Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 68

Morgunblaðið - 01.06.2002, Page 68
FÓLK Í FRÉTTUM 68 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HÉR er á ferðinni safnplata, hvar helstu poppsveitir landsins fá tvö órafmögnuð tónleika/hljóðverslög á kjaft. Átján laga diskur sem rennur ljúflega í gegn og það á jákvæðan hátt. Það er gaman að heyra útjask- aða slagara í nýjum, berstrípuðum lagasmíðum jafnframt sem svona nálgun kemur oft „upp“ um lögin. Þegar allt glingur er á bak og burt heyrist betur hvort eitthvað sé varið í lagasmíðina eður ei. Land og synir opna diskinn með „Summer“ sem hreinlega kemur betur út í svona settlegri útgáfu. Píanóleikur Njáls er og smekklegur. Seinna lagið „Blow’n you up“ ber hins vegar svip afgreiðslulaga. Bæði lögin eru „viðætlumaðreynaaðmeik- aða“ lög Sonanna, lög sem hæfa sveitinni ekki nægilega vel, ef ég á að vera hreinskil- inn. Í svörtum fötum leikur hið ægi- vinsæla „Nakinn“ sem verður í óraf- mögnuðum meðförum næsta ægifal- legt! En textanum verður ekki breytt. Hann er handónýtur og verður auk þess „naktari“ í óraf- magnaðri útgáfu sem er honum allra síst til tekna. Ef ég þekki þessa pilta rétt hafa þeir og verið með tungu uppi við tönn þegar þeir tóku lagið upp. Þetta eru grallarar. En seinna lagið er alveg út úr kú; líkt og menn séu að reyna að gera það eins illa og hægt er! Sóldögg nær ekki að bæta neinu við sín lög. Sem minnir mig á það. Hvernig væri nú að fara að semja ný lög? Þetta er eitthvað sem á við um allar sveitirnar hér, mörg lag- anna eru orðin hundgömul. Sjáiði bara hvernig Lauryn Hill gerir þetta á MTV Unplugged no. 2.0. Lög Írafárs, „Hvar er ég“ og „Eldur í mér“ verða undurblíð, al- veg hreint indæl á að hlýða. Birgitta söngkona gerir þetta vel, næstum því – ég endurtek næstum því – of vel í fyrra tilfellinu. Írafár er hörkuband. En hvar er breiðskífan? Á móti sól er skipuð atvinnu- mönnum og kemst skammlaust frá sínu. Skondið að sjá hvernig fíflalög- um eins og „Á þig“ og „Austur þýzk“ er breytt í angurværar ball- öður (!) Óður til uppáferða verður súrrealískur, ef bara ekki spreng- hlægilegur. Og enn heldur fornafna- kennslan áfram í textunum (þú, þig, mér, mig, þér o.s.frv.) Stuðmenn, lávarðar léttleikans, spinna „Ég vild’ ég væri“ og „Ís- lenskir karlmenn“ af listfengi hinna sjóuðu og nýta sér órafmagnaða vettvanginn til fullnustu. Sálin hans Jóns míns á líkt og Stuðmenn, ákveðinn heiðurssess í íslensku poppi. Sálverjar snúa „Sól, ég hef sögu að segja þér“ og „Ímyndunin ein“ (af Sól um nótt) á alla kanta, pota inn í þau síturum, vatnsklukkum og öðrum ámóta, framandi, hljóðfærum og uppskera frumleg og fersk tilbrigði við stef í staðinn. Greifarnir eru aftur á móti hálf- máttlausir. Þó alltaf gaman að heyra „Frystikistulagið“ en texti þess hljómar í dag barnslega kald- hæðnislega. Menningarfræðingar, punktið hjá ykkur. Ég er búinn að finna nýtt hugtak! Á líkan hátt eru útsetningar Butt- ercup fremur hugmyndasnauðar. Undirtitill plötunnar, „læv og ön- plöggd“ er ljótur, hallærislegur og svona lagað er íslenskri tónlist til vansa. Af hverju ekki bara: „Tekið upp á órafmögnuðum tónleikum“? Allt í allt hin ágætasta hlustun, eyrun taka vel á móti tilraunastarf- semi sem þessari og fjölbreytnin á plötunni er hæfileg. Það er því ekk- ert stórvægilegt við þetta að at- huga. Munum: Gerum lífið skemmtilegra! Poppnudd Ýmsir Eldhúspartí FM 957 Eldhúspartí FM 957. Flytjendur eru Á móti sól, Buttercup, Greifarnir, Írafár, Í svörtum fötum, Land og synir, Sálin hans Jóns míns, Sóldögg og Stuðmenn. Hljóð- vinnsla var í höndum Bjarna Kjart- anssonar og Adda 800. Tekið upp beint og órafmagnað á Astró, í Grjótnámunni, Sýrlandi, Laugardalshöll og í Íslensku óp- erunni. Spor/Skífan „Birgitta söngkona gerir þetta vel, næstum því – ég endurtek næstum því – of vel…,“ segir Arnar Eggert Thoroddsen um frammistöðu Birgittu Haukdal, söngkonu Írafárs, í Eldhús- partíinu. Arnar Eggert Thoroddsen OXANA Fedorova, 24 ára gömul rússnesk kona frá St. Pétursborg, var kjörin ungfrú alheimur aðfaranótt fimmtudags, en keppnin var haldin í Puerto Rico. Fedorova er lögreglumaður og lögfræðingur að mennt og kennir í háskóla en ætlar að leggja stund á lög- mannsstörf. Verðlaun í keppninni nema um 25 millj- ónum króna og að auki býðst Fedorovou tveggja ára námsstyrkur við kvikmynda- og sjónvarpsskólann í New York og dvöl í borginni á launum. Þær fimm stúlkur sem kepptu til úrslita voru allar spurðar spurningarinnar: Hvað fær þig til að roðna? „Þegar ég segi einhverja vitleysu,“ svaraði Fedorova og brosti breitt en áhorfendur fögnuðu. Fedorova er 1,80 metrar á hæð með svart hár og græn augu. Hún á kærasta, Vladímír, sem er 38 ára gamall. „Mér líður vel. Ég hef ekki verið svona hamingjusöm lengi,“ sagði hún á rússnesku á blaðamannafundi eftir keppnina. „Ég er varla farin að átta mig á þessu. Þetta er í fyrsta skipti sem land mitt hefur unnið keppnina.“ Fedorova fæddist í Pskov í Rússlandi og foreldrar hennar búa þar. Hún fór í lögregluskóla og hóf að vinna sem lögreglumaður en hélt síðan í háskóla rúss- neska innanríkisráðuneytisins í St. Pétursborg og út- skrifaðist með fyrstu einkunn sem lögfræðingur. Til stóð að hún lyki doktorsprófi í lögum á næsta ári. Justine Pas frá Panama varð í 2. sæti, Ling Zhuo frá Kína í því þriðja, Vanessa Carreira frá Suður-Afríku í 4. sæti og Cynthia Lander Zamora frá Venesúela varð fimmta. Keppnin Ungfrú heimur haldin í Puerto Rico Rússnesk kona sú feg- ursta í heimi Reuters „Ég er fegurðardrottning.“ Oxana Fedorova veifar til áhorfendaskarans. KASTAST hefur í kekki milli bandarísku leikar- anna Matts Damons og Bens Afflecks sem hafa lengi verið hinir bestu vin- ir. Illindin munu hafa skapast vegna þess að þeir leika hvor í sinni myndinni sem keppa munu um hylli kvik- myndaáhugafólks nú í sumar, að því er segir í frétt BANG Showbiz. Affleck mun hafa verið fyrri til að sletta skyrinu. Hann leikur bandaríska njósnarann Jack Ryan í myndinni Sum of All Fears en Damon leikur í kvikmynd- inni Bourne Identity sem segir sögu manns sem hefur misst minnið. Af- fleck, sem lék í kvikmyndinni Pearl Harbor sagði að myndin sem Damon léki í væri „tómt rusl“. Leikararnir tveir hafa verið bestu vinir árum saman eða allt þar til kvikmyndir þeirra fóru að keppa um sölutekjur. Damon og Affleck skrifuðu í sam- einingu handritið að Óskarsverð- launamyndinni Good Will Hunting. Þeir sameinuðu svo aftur krafta sína sem fallnir englar í gamanmyndinni Dogma. Peningalyktin eyði- leggur vináttuna Ben Affleck og Matt Damon sitja saman á knæpunni, meðan allt lék í lyndi. Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is LOKAHÁTÍÐ LEIKÁRSINS 01/02 Leikur, söngur, dans, uppistand ofl. Listamenn í Borgarleikhúsinu gleðjast með áhorfendum eftir velheppnað leikár Fi 6. júní kl 20 KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss. Í kvöld kl 20 Fö 7. júní kl 20 Fi 13. júní kl 20 Síðustu sýningar í vor BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson Su 2. júní kl 20 - SÍÐASTA SÝNING Sjómannadagstilboð kr. 1.800 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Lau 8. júní kl 20 - AUKASÝNING Ath: ALLRA SÍÐASTA SÝNING DÚNDURFRÉTTIR - THE WALL Þri 4. júní kl. 19:30 Þri 4. júní kl. 22:00 Mi 5. júní kl. 19:30 Mi 5. júní kl. 22:00 AND BJÖRK OF COURSE ... e. Þorvald Þorsteinsson Í kvöld kl 20 Lau 8. júní kl 20 Síðustu sýningar í vor SUMARGESTIR e. Maxim Gorki Nemendaleikhús Listaháskólans og LR Í dag kl 15 - breyttur sýningartími Su 2. júní kl 15 - breyttur sýningartími Ath: ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR JÓN GNARR Fi 6. júní kl 20 Ath. Afsláttur sé greitt með MasterCard PÍKUSÖGUR Á VOPNAFIRÐI þri 11. júní kl 20:30 í Miklagarði Stóra svið Nýja sviðið LEIKFERÐ 3. hæðin                                !!  "!!  #!!  $!!         "   % "     !!   $!!       ! "# $   &  '%  (     )    "( ( ( *+  ,% "-  . /  0  " 1 " " '  /  2 %   3 3(( ÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.