Morgunblaðið - 07.06.2002, Side 26
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
26 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Útsölustaðir í Reykjavík og nágrenni: Libia Mjódd, Snyrtistofa Hönnu Kristínar Skeifunni,
Laugarnes Apótek, Nana Hólagarði, snyrtivörudeildir Hagkaups Kringlunni, Skeifunni, Spönginni,
Zitas Firði, Hafnarfirði.
Landið: Gallery Förðun Keflavík, Árnes Apótek Selfossi, Apótek Vestmannaeyja, Húsavíkurapótek,
snyrtivörudeild Hagkaups, Akureyri, Silfurtorg Ísafirði.
Kynning í Smáralind
föstudag og laugardag.
Falleg strandtaska að gjöf þegar keypt er fyrir 2.500 kr. í sólarlínunni
Marbert
sólarlínan er fyrir allar húðgerðir. Sólarlínan inniheldur
bæði UVA vörn sem ver húðina gegn skaðlegum geislum sólar sem fara
í dýpstu lög húðarinnar og UVB vörn sem verndar gegn sólargeislum
sem valda bruna í húðinni. Öll sólarlínan er rotvarnarefnalaus
(paraben free) en rotvarnarefni valda
mörgum ofnæmi.
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
...fyrir kröfuhar›a
Opi›: Smáralind mán. - fös. kl. 11-19 • lau. kl. 11-18 • sun. 13-18
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
79
70
06
/2
00
2
Glæsibæ mán. - fös. kl. 10-18 • lau. kl. 10-16
Meindl Island
Sérlega gott lag fyrir íslenska fætur.
Vatnsvarið nubuk leður.
Heil tunga og sérlega vandaður frágangur.
Frábærlega léttir! Aðeins 830g (stærð 42).
Vatnsvörn og útöndun með Gore-Tex.
Úrvals vibram veltisóli með fjöðrun.
Mjög góður stuðningur við ökkla.
Fáanlegir í herra- og dömustærðum.
Meindl Island eru einna mest seldu gönguskór í Evrópu
síðastliðin 10 ár. Lesendur Outdoor í Þýskalandi völdu
Meindl Island bestu gönguskóna 2001.
Eigum úrval af Meindl gönguskóm, allt frá léttum og
þægilegum til sterkra og öflugra.
Komdu og prófaðu. Þeir henta þér líka.
MARKAÐSÁÆTLUN fyrir fyrir-
tækið Hreyfigreiningu ehf. var valin
besta áætlunin í kennsluverkefninu
Útflutningsaukning og hagvöxtur á
vegum Útflutningsráðs Íslands en
útskrift í verkefninu var í gær. Hjá
Hreyfigreiningu er unnið að því að
þróa greiningartækni á hálsskaða.
Karl Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, tók þátt í verk-
efninu fyrir hönd þess.
Verkefnið Útflutningur og hag-
vöxtur er skilgreint sem þróunar-
verkefni fyrir lítil og meðalstór fyr-
irtæki sem eru með
viðskiptahugmynd þar sem horft er
á bæði vöru og erlendan markað.
Í tilkynningu frá Útflutningsráði í
tilefni af útskrift í verkefninu segir
að könnun sýni að vöxtur í veltu
þeirra fyrirtækja sem þátt taki í því
sé að jafnaði 20% á ári fyrstu árin
eftir þátttöku og vöxtur útflutnings
um 25%. Fyrirtækin sem þátt hafi
tekið spanni flestar atvinnugreinar
landsmanna og séu í öllum landshlut-
um.
Fyrirtækin sem þátt tóku í verk-
efninu að þessu sinni voru auk
Hreyfigreiningar, Altech, ELM, Ís-
landssaga, HSC, ÍT-ferðir, Mjólkur-
samlag Ísfirðinga, Snerpa og Litla
fólkið.
Verkefni frá árinu 1989
Verkefnið Útflutningsaukning og
hagvöxtur stendur í 10 mánuði en
það hefur verið í gangi frá árinu
1989. Þátttakendur í verkefninu hitt-
ast mánaðarlega á vinnufundi sem
stendur í tvo daga og dvelja þann
tíma á hóteli. Einn fulltrúi frá hverju
þeirra fyrirtækja sem þátt taka í
verkefni mætir á fundina, vanalega
eigandi og/eða framkvæmdastjóri. Á
fundina mæta einnig leiðbeinendur.
Auk markaðsfræði vegur leiðsögn
um markmiðasetningu mikið og lýk-
ur verkefninu með því að þátttak-
endur leggja fram stefnumótandi
markaðsáætlun um útflutning síns
fyrirtækis.
Hvert fyrirtæki fær ráðunaut til
aðstoðar sem nemur einum degi í
mánuði, meðan á verkefninu stend-
ur. Hlutverk þeirra er að vera við-
ræðuaðili þátttakandans, fylgja eftir
málum frá vinnufundum, styrkja
ákvarðanatöku, hvetja, uppörva og
samhæfa vinnubrögð. Þá hefur frá
upphafi verið samvinna í verkefninu
við viðskiptadeild Háskóla Íslands.
Afnotaréttur að verkefninu Út-
flutningsaukning og hagvöxtur var
keyptur af Irish Management Insti-
tute (IMI) og var þjálfun verkefn-
isstjóra og ráðunauta innifalin í
kaupunum. IMI hefur selt afnotarétt
að verkefninu eða systurverkefni
þess til 17 aðila í 11 löndum.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
styrkir verkefnið.
Útflutningsaukning og hagvöxtur
Hreyfigreining
hlutskörpust
Morgunblaðið/Golli
Forsvarsmenn fyrirtækjanna átta sem þátt tóku í kennsluverkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur ásamt Val-
gerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, en hún flutti ávarp í tilefni af útskrift í verkefninu.
TAL mun undirbúa að vísa ákvörðun
samkeppnisráðs, um að ekki sé
ástæða til aðgerða vegna kvörtunar
Tals og Íslandssíma varðandi Hóp-
áksrift Símans, til áfrýjunarnefndar
samkeppnismála. Ákvörðun sam-
keppnisráðs er í athugun hjá Íslands-
síma og verður ákveðið áður en fjög-
urra vikna áfrýjunarfrestur er liðinn
hvort fyrirtækið vísar henni til áfrýj-
unarnefndarinnar.
Samkeppnisráð tók ákvörðun þess
efnis á fundi í síðustu viku að ekki
væri ástæða til aðgerða vegna kvört-
unar Tals og Íslandssíma vegna
Hópáskriftar Símans. Tal og Íslands-
sími sendu fyrir nokkru, hvort í sínu
lagi, kvörtun til ráðsins vegna þess að
þau töldu meðal annars að Síminn
hefði misnotað markaðsráðandi stöðu
sína með því að setja áskriftarleiðina
Hópáskrift á markað.
Fellst ekki á að viðbrögð
Landssímans hafi verið hófleg
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Tals, segir að
samkeppnisráð og dómstólar hafi
komist að því að sérstakar skyldur
hvíli á markaðsráðandi fyrirtækjum.
Hún segir að samkeppnisráð segi í
ákvörðun sinni að í ljósi yfirburða-
stöðu Landssímans á GSM-markaðn-
um hvíli sérstaklega ríkar skyldur á
fyrirtækinu að grípa ekki til neinna
ráðstafana sem takmarkað geti með
óeðlilegum hætti vöxt samkeppni á
þessum markaði.
„Tal felst ekki á það sjónarmið
samkeppnisráðs að viðbrögð Lands-
símans við Hóptali hafi verið hófleg
og mun því undirbúa að vísa erindinu
áfram til áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála,“ segir Liv.
Hún segir að í upplýsingum frá
Landssímanum komi fram að hlut-
deild hans á fjarskiptamarkaði sé
86%, og það sé nánast einsdæmi í okk-
ar heimshluta. Í ákvörðuninni segi að
enginn vafi leiki á því að Landssíminn
sé enn í yfirburðastöðu á markaði fyr-
ir GSM-farsímaþjónustu.
„Í ljósi þessa er það mikið áhyggju-
efni að talsmaður Landssímans skuli
túlka úrskurðinn á þann veg að hann
sé fordæmisgefandi. Landssíminn
hafi fengið grænt ljós frá samkeppn-
isráði til þess að verja yfirburðastöðu
sína gegn hvers konar samkeppni
með því að námunda eða jafna ný
samkeppnistilboð af hvaða tagi sem
er. Þetta er einkatúlkun forráða-
manna Landssímans og mikilvægt að
fá úr því skorið hjá áfrýjunarnefnd
samkeppnismála hvort samkeppnis-
yfirvöld séu sama sinnis. Erfitt er að
draga mörkin milli lögmætrar sam-
keppni og misnotkunar á markaðs-
ráðandi stöðu, en Tal er þeirrar skoð-
unar að Landssíminn sé að misnota
stöðu sína í því skyni að útiloka Tal og
aðra keppinauta frá GSM-farsíma-
þjónustu fyrir fyrirtæki. Til lengri
tíma litið koma slíkir samkeppnis-
hættir neytendum á fjarskiptamark-
aði ekki til góða.“ Liv segir að þrátt
fyrir þennan úrskurð sé Tal staðráðið
í því að halda áfram að bjóða fyrir-
tækjum öflugan og hagkvæman val-
kost á þessum markaði. „Enda þótt
við höfum vænst meira af lagaum-
hverfinu og samkeppnisráði, erum við
staðráðin í að ná góðum árangri á fyr-
irtækjamarkaði eins og við höfum
gert á einstaklingsmarkaði. Við áttum
í samskonar baráttu þegar við vorum
að fóta okkur á einstaklingsmarkaði
og sókn okkar á fyrirtækjamarkað
mun einnig skila viðskiptavinum
ávinningi, þrátt fyrir tilburði Lands-
síma Íslands til þess að verja yfir-
burðastöðu sína,“ segir Liv Bergþórs-
dóttir.
Ekki tekið á öllum atriðum
Pétur Pétursson, upplýsinga- og
kynningastjóri Íslandssíma, segir að
ákvörðun samkeppnisráðs sé sérstak-
lega athyglisverð með tilliti til þess að
Landssíminn telji meðalreikning við-
skiptamanna sinna eða fyrirtækja
hafa hækkað við það að færa sig yfir í
þá áskrift sem deilt er um. Með tilliti
til þess þurfi fyrirtæki greinilega að
passa sig á gylliboðum Landssímans.
„Hvað ákvörðun samkeppnisráðs í
heild varðar erum við hjá Íslandssíma
að fara yfir hana núna en fljótt á litið
virðist ekki vera tekið á öllum þeim
atriðum sem við fórum fram á að yrðu
skoðuð. Áfrýjunarfresturinn er fjórar
vikur. Við munum taka ákvörðun um
framhaldið áður en sá tími er liðinn,“
segir Pétur Pétursson.
Tal og Íslandssími um ákvörðun samkeppnisráðs
Ákvörðun ráðsins vísað
til áfrýjunarnefndar