felst að hægt verður að skrá dönsk verð- bréf hér á landi og íslensk í Dan- mörku. Þetta þýðir til að mynda að íslensk verðbréf geta gengið kaup- um og sölum í Danmörku án þess að viðskiptin fari í gegnum Verð- bréfaskráningu Íslands og er til- gangurinn meðal annars sá að auð- velda erlendum fjárfestum aðgang að íslenskum verðbréfum, þar á meðal að íslenskum ríkisskulda- bréfum. Að sögn Einars S. Sigurjónsson- ar, framkvæmdastjóra Verðbréfa- skráningar Íslands, verður gengið frá samningnum við dönsku verð- bréfaskráninguna innan fárra daga, en í framhaldi af því verði samningurinn sendur fjármálaeft- irlitum landanna til umsagnar. Óvíst sé hversu langan tíma það taki fjármálaeftirlitin að fara yfir samninginn, en hann taki gildi strax að fengnu samþykki þeirra. Spurður um framhaldið segir Einar að hafnar verði viðræður við sænsku og norsku verðbréfaskrán- inguna, enda auðveldi þessi samn- ingur samninga við þau lönd, þar sem þau séu bæði í NOREX-við- skiptakerfinu líkt og Ísland og Danmörk. Einnig sé framundan að taka á ný upp viðræður við Euro- clear, sem er alþjóðlegt uppgjörs- hús, en rætt hafi verið við það fyrr í vor. Euroclear hafi boðið upp á beinar viðræður og ákveðnar leiðir, en það eigi eftir að fara yfir hvað þær hafi í för með sér. Þetta sé flókið því um sé að ræða skráningu á miklum verðmætum og reglurn- ar, og skilningur á reglum hvor annars, þurfi að liggja fyrir í smá- atriðum. Kynningarráðstefna í Danmörku á íslenskum verðbréfum Í tenglum við samning verð- bréfaskráningar var haldin ráð- stefna í Kaupmannahöfn þar sem erlendum fjárfestum var kynntur íslenskur verðbréfamarkaður, sér- staklega skuldabréfamarkaður. Ráðstefnan var samstarfsverkefni allra stærstu aðila á íslenska mark- aðnum, undir forystu Lánasýslu ríkisins og í samstarfi við Verð- bréfaskráningu Danmerkur. Aðrir aðstandendur ráðstefnunnar voru Búnaðarbanki Íslands, Íbúðalána- sjóður, Íslandsbanki, Kaupþing, Landsbanki Íslands, Sparisjóða- banki Íslands, Verðbréfaskráning Íslands og Verðbréfaþing Íslands. Hægt að skrá dönsk verðbréf hérlendis og ís- lensk í Danmörku Samningur við Verðbréfaskráningu Danmerkur á lokastigi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.