Morgunblaðið - 28.06.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Akralind 1, 201 Kópavogi, sími 564 0910.
Útiarinn - Grill
Verð 49.900 kr.
Kynningarverð
Verð 69.900 kr.
Kynningarverð
LANDSMÓT hestamanna hefst á
Vindheimamelum í Skagafirði
þriðjudaginn 2. júlí og lýkur sunnu-
daginn 7. júlí. Verið er að leggja
lokahönd á undirbúning og að sögn
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, for-
manns Landsmóts ehf., gengur
undirbúningurinn vel.
„Mótið byrjar formlega á þriðju-
daginn og fram eftir vikunni verða
kynbótadómar og keppni í und-
irflokkum. Þetta er mikið af hross-
um og það er langur tími sem fer í
að grunndæma þau. Á laugardeg-
inum ber hæst yfirlitssýning á
bestu kynbótahrossunum og A-
úrslit í tölti,“ segir Sveinbjörn.
Spurður um fjölda mótsgesta
sem búist er við, segir hann að það
sé raunhæft að búast við tíu þúsund
manns en það fari mikið eftir veðri.
Hann segir að veðurspáin sé góð
svo langt sem hún nái og að móts-
haldarar séu bjartsýnir.
Heiðursgestir mótsins verða
Anna Bretaprinsessa og Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
en þau mæta á laugardaginn og
taka þátt í hópreið sem verður inni
á sýningarsvæðinu, að sögn Svein-
björns. Hann telur að búast megi
við fjölda útlendinga á mótið og
leggur áherslu á að fáir atburðir
hér á landi veki jafnmikla athygli
og Landsmótið. „Við gætum verið
að tala um 15 fullar Flugleiðavélar
af útlendingum sem gagngert eru
hingað komnir til að fara á lands-
mótið. Ég held að raunhæfur fjöldi
útlendinga sé 2.500–3.000 manns.
Flestir koma ef til vill frá Þýska-
landi og Norðurlöndum, en í þess-
um löndum er mest hefðin fyrir
hestamennsku með íslensku hest-
ana,“ bendir hann á og bætir við að
mikil stemning sé í fólki.
Hann segir að skemmtikraftar
muni troða upp um helgina og stígi
Stuðmenn á stokk á föstudagskvöld
og Paparnir á laugardagskvöld.
Landsmót hestamanna hefst á Vindheimamelum á þriðjudag
Anna Bretaprinsessa
og Ólafur Ragnar
taka þátt í dagskrá
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Margir hestamenn eru komnir, meðal annars þær Védís Hrönn Eyjólfs-
dóttir, Franziska Solte og Lena Hrönn Marteinsdóttir, en þær eru hér
að snyrta stóðhestinn Þyrni frá Þóroddsstöðum. Þyrnir fékk 8,60 í ein-
kunn í kynbótasýningunum í vor og er það ein hæsta einkunn úr forvali
sem vitað er um.
RÁÐGERT er að ný fræðslu-
miðstöð við Almannagjá á Þing-
völlum sem lokið var við í fyrra
verði opnuð í næsta mánuði. Í
húsinu, sem stendur skammt frá
útsýnisskífunni á Hakinu þar sem
komið er inn í þjóðgarðinn, verð-
ur opnuð margmiðlunarsýning
þar sem gestir og gangandi geta
fræðst um þjóðgarðinn, sögu
hans og náttúru.
Að sögn Guðrúnar Krist-
insdóttur, yfirlandvarðar á Þing-
völlum, var hafist handa við að
hanna sýningu inn í húsið í vetur
og hefur því starfi miðað nokkuð
vel, að sögn hennar.
Hún á von á því að húsið verði
opnað almenningi fyrstu vikurnar
í júlí. Sýningin sem opnuð verður
er á stórum snertiskjám og getur
fólk valið úr efni sem tengist
sögu og náttúru staðarins.
Húsið sem hýsir fræðslu-
miðstöðina er stílhreint og lág-
reist og segir Guðrún að hug-
myndin hafi verið að húsið
skyggði ekki á þjóðgarðinn.
Það samanstendur af sýning-
arhluta og snyrtiaðstöðu en
snyrtiaðstaðan hefur verið opin
síðan í vor.
Að sögn Guðrúnar verður
fræðslumiðstöðin opin alla daga í
sumar en eftir er að taka end-
anlega ákvörðun um opnunartíma
á veturna. Hún á þó frekar von á
að reynt verði að hafa húsið opið
stærstan hluta vetrar.
Ný fræðslumiðstöð á Þingvöllum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fræðslumiðstöðin verður opin í allt sumar og er stefnt að því að hún verði einnig opin stærstan hluta vetrarins.
Ráðgert að opna í júlí
ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Heimur hf.
hefur keypt tímaritadeild Eddu –
miðlunar og útgáfu hf., sem gefur út
tímaritin Atlantica, Iceland Review
og Ský og heldur úti vef í tengslum
við ritin.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
tímaritin hafi áður tilheyrt fyrirtæk-
inu Iceland Review, sem varð hluti af
Eddu við samruna Vöku-Helgafells
og Máls og menningar.
Þá segir að útgáfu allra tímarit-
anna verði haldið áfram hjá Útgáfu-
félaginu Heimi, sem meðal annars
gefi út tímaritið Frjálsa verslun, auk
upplýsingarita fyrir ferðamenn og
að starfsfólki tímaritanna hafi verið
boðið starf hjá því félagi.
Atlantica er gefið út í samvinnu
við Flugleiðir og býðst öllum farþeg-
um félagsins, en Ský er með sama
hætti gefið út í samvinnu við Flug-
félag Íslands, en jafnframt selt á
frjálsum markaði. Iceland Review er
eitt rótgrónasta tímarit sem gefið er
út um Ísland og íslensk málefni á
ensku, en áskrifendur þess eru í um
hundrað löndum.
Í tilkynningunni segir að Edda
muni starfrækja áfram fjölmörg
bókarforlög, bókaverslanir og tón-
listarútgáfu. Þá hyggist félagið leita
leiða til að halda áfram útgáfu Tíma-
rits Máls og menningar.
Heimur hf.
kaupir
tímarita-
deild Eddu
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN verður lögð
niður 1. júlí næstkomandi, í sam-
ræmi við lög Alþingis nr. 51/2002.
Í frétt frá Sigurði Guðmundssyni,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar, segir
að verkefni stofnunarinnar verði
flutt til Hagstofu Íslands og fjár-
málaráðuneytisins. Þjóðhagsreikn-
ingar, skýrslugerð um atvinnuvegina
og önnur verkefni Þjóðhagsstofnun-
ar sem fjalli um upplýsingar um lið-
inn og líðandi tíma verði framvegis
unnin á Hagstofu Íslands.
Flestir starfsmenn sem unnið hafa
að gerð þjóðhagsreikninga munu
fyrst um sinn halda því starfi áfram í
því húsnæði sem Þjóðhagsstofnun
hefur haft til umráða á þriðju hæð í
Seðlabankabyggingunni. Símanúm-
er verða óbreytt og netföng einnig,
en þau fá þó endinguna @hagstofa.is
í stað @ths.is.
Vefsíðan áfram virk
Þeim verkefnum Þjóðhagsstofn-
unar sem snúa að mati á ástandi og
horfum verður sinnt af efnahags-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins.
Nánari upplýsingar um verkefni
efnahagsskrifstofu er að finna á
heimasíðu fjármálaráðuneytisins,
www.fjr.is.
Vefsíða Þjóðhagsstofnunar,
www.ths.is, verður áfram virk og
verður gestum beint á rétta staði
þaðan. Hagstofa Íslands hefur tekið
að sér dreifingu á skýrslum sem
Þjóðhagsstofnun hefur gefið út og
eru þær fáanlegar þar.
Þjóðhags-
stofnun
hættir
starfsemi
SEX lögregluembætti sameinast um
að efla umferðareftirlit á Vestur-
landi í sumar og verður sérstaklega
fylgst með hraðakstri í Norðurárdal.
Lögreglan á Akranesi, Borgar-
nesi, í Stykkishólmi og Búðardal auk
manna frá ríkislögreglustjóra og lög-
reglunni í Reykjavík munu í sumar
hafa samvinnu um umferðareftirlit í
Borgarfirði og nærsveitum. Að sögn
Stefáns Skarphéðinssonar, sýslu-
manns í Borgarnesi, verður lögð sér-
stök áhersla á að fylgjast með
aksturshraða á hringveginum, eink-
um í Norðurárdal en þar hafa öku-
menn oft ekið greitt. Aukin löggæsla
verður einnig við aðra helstu vegi í
héraðinu.
Sérstaklega
fylgst með
akstri í Norð-
urárdal
Aukið umferðareftirlit
á Vesturlandi í sumar
KAFARAR hafa kafað niður að
flaki Guðrúnar Gísladóttur KE 15
til að kanna ástand skipsins og
verður þeim könnunum haldið
áfram í þessari viku.
Trond Eilertsen, lögmaður út-
gerðarfélagsins, segir að líklega
verði ákveðið í næstu viku, í sam-
vinnu við norsk mengunarvarna-
yfirvöld, til hvaða aðgerða verði
gripið.
Um borð í skipinu, sem liggur á
um 40 metra dýpi eftir að það
sökk við strendur Lofoten 19. júní
sl. eru 300 tonn af olíu og um 870
tonn af síld. Eilertsen segir að
m.a. verði rætt hvort mögulegt sé
að dæla olíunni úr skipinu, hvað
verði gert við farm skipsins,
hversu langan tíma aðgerðirnar
muni taka og hvað þær muni
kosta.
Fimm björgunarfyrirtæki hafa
gert tilboð í verkið en Eilertsen
segir að mjög erfitt sé að bera þau
saman þar sem mismunandi sé
hvað sé innifalið í tilboðinu.
Hann segir að norsk mengunar-
yfirvöld hafi ekki sett íslensku út-
gerðinni og tryggjendum hennar
tímafrest um hvenær aðgerðir
skuli hefjast en hann geri þó ráð
fyrir því að ætlast sé til þess að
það verði fyrir veturinn. Það fari
þó eftir því hvað verði ákveðið að
gera.
Kafarar kanna
ástand flaks Guð-
rúnar Gísladóttur
♦ ♦ ♦