Morgunblaðið - 28.06.2002, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 9
www.oo.is
Opið laugard. frá kl. 11-16
BRIO Kombi kerruvagn
62.950 - 59.800 stgr.
Teutonia Delta kerruvagn
66.300 - 62.990 stgr.
ORA Carletto kerruvagn
59.950 - 56.950 stgr.
BASSON Roma kerruvagn
49.900 - 47.400 stgr.
Ú
rv
al
ið
e
r
h
já
o
k
k
u
r
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Útsala
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00,
laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Bankastræti 14, sími 552 1555
Fallegt úrval af kvenfatnaði
og yfirhöfnum
Frábært verð og 20% afsláttur
kr. 7.900
ÚTSALA
20-50%
afsláttur
Ullarkápur
Leðurkápur
Regnkápur
Vínilkápur
Sumarúlpur
Vindjakkar
Háttar og húfur
Mörkinni 6, sími 588 5518,
Opnum kl. 9 virka daga
laugard. kl. 10—15
sunnud. kl. 12—17
HEIMILISLÆKNAR á Sólvangi í
Hafnarfirði hafa sagt upp störfum og
hyggjast opna læknastofur og hefja
sjálfstæða starfsemi. Að sögn Emils
L. Sigurðssonar, yfirlæknis á Sól-
vangi, ætla læknarnir að nýta rétt
sinn til uppsagnar þar sem heilbrigð-
isráðuneytið vill ekki ljá máls á því
að þeir fái að opna eigin stofur og
gera gjaldskrársamninga við Trygg-
ingastofnun eins og aðrir sérfræð-
ingar.
„Þetta eru tíu læknar sem eru
hérna á stöðinni sem vilja vinna sam-
an og þess vegna ætlum við að reyna
að opna stofur saman,“ segir Emil og
bendir á að undirbúningur sé hafinn,
þeir séu byrjaðir að skoða húsnæði
og kanna fjármögnunarleiðir. Að
hans sögn er stefnt að því að opna
stofurnar 1. desember, en hann segir
að ef málin leysist þá verði læknarnir
áfram á Sólvangi og bendir á að þá
hafi þeir jafnframt hlotið frelsi, þar
sem þá yrði hægt að tvinna saman
vinnu á heilsugæslunni og á eigin
stofu.
„Ég sé ekki rök fyrir því af hverju
okkur hefur verið haldið eftir. Það er
mjög óeðlilegt að einn hópur fái ekki
sömu stöðu og aðrir sérfræðingar,“
segir hann.
Aðspurður um viðbrögð ráðuneyt-
isins við þessum aðgerðum segir
hann þau engin og segist vera undr-
andi á því, þar sem yfirvofandi sé að
Hafnarfjörður, þetta stóra bæjar-
félag, og Bessastaðahreppur missi
sína heimilislækna.
„Það er alveg ljóst að við þurfum
að ganga frá ýmsum samningum og
kaupum á tækjum og fleira með
tveggja til þriggja mánaða fyrirvara,
þannig að ég tel að eftir 1. september
verði ekki aftur snúið. Tíminn er að
renna frá þeim en við höldum okkar
striki,“ bendir Emil á en hann er
ekki mjög bjartsýnn á að samkomu-
lag náist áður og reiknar með að
skrefið verði stigið til fulls og stof-
urnar stofnaðar.
Læknarnir hafa skrifað samninga-
nefnd ríkisins bréf, að sögn Emils,
og óskað eftir að fá svipaða samn-
inga og aðrir sérfræðingar en ekkert
svar hefur enn borist. „Ef ríkið vill
ekki leyfa okkur að fá svona gjald-
skrársamning og greiða niður þessa
þjónustu þá er ríkið í raun að svipta
Hafnfirðinga rétti sínum sem þeim á
að vera tryggður samkvæmt al-
mannatryggingalögum, þ.e.a.s. að
fólk eigi rétt á aðgengilegri og ódýrri
grunnþjónustu, en það þyrfti að
greiða fullt verð fyrir okkar þjón-
ustu.“
Heimilislæknar á Sólvangi hafa sagt upp störfum
Stefna að því að opna
læknastofur 1. desember
Á SUMRIN færist borgin í sitt feg-
ursta skart enda keppast borgar-
starfsmenn þá við að snyrta hana
hátt og lágt. Hreinsunin nær þó til
fleiri staða en gatna og gróinna
bletta. Þannig var til að mynda
hreinsað upp úr niðurfalli við Lauf-
engi í Grafarvogi og þurfti stór-
virkar vinnuvélar til verksins.
Hvort þær hafi dugað til þess að
snyrtilegra hafi orðið umhorfs hjá
kallinum í neðra skal hins vegar
ósagt látið.
Morgunblaðið/Ingólfur
Sumartil-
tekt í neðra
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111