Morgunblaðið - 01.06.2002, Side 70
FÓLK Í FRÉTTUM
70 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRIÐRIK Þór Friðriksson segir
góðar líkur á því að Fálkar komist
inn á Kvikmyndahátíðina í Toronto
eftir að hann sýndi aðstandendum
hátíðarinnar og annarra hátíða
myndina á Kvikmyndahátíðinni í
Cannes í síðustu viku. Toronto er
hátíðin sem mikilvægast er að
koma myndinni á því þar nær mað-
ur hvað best til kaupendanna og
það er náttúrlega nauðsynlegt.
Friðrik Þór segist enn eiga eftir að
ákveða hvort hann ætli yfir höfuð
að gefa kost á myndinni á evr-
ópskar kvikmyndahátíðir hausts-
ins. Fari svo þá verði stefnan lík-
lega sett á hátíðirnar í Locarno eða
Karlovy Vary.
„Ég hef reyndar átt myndir á
þessum hátíðum en þær eru bara
svo skemmtilegar og áhorfend-
urnir svo þakklátir og hrifnæmir.
Þegar Englar alheimsins var sýnd
á Karlovy Vary klöppuðu þeir t.d.
ítrekað á miðri sýningu rétt eins
og á rokktónleikum.“
Skari skrípó
fjármögnuð að fullu
Friðrik Þór var ekki bara stadd-
ur í Cannes til að selja Fálka held-
ur var hann þar einnig til að vekja
athygli, fjármagna og selja dreif-
ingarréttinn á öðrum myndum sem
hann og fyrirtæki hans, Íslenska
kvikmyndasamsteypan, framleiða,
myndir á borð við Regínu, sem
sýnd var á þrisvar sinnum á hátíð-
inni, Veðmálinu, Sóloni Íslandusi,
Ís-lendingum, Skara skrípó, Þórði
Kakala, Kaldaljósi svo einhverjar
myndir séu nefndar sem eru í eða á
leiðinni í vinnslu. „Ég er ánægður
með afraksturinn. Trúlega hefur
engin mynda minna selst eins vel
og Fálkar hefur þegar gert og fjár-
mögnun annarra mynda gekk
einnig vel. Það tókst t.d. að fjár-
magna gerð Skara skrípó upp í
topp og gott betur.“ Friðrik segist
ekki vita hvort eitthvað eitt valdi
því að salan á Fálkum gangi svo
vel. „Aðalleikarinn í myndinni,
Keith Carradine, er náttúrlega
mörgum enn að góðu kunnur síðan
hann var einn af vinsælustu leik-
urunum á 8. áratugnum og lék m.a.
í Nashville Roberts Altmans og
The Duelist Ridleys Scotts. Hann
er mjög virtur leikari og ég hafði í
raun ekki áttað mig á því hversu
frægur hann væri í sumum lönd-
um. Í Þýskalandi var hann t.a.m.
ítrekað stöðvaður út á götu og beð-
inn um eiginhandaráritun. Síðan
er hann náttúrlega nokkuð þekkt-
ur einnig sem tónlistarmaður, þótt
lítið hafi farið fyrir þeirri hlið hans
á Íslandi. En undanfarið hefur
hann varið mestum sínum tíma í að
leika á tónleikum og er t.d. nú á
ferð um Bandaríkin með sinfón-
íuhljómsveit.“
Carradine fékk á sínum tíma
Óskarsverðlaun fyrir lag sitt „I’m
Easy“ sem hann flutti í Nashville
og í Fálkum leikur hann og syngur
lokalagið, en það verður að finna á
geislaplötu ásamt öðrum lögum úr
myndinni sem Smekkleysa gefur út
síðar í sumar. Nær allt spánnýtt og
ferskt efni flutt af góðri blöndu af
vönduðum reynsluboltum og upp-
rennandi nýgræðingum á borð við
The Leaves, múm, Barða Jóhanns-
son úr Bang Gang, Daníel Ágúst,
Mínus og rúsínan í pylsuendanum
er síðan lag sem Megas syngur á
ensku! Fálkar verður frumsýnd á
Íslandi snemma ágústmánaðar.
Kieslowski og kakalinn
En það er alltaf sama sagan með
Friðrik Þór. Þótt hann sé nýlokinn
við mynd þá er hann löngu farinn
að huga að þeirri næstu. „Já, ég
hef trúlega tökur á Nicelander
(framleidd er af Þóri Snæ Sig-
urjónssyni og Skúla Malmquist hjá
Zik Zak) í haust.“ Og þar á eftir
kemur stuttmynd sem hann ætlar
að gera til heiðurs pólska kvik-
myndagerðarmanninum Krzysztof
Kieslowski. „Það kom upp sú hug-
mynd að 10 ólíkir leikstjórar tækju
að sér að gera 10 stuttmyndir 10
mínútna langar, sem allar ættu
sameiginlegt að vera innblásnar af
Kieslowski heitnum. Mín mynd
heitir DeCode og Julie Delpy
(Homo Faber, Trzy Kolory, Bialy,
Before Sunrise) leikur aðal-
hlutverkið.“ Friðrik Þór skrifaði
handritið einn að myndinni, nokk-
uð sem hann segist ekki hafa gert
lengi, en það fjallar um franska
stúlku sem kemur til Íslands til að
leita franskra ættingja sinna fyrir
austan. Meðal annarra leikstjóra
sem einnig ætla að votta Kies-
lowski virðingu sína með gerð
sams konar stuttmyndar eru Wim
Wenders, Jim Sheridan og hugs-
anlega Thomas Winterberg. Þegar
Friðrik Þór hefur lokið við stutt-
myndina tekur Þórður kakali svo
við víkingamynd sem hann mun
leikstýra og framleiða eftir hand-
riti sem Einar Kárason skrifaði
upp úr sögum af þessari 13. aldar
hetju og hefndarför hans til Ís-
lands.
Myndir til að vera stoltur af
Friðrik Þór segist hafa hug á því
að snúa sér í frekara mæli að því
að gera myndir sjálfur fremur en
að framleiða myndir annarra. „Það
hefur einfaldlega sýnt sig að ég hef
ágætt upp úr mínum myndum á
meðan ég hef verið að tapa á
myndum sem ég framleiði og fjár-
magna fyrir aðra. Ég er bara orð-
inn leiður á því að súpa seyðið af
slæmu gengi mynda eftir aðra, það
kallar bara á leiðindi, eins og gerð-
ist með Myrkrahöfðingjann. Hér
eftir mun ég einvörðungu fram-
leiða myndir eftir fólk sem ég hef
trú á, myndir sem ég get verið
stoltur af að hafa framleitt. Ég tók
t.d. óhikað að mér að framleiða
næstu mynd Kristínar Jóhanns-
dóttur sem mun heita Ilmandi orð
og það þrátt fyrir að hún hefði
ekki enn hlotið náð fyrir augum
Kvikmyndasjóðs. Ég hef engar
áhyggjur af því að ekki takist að
fjármagna hana.“
Þessa dagana stendur yfir skipu-
lagsbreyting á Íslensku kvik-
myndasamsteypunni og einn liður í
því, að sögn Friðriks Þórs, er að
frekari áhersla verði lögð á hand-
ritsþróun og nú þegar eru ein 20
handrit í athugun, þar á meðal eitt
sem Wim Wenders er viðriðinn við.
„Einn fyrsti afrakstur þessa átaks
verður draugamyndin Margt býr í
myrkrinu. Jón Þórisson skrifaði
handritið sem er lauslega byggt á
sögu Þorgríms Þráinssonar og ný-
verið réðum við upprennandi belg-
ískan kvikmyndagerðarmann til að
leikstýra henni en hann átti ein-
mitt mynd í stuttmyndakeppninni
á Cannes.“
Róleg og góð Cannes
Annar liður í skipulagsbreytingu
Íslensku kvikmyndasamsteyp-
unnar er að frekari áhersla verður
lögð á að kaupa dreifingarréttinn
á erlendum myndum til sýningar í
kvikmyndahúsum í Íslandi. Ísleifur
Þórhallsson var nýverið ráðinn til
fyrirtækisins til að sinna þessu
starfi og var þegar látið til skarar
skríða í þeim efnum í Cannes. Ís-
lenska kvikmyndasamsteypan er
t.a.m. búin að tryggja sér dreifing-
arrétt á myndum á borð við bresku
myndirnar 24 Hour Party People
eftir Michael Winterbottom og
Once Upon a Time In The Midlands
eftir Shane Meadows, sem báðar
voru sýndar á hátíðinni, mynd Win-
terbottoms í aðalkeppni og Mea-
dows í leikstjóradagskránni, við
mjög góðar undirtektir. Þar að
auki hefur sýningarrétturinn verið
keyptur á þýsku myndinni Halbe
Treppe sem vann Silfurbjörnin á
Berlínarhátíðinni í febrúar og
ítölsku myndinni Respiro sem Al-
þjóðasamtök gagnrýnenda völdu
bestu myndina utan keppni á nýaf-
staðinni Cannes-hátíð.
Ástæðuna fyrir því að Íslenska
kvikmyndasamsteypan er í aukn-
um mæli farin að láta sig innflutn-
ing erlendra mynda varða segir
Friðrik Þór þá að hann sjái sig ein-
faldlega knúinn til þess því þetta
séu í flestum tilvikum myndir sem
að öðrum kosti komi ekki fyrir
sjónir Íslendinga, myndir sem hon-
um finnist að íslenskir kvikmynda-
unnendur eigi rétt á að sjá. „Þegar
ég sé góða mynd á kvikmyndahátíð
erlendis líður mér illa við tilhugs-
unina um að Íslendingar fái ekki
tækifæri til að sjá hana. Við teljum
okkur hafa nokkuð gott nef fyrir
því hvaða myndir fólk hefur áhuga
á að sjá og síðan skemmir ekki fyr-
ir að kunningsskapur við marga í
bransanum auðveldar mér að fá
aðstandendur myndanna til Íslands
til að kynna þær.“
Það lá vel á Friðriki Þór í þessu
samtali við Morgunblaðið enda
segist hann sáttur við Cannes-
hátíðina í ár. „Hún var rólegri en
oft áður. Stóru fyrirtækin gátu því
gefið sér betri tíma en oft áður til
að kanna hvað væri í boði, sem hef-
ur vafalítið hjálpað til við að koma
myndum mínum og Íslensku kvik-
myndasamsteypunnar á fram-
færi.“
Fálkasal-
inn Friðrik
Einn af fastagestunum á Kvikmyndahá-
tíðinni í Cannes er Friðrik Þór Frið-
riksson enda hefur hann þar í nógu að
snúast. Skarphéðinn Guðmundsson
ræddi við Friðrik Þór um Fálka
og framtíðina. Atriði úr Fálkum. Margrét Vilhjálmsdóttir er hér með aðalleikarann á öxlinni.
Friðrik Þór Friðriksson gerði góða ferð á Kvikmyndahátíðina í Cannes
skarpi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Það er allt að gerast hjá Friðriki Þór um þessar mundir.