Morgunblaðið - 28.06.2002, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 11
PÉTUR Valdimar
Snæland, fyrrverandi
forstjóri, lést í
Reykjavík í gærmorg-
un. Pétur fæddist í
Hafnarfirði 10. janúar
1918, sonur hjónanna
Péturs V. Snæland
kaupfélagsstjóra og
Kristjönu Sigurðar-
dóttur Snæland hús-
freyju. Móðir hans
lést úr spænsku veik-
inni sama ár og Pétur
fæddist og ólst hann
því upp hjá móður-
systur sinni. Uppeldis-
foreldar hans voru Sveinn Hjartar-
son bakari og Steinunn Sigurðar-
dóttir húsfreyja.
Pétur var fyrstu starfsárin bú-
stjóri á Laugalandi í Laugardal eftir
að hafa lokið námi frá búnaðarskóla
í Danmörku. Hann lauk sveinsprófi í
plötu- og ketilsmíði frá Stálsmiðj-
unni í Reykjavík árið 1944. Hann
stofnaði fyrirtækið Pétur Snæland í
lok fimmta áratugarins. Fyrstu árin
var það bifvélaverkstæði en þegar
verkstæði hans á Há-
logalandi brann til
grunna nokkrum árum
síðar byrjaði Pétur sem
verktaki að leigja út
vörubíla, kranabíla,
loftpressur og aðrar
vélar sem hann keypti
af varnarliðinu og gerði
upp. Síðan stofnaði
hann svampgúmmí-
verksmiðju árið 1952
sem var með fyrstu
gúmmíverksmiðjum á
Norðurlöndum. Hann
framleiddi einnig Lin-
ova-málningu og gólf-
efni. Árið 1968 stofnaði hann fyrstu
svampverksmiðjuna hér á landi þar
sem hann framleiddi plastsvamp.
Fyrirtækin Pétur Snæland hf. og
Lystadún sameinuðust árið 1991 en
nokkrum árum áður hafði Pétur
sest í helgan stein.
Pétur var kvæntur Ágústu Pét-
ursdóttur Snæland sem lifir eigin-
mann sinn. Þau eignuðust fjóra
syni, Pétur, Svein, Halldór og
Gunnar.
Andlát
PÉTUR V.
SNÆLAND
Í SAMNINGI Búnaðarbanka Ís-
lands og fimm stofnfjáreigenda í
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis er eins og fram hefur
komið gert ráð fyrir að stofnfjár-
eigendurnir fái í sinn hlut ákveð-
inn gengismun vegna viðskipta
með stofnfé í SPRON. Auk þessa
gengismunar greiðir bankinn,
samkvæmt fyrstu grein samnings-
ins, allan kostnað vegna kaupanna,
þar með talið vegna hugsanlegra
málaferla og fjármögnunar vegna
lántöku. Þessu til viðbótar segir í
sjöttu grein samningsins að bank-
inn ábyrgist að stofnfjáreigend-
urnir fimm muni ekki bera fjár-
hagslegan skaða af kaupum á
stofnfé og lántöku samkvæmt
samningi þessum.
Sá gengismunur sem um ræðir
er munur á kaupgengi því sem
fimmmenningarnir greiða öðrum
stofnfjáreigendum og sölugenginu
sem þeir hyggjast selja bankanum
stofnféð á. Kaupgengið er 4,0 og
sölugengið 4,077 og mismunurinn
á þessu er gengismunurinn sem
áður var nefndur. Ef fimmmenn-
ingunum tekst að kaupa 67%
stofnfjárins eins og að er stefnt
verður hlutur þeirra samanlagt 25
milljónir króna, eða 5 milljónir
króna á mann. Kaupi þeir allt
stofnféð verður hluturinn um 37
milljónir króna, eða ríflega sjö
milljónir króna á mann. Þessar
greiðslur bankans til stofnfjáreig-
endanna fimm jafngilda um 1,9%
þóknun.
Yfirtökutilboð Búnaðarbankans
Stofnfjáreigendurnir
fimm fá 25–37 millj-
ónir króna í þóknun Morgunblaðið/Halldór SveinbjörnssonVestfjarða-
víkingurinn í
tíunda skipti
KRAFTAMÓTIÐ Vestfjarðavíking-
urinn hófst í gær í tíunda sinn, en
fyrsti liður keppninnar fór fram í
Vigur í Ísafjarðardjúpi þar sem
kapparnir reyndu með sér í steina-
tökum. Hér sést Guðmundur Otri
toga grjóthnullunga upp á tunnur.
Á vef Bæjarins besta kemur fram
að í dag verði haldið til Flateyrar í
Önundarfirði þar sem gengið verði
að hætti kraftmikilla bænda til
forna. Lokadagur keppninnar er
laugardagurinn þegar meðal ann-
ars verður keppt í vatnaraunum á
Suðureyri og uxagöngu á Ísafirði.
AÐSTANDENDUR Eldborgarhá-
tíðarinnar hafa kært eigendur Miða-
vefjarins ehf. til efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra fyrir að
hafa ekki staðið skil á greiðslum
vegna sölu á aðgöngumiðum að há-
tíðinni. Fjármálastjóri Miðavefjar-
ins var handtekinn í síðustu viku
vegna rannsóknar á meintu fjár-
málamisferli hjá fyrirtækjunum
Vísi.is og Fréttablaðinu þar sem
hann var einnig fjármálastjóri.
Forsaga málsins er sú að Mið-
avefurinn ehf. seldi miða að Eld-
borgarhátíðinni samkvæmt samn-
ingi við aðstandendur hátíðarinnar.
Seldir voru miðar fyrir 4,7 milljónir
króna og var þóknun Miðjavefjarins
404.040 kr. samkvæmt uppgjöri sem
fjármálastjóri Miðavefjarins undir-
ritaði. Samkvæmt samningnum átti
að gera upp andvirði seldra miða,
4,3 milljónir króna, eigi síðar en 10.
september 2001. Segir í kærunni að
þegar komið var að því að inn-
heimta upphæðina hafi komið fram
„alls kyns kröfur um skuldajöfnuð
við allt aðrar kröfur alls óskyldra
félaga.“
Aðstandendur hátíðarinnar höfð-
uðu einkamál sem endaði með því
að gerð var dómsátt, sem fjármála-
stjóri Miðavefjarins og lögmaður
hans undirrituðu, um ákveðna
skuldajöfnun við aðrar kröfur með
vörslufénu. Miðavefur samþykkti að
greiða 2,5 milljónir króna hinn 7.
júní sl. Kemur fram að sú greiðsla
hafi aldrei borist. Í kærunni segir
að ástæða þess að málinu var upp-
haflega stefnt sem einkamáli hafi
verið sú, að talið var að með því
myndi vörsluféð innheimtast fyrr en
með því að kæra málið til lögreglu.
Aðstandendur hátíðarinnar hafi
einnig samþykkt dómsátt með veru-
legri lækkun á fjárhæð sinni til að
fá einhverja fjármuni, en allar líkur
séu á því „að Miðavefur ehf. rambi
nú á barmi gjaldþrots“. Miðavefur
er í eigu SKÝRR, Vísis.is, Kuggs og
fleiri.
Kæra vanskil á
miðasölu vegna
Eldborgarhátíðar
Ítrekuð
innbrot
í Ketilási
í Fljótum
BROTIST var inn í útibú
Kaupfélags Skagfirðinga í
Ketilási í Fljótum aðfararnótt
miðvikudags, en lögreglan á
Sauðárkróki rannsakar málið
og nýtur til þess aðstoðar lög-
reglunnar á Siglufirði og á
Ólafsfirði.
Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki voru skemmdir
nokkrar, en ekki er að fullu
ljóst hverju var stolið.
Lögreglan segir að ítrekað
hafi verið brotist inn í Kaup-
félagið í fyrra og á þessu ári
og telur hún að um sömu að-
ilana sé að ræða, þar sem
margt sammerkt sé með
þessum innbrotum og gefi
það lögreglunni ákveðnar vís-
bendingar sem verið sé að
skoða.
Lögreglan biður fólk sem
einhverjar vísbendingar hefur
um innbrotin að hafa sam-
band og brýnir jafnframt fyr-
ir fólki að fylgjast vel með
eigum sínum á svæðinu en
töluvert er um sumarbústaði í
Ketilási.
Þá lagði lögreglan á Sauð-
árkróki hald á fíkniefni og
vopn í húsi í bænum er hún
gerði þar húsleit á þriðjudag.
Töluverð neysla hafði verið á
staðnum og játuðu eigendur
íbúðarinnar neyslu fíkniefna
og að hafa haft þau í vörslu
sinni.
Aðgerðin fór fram með
hjálp leitarhunds frá Akur-
eyri sem virkaði vel, að sögn
lögreglu, en hún hafði fylgst
með staðnum í nokkurn tíma.
Þeir sem játuðu hafa komið
við sögu lögreglu áður. Málið
telst upplýst.
STOFNFJÁREIGENDURNIR
fimm sem hafa milligöngu um yfir-
tökutilboð Búnaðarbankans hafa
sent öðrum stofnfjáreigendum í
SPRON bréf þar sem þeir fara fram
á aðstoð þeirra við til að fundur verði
boðaður á ný svo fljótt sem kostur
er. Á miðvikudag ákvað stjórn
SPRON að fresta fundi stofnfjár-
festa sem átti að fara fram í dag.
Þetta segjast fimmmenningarnir
gera til að tryggt sé að stofnfjáreig-
endur eigi möguleika á að selja
stofnfé sitt. Eigendur a.m.k. þriðj-
ungs stofnfjár þurfa að krefjast þess
að nýr fundur verði boðaður til að
svo verði og fylgir krafa með bréfinu
um boðun nýs fundar. Þeir hvetja
stofnfjáreigendur til að skrifa undir
hana og senda til lögmanns þeirra,
Jóns Steinar Gunnlaugssonar.
„Í [kröfunni] eru tilgreind þau
fundarefni sem taka verður fyrir á
þeim fundi sem afboðaður var ólög-
lega,“ segir í bréfinu. Þau fundarefni
eru (1) tillaga stjórnar SPRON um
að breyta SPRON í hlutafélag, (2)
tillaga stofnfjáreigenda um að af-
nema hámarkseign sérhvers stofn-
fjáreiganda og (3) tillaga stofnfjár-
eigenda um að stjórn SPRON muni
ekki standa gegn framsali stofnfjár-
hluta í sparisjóðnum. „Algjör for-
senda fyrir því að stofnfjáreigendur
geti selt stofnfé í sinni eigu með öðr-
um hætti en tillaga stjórnar SPRON
gengur út á er að hafna tillögu
stjórnar SPRON (tillaga 1) og sam-
þykkja tillögur stofnfjáreigenda (til-
lögur 2 og 3), sem hér eru tilgreindar
að ofan. Að öðrum kosti verður
stofnfé SPRON að okkar mati illselj-
anlegt og í það minnsta til muna
verðminna en framkomið tilboð,“
segir í bréfinu.
Fimmmenningum neitað um
lista yfir stofnfjáreigendur
Jón Steinar Gunnlaugsson segist
gera ráð fyrir því að það takmark ná-
ist að fá eigendur þriðjungs stofnfjár
til að krefjast nýs fundar. „Við ger-
um ráð fyrir því að stofnfjáreigendur
í Sparisjóðnum standi með fimm-
menningunum í stórum stíl.“ Hann
segir að ýmsir hafi haft samband og
einnig hafi verið rætt við nokkra.
Jón Steinar segir að forsvarsmenn
SPRON hafi neitað að afhenda lista
yfir stofnfjáreigendur þótt skylt sé
samkvæmt samþykktum sparisjóðs-
ins að veita stofnfjáreigendum að-
gang að listanum. Þeim hafi einungis
verið heimilað að skoða listann á
skrifstofu SPRON en stofnfjáreig-
endur eru rúmlega 1100 talsins. „Við
teljum að sú skýring á þessu ákvæði
sé út í hött, það er alveg augljóst að
þegar það er tryggt í samþykktum
að stofnfjáreigendur hafi aðgang að
listanum að þá hljóti að felast í því
heimild til að fá afrit af honum.“ Jón
Steinar telur að auðsótt væri að fara
til sýslumanns og krefjast þess að fá
listann afhentan. Hann telur óvíst að
það verði gert. Vel geti verið að þau
nöfn sem fimmmenningarnir hafa nú
þegar dugi til.
Bréf fimmmenninganna til stofnfjáreigenda SPRON
Vilja að fundur verði
boðaður sem fyrst á ný
Er ósáttur
við aðgerðir
lögreglu
ÍVAR Hannesson, eigandi veitinga-
staðarins Club Diablo, sem sviptur
var tímbundið vínveitingaleyfi, vill
að það komi fram að lögreglan í
Reykjavík hafi ekki haft samband við
hann út af leyfissviptingunni og er
hann mjög ósáttur við þessar að-
gerðir.
„Ég hef fengið ýmis bréf frá þeim
en ekki neitt þar sem tilkynnt er um
tímabundna sviptingu áfengisleyfis,“
segir hann og bætir við að hann hafi
rætt við lögfræðinga og hyggist leita
réttar síns. Hann leggur áherslu á að
hann hafi ítrekað skýrt fyrir lögreglu
að enginn fari inn á Club Diablo skil-
ríkjalaus, en ástæða leyfissvipting-
arinnar er dvöl unglinga undir ald-
ursmörkum á staðnum og telur hann
að ekki sé alltaf hægt að greina hvort
skilríki séu fölsuð eða ekki.
Ívar segir að hann fari eftir lögum
og að staðurinn verði lokaður um
helgina en hann hyggst halda
ótrauður áfram og opna aftur fyrstu
helgina í júlí.