Morgunblaðið - 07.06.2002, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 07.06.2002, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ PAUL McCartney og Heather Mills hafa reynt að halda því leyndu hvar og hvenær þau munu ganga í það heilaga en nú hefur kvisast út í breskum fjölmiðlum að brúðkaupið muni eiga sér stað í Leslie-kastala í Glaslouch-sýslu á Ír- landi ellefta þessa mánaðar, eða næstkomandi þriðjudag. Eigandi kastalans hefur ýtt enn frekar stoðum undir þessar sögusagnir með því að útiloka ekki að brúðkaup fari þar fram umræddan dag. Samkvæmt sömu heimildum mun athöfnin fara fram í þorpskirkjunni og síðan munu um 300 boðsgestir sitja veislu í kastalanum og þremur tjöldum sem reist verða í kastalagarð- inum. Gestirnir verða fluttir til veislunnar með þyrlum, gömlum bílum og hestvögnum. Fyrst verður boðið upp á kampavín og snittur en síð- an verður sest að veisluborði og verða rétt- irnir allir úr jurtaríkinu. Maturinn verður bor- inn fram á gulldiskum og þjónustufólkið mun klæðast gömlum búningum. En heimildum ber þó engan veginn saman um þetta leyndardómsfulla brúðkaup. Áður hafði því verið haldið fram að brúðkaupið hefði farið fram í gær en engar vísbendingar eru um að það sé rétt. Þó er aldrei að vita, því einhverjir vilja meina að gamla bítlinum og heitkonu hans hafi tekist fullkomlaga upp við að halda brúðkaupinu leyndu og séu nú þegar búin að setja upp hringana. Leyndardómsfulla bítlabrúðkaupið Reuters McCartney og Mills virðast staðráðin í að láta fjölmiðla ekki skemma stóra daginn. Kvöldverðurinn (La Cena) Gamanmynd Ítalía 1998. Myndform VHS. (124 mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn og hand- rit Ettore Scola. Aðalhlutverk Giancarlo Giannini, Vittorio Gassman. ÞAÐ VERÐUR seint sagt um þessa mynd Ítalans margreynda Ett- ore Scola að hún sé frumleg. Hún sver sig nefnilega sterkt í ætt við aðr- ar eldri sem leika sér að því að bera saman og tilbiðja um leið matinn og ástina, myndir á borð við dönsku Óskarsverðlauna- myndina Babettes gæstebud (1987), mexíkönsku Como agua para chocolate og The Big Night Stanleys Tuccis. En ítalski Kvöldverðurinn stendur þessum öll- um vel að baki, ekki bara vegna ófrumleikans heldur einnig sökum tilgerðarlegrar kvikmyndagerðar, tilþrifalítils handrits sem vissulega inniheldur einstaka skemmtileg atvik og samtöl en heldur engan veginn haus og skortir heildstæða fram- vindu. Og svo er nokkuð magnað að sjá að það eru ekki bara til Holly- wood-klisjur heldur einnig listrænna- mynda-klisjur. Léttúðuga konan með marga kærasta, trúgjarni einfarinn, vitri einmana gamlinginn, mennta- maðurinn með gráa fiðringinn, fámáli kvendjöfullinn sem dregur karla á tálar til að niðurlægja þá – allar hafa þessar staðalímyndir komið við sögu „listrænna mynda“ oftar en einu sinni. Verði ykkur að góðu. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Út að borða með Ítölum Marsmórar (Ghosts of Mars) Hrollvekja Bandaríkin 2001. Skífan VHS/DVD. (102 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leik- stjórn og handrit John Carpenter. Aðal- hlutverk Natasha Henstridge, Ice Cube. ÞAÐ er aðeins einn John Carpen- ter og martraðir eru hans sérsvið. Ekki bara í þeim skilningi að hann hefur ætíð lagt sig fram um að hræða okkur heldur eru margar mynda hans svo vondar að þær eru algjör martröð á að horfa. En karlinn má eiga það að það er alltaf svo notalega heimagerður blær yfir þeim enda er gaurinn sparsamur með endemum og reynir að gera eins mikið sjálfur og hann mögulega treystir sér til. Ghosts of Mars er dæmigerð Carpenter-mynd í einu og öllu. Al- veg yndislega hallærisleg, söguþráð- urinn lapþunnur, brellurnar ódýrar og sviðsmyndin ennþá ódýrari. Sem sagt himnaríki fyrir þá sem dá vond- ar myndir. En hún er samt mjög langt frá því að komast í hóp hans betri mynda, töffaraskapurinn ekki nærri því ens mikill og í Escape from New York og við hliðina á martröð martraðanna The Thing er hún Disney-mynd. En þótt Ghosts of Mars teljist feil- spor þá má ekki gleyma því að það er aðeins einn John Carpenter og bíó- flóran væri aldeilis fátækari án hans. Skarphéðinn Guðmundsson Martröð á Mars
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.