Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 61
sumrin. Hafa þessi námskeið verið
vel sótt og reynt er að hafa þau sem
fjölbreytilegust.
Boðið er upp á tvenns konar
námskeið í sumar, leikjanámskeið
fyrir 6–10 ára börn og ævintýr-
anámskeið fyrir 10–12 ára börn.
Þetta eru lífleg námskeið með
fjölbreyttri dagskrá. Farið verður í
leiki, bæði úti og inni, föndrað, far-
ið í skoðunarferðir, ratleiki, rútu-
ferð og fleira.
Í lok hvers námskeið er farið út
fyrir bæinn og grillað. Á ævintýr-
anámskeiðunum er lögð áhersla á
útivist. Farið verður í ratleiki, hjól-
reiðaferð, vettvangsferð og í lok
hvers námskeiðs er farið út fyrir
bæinn og grillað.
Leikjanámskeið:
10.–14. júní
18.–21. júní
24.–28. júní
29. júlí–28. ágúst
12.–16. ágúst
Ævintýranámkeið:
24.–28. júní
12.–16. ágúst
Öll námskeiðin eru frá kl. 13 til
17. Þátttökugjald er 2.500 krónur
og er allt innifalið í því, ferðir, efn-
isgjald og nesti. Nánari upplýs-
ingar og innritun er í síma 511 1560
og á neskirkja@neskirkja.is. Einn-
ig á www.neskirkja.is
Kvöldguðsþjónustur
í Seljakirkju
NÆSTA sunnudag 2. júní færist
guðsþjónustutími Seljakirkju yfir á
kvöldið, það er að segja til kl. 20.
Seljakirkja býður upp á kvöldguðs-
þjónustur í allt sumar og hefjast
þær allar kl. 20. Altarisganga verð-
ur í hverri kvöldguðsþjónustu.
Sumarið er sá árstími, sem flestir
reyna að nýta vel til útivistar og
ferðalaga, ekki hvað síst um helgar.
Nú er sá kostur fyrir hendi að ljúka
hollri útivist og góðri helgarferð á
því að koma til kirkjunnar sinnar
og eiga þar notalega kvöldstund
saman. Þá tökum við á móti frels-
aranum Jesú Kristi, biðjum til hans
og syngjum honum til dýrðar.
Sjáumst í Seljakirkju í sumar.
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 61
FYRIR GARÐEIGENDUR SEM VILJA GÓÐ VERKFÆRI
SLÁTTUORF GARÐSLÁTTUVÉLAR GARÐSLÁTTUVÉLARSLÁTTUORF HEKK KLIPPUR HANDSLÁTTUVÉLAR
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka, Glæsibæjarhreppi - Sími 461-1070
ÞAR SEM GÓÐU GARÐVERKFÆRIN FÁST
Létt og lipur.
Fyrir sumar-
bústaðinn og heimilið
Sú græna góða.
4,75 hp - 6,5 hp
Sú mest selda.
3,5 hp - 6 hp
Fyrir þá sem
vilja „alvöru“ hekkklippur
„Bumbubaninn“
sem bregst ekki
Hörkuorf
fyrir alla sláttumenn
Neskirkja. Vortónleikar Drengjakórs Nes-
kirkju kl. 16. Fjölbreytt efnisskrá eftir inn-
lend og erlend tónskáld. Stjórnandi Friðrik
S. Kristinsson. Píanó- og orgelleikari
Lenka Mátéova.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópa-
vogi. Samkoma í dag kl. 11-12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir,
spurt og svarað. Á laugardögum starfa
barna- og unglingadeildir. Létt hressing
eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl.
10, 13 og 22 á FM 105,5.
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
tveggja gönguferða, sunnudaginn 2.
júní, sem hefjast og enda á sama stað
og sama tíma. Annars vegar verður
ekið upp að Þverárkoti á Kjalarnesi
og gengið þaðan yfir Svínaskarð (481
m y.s.) milli Móskarðshnjúka og
Skálafells. Úr Svínaskarði liggur
leiðin fram Svínadal og að Vindás-
hlíð. Göngutími er um 3 – 4 klst. og
fararstjóri á þessari leið er Leifur
Þorsteinsson.
Hinsvegar verður ekið að Fossá í
Hvalfirði og gengið þaðan upp Foss-
árdal á milli Reynivallaháls og
Þrándarstaðafjalls yfir að Vindás-
hlíð. Þetta er tiltölulega létt 1 – 2 klst
ganga. Fararstjóri er Vigfús Páls-
son. Í ferðalok þiggja báðir hópar
kaffi og meðlæti hjá Hlíðarmeyjum
KFUM og KFUK í Vindáshlíð. Þess-
ar leiðir eru hluti fornra þjóðleiða frá
Reykjavík og norður í land, segir í
fréttatilkynningu. Brottför er frá
BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörk-
inni 6.
Ganga um
Svínaskarð og
Fossárdal
SAMTÖKIN Komið og dansið
standa fyrir dansleikjum á Ingólfs-
torgi í miðbæ Reykjavíkur sunnu-
dagana 2. júní og sunnudaginn 23.
júní kl. 14–16.Um er að ræða til-
breytingu í miðborgarlífinu í sam-
starfi viðmenningarsveit Hins húss-
ins.Danstónlist verður flutt af
geisladiskum með hátalarakerfi og
val tónlistar er miðað við að flestir
finni eitthvað við sitt hæfi. Létt
sveifla og línudansar verða þó í fyr-
irrúmi. Enginn aðgangseyrir og allir
velkomnir.
Dansleikir á
Ingólfstorgi
KAFFISALA sumarbúða KFUK í
Vindáshlíð í Kjós, verður sunnudag-
inn 2. júní og hefst með messu í Hall-
grímskirkju í Vindáshlíð kl. 14. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir messar.
Í tengslum við kaffisöluna mun
Ferðafélag Íslands efna til göngu-
ferða sem báðar enda með kaffi í
sumarbúðunum í Vindáshlíð, segir í
fréttatilkynningu.
Kaffisala
í Vindáshlíð
ÁRLEGUR skógardagur Skóg-
ræktarfélags Mosfellsbæjar verð-
ur haldinn í dag, laugardaginn 1.
júní, kl. 13 í Hamrahlíð. Að venju
verður gróðursett og grillað á
eftir.
Félagsmenn og aðrir unnendur
skógræktar hjálpast að við að
græða og fegra landið, segir í
fréttatilkynningu.
Skógardagur
í Mosfellsbæ
Í TILEFNI af HM í knattspyrnu
setur Hreyfing upp Sony risaskjá í
afgreiðslu og Sony sjónvarpstæki í
tækjasal. Tippleikur verður í gangi
til að spreyta sig á úrslitum leikja,
verðlaun í boði. Sérstakt inngöngu-
tilboð í bónusklúbb Hreyfingar verð-
ur í gangi á HM dögum Hreyfingar,
frír mánuður og ýmsir kaupaukar,
m.a. HM boltinn frá Adidas, segir í
fréttatilkynningu frá Hreyfingu.
HM-dagar í
Hreyfingu
BORGARHOLTSSKÓLA var slitið í
sjötta sinn laugardaginn 25. maí.
Að þessu sinni voru útskrifaðir 112
nemendur af hinum ýmsu brautum
skólans. Nemendur voru útskrif-
aðir í fyrsta sinn af sérnámsbraut
og af listnámsbraut. Katla Margrét
Axelsdóttir, nemandi á nátt-
úrufræðibraut, var dúx skólans, en
einnig hlaut Katrín K. Söebech við-
urkenningu fyrir framúrskarandi
árangur á félagsliðabraut.
Úrslit samkeppni um útilistaverk
sem setja á upp við skólann voru til-
kynnt. Verkið sem valið var til út-
færslu er eftir Gjörningaklúbbinn
en í honum eru Eirún Sigurð-
ardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún
Hrólfsdóttir. Hafsteinn Jónasson,
stúdent á náttúrufræðibraut, flutti
ávarp útskriftarnema og Ólafur
Sigurðsson, skólameistari, gerði að
umtalsefni í ræðu sinni fjölbreytni
og þróun skólans og fjallaði einnig
um gildi menntunar og nauðsyn
gagnrýninnar hugsunar ungs fólks
í nútímaþjóðfélagi.
Borgarholtsskóla slitið í sjötta sinn
NÁMSKEIÐ um sveitastörf fyrir
börn á aldrinum 12 til 15 ára verður
haldið í húsnæði Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, Stangarhyl 1 í
Reykjavík, mánudaginn 3. júní
klukkan 14.30.
Þátttaka er ókeypis en þeir sem
fara í sveit í sumar fá fræðslu um
hugsanlegar hættur sem fylgja
störfum í sveit og einnig umgengni í
kringum dráttarvélar og önnur tæki.
Þátttaka tilkynnist til Slysavarna-
félagsins Landsbjargar í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag.
Það eru Slysavarnafélagið Lands-
björg, Umferðarráð og Vinnueftirlit
ríkisins sem standa að námskeiðinu,
segir í fréttatilkynningu.
Námskeið
um sveita-
störf
SJÓMANNADAGURINN er hald-
inn hátíðlegur ár hvert á Hrafnistu í
Hafnarfirði og Reykjavík og verður
dagskrá með hefðbundnum hætti í
ár. Að venju verður í boði kaffihlað-
borð og rennur ágóðinn af kaffisöl-
unni til velferðarmála heimilisfólks-
ins. Kaffisalan verður í borðsölum
Hrafnistu frá kl. 14 – 17.
Handavinnusýning og sala verður
opin sunnudaginn 2. júní kl. 13 – 17
og mánudaginn 3. júní 10 – 16.
Sjómanna-
dagurinn á
Hrafnistu